Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020 MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.isÁgúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfssonmenning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Framleiðendur íslensku gaman- myndanna Ömmu Hófíar og Síðustu veiðiferðarinnar eru hæstánægðir með viðtökur landsmanna. Það sem af er ári hafa rétt um þrjátíu þúsund Íslendingar séð síðarnefndu kvik- myndina. Þetta segir Örn Marinó Arnarson, annar framleiðenda myndanna. Örn hefur unn- ið að framleiðslu myndanna með samstarfsfélaga sínum til margra ára, Þorkeli S. Harðarsyni. „Við erum búnir að vera alveg heillengi í þessum bransa. Við höfum gert heimildarmyndir í tutt- ugu ár en langaði þó alltaf að gera bíómyndir,“ segir Örn, en báðar framangreindar myndir hafa hlotið góðar viðtökur. Amma Hófí situr nú á toppnum yf- ir vinsælustu kvikmyndir landsins, en rétt um þrjú þúsund manns sáu myndina í kvikmyndahúsum nú um helgina. Þá hafa alls um fjögur þús- und manns séð myndina frá því að hún kom í sýningu í síðustu viku. Dreifingaraðili myndarinnar hér á landi er Myndform en myndin er sýnd í Laugarásbíói, Smárabíói og víða á landsbyggðinni. Myndin fjallar um tvo eldri borgara, Hófí og Pétur, sem eru orðin leið á dvöl á elliheimili og ákveða að ræna banka. Úr verður skemmtileg atburðarás með fjölda spaugilegra uppákoma. Aðspurður segir Örn að markmið myndarinnar sé að létta landanum lundina. „Við viljum að fólk komi og skemmti sér enda er þetta hörku- mynd. Svo er auðvitað bara plús að þetta skuli vera íslenskt efni,“ segir Örn. Tvær myndir í bígerð Ljóst er að heimsfaraldur kórónu- veiru hefur nú þegar valdið kvik- myndahúsum um heim allan gríðar- legu tjóni. Víðast hvar í heiminum liggur kvikmyndaframleiðsla niðri auk þess sem kvikmyndahús hafa sum hver þurft að skella í lás. Hér á landi voru kvikmyndahús lokuð í um sex vikur, og þegar þau loks voru opnuð var lítið til af erlendu sýn- ingarefni. Að sögn Arnar var af þeim sökum ákveðið að flýta framleiðslu framan- greindrar kvikmyndar. „Myndform stakk upp á því að við hröðuðum ferl- inu. Það átti ekki að sýna Ömmu Hófí fyrr en í október en við ákváðum að keyra allt í botn og þetta rétt náðist. Eftirvinnsluteymið liggur bara núna og sleikir sárin,“ segir Örn og bætir við að framleiðsla fleiri kvikmynda sé á döfinni. Í gær hófust tökur á gamanmyndinni Síðasta sauma- klúbbnum, sem svipar mjög til Síð- ustu veiðiferðarinnar, en í stað karla fara konur með öll aðalhlutverk. Myndin fer í sýningar við upphaf næsta árs. Næsta sumar hefst sömu- leiðis framleiðsla á einni mynd til við- bótar, Allra síðustu veiðiferðinni. „Það verður nóg að gera á næstunni. Eftir að við byrjuðum að gera bíó- myndir getum við ekki hætt.“ Íslenskar bíómyndir njóta vinsælda  Rétt um fjögur þúsund manns hafa séð Ömmu Hófí Tökur Kvikmyndin Amma Hófí situr nú á toppnum yfir vinsælustu kvikmyndir landsins. Opnunarhelgin var stór. Örn Marinó Arnarson „Það er minna af geitungum í ár en í fyrra segi ég, og þetta er í fyrsta skipti sem ég finn það,“ segir Steinar Smári Guðbergsson meindýraeyðir. Steinar hefur fengið færri beiðnir um að fjarlægja geitungabú í ár en á sama tíma í fyrra, þótt þeir hafi verið seint á ferðinni það ár. „Þeir byrjuðu seinna því vorið var svolítið kalt í fyrra. Þannig að ég hugsa að núna þegar líður að ágúst, næstu 5-10 daga, muni síminn varla stoppa hjá mér út af geitungabúum,“ segir hann. Steinar hefur fjarlægt ófá geit- ungabú í gegnum tíðina, þar sem þessir óboðnu gestir geta reynst fólki hvimleiðir. Trjágeitungar eru flestir fyrripart sumars, en holugeit- ungar, sem eru öllu grimmari tegund, allt fram í október. Vinsæl- asti staðurinn hjá trjágeitungum er í tvöföldu grindverki; undir efstu lá- réttu spýtunni í standandi grind- verki. Holugeitungar eru líklegri til að hreiðra um sig í byggð, húsagörðum og holum í jörðu. Steinar segir að holugeitungarnir séu öllu verri en trjágeitungar þegar þeir eru bornir saman; „Holugeitungarnir eru allir graut- fúlir, þeir fæddust reiðir. Trjágeit- ungurinn flýgur frá a til b, nema ver- ið sé að hamast í honum. Holugeitungurinn getur hins vegar verið að fljúga leiðar sinnar en ákveðið síðan bara að stinga þig,“ segir Steinar. Geitungar færri á ferðinni nú en á sama tíma í fyrra  Meindýraeyðir býst þó við að þeim fjölgi á næstunni Ljósmynd/Wikipedia „Reiður“ Holugeitungur er líklegur til að stinga að ástæðulausu. Alexander Kristjánsson Ragnhildur Þrastardóttir Framhaldsskólanemendur sem voru á tjaldsvæðinu í Varmalandi í Borgarfirði hringdu þrisvar á lög- regluna vegna slagsmála sem höfðu brotist út á tjaldsvæðinu um helgina, að sögn nemanda sem vill ekki láta nafns síns getið. Sá hinn sami segir að hópur fólks hafi verið samankominn með hnúa- járn og kylfur og síðar hafi komið í ljós að fólkið hafi verið með loft- byssur. Urðu ekki varir við vopn Njáll Halldórsson, tjaldvörður í Varmalandi, kannast ekki við neinn vopnaburð. „Við urðum alls ekki varir við neitt slíkt og ekkert slíkt kom fram hjá lögreglu,“ segir Njáll. Nemandinn segir að hringingar nemenda í lögreglu hafi borið tak- markaðan árangur. „Í fyrsta sinn sem við hringdum vorum við spurð hvort það væri ekki neinn ábyrgðarmaður á svæðinu og feng- um þær upplýsingar að það væri enginn til taks til að fara á svæðið,“ segir nemandinn. Í annað skiptið hafi lögreglan ætlað að kíkja við, en hún hafi látið nægja að líta á staðinn úr fjarlægð án þess að koma inn á tjaldsvæðið og skakka leikinn. Njáll segir að lögreglan hafi skakkað leikinn. „Lögreglan kom hingað og sá til þess að allt færi sómasamlega fram.“ Morgunblaðið greindi frá slags- málunum í gær og var þess þar get- ið að á svæðinu hefði verið ungt fólk úr nemendafélögum Flensborgar- skóla í Hafnarfirði og Fjölbrauta- skólans í Garðabæ. Nemandanum þykir leiðinlegt að nöfn skólanna tveggja séu dregin inn í umræðuna, enda hafi útilegan ekki verið á veg- um nemendafélaganna. „Þeir sem eru virkastir í nemendafélaginu voru á fullu að reyna að stoppa slagsmálin og tékka á fólki,“ segir nemandinn og bætir við að Njáll hafi verið yndislegur og hjálpað til. Blaðamaður hafði samband við Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóra á Vesturlandi, vegna málsins en hann sagðist ekki vera með málið „í koll- inum“. Spurður um það hver hefði séð eða sæi um málið sagðist Úlfar ekki klár á því. Áliðið var kvölds þegar slagsmál- in brutust út en hvorki er ljóst á milli hverra þau voru né hvers vegna þau brutust út. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Njáll að kannski hefðu verið gerð mistök með því að hleypa tveimur stórum hópum inn á svæð- ið samtímis. Þá sagði hann að lær- dómur yrði dreginn af því. Tvennum sögum fer af vopnaburði  Tjaldvörður segist ekki hafa orðið var við vopn en nemandi segir aðra sögu Morgunblaðið/Theodór Varmaland 200 manns voru á tjaldsvæðinu, þar af tveir stórir hópar nema.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.