Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020 Bionette ofnæmisljós Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Bionette ofnæmisljós er byltingakennd vara semnotar ljósmeðferð (phototherapy) til að draga úr einkennumofnæmiskvefs (heymæðis) af völdum frjókorna, dýra, ryks/ rykmaura og annarra loftborinna ofnæmisvaka. FÆST Í NÆSTA APÓTEKI Fullkomið fatbrauð f yrir öll tækifæri Bilanir hafa komið upp í Magna, hin- um nýja dráttarbáti Faxaflóahafna. Varð að ráði að sigla bátnum til Hol- lands, þar sem gert verður við hann. Magni lagði af stað utan í lok síðustu viku og er von á honum til baka í næsta mánuði. Magni kom til Reykjavíkur 27. febrúar sl. eftir rúmlega 10 þúsund sjómílna siglingu frá Víetnam þar sem báturinn var smíðaður. Skipa- smíðastöðin Damen Shipyards í Hol- landi smíðaði bátinn, en hún rekur skipasmíðastöðina í Víetnam. Faxa- flóahafnir greiddu jafnvirði 1.040 milljóna króna fyrir Magna sam- kvæmt útboði. Fljótlega fór að bera á bilunum í bátnum. Í ljós kom að þegar honum var siglt til Hollands á sínum tíma var dælt í hann óhreinni olíu í Singapúr, sem hafði áhrif á aðalvél og ljósavél. Enn fremur virkaði togspilið ekki sem skyldi, að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra. Damen vildi fá bátinn til sín til Hollands þar sem til stendur að hreinsa tanka, taka upp spíssa í aðalvél og laga spilið. Damen mun bera allan kostnað af viðgerðinni. Gísli J. Hallsson yfirhafnsögumaður er skipstjóri Magna í ferðinni út. Hann mun hafa umsjón með viðgerð- inni af hálfu Faxaflóahafna. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýi Magni Dráttarbáturinn kemur til hafnar í Reykjavík í lok febrúar. Nýi Magni sigldi til Hollands í viðgerð Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis hef- ur hafnað umsókn Vöku björgunar- félags um starfsleyfi fyrir geymslu- svæði fyrir bifreiðar og tæki á landi fyrirtækisins á Leirvogstungu- melum. Ástæðan er neikvæð umsögn skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar sem telur starfsemina ekki í samræmi við aðalskipulag og skipulagsreglur. Fyrirtækinu er gert að hreinsa allt rusl, bílhræ og tæki af svæðinu fyrir 1. september. Eftir að bæjaryfirvöld höfðu kvartað yfir notkun landsins, meðal annars söfnun bílhræja og gáma, sem ekki er talin í samræmi við skipulag, og yfir slæmri umgengni fór heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis fram á að Vaka legði fram tímasetta áætlun um hreinsun svæðisins. Það gerði fyrirtækið um miðjan síðasta mánuð. Í henni kemur fram að hreinsun verði lokið á einu svæði fyr- ir lok júní, tveimur til viðbótar fyrir miðjan júlí og því fjórða fyrir lok júlí. Jafnframt kemur fram að fyrirhugað væri að safna saman á eitt svæði stærri ökutækjum og gámum. Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis féllst á þau tímamörk sem fram komu í tillögu Vöku um hreinsun svæðanna en hafnaði söfnun á efni á eitt svæði sem Vaka vildi hafa leyfi til að gera. Gefinn var lokafrestur til 1. september til hreinsunar alls landsins. Árni Davíðsson, staðgeng- ill framkvæmdastjóra Heilbrigðis- eftirlits Kjósarsvæðis, staðfestir þá túlkun í samtali við blaðamann að hreinsa þurfi allt svæðið fyrir 1. september og ekkert megi skilja þar eftir en vekur um leið athygli á því að hægt sé að kæra ákvörðun heil- brigðisnefndar til úrskurðarnefndar. Telur Árni líklegt að skoðað verði eftir miðjan mánuðinn og aftur eftir mánaðamót hvernig hreinsun lands- ins gangi. Þurfa að fara að skipulagi Á skipulagi er landið sem Vaka keypti á árinu 2018 og hefur notað sem geymslusvæði sýnt sem óbyggt svæði. Heilbrigðisnefnd hafnaði að veita starfsleyfi til reksturs geymslusvæðisins á þeim grundvelli og með vísan til neikvæðrar umsagn- ar skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar. Vaka hyggst byggja höfuðstöðvar sínar á öðrum stað á landinu. Staða málsins var kynnt á síðasta bæjarráðsfundi Mosfellsbæjar. Har- aldur Sverrisson bæjarstjóri segir að málið sé einfalt. Ekki sé hægt að hefja starfsemi og koma upp geymsluaðstöðu á svæði sem ekki hefur verið skipulagt til þess. Allir þurfi að fara eftir gildandi skipulagi og ganga vel um. Þurfa að hreinsa allt geymslusvæðið  Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis hafnar umsókn Vöku um starfsleyfi fyrir geymslusvæði á Leirvogs- tungumelum  Fyrirtækið þarf að fjarlægja bílhræ, gáma og tæki af landi sínu fyrir 1. september Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leirvogstungumelar Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ kvörtuðu snemma vors undan ólögmætu geymslusvæði og slæmri umgengni á landi Vöku. „Þetta er sannarlega stór áfangi fyr- ir okkur, að vera komin í framtíðar- húsnæði,“ segir Böðvar Bjarki Pét- ursson, stjórnarformaður Kvik- myndaskóla Íslands, en skólinn hefur gert 20 ára leigusamning við Fasteignaþróunarfélagið Festi um leigu húsnæðisins á Suðurlands- braut 18, sem Olíufélagið Esso reisti árið 1975. Böðvar Bjarki segir skólann hafa verið á „ótrúlegum“ hrakhólum mörg undanfarin ár með húsnæði. Síðustu fimm árin hefur starfsemin verið við Grensásveg 1. Þar áður var skólinn í Þverholti, í Ofanleiti þar sem HR var, í gamla Sjónvarpshús- inu við Laugaveg 176 og áður í hin- um gömlu húsakynnum Stöðvar 2 á Lynghálsi. Í fyrsta áfanga mun skólinn leigja um 70% af húsinu en stefnt er að því að allt húsið verði komið í leigu skól- ans innan þriggja ára. Unnið verður að aðlögun hússins að starfsemi Kvikmyndaskólans nú í sumar. Byggð verða stúdíó og tæknirými á neðstu hæðunum. Á efri hæðunum verða leiklistarsalir, kennslurými og ýmsar vinnslustöðvar. „Húsið er vandað og vel með farið, harðviður í gluggum og Sambandið hefur greinilega gert vel við sig,“ segir Böðvar Bjarki. Kvikmyndaskóli Íslands er 27 ára á þessu ári. Yfir 100 íslenskir nem- endur stunda nám við skólann en í haust stóð til að um 20 erlendir nem- endur kæmu, einkum bandarískir, en Böðvar Bjarki segir það tefjast til áramóta hið minnsta, vegna kórónu- veirufaraldursins. „Það er mikill áhugi á náminu, bæði hér og erlendis, og biðlistarnir hafa lengst í þessu ástandi,“ segir Böðvar Bjarki en kennsla hefst á Suðurlandsbraut 18 hinn 20. ágúst næstkomandi. bjb@mbl.is Af hrakhólum í Esso-húsið  Kvikmyndaskóli Íslands gerir 20 ára leigusamning um Suðurlandsbraut 18 sem Olíufélagið reisti á sínum tíma Kvikmyndaskólinn Nýtt aðsetur næstu árin við Suðurlandsbraut 18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.