Morgunblaðið - 14.07.2020, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020
Leikur Það er merkilegt hversu einfalt getur verið að hafa gaman og geta
töfrar sápukúlunnar veitt börnum á öllum aldri ómælda gleði.
Kristinn Magnússon
Margir sem komnir
eru á efri ár velta fyrir
sér framtíðinni engu
síður en ungviðið sem
nú er að stíga inn á
sviðið. Æ fleiri gera sér
ljóst að lífveran Homo
sapiens, þ.e. tegundin
maður, ógnar nú eigin
lífsskilyrðum og tilveru
með margvíslegu móti.
Hættan af styrjaldar-
átökum með gereyðingarvopnum er
enn sem fyrr til staðar, en við hefur
bæst ný og aukin vitneskja um
háskalegar breytingar sem tegund
okkar hefur á almenn lífsskilyrði á
jörðinni. Þar eru loftslagsbreytingar
af mannavöldum og ógnin sem af
þeim stafar orðnar á flestra vitorði,
stjórnvalda sem og almennings. Erf-
iðlega hefur gengið að fá menn til að
horfast í augu við víðtæka röskun
vistkerfa vegna atvinnuhátta og
landnotkunar, enda samhengið
flóknara og á sér oft langan aðdrag-
anda og rætur í búskaparháttum
fyrri tíðar. Um báða þessa þætti,
loftslagsbreytingarnar og röskun líf-
kerfa, var fjallað að frumkvæði Sam-
einuðu þjóðanna í aðdraganda Ríó-
ráðstefnunnar 1992 og þar var lagð-
ur grundvöllurinn að alþjóða-
samningum um hvoru tveggja sem
Ísland gerðist formlegur aðili að
þegar árið 1994.
Ógnvænleg eyðing lífvera
af mannavöldum
Fjölbreytni lífvera á tilteknu
svæði birtist í genamengi, fjölda teg-
unda og vistkerfum. Samhliða aukn-
um rannsóknum og skráningu líf-
vera undanfarna áratugi hefur
þekking á fjölda þeirra og útbreiðslu
vaxið hröðum skrefum á heimsvísu.
Þó vantar mikið upp á að skýrt
heildaryfirlit liggi fyrir. Jafnframt
hefur komið í ljós að rýrnun og eyð-
ing vistkerfa fyrir tilverknað manna
fer vaxandi hröðum
skrefum og með því
deyr út fjöldi tegunda
og afbrigða þeirra ár
hvert. Fyrir ári kom út
skýrsla Sameinuðu
þjóðanna um þetta efni
(Nature’s Dangerous
Decline ‘Unpreceden-
ted’; Species Ext-
inction Rates ‘Accele-
rating’). Samkvæmt
niðurstöðum skýrsl-
unnar eru leiddar líkur
að því að fram á miðja
þessa öld, næstu 30 ár, muni um ein
milljón dýra- og plöntutegunda
deyja út fyrir tilverknað manna.
Meðal helstu ástæðna fyrir hnign-
un og útdauða lífvera eru gróðureyð-
ing, einkum náttúrulegra skóga, til-
koma og útbreiðsla ágengra
tegunda, vaxandi mengun, loftslags-
breytingar og ofnýting og ofveiði á
landi og í sjó. Fólksfjöldi á jörðinni
hefur tvöfaldast á síðustu 50 árum,
er nú um 7,6 milljarðar og stefnir í
11 milljarða í lok þessarar aldar.
Þessi mannfjöldi leggst af gífur-
legum þunga á vistkerfi jarðar. Álag
og inngrip í umhverfið af manna-
völdum er því meginorsök fyrir tapi
líffræðilegrar fjölbreytni á okkar
tímum. Augljóst dæmi er ör fækkun
skordýra, m.a. býflugna, sem
frjóvga nytjaplöntur sem eru undir-
stöðufæða fyrir meirihluta mann-
kyns. Sjúkdómsvaldar af völdum
veira eiga uppruna sinn í dýraríkinu,
kórónuveiran t.d. talin komin úr
leðurblökum. Heilbrigði dýra er
samofið heilsu manna, og veirur eru
taldar líklegri en ella að breiðast út í
líffræðilega einsleitu umhverfi.
Íslendingar seinir að vakna
Áratugir liðu hérlendis án þess að
nokkuð marktækt gerðist til að
fylgja eftir samningnum um líf-
fræðilega fjölbreytni. Ákvæði voru
að vísu sett í lög um náttúruvernd
1999 um að sporna bæri við út-
breiðslu og dreifingu ágengra fram-
andi lífvera en eftirfylgnin varð lítil,
eins og best sést af langvarandi
dreifingu lúpínu á vegum opinberra
aðila allt frá því um miðja síðustu
öld. Á Náttúrufræðistofnun Íslands
og á náttúrustofum hefur þó verið
unnið gott starf við að fylgjast með
afkomu dýrastofna og halda utan um
válista á samræmi við kerfi Alþjóða
náttúruverndarsamtakanna IUCN.
Einnig við að greina slæðinga og
vara við útbreiðslu skaðvalda.
Hömlulaus innflutningur og dreifing
plantna inn í sérstætt gróðurríki
landsins, ásamt brotakenndri
fræðslu í skólum, er hins vegar
áhyggjuefni.
Fjárbændur og Landgræðslan
taka höndum saman
Hnignun og eyðing jarðvegs og
gróðurs er dapurlegur arfur úr for-
tíðinni, sem reynt hefur verið að
bregðast við hérlendis í meira en
öld. Þótt margt hafi þar áunnist eig-
um við enn langt í land með að
endurheimta og reisa við náttúruleg
vistkerfi á stórum hluta Íslands. Það
sem einkum hefur skort á er góð
þekking á ástandi beitarlanda og
skipuleg landnotkun af hálfu bænda.
Þann 18. júní síðastliðinn var kynnt-
ur til sögunnar afrakstur af sam-
starfi sauðfjárbænda og Land-
græðslunnar undir heitinu GróLind
til að safna upplýsingum um ástand
beitilanda um land allt og fá sem
skýrasta mynd af einstökum þátt-
um, þar á meðal um fjölda fjár á við-
komandi svæðum. Styðjast á við ný-
leg lög um landgræðslu og sjálfbæra
landnýtingu, en reglugerð þar að
lútandi er í vinnslu. Kortasjá GróL-
indar sem nú hefur verið opnuð á að
gera vinnu Landgræðslunnar mark-
tækari í samvinnu við bændur og al-
menning. Gróft mat sýnir að um 45%
landsins eru nú gróðurfarslega í
bágu ástandi og aðeins um fjórð-
ungur telst vera í besta flokki. Lág-
marksfjármagn til verkefnisins á að
vera tryggt samkvæmt Búvöru-
samningi og hér verður að bæta við
eftir þörfum. Hrossabeit á úthaga og
gróðurvinjar er ekki síður áhyggju-
efni, þótt dregið hafi úr upprekstri
hrossa á afréttir. Hrossaeign lands-
manna er nú nálægt 70 þúsund. At-
hygli vekur afar takmörkuð þátttaka
hrossaeigenda í verkefninu Haga-
gæði með Landgræðslunni, þar sem
aðeins 50 voru skráðir á síðasta ári.
Hér þarf greinilega vitundarvakn-
ingu og aðhald. Fjöldi þéttbýlisbúa á
hér hlut að máli og sýn þeirra
margra hverra til landnotkunar er
ábótavant.
Endurreisn náttúrulegs
gróðurríkis
Vistvæn endurreisn gróðurríkis
lands okkar er stórmál ekki síður en
umgengni við auðlindir ferskvatns
og sjávar. Mikið er undir því komið
að nýrri og löngu tímabærri löggjöf
um landgræðslu og skógrækt verði
fylgt eftir á vegum umhverfis- og
auðlindaráðuneytis og undirstofn-
ana. Það voru að mínu mati mistök
hjá Alþingi að fella lög um gróður-
ríki landsins ekki í eina heild með
viðkomandi undirþáttum. Aðal-
atriðið er þó að tryggja vistvæna
nýtingu og ábyrga landnotkun sam-
kvæmt gagnsæju skipulagi. Friðun
gróðurríkisins fyrir ofnýtingu er ár-
angursríkasta leiðin til endurreisnar
þess. Lausaganga búfjár ætti fyrr
en seinna að heyra sögunni til og
fella þarf skógrækt að verndun birk-
is og annarra innlendra tegunda í
langtum meiri mæli en nú tíðkast.
Hvarvetna þar sem gróðurríkið fær
frið til að dafna lagar það sig að stað-
háttum og fellur að ásýnd landsins. –
Um þetta má sjá dæmi í öllum lands-
hlutum þar sem beit hefur verið tak-
mörkuð. Eitt slíkt sýnishorn blasir
nú við á ferð um Skeiðarársand (sjá
meðfylgjandi mynd). Þar er náttúru-
legur birkinýgræðingur og lág-
gróður í örum vexti á sandi sem
jökulhlaup fór yfir fyrir aldarfjórð-
ungi. Leggjumst þannig á sveif með
náttúru lands okkar og hún mun
spjara sig fyrr en nokkurn varir.
Eftir Hjörleif
Guttormsson
»Enn eigum við langt
í land með að endur-
heimta og reisa við
náttúruleg vistkerfi á
stórum hluta Íslands.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Leggjumst á sveif með náttúru landsins okkar
Ljósmynd/Snævarr Guðmundsson
Sjálfsáið birki í örum vexti á Skeiðarársandi.
Fyrir nokkru birtust
á samráðsgátt stjórn-
valda drög að frum-
varpi þar sem lagðar
eru til ýmsar breyt-
ingar, sem einkum
varða II. kafla stjórnar-
skrárinnar, forseta-
embættið, ríkisstjórn,
verkefni fram-
kvæmdarvaldsins o.fl.
Birting frumvarps-
draganna er liður í þeirri vinnu sem
núverandi ríkisstjórn kom af stað
vegna endurskoðunar stjórnarskrár-
innar og byggir í grundvallaratriðum
á tveimur meginforsendum; annars
vegar á því að leita sem víðtækastrar
samstöðu og hins vegar að endur-
skoðunarvinnunni sé skipt upp í af-
markaða verkþætti og tilteknir kaflar
stjórnarskrárinnar teknir fyrir í
hverjum áfanga. Eru þetta fjórðu
frumvarpsdrögin sem birt eru í sam-
ráðsgátt, en áður hafa verið birt drög
að nýjum ákvæðum um náttúru og
umhverfi, auðlindir landsins og ís-
lenska tungu. Drögin eru samin af
sérfræðingum í kjölfar vinnu sem átt
hefur sér stað í nefnd á vegum for-
sætisráðherra sem skipuð er for-
mönnum allra stjórnmálaflokka sem
fulltrúa eiga á Alþingi. Tekið er fram
að birting á samráðsgátt feli ekki á
þessu stigi í sér skuldbindingu af
hálfu formannanna um að þeir muni
flytja eða styðja framlagningu sam-
bærilegs frumvarps á Alþingi.
Margt er prýðilegt í þeim frum-
varpsdrögum sem nú hafa verið birt á
samráðsgáttinni en annað vekur
óneitanlega spurningar. Margir, þar
á meðal sá sem þetta skrifar, hafa
verið þeirrar skoðunar að megin-
markmið breytinga á
þeim ákvæðum
stjórnarskrárinnar sem
varða forsetaembættið
hljóti að vera að færa
orðalag ákvæðanna nær
raunveruleikanum; nær
þeirri framkvæmd sem
við þekkjum frá undan-
förnum áratugum og
byggir annars vegar á
hefðbundinni túlkun
viðkomandi ákvæða og
hins vegar á stjórnskip-
unarvenjum. Ljóst er að
í þessum drögum er gengið talsvert
lengra og gert ráð fyrir breytingum
sem eru efnislegar en varða ekki bara
form og framsetningu. Mikilvægt er
að einstakar tillögur af því tagi fái
góða umfjöllun bæði meðal almenn-
ings og fræðimanna áður en lengra er
haldið. Meðal þeirra atriða sem þarf
þannig að ræða eru ákvæði frum-
varpsins um lengd og fjölda kjör-
tímabila forseta, auk aðkomu forseta
að stjórnarmyndun og þingrofi, svo
nokkur dæmi séu nefnd. Ákvæðið um
þingrof gefur sérstaklega tilefni til
meiri umfjöllunar.
Þá þarf þessu til viðbótar að skoða
nánar hvort ekki megi ganga lengra
en frumvarpið gerir ráð fyrir í þá átt
að fella á brott ákvæði sem gera ráð
fyrir formlegri aðkomu forseta að
ákvörðunum sem í raun eru alfarið
teknar af ráðherrum og á þeirra
ábyrgð. Slíkar breytingar myndu fyr-
irbyggja margháttaðan misskilning.
Loks má nefna að ástæða er til um-
ræðu um hina sérstöku reglu í 26. gr.
um synjunarvald forseta gagnvart
lögum frá Alþingi. Þar er ekki gert
ráð fyrir efnislegri breytingu í frum-
varpsdrögunum en engu að síður er
tilefni til umfjöllunar um þetta fyrir-
komulag.
Þá er jafnframt mikilvægt sam-
hliða þessu að frekari umræður fari
fram almennt um eðli og inntak for-
setaembættisins, hvort forseti eigi að
vera afskiptasamari en verið hefur
um ákvarðanir sem að jafnaði hafa
verið á verksviði ríkisstjórnar og Al-
þingis og þannig virkari þátttakandi í
stjórnmálabaráttu líðandi stundar. Sá
sem þetta ritar hefur verið þeirrar
skoðunar að forseti eigi fyrst og
fremst að gegna formlegum skyldum
sem þjóðhöfðingi og koma fram sem
ákveðið sameiningartákn. Forseti
geti því til viðbótar haft mikil áhrif
með orðum sínum og gerðum en bein
völd og ákvarðanataka á sviði fram-
kvæmdarvalds og löggjafarvalds eigi
að vera í höndum ríkisstjórnar og Al-
þingis. Menn geta vissulega verið
annarrar skoðunar og talið að forseti
eigi að gegna veigameira hlutverki
varðandi stjórnmálalegar ákvarðanir.
Ef vilji er til að ganga lengra í þeim
efnum er hins vegar eðlilegt og nauð-
synlegt að slík stefna verði mörkuð
með meðvituðum hætti í kjölfar ítar-
legra umræðna. Aðalatriðið er að
niðurstaða vinnunnar verði skýr
stjórnarskrárákvæði um völd og
verksvið forseta.
Eftir Birgi
Ármannsson
Birgir Ármannsson
»Markmið breytinga
á ákvæðum um for-
setaembættið á að vera
að færa textann nær
raunveruleikanum, í
samræmi við viðtekna
túlkun og stjórnskip-
unarvenjur.
Höfundur er formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Hvernig forsetaembætti?