Morgunblaðið - 14.07.2020, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Honeywell
keramik hitarar
Kalt? Hitaðu uppmeðHoneywell
Viftur
Hitarar
Lofthreinsitæki
www.gilbert.is
Þjóðhátíðardaginn
14. júlí er vel við hæfi
að tala um Frakkland
á okkar dögum, lífs-
kraft þjóðarinnar og
nútímaleg viðhorf,
óháð klisjunum sem
loða við, oft jákvæðar
en stundum úr sér
gengnar.
Rétt er að Frakk-
land er land matar-
gerðarlistar, hátísku,
bókmennta og kvikmynda, þangað
leita tugir milljóna ferðamanna ár
hvert að njóta landsins og fjöl-
breytni í menningu og landslagi.
Þjóðverjar eiga orðtak sem hljóð-
ar einhvern veginn svo: „Að lifa
eins og Guð í Frakklandi“ (Leben
wie Gott in Frankreich). Vart
verður meira lof borið á franska
lífskúnst.
En Frakkland á ótalmargar
aðrar hliðar: Þar er nútímalegt
samfélag, dugandi, framsækið og
framsýnt. Það framleiðir ekki
bara osta og úrvalsvín heldur líka
hraðlestir, bíla, flugvélar og geim-
flaugar. Bráðlega er komið að því
að endurnýjanleg orka, líftækni og
þjarkafræði taki við vegna geysi-
legra fjárfestinga í rannsóknum
og þróun á þessum sviðum. Sem
dæmi nefni ég nýsköpunargarðinn
Station F í París, sem hýsir meira
en 1.000 fyrirtæki í nýsköpun, og
Rannsóknamiðstöð Frakklands
(CNRS), eina helstu rannsókna-
stofnun í heimi sem á í miklu sam-
starfi við Rannís. Menningin er
líka jarðvegur fyrir nýsköpun eins
og vel sést í sýningunni „Sol-
astalgia“ í Listasafni Íslands þar
sem tveir ungir franskir listamenn
taka gagnaukinn veruleika í sína
þjónustu.
Franskir úrvalsskólar taka á
hverju ári við hundruðum þúsunda
erlendra stúdenta, þar á meðal Ís-
lendingum, í nám í verkfræði, hag-
fræði, stærðfræði og öðrum grein-
um. INSEAD-viðskiptaskólinn,
með aðsetur í borg-
inni Fontainebleau í
nágrenni Parísar, sit-
ur reglulega í efsta
sæti lista yfir þessa
skóla í Evrópu og á
hverju ári veitir
franska sendiráðið
framúrskarandi ís-
lenskum stúdentum
styrki til náms á ýms-
um sviðum í Frakk-
landi.
Franskt efnahagslíf
er opið og hefur margt til síns
ágætis, það sést best á því að árið
2019 var landið í fyrsta sæti yfir
erlendar fjárfestingar í Evrópu og
stofnun rannsóknasetra. Stundum
vill gleymast að Frakkland ræður
yfir næststærstu efnahagslögsögu
í heimi með öflugan flota og mikla
áherslu á verndun hafanna og
fjölbreytni lífríkisins í þeim.
Þannig hefur nýskipuð ríkisstjórn
landsins sett á stofn ráðuneyti
hafsins til að standa vörð um
þessi áherslumál.
Eins og Ísland stendur Frakk-
land nú andspænis margvíslegum
afleiðingum COVID-19-faraldurs-
ins og sviptingum sem leiða af
hlýnun loftslags, byltingu tölvu-
tækninnar og nýrri heimsmynd í
mótun. Á þessum óvissutímum
stýra bæði löndin eftir áttavita
sameiginlegra gilda, sömu tryggð
við mannréttindi, marghliða sam-
starf og alþjóðasamvinnu. Ein-
kunnarorð Frakklands, „Frelsi,
jafnrétti og bræðralag“, eiga engu
síður við nú en endranær.
Frakkland
án klisjanna
Eftir Graham Paul
Graham Paul
» Frakkar framleiða
ekki bara osta og
úrvalsvín heldur líka
hraðlestir, bíla, flug-
vélar og geimflaugar.
Höfundur er sendiherra
Frakklands á Íslandi.
Er það ekki vonin sem heldur í
okkur lífinu allan ársins hring og
sérstaklega yfir dimman, kaldan
vetrartímann? Það er eins víst og
mætti byrja í nóvember. Þá gerir
kannski góðan kafla með austanátt
og hreinviðri og maður segir sem
svo að þannig ætti að vera fram til
jóla. Það rætist stundum og þá
þykir mörgum vetrardekkin spæn-
ast fljótt upp. Það verður ekki á
allt kosið. Janúar er oft friðsam-
asti mánuðurinn og jafnvel stað-
viðri. Aftur er febrúar þekktur
sem rokmánuður og fagnaðarefni
þegar fer að halla á hann. Þá
munar um birtuna og líklega verði
mars ekki svo bölvaður. Auðvitað
tóm óskhyggja, en þá er hægt að
afsaka ótíðina með páskahreti, og
seinna, þegar apríl er ekki eins og
við viljum, er það hrafnahret eða
fyrstasumardagshret, og þannig
endalaust.
Verst er þó með maí, þetta von-
arbarn þjóðarinnar. Þá getur hann
lagst í þurrakulda og næðing ætt-
aðan úr íshafinu. Miskunnarlaust
þurrkar vindurinn rakann frá rót-
um grass og fífla. Þá er kominn
tími til að panta sólarferð, en æ,
æ.
Sunnlendingur.
Vor í vonum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Veður Vetrartíminn getur verið
dimmur og kaldur hérlendis.
Velvakandi
Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.