Morgunblaðið - 14.07.2020, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bílar
Toyota Avensis Live. 8/2017
Ekinn aðeins 36 þús. Km.
Einn eigandi. Ekki bílaleigubíll.
Auka vetrardekk á felgum.
Þjónustubók.
Tilboðsverð: 2.490.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Atvinnuauglýsingar
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Á morgun miðvikudaginn 15. júlí bíður sumar-
hópurinn okkar upp á þessa ferð: klukkan 13 - Ferð í Heiðmörk með
sumarhópnum okkar. Fjallað verður um Heiðmörk og 70 ára sögu
skógræktarfélagsins. Skráning á skrifstofu í síma 411 2701.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi í hand-
avinnustofu kl. 10-10.30. Tæknilæsi frh kl. 9-12 og 13-16. Leikfimi með
Silju kl. 13-13.40. Ef veður leyfir reytum við arfa í Finnbogareit e.
hádegi. Opið kaffihús kl. 14.15.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og .spjall kl. 8.50.
Samrómur kl. 11-13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Síðdegiskaffi kl.
14.30. Við vinnum eftir samfélagssáttmálanum, þannig höldum við
áfram að ná árangri. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í
síma 411 2790.
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512.1501. Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að panta
hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffi er selt frá
13.45 -15.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá
Náttúrufræðistofnun Íslands, Urriðaholtsstræti 6- 8 kl. 10. Bónusrúta
fer frá Jónshúsi kl. 14.45.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa. Kl. 10
leikfimi gönguhóps. Kl 10.30 ganga um hverfið. Kl. 13 Bíó.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 8-12. Billjard kl. 8. Qi- gong á Klam-
bratúni kl. 11. Bridge kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Púttæfing kl. 10.30. Gönguferð kl. 13.30.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag, klukkan 10.30 verður hópþjálfun í
setustofu á 2.hæð. Eftir hádegi ætlum við að hittast í matsalnum og
syngja saman íslensk lög og svo endum við daginn á hressandi
gönguferð um hverfið, lagt verður af stað klukkan 15. Allir velkomnir,
hlökkum til að sjá ykkur á Lindargötu 59.
Seltjarnarnes Dagskráin í dag er svona. Vatnsleikfimi í sundlaug
Seltj. kl. 7.15. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt úti á golfvelli kl.
13.30. Eigið góðan dag og hlökkum til að sjá ykkur.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur
kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl.
14.30-15.30. Sögustund verður í kaffinu. Allir velkomnir. Síminn í
Selinu er: 568 2586.
með
morgun-
✝ Vigfús HeiðarGuðmundsson
fæddist 4. júní
1952. Hann lést á
Hrafnistu, Nesvöll-
um, 3. júlí 2020.
Foreldrar Vig-
fúsar voru hjónin
Sólbjörg Jórunn
Vigfúsdóttir, f. 20.
júní 1917, d. 31.
mars 1998, og
Guðmundur
Sveinsson, f. 5. október 1924,
d. 6. mars 2003. Systkini Vig-
fúsar Heiðars sammæðra eru
Dagný Austan Vernharðs-
dóttir, f. 22. janúar 1940, Karl
Vernharðsson, f. 10. septem-
ber 1941, sambýliskona Mel-
korka Edda Freysteinsdóttir,
Vígsteinn Vernharðsson, f. 10.
júní 1943, d. 3.
nóvember 2005,
Jóna Þórunn
Vernharðsdóttir,
f. 20. október
1944. Alsystkin
voru drengur, f. 5.
júní 1951, d. 5.júní
1951, og Svanhild-
ur Stella Júnírós,
f. 23. júní 1955,
maki Óskar Ás-
geirsson.
Vigfús giftist Þorbjörgu
Ágústu Helgadóttur, 28. ágúst
1977, þau slitu samvistum árið
2000. Saman eignuðust þau
þrjú börn. Þau eru: 1) Guð-
mundur Freyr, f. 3.júní 1978,
eiginkona hans er Namita
Kapoor. 2) Sólbjörg Laufey, f.
23. apríl 1984, og börn hennar
Elmar Ingi, f. 4. apríl 2004, og
Guðmundur Sveinn, f. 13. maí
2011. 3) Bergþóra Sif, f. 12.
ágúst 1989, sambýlismaður
hennar er Søren Vahl Bendix-
en. Árið 2002 hóf Vigfús sam-
búð með Thon Nganpanya, f.
20. ágúst 1964. Fyrir átti hún
son sem Vigfús ól upp, Aran,
f. 21. desember 1994, sam-
býliskona hans er Sóley Ósk
og börn þeirra, Leó Mateó, f.
27. júní 2018, og Adam Elí, f.
31. júlí 2019.
Vigfús ólst upp ásamt systk-
inum sínum á Njarðvíkurbraut
16 í Innri-Njarðvík. Hann fór
ungur á vinnumarkað og
starfaði m.a. í frystihúsi og
Skipasmíðastöð í Njarðvík
ásamt því að sækja sjóinn. Ár-
ið 1984 lauk hann sveinsprófi í
trésmíði og árið 1986 útskrif-
aðist hann sem húsasmíða-
meistari og starfaði sem slíkur
í 37 ár.
Útförin fer fram frá Innri-
Njarðvíkurkirkju í dag, 14.
júlí 2020, klukkan 13.
Vigfús Heiðar Guðmundsson
fæddist 4. júní 1953 og ólst upp
í Innri-Njarðvík. Annað barn
foreldra okkar en árinu áður
höfðu þau misst dreng. Fyrir
átti móðir okkar fjögur börn,
sem segja má að hafi einnig
komið að uppeldi okkar, þar
sem þau voru nokkuð eldri en
við. Innri-Njarðvík var ekki
stór á þessum tíma og höfðu
börn því mikið frelsi til að leika
sér úti í náttúrunni án nútíma
leiktækja.
Að loknum barnaskóla fór
Heiðar í framhaldsskóla og síð-
ar lærði hann húsasmíði og
fékk meistararéttindi 1986.
Heiðar stundaði einnig sjóinn
um tíma. Hann kvæntist Þor-
björgu Ágústu Helgadóttur og
eignuðust þau þrjú vænleg og
falleg börn, þau Guðmund Frey
sem er kvæntur Namitu
Kapoor, þau búa í Oakland í
Bandaríkjunum, Sólbjörgu
Laufeyju og á hún tvo drengi,
Elmar Inga og Guðmund Svein
búsett í Reykjanesbæ, Berg-
þóru Sif, sambýlismaður henn-
ar er Sören Vahl Bendixen, þau
búa í Kaupmannahöfn. Heiðar
og Obba byggðu sér fallegt hús
í Innri-Njarðvík og bjuggu þar
lengst af. Mikill samgangur var
á milli heimila okkar, þar sem
börnin okkar voru öll á svipuðu
reki. Obba og Heiðar skildu eft-
ir nokkurra ára búskap.
Heiðar var lengst af sjálf-
stætt starfandi og sérhæfði sig
í glugga- og hurðasmíði. Árin
1991-1993 bjó hann í Þýska-
landi og starfaði við innrétt-
ingasmíði og viðgerðir á antik-
húsgögnum. Hann starfaði
einnig í Ósló hjá PEAB og hjá
Valde Bygg AS í Bergen. Hann
var mikill áhugamaður um við-
hald gamalla húsa. Eftir hann
liggja margar gersemar, m.a.
barnarúm sem hann smíðaði
fyrir fyrsta barnabarnið,
gluggar og hurðir í Kirkjuvogs-
kirkju í Höfnum. Hann smíðaði
einnig gluggana í Stekkjarkot í
Njarðvík þegar það var gert
upp og setti í upprunalegt horf.
Hann var natinn og vandaður
smiður, mikill millimetramaður
eins og sagt er, vel liðinn, hæg-
látur og dagfarsprúður. Sann-
kallaður listamaður fram í
fingurgóma. Málaði myndir og
tók þátt í samsýningu. Á ung-
lingsárum spilaði hann á bassa í
hljómsveit.
Árið 2001 kynntist hann
Thon Nganpanya og hófu þau
búskap, fyrir átti hún Aran
Nganpanya sem Heiðar tók að
sér þegar hann var níu ára.
Sambýliskona hans er Sóley
Ósk Hafsteinsdóttir og eiga þau
tvo syni, Leó Mateó og Adam
Elí.
Heiðar fór í kreppunni til
Noregs eins og svo margir að
vinna. Þá vorum við hjónin
komin þangað og áttum við þar
öll góðar stundir saman í yndis-
legu umhverfi. Á þessum tíma
fór að bera á veikindum hans
sem hann varð að lokum að lúta
í lægra haldi fyrir. Eftir kom-
una heim frá Noregi önnuðust
Thon og Laufey dóttir hans
hann af alúð og virðingu.
Elsku bróðir, takk fyrir allt
og allt. Ég kveð þig með söknuð
í hjarta og ylja mér við fallegar
minningar um góðan bróður.
Hvíl í friði.
Svanhildur St. J.
Guðmundsdóttir (Stella).
Elsku fallegi og yndislegi litli
bróðir minn. Ég á svo margar
fallegar minningar um þig. Ég
man alltaf þegar Bjössi frændi
kom með ykkur mömmu heim
af fæðingardeildinni. Ég ætlaði
aldrei að geta hætt að horfa á
þetta litla og fallega barn.
Undur heimsins. Það varð strax
sterkur strengur á milli okkar.
Þú varst listrænn og dvergur í
höndunum eins og faðir þinn.
Gluggar og hurðir á bústaðnum
mínum bera þess vott. Þú varst
heill, ljúfur og heiðarlegur,
sagðir aldrei illt um nokkurn
mann. Alltaf tilbúinn að hjálpa
og aðstoða. Húmorinn aldrei
langt undan og fallega brosið
þitt. Og nú ertu bara farinn.
Veikindin tóku stóran toll.
Elsku Thon, Guðmundur, Lauf-
ey, Bergþóra, Aran, afastrák-
arnir og fjölskylda, elsku Stella
systir, þið voruð svo náin. Þetta
er sár tími, en við vitum að
Drottinn vor hefur losað Heiðar
frá verkjum og tekið var vel á
móti honum. Sterkar persónur
gleymast aldrei elsku Heiðar
minn.
Þín systir
Jóna Þórunn.
Vigfús Heiðar
Guðmundsson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra horn-
inu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“ val-
inn úr felliglugganum. Einnig er
hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar um
foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar
✝ Helga Sigurð-ardóttir fædd-
ist í Reykjavík 8.
ágúst 1942. Hún
lést á Landspít-
alanum 2. júlí
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurður
Egilsson, f. 30.
ágúst 1921, d. 26.
ágúst 2000, og
Kristín Henriks-
dóttir, f. 16. desember 1920, d.
9. janúar 2011.
Systkini hennar voru Hen-
rik, f. 23. október 1940, d. 26.
október 1987, Súsanna, f. 5.
september 1945, Ingunn, f. 3.
júlí 1948, og Egill Vilhjálmur,
f. 30. mars 1952.
Eiginmaður Helgu er Gutt-
ormur Pétur Einarsson, f. 15.
mars 1938, og eignuðust þau
tvo syni, sem eru Einar, f. 15.
fúsdóttir, f. 12. júlí 1966.
Þórunn á dótturina Helenu
Eddu Skúladóttur, f. 10. októ-
ber 2010. Sambýliskona Egils
er Sæunn Gísladóttir, f. 4. júní
1993, og sambýlismaður Örnu
er Bergþór Traustason, f. 30.
september 1994.
Helga lauk gagnfræðiprófi
frá Laugarnesskóla 1958 og fór
beint á vinnumarkaðinn. Hún
stafaði um tíma í Leturprenti
og síðar hjá Hafplasti, rak eig-
in söluturn í Ármúla, en síðast
starfaði hún hjá Brimborg.
Helga og Guttormur gengu í
hjónaband 3. desember 1966 og
bjuggu sér heimil í Árbæjar-
hverfi; fyrst Hraunbæ 178,
síðan í Kleifarási 13, sem þau
byggðu, og að lokum í Árkvörn
2a. 1980 gekk Helga í Odd-
fellow, rebekkustúkuna Þor-
gerði, og var hún virk í því
starfi alla tíð. Síðustu ár hafði
Helga yndi af golfi, ferðalögum
víða um heim og ræktun við
sumarbústað þeirra hjóna í
Svínadal.
Útförin fer fram í Dómkirkj-
unni í dag, 14. júlí 2020, klukk-
an 13.
september 1964,
og Sigurður Egill,
f. 27. júní 1969.
Einar er giftur
Guðrúnu Svövu
Gunnlaugsdóttur,
f. 15. desember
1968, og eiga þau
fjögur börn, sem
eru Berglind, f. 21.
desember 1995,
Guttormur Freyr,
f. 16. júní 1998,
Kristín, f. 5. júlí 2000, og
Gunnlaugur, f. 12. október
2005. Sambýlismaður Berg-
lindar er Baldur Hjartarson, f.
4. mars 1995.
Sigurður var giftur Sigrúnu
Edwald, f. 8. júní 1962, og eiga
þau tvö börn, sem eru Egill, f.
8. júlí 1992, og Arna, f. 21.
október 1994. Sigurður og Sig-
rún skildu. Sambýliskona Sig-
urðar er Þórunn Kristín Sig-
Fyrir mig var það eins og að
koma í höll að koma til Helgu og
Gutta í Kleifarásinn. Helga,
fyrrverandi tengdamóðir mín,
naut þess að hafa fallega hluti í
kringum sig. Hver hlutur var á
sínum stað og hvergi rykkorn að
sjá. Helga fylgdist vel með
stefnum og straumum í innan-
hússhönnun og var nösk á að
finna fallega hluti og koma þeim
fyrir á hárréttum stað. Blandaði
saman gömlu og nýju bæði
heima og í bústaðnum. Hún fór
vel með hluti, geymdi allt, engu
var hent.
Helga var vandvirk, næstum
smámunasöm; með smá stálull
og elju urðu „ónýtu“ hurðar-
húnarnir mínir eins og nýir. Lítil
glerdýr á stofuhillu eru ekki dót
en það getur verið freistandi
fyrir litlar hendur að skoða þau
aðeins. Amma Helga beindi þá
athyglinni að öðru með töfra-
bragði sínu: „Fljúgðu burt
Pétur, fljúgðu burt Páll.“ Ég sé
fyrir mér vel snyrtar hendur og
rauðlakkaðar neglur taka það at-
riði. Helga var alltaf smart,
fylgihlutir og dress valin saman
af nákvæmni.
Helga gat virkað fjarlæg og
flíkaði ekki tilfinningum sínum
en þegar á reyndi var hún traust
og reyndist mér vel og fyrir það
er ég þakklát.
Nú ertu skyndilega flogin
burt, takk fyrir samfylgdina.
Minning þín lifir.
Sigrún.
Helga
Sigurðardóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku Helga.
Þakkir fyrir vináttu alla
tíð.
Vertu glaður með vini þínum og
njóttu með honum lífsins, því að í
dögg lítilla hluta finnur sálin morg-
un sinn og endurnærist.
(Spámaðurinn e. Kahlil Gibran)
Vinakveðja,
Þuríður og Margrét
(Þurí og Magga).