Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020 „VAR HANN SVONA LÁGVAXINN Í LIFANDA LÍFI?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita hvað skiptir máli í lífinu. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GLEÐILEGAN JÓLIN- ERU-BÚIN-DAG! GREEEEEENJ VIÐ ERUM FASTIR! VIÐ EIGUM ENGA VON! ERTU BÚINN AÐ GLEYMA ÞVÍ AÐ BRÓÐIR ÓLAFUR ER MEÐ OKKUR Í LIÐI? ÉG SKAL FYRIRGEFA ÞÉR – EN MÉR FINNST NÚ SAMT AÐ ÞÚ EIGIR AÐ GEFA ÞIG FRAM. eru búsett í Reykjavík. Foreldrar Bjargar voru hjónin Kristján Björn Þorvaldsson, f. 30.5. 1921, d. 11.8. 2003, heildsali, og Guðný Eyjólfs- dóttir, f. 27.10. 1925, d. 4.8. 1992, hús- freyja. Þau voru búsett í Reykjavík. Börn Ásgeirs og Bjargar eru 1) Kristján Skúli Ásgeirsson, f. 28.10. 1968, brjóstaskurðlæknir í Nott- ingham, Englandi og hjá Klíníkinni í Reykjavík. Maki: Birna Þórðardóttir f. 4.5. 1967, geðlæknir í Reykjavík. Barnabörn eru Hjalti, f. 1993, Skúli, f. 1999, og Elín, f. 2003; 2) Theodór Ásgeirsson, f. 9.11. 1970, almennur skurð- og ristilskurðlæknir í Grand Rapids, Michigan, Bandaríkjunum. Maki: Geirlaug Magnúsdóttir, f. 30.10. 1965, stjórnmálafræðingur. Barnabörn eru Guðlín, f. 2001, Arn- björg, f. 2001 og Ásgeir Daníel, f. 2005; 3) Helga Guðný Theodórs, f. 13.11. 1976, grafískur hönnuður í Pasadena í Kaliforníu, Bandaríkj- unum. Maki: Ingólfur Guðmundsson, f. 16.8. 1975, senuuppsetninga- og kvikmyndatökumaður í teikni- myndagerð hjá Disney. Barnabörn eru Theodór Arnar, f. 1999; Emil Ari, f. 2009, Guðmundur Ásgeir, f. 2011, og Börkur Nói f. 2015; 4) Ás- geir Börkur Ásgeirsson, f. 16.4. 1987, knattspyrnumaður hjá HK og nemi, búsettur í Reykjavík. Sambýliskona: Heiðrún Guðný Gunnarsdóttir, f. 8.3. 1990, löggildur skipa-og fast- eignasali. Barnabarn: Patrik Börk- ur, f. 2020. Systkini Ásgeirs: Skúli Jón Theo- dórs, f. 16.12. 1938, d. 1.8. 1997, flug- vélstjóri í Reykjavík; Auður Ingi- björg Theodórs, f. 24.7. 1942, lífeindafræðingur, búsett í Reykja- vík; Arndís Gná Theodórs, f. 1.11. 1943, lífeindafræðingur, búsett í Reykjavík; Elín Þrúður Theodórs, f. 1. nóv. 1943, lyfjatæknir, búsett í Reykjavík. Hálfsystir Ásgeirs er Ás- dís Hlökk Theodórsdóttir, f. 22.11. 1966, forstjóri Skipulagsstofnunar. Foreldrar Ásgeirs voru Theodór Jón Skúlason, f. 28.2. 1908, d. 27.7. 1970, læknir og dósent í Reykjavík, og Guðlín Ingiríður Jónsdóttir, f. 20.9. 2011, d. 18.6. 1998, hárgreiðslu- meistari í Reykjavík. Ásgeir Theodórs Arndís Guðmundsdóttir húsfreyja á Borðeyri Friðrik Theodór Ólafsson verslunarstjóri á Borðeyri Elín Theodórsdóttir Theodórs húsfreyja á Blönduósi Skúli Jónsson kaupfélagsstjóri á Blönduósi Theodór Jón Skúlason læknir og dósent í Reykjavík Guðrún Kristmundsdóttir húsfreyja áAuðólfsstöðum Jón Þórðarson bóndi áAuðólfsstöðum í Langadal Þorvaldur Skúlason listmálari Guðlín Guðmundsdóttir húsfreyja í Miðkoti og á Garðsskaga Ísak Sigurðsson bóndi í Miðkoti í V-Landeyjum og vitavörður á Garðsskaga Ingibjörg Ísaksdóttir húsfreyja í Lindarbrekku Jón Magnússon yfirfiskimatsmaður og athafnamaður í Lindarbrekku í Rvík Ingiríður Jónsdóttir húsfreyja á Bakka Magnús Finnsson formaður á Bakka á Seltjarnarnesi Úr frændgarði Ásgeirs Theodórs Guðlín Ingiríður Jónsdóttir hárgreiðslumeistari í Reykjavík Það varð Ragnari Inga Aðal-steinssyni frásagnarefni á fés- bók þegar hann sló lóðina sína fyrr í vikunni. „Þar var allmikið af fíflum og sóleyjum og slatti af randa- flugum, sem sumir kalla humlur, á sveimi að leita sér að hunangi. Þegar þær flýðu í ofboði undan látunum í vélinni heyrði ég eina þeirra suða: Klökk og skelfd um fró og frið flugnahimnakóng ég bið; ekki slær hún slöku við sláttuvélarhelvítið. Ég vissi ekki fyrr en í gær að randaflugur gætu verið svona hag- mæltar.“ Ekki stóð á viðbrögðum úr vina- hópi Ragnars. Bjarni Sigtryggsson svaraði: Ég væna humlu veit, unga; með vísum kætir sveitunga. Sá bragur er svo bráðvel ger, að gleður jafnvel geitunga. Þá Bjarni Jónsson: Í flugnahimnakóngsins klið kíkt var strax á erindið. Þegar slær karl slöku við stingið hann í rassgatið. Ragnar þakkaði vísuna og dró fram að þarna væri sníkjuhljóðs- stuðlun. „Sníkjuhljóðsstuðlun er það þegar saman stuðla sl, sn og st. Bæði Jónas Hallgrímsson og Davíð Stef- ánsson notuðu þá stuðlun enda hljómar hún ekki illa. Eyrað heyrir „t“-hljóðið, sníkjuhljóðið sem smeyg- ir sér inn á milli s og sl og s og en, í framburði verður það „stl“ og „stn“ – sem sagt, getur stuðlað við „st“.“ Aðalsteinn Aðalsteinsson gaukaði vísu að Ragnari: Þarna villtur völlinn skók vélar druslu sinni ók, karl í grárri gatabrók. Geitungurinn þetta skóp. Reir frá Drangsnesi lagði sitt til málanna: Milli blóma púla og puða penar randaflugur hagmæltar um hagann suða hálfur annar tugur. Í Vísnasarpi Héraðsskjalasafns Skagfirðinga má finna þríhent stikluvik Sigmundar Árnasonar frá Vindbelgi í Mývatnssveit, Blót- Sigmundar, sem ort er um mývarg- inn þar um slóðir: Af öllu hjarta eg þess bið, andskotann – grátandi, að flugna óbjarta forhert lið fari í svarta helvítið. Pétur Blöndal p.blondal@gmail.com Vísnahorn Af flugnahimnakóngi og randaflugum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.