Morgunblaðið - 14.07.2020, Page 27

Morgunblaðið - 14.07.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020 Í október 2019 skrifaði ég grein í Morgunblaðið með fyrir- sögninni „Sorglegt að þurfa ræða kynþáttaníð árið 2019“. Í dag, rúmum níu mánuðum síðar á árinu 2020, er ég aftur að skrifa svipaðar fréttir en núna tengjast þær knattspyrnuleik í 4. deild karla sem fram fór í Borgarnesi. Í leiknum gerðist leikmaður Skallagríms sekur um kynþáttaníð í garð leikmanns Berserkja, sem er fæddur í Hafnarfirði svo því sé haldið til haga. Leikmaður Berserkja var kallaður „Apaköttur“ og sagt að „drulla sér aftur heim til Afríku“. Það var Einar Guðnason, að- stoðarþjálfari Víkinga, sem vakti fyrst athygli á málinu á Twitter síðastliðið föstudagskvöld og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Skallagrímur sendi frá sér yfirlýsingu í kjölfarið og leik- maður Skallagríms gerði það sömuleiðis á sunnudaginn en hann hefði ef til vill mátt láta einhvern lesa hana yfir. Ekki verða höfð fleiri orð um yfirlýsingu leikmanns Skalla- gríms önnur en þau að þótt orð hans hafi ekki átt að vera rasísk að hans mati skiptir það litlu sem engu máli. Það eina sem skiptir máli er hvernig leikmaður Berserkja upplifði þessi orð í sinn garð og að því þarf ekki einu sinni að spyrja. Þá hefur leik- maður Skallagríms áður gerst sekur um kynþáttaníð, sem fær mann til að velta því fyrir sér hvað honum gengur til. „Knattspyrna er leikur án fordóma“ er setning sem hljóm- ar fyrir hvern einasta leik sem spilaður er á Íslandi, eða á að gera það. Eins og ég sagði fyrir níu mánuðum síðan eru for- dómar ekki „meðfæddir hæfi- leikar“. Þeir lærast og eru kenndir og ég vona innilega að KSÍ taki á þessu máli af hörku. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is FRJÁLSAR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Hlynur Andrésson á nú átta Íslands- met í langhlaupum en hann bætti 37 ára gamalt Íslandsmet Jóns Diðriks- sonar í 3.000 metra hlaupi á móti í Hollandi um helgina. Metin eru fimm í utanhússgreinum og þrjú í innanhússgreinum, og vegalengd- inar frá þremur og upp í tíu kíló- metra. Hlynur, sem er 26 ára gamall Eyjamaður, byrjaði að æfa hlaup ár- ið 2012 eftir að hann fór út sem skiptinemi til Bandaríkjanna en hann byrjaði að hlaupa til þess að koma sér í betra form fyrir körfu- boltatímabilið. Hlynur býr í dag í Leiden í Hollandi ásamt kærustu sinni en þar hefur hann búið síðan í september 2018. „Ég er bara ágætlega sáttur með þennan árangur minn,“ sagði Hlyn- ur í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég hef nokkrum sinnum hlaupið hraðar á innanhússmótum í grein- inni þannig að þetta var kannski ekki beint eitthvað sérstakt þannig séð en að sama skapi hef ég ekki oft fengið tækifæri til þess að bæta met- ið enda sjaldan keppt í 3.000 metra hlaupi utanhúss. Það var hlaupið án héra í þessu hlaupi og ég átti þess vegna ekki von á einhverjum stórkostlegum tíma en markmiðið var fyrst og fremst að vinna. Það var svo bara skemmti- legur bónus að bæta þetta Íslands- met sem hafði staðið ansi lengi. Ég get verið alveg hreinskilinn með það að ég hef aldrei talað við Jón Dið- riksson því miður en ég ber að sama skapi gríðarlega mikla virðingu fyrir honum og hans afrekum. Hann náði frábærum árangri í kringum 1980 en samt sem áður á ekkert Íslandsmet að standa svona lengi og það var löngu kominn tími á að einhver bætti þessi met. Ég á metið í flestum langhlaupsgreinum á Íslandi í dag, nema í hálf- og heil- maraþoni, en það eru hvort tveggja greinar sem ég hef einfaldlega ekki lagt fyrir mig enn sem komið er,“ sagði Hlynur en í fyrra sló hann 36 ára gamalt Íslandsmet Jóns í 10 km götuhlaupi. Nýtur þess að æfa Hlynur setti stefnuna á Ólympíu- leikana í Tókýó 2020 sem áttu að fara fram í sumar en leikunum var frestað um eitt ár vegna kórónu- veirufaraldursins. „Þetta var sjokk þegar leikunum var frestað, svo við segjum það bara eins og það er. Ólympíuleikunum hafði ekki verið frestað síðan 1944 vegna seinni heimsstyrjaldarinnar og ég átti þess vegna ekki von á frestuninni. Að sama skapi skilur maður vel af hverju það var gert enda öryggi og heilsa keppenda allt- af í fyrsta sæti. Áður en kórónuveirufaraldurinn skaut upp kollinum hérna í Hollandi var markmið mitt fyrst og fremst að dvelja hér áfram og æfa af fullum krafti fyrir Ólympíuleikana. Plönin hafa því breyst talsvert mikið og ég hef þess vegna einbeitt mér að því að reyna að gera það besta úr stöðunni, hlaupa mikið, og auka hraðann hægt og rólega. Ég hef aldrei átt í vandræðum með að vakna á morgnana til þess að drífa mig út að hlaupa og þess vegna hafði kórónuveirufaraldurinn lítil áhrif á mig. Ég nýt þess að hlaupa og ef ég geri það ekki á hverjum degi myndast ákveðið tómarúm hjá mér. Ég er þess vegna ekki að pæla of mikið í því hvort það séu ein- hverjar keppnir á döfinni, þótt það sé vissulega stór hluti af þessu. Eftir því sem hefur liðið á ferilinn hjá mér hef ég í raun bara meiri ánægju af því að æfa en keppa ef ég á að vera hreinskilinn. Ég er með smá fullkomnunaráráttu þegar kem- ur að æfingum og öðru og ég er allt- af að leita leiða til þess að bæta mig og það er bæði skemmtilegt og krefjandi á sama tíma.“ Stefnir á doktorsnám Hlynur hefur æft eins og atvinnu- maður undanfarin tvö ár í Hollandi en fyrirtæki á borð við Fætur toga, Hreysti, Vinnslustöðina og Ísfélagið í Vestmannaeyjum hafa staðið þétt við bakið á honum á þessum tíma. „Ef þú ætlar þér að komast á Ól- ympíuleikana eða vera samkeppnis- hæfur í Evrópu þarftu einfaldlega að helga líf þitt hlaupinu ef svo má segja. Ég tek þá ákvörðun í septem- ber 2018 að taka þetta alla leið og reyna að fara eins langt og ég mögu- lega gæti, meðal annars vegna þess að mér gekk mjög vel í Bandaríkj- unum þar sem ég stundaði háskóla- nám við Eastern Michigan- háskólann. Planið var að klára Ólympíu- leikana og snúa sér svo að einhverju öðru en það breyttist auðvitað tals- vert með frestun leikanna. Ég ætlaði mér í doktorsnám eftir Tókýó 2020 og eins og staðan er í dag er það ennþá markmiðið næsta sumar en ég útskrifaðist með meistaragráðu í sameindalíffræði fyrir tveimur árum. Að vera í þessu af fullum krafti er gríðarlega erfitt fjárhagslega. Ef mér tækist að bæta mig verulega í sumar sem myndi leiða til þess að ég fengi samning hjá íþróttavörufram- leiðanda eins og Adidas eða Nike, á föstum launum, gæti ég haldið áfram af fullum krafti. Eins og staðan er í dag hreinlega nenni ég ekki að standa lengur í því að vera með jafn lítið fjárhagslegt öryggi og raunin er.“ Á góða möguleika Það er nóg fram undan hjá þess- um öflugasta langhlaupara Íslands en hans bíða stórar ákvarðanir í september á þessu ári. „Þegar ég setti stefnuna á Ólymp- íuleikana 2020 átti ég von á því að lágmörkin yrðu svipuð og í Ríó 2016. Svo breyttist auðvitað allt og á tíma- bili varð eiginlega óhugsandi að komast á Ólympíuleikana fyrir mig. Það er hins vegar séns fyrir mig að komast inn í gegnum heimslista- kerfið og ég tel mig eiga mikla möguleika á því að komast inn í 3.000 metra hindrunarhlaup í gegn- um það kerfi. Hvað sem verður þarf ég að að taka ákvörðun í september um fram- haldið hjá mér. Ég er að hugsa um að reyna við lágmarkið fyrir Ólympíuleikana í maraþoni í janúar eða þá reyna að gera eitthvað á EM innanhúss í frjálsum. Ólympíu- undirbúningurinn er þess vegna haf- inn ef svo má segja en til þess að bæta sig þarf maður að ná upp ákveðnum stöðugleika líka. Maður hafði alveg leitt hugann að því að kalla þetta gott og hætta núna líka. Það væri hins vegar virkilega erfitt að ætla sér að fara að hætta á þessum tímapunkti þar sem maður er búinn að leggja gríðarlega mikið á sig og það væri mikil synd að hafa sóað þeirri vinnu og tíma í ekki neitt,“ bætti Hlynur við í samtali við Morgunblaðið. Ber mikla virðingu fyrir Jóni en hef aldrei talað við hann  Hlynur Andrésson tók öðru sinni áratugagamalt met af Jóni Diðrikssyni Ljósmynd/Bjorn Parée Áttfaldur Hlynur Andrésson á fullri ferð á hlaupabrautinni í Hollandi en hann hefur slegið hvert Íslandsmetið á fætur öðru síðustu misserin. gærkvöld og viðureign liðanna end- aði því 2:2. Manchester United mistókst því að komast upp fyrir Chelsea og Leicester og er í umræddu fimmta sæti þegar aðeins þremur umferð- um er ólokið. Stuart Armstong kom Southamp- ton yfir snemma en Marcus Rash- ford og Anthony Martial komu United í 2:1 um miðjan fyrri hálf- leik og allt benti til þess að það myndi nægja liðinu til að innbyrða stigin þrjú. Manchester United varð fyrir tveimur áföllum í gær í síharðnandi baráttu ensku liðanna um sæti í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Fyrst úrskurðaði Alþjóða íþrótta- dómstóllinn, CAS, Manchester City í hag og það þýðir að City fer í Meistaradeildina næsta vetur, og um leið að fimmta sæti úrvals- deildarinnar nægir ekki til að kom- ast þangað. Síðan jafnaði Michael Obafemi fyrir Southampton á fimmtu mín- útu í uppbótartíma á Old Trafford í Tvö áföll hjá Manchester United á sama deginum AFP Mark Michael Obafemi fagnar eftir að hafa jafnað fyrir Southampton. Víkingar frá Ólafsvík urðu í gærkvöld fyrstir til að reka þjálf- ara sinn á þessu Íslandsmóti í knattspyrnu. Þeir sögðu Jóni Páli Pálmasyni upp störfum, en hann hafði verið ráðinn til félags- ins í lok október 2019 og var samn- ingurinn til þriggja ára. Jón Páll tók þar við af Ejub Pur- isevic, sem hafði þjálfað liðið nær óslitið frá árinu 2003. Ólafsvíkingar hafa ekki farið vel af stað í 1. deild karla, Lengjudeild- inni. Eftir sigur á Vestra í fyrsta leik hafa þeir tapað þremur leikjum af fjórum og þar á meðal á heima- velli sínum gegn bæði Keflavík og Fram. Þeir eru með sex stig, en hinn sigurleikurinn var gegn botn- liði Magna á Grenivík. Ólafsvík- ingar sitja nú í níunda sæti af tólf liðum deildarinnar, en þeir hafa undanfarin tvö ár hafnað í fjórða sæti eftir að hafa leikið í úrvals- deildinni 2016 og 2017. Ólafsvíkingar birtu yfirlýsingu um brottrekstur Jóns í gærkvöld og sögðu að leit hæfist nú að nýjum þjálfara en félagið myndi ekki tjá sig frekar um málið í bili. Rekinn eftir hálft ár af þremur Jón Páll Pálmason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.