Morgunblaðið - 14.07.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.07.2020, Blaðsíða 29
BAKSVIÐ Magnús Guðmundsson magnusg@mbl.is Evrópska rithöfundaráðið (EWC) birti hinn 11. júní uppfærða skýrslu þar sem fjallað er um niðurstöður víðtækrar könnunar á efnahags- legum áhrifum Covid-19 á rithöf- unda og þýðendur í evrópska bóka- geiranum. Rithöfundasamband Íslands er innan ráðsins og því hluti heildarinnar sem fjallað er um í skýrslunni. Lokun bókabúða Í skýrslunni er bent á að mjög fá- ir rithöfundar hafa sínar tekjur ein- vörðungu af sölu bóka, heldur sinna einnig ýmsum öðrum verkefnum s.s. kennslu, pistlaskrifum og rit- stýringu auk tekna af styrkjum, verðlaunum og ekki síst alþjóð- legum bókmenntahátíðum sem hef- ur meira og minna öllum verið af- lýst á árinu. Tekjumöguleikar rithöfunda og þýðenda snúast því ekki um bóksölu einvörðungu held- ur eru umtalsvert háðir ýmsum öðr- um þáttum. Niðurstöður sýna að 97% rithöf- unda og þýðenda hafa orðið fyrir tekjutapi af völdum aflýstra við- burða á borð við upplestra. 64% gera ráð fyrir tapi vegna frestaðrar útgáfu á verkum og nærri 40% gera ráð fyrir tapi vegna frestunar á út- gáfusamningum og þar með dráttar á höfundarréttargreiðslum en talið er að þetta muni hafa sérstaklega mikil áhrif á þýðendur á næsta ári. Fleiri þætti mætti tiltaka sem valda bæði rithöfundum og þýð- endum umtalsverðum búsifjum, þar á meðal gríðarlegan samdrátt í bók- sölu í kjölfar um tveggja mánaða lokunar bókaverslana víða um álf- una af völdum kórónuveirunnar. Það er eftirtektarvert að niður- stöður sýna að skellurinn kemur að öllum líkindum nokkru síðar fram hjá þýðendum á meðan höfundar barna- og ungmennabóka líða hvað mest fyrir skerta tekjumöguleika á árinu, rétt eins og ljóðskáld og höf- undar annars efnis en skáldskapar. Rafbókin ekki til bóta Samkvæmt skýrslunni er staðan mjög alvarleg. Samdrátturinn hefur þegar leitt til umtalsverðs tekju- missis fyrir rithöfunda og þýðendur og allar líkur eru á því að svo verði enn um hríð. Í mars og maí missti evrópskur bókamarkaður sína megintekjulind við lokun bókabúða, auk þess sem Amazon hætti að senda út bækur. Að auki er talið að áframhaldandi sóttvarnaaðgerðir muni halda áfram að gera bóksölu erfitt fyrir. Markaðssetning og rafræn dreif- ing bóka bæta ekki upp þetta tap heldur eru þvert á móti sérstakt áhyggjuefni. Skýrslan tilgreinir að síðustu ár hafa tekjur höfunda af rafbókum dregist umtalsvert saman í samræmi við almennan samdrátt í sölu rafbóka. Fjölmargir útgefendur hafa brugðið á það ráð, til þess að reyna að ná til lesenda, að dreifa raf- bókum á lækkuðu verði og jafnvel boðið ókeypis texta á sama tíma og svokallaðar sjóræningjaútgáfur hafa aukist mjög. Þetta hefur leitt til þess að um 73% rithöfunda hafa miklar áhyggjur af þróuninni á bókamark- aði. Fjölbreytninni ógnað Í venjulegu árferði eru gefnir út 575.000 til 600.000 nýir titlar í Evr- ópu og um 30% af þeim eru þýðing- ar. Þegar hefur fjölda titla verið frestað um óákveðinn tíma og talið er að minni forlögunum sé talsverð hætta búin. Af þessu leiðir að titlum mun að öllum líkindum fækka um 100.000 til 150.000, á bak við hvern titil er höf- undur, en megináhersla verða á út- gáfu söluvænna höfunda. Það getur leitt til þess að fjölmargir nýir og spennandi höfundar leggi pennann á hilluna á komandi misserum. Almennt færri titlar og minni lík- ur á ritrýni verka eftir konur er skýrsluhöfundum sérstakt áhyggju- efni. Einnig séu konur í stéttinni mun verr í stakk búnar til þess að mæta skakkaföllum vegna þess að þær hafi lengi búið við lægri tekjur og þar af leiðandi minni sparnað en karlkyns kollegar þeirra. Skýrslu- höfundar óttast því að enn færri kvenkyns raddir en venjulega nái upp á yfirborðið í evrópskum bók- menntum. Sömuleiðis lítur út fyrir að þýð- ingar muni dragast umtalsvert saman á mikilvægum mörkuðum á borð við Ítalíu, Frakkland og Þýska- land. Rithöfundar til bjargar Það er eftirtektarvert að þegar megnið af Evrópu bjó við samkomu- eða útgöngubann brugðust rithöf- undar við með ýmsum hætti til stuðnings sínum samfélögum. Margir leituðu og nýttu sér nýjar rafrænar leiðir til þess að koma verkum sínum til viðtakenda og nýttu m.a. rafrænar pantanir, raf- ræna viðburði og samfélagsmiðla með fjölbreyttum hætti. Sérstaklega brugðust barnabókahöfundar hratt og vel við og lögðu mikið af mörkum til þess að létta barnafjölskyldum langan og einmanalegan vetur. Ferlið sýndi hins vegar fram á hversu óskýrt og illa mótað þetta umhverfi er og þörfin fyrir heild- stætt lagaumhverfi mikil. Umhverfi sem myndi tryggja höfundum og þýðendum sanngjarnar greiðslur fyrir þeirra framlag. Í gegnum öll net Þrátt fyrir víðtæk viðbrögð rithöf- unda til hjálpar samfélögum sínum sitja þeir víðast hvar á hakanum þegar kemur að neyðaraðstoð. Sam- kvæmt skýrslunni hafa aðeins Dan- mörk, Frakkland, Ítalía og Spánn farið í sértækar aðgerðir til stuðn- ings virðiskeðju bókmenntanna og beinan stuðning við höfunda og þýð- endur. Rétt er að hafa í huga að auk- ið framlag til ritlauna á Íslandi felur ekki í sér stuðning við þá sem eru á ritlaunum, heldur er þar á ferðinni verkefnasjóður eins og í öðrum list- greinum á Íslandi. Rithöfundar og þýðendur, hér sem annars staðar í Evrópu, verða fyrir miklum tekjumissi og allt bendir til þess að fjárhagsvandi þeirra eigi eftir að vaxa á þessu ári og því næsta. Og þar sem þessir sömu aðilar virðast vera í frjálsu falli í gegnum hvert björgunarnetið á fætur öðru er brýnt að stjórnvöld grípi hið fyrsta til stefnumótunar og afdráttarlausra aðgerða til bjargar. Víðtækur vandi í bókageiranum  Viðamikil könnun á stöðu rithöfunda og þýðenda í Evrópu sýnir að vandinn er stór og vaxandi  Óttast að konur og nýliðar muni eiga mjög erfitt uppdráttar á komandi misserum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bókakreppa Lokun bókabúða um tveggja mánaða skeið víðs vegar um Evrópu og ýmsar takmarkanir mannlífsins sköpuðu fjölmörg vandamál. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson, sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. EXTENDED EDITION EXTENDED EDITION Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Sýnd með íslensku tali Í TILEFNI AF 40 ÁRA AFMÆLI ÞESSI STÓRKOSTLEGA MYND SÝND Í ÖRFÁA DAGA.90% Variety Í skýrslunni eru tiltekin 37 ráð til úrbóta á starfsumhverfi rit- höfunda og þýðenda. Skýrsluhöfundar telja mikil- vægt að ríki bregðist við því mikla tapi sem höfundar og þýðendur hafi þegar orðið fyrir af völdum kreppunnar. Ráðamenn þurfa að leggja mikla áherslu á bætt laga- umhverfi, bæði hvað varðar höf- undarrétt og fleiri atriði sem snúa að störfum höfunda og þýðenda. Fylgjast þarf náið með stöðu og þróun á bókamarkaði og bregðast við þjófnaði á höfundarréttarvörðu efni. Styðja við alþjóðasamstarf höfunda, gæta að fjölbreytni á bókamarkaði sem og aðgengi fyrir almenning í gegnum öflug bókasöfn svo sitthvað sé nefnt. Fjölbreytt ráð til úrbóta FRAMTÍÐ BÓKMENNTANNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.