Morgunblaðið - 29.07.2020, Page 8

Morgunblaðið - 29.07.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrr-verandi borgarstjóri, fór yfir það í grein hér í blaðinu í gær hvernig núverandi meirihluti borgarstjórnar hefði farið með Laugaveginn. Var sú upptalning lyg- inni líkust og með miklum ólíkindum þar sem hún var dagsönn.    Vilhjálmur rifjaðiupp hringl- andaháttinn með lokanir Lauga- vegarins, hve hátt þær skyldu ná, og svo öfuga akstursstefnu á Laugaveginum, sem aldrei hefur fengist skýring á, hvað þá skyn- samleg skýring.    Hann minnti á að lokun Lauga-vegar fyrir bílaumferð „hefur stórskaðað verslun þar og mikill fjöldi rekstraraðila gamalgróinna verslana gefist upp og hætt starf- semi“.    Hann benti á að lítið sem ekkertsamráð hefði verið haft við verslunareigendur við Laugaveg- inn um þær miklu breytingar sem gerðar hefðu verið, og „öllu eðli- legu samráði við þá hafnað“, sem er auðvitað mikil ósvífni af hálfu yfir- valda.    Og Vilhjálmur nefnir að þessivinnubrögð endurspeglist víða annars staðar í borginni þegar kemur að skipulagsmálum.    Það er sérkennileg afstaða meiri-hluta í sveitarstjórn að velja átök við íbúana og atvinnulífið í stað samráðs.    Hingað til hefur slíkt hvorki þótttil fyrirmyndar né farsældar. Hefur einhver breyting orðið þar á? Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Þykir valdníðsla til fyrirmyndar í dag? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Flestir þeirra sem miða áttu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hafa óskað eftir því að fá endurgreitt. Þá hafa einhverjir breytt miðunum og gilda þeir þá á hátíðina að ári. Þetta segir Hörður Orri Grettisson, for- maður þjóðhátíðarnefndar ÍBV. Eins og áður hefur komið fram var ákveðið að blása Þjóðhátíð af. Hátíðin hefur árlega farið fram í Herjólfsdal um verslunarmannahelgina, en nú er ljóst að að ekkert verður af því. Í kjöl- farið stóð fólki til boða að fá miðana endurgreidda, breyta dagsetningu þeirra eða gefa miðana eftir og styrkja þannig ÍBV. „Það er stór hluti búinn að taka afstöðu og hefur lang- stærstur hluti þess hóps óskað eftir endurgreiðslu. Síðan er eitthvað um að fólk sé að styrkja eða færa mið- ana,“ segir Hörður. Eitthvað hefur borið á óánægju með að erfitt sé að fá endurgreitt í gegnum vefsíðu Þjóð- hátíðar. Þurfa viðskiptavinir að taka sérstaklega fram að þeir vilji fá end- urgreitt en ekki styrkja ÍBV og gefa þannig eftir miðana. Aðspurður segist Hörður ekki kannast við slíkt. „Það hafa komið örfáar fyrirspurnir frá fólki sem hefur misskilið ferlið. Á ákveðnum stað er hægt að óska eftir endurgreiðslu að hluta eða fullu. Ég held að það sé ekki sanngjarnt að segja að ferlið sé óskýrt.“ Flestir óska eftir endurgreiðslu  Fáir vilja gefa miða á Þjóðhátíð eftir  Til boða stendur að styrkja ÍBV Morgunblaðið/Óskar Pétur Þjóðhátíð Langstærstur hluti miða- eigenda vill fá endurgreitt. Léttur og lipur óðinshani tiplaði aðeins á spegilsléttum vatnsflet- inum þegar hann brunaði inn til lendingar. Óðinshaninn er farfugl og kem- ur seint á vorin og fer snemma. Hann flýgur hratt og flöktir gjarn- an, tyllir sér á vötn og skoppar til og frá á vatninu um leið og hann tínir upp fæðu ótt og títt. Á Fuglavefnum kemur fram að dægurriti þingeysks óðinshana hafi sýnt að sá flaug alla leið vest- ur í Kyrrahaf til vetursetu og dvaldi þar suðaustur af Galapagos- eyjum. Óðinshaninn spegl- aði sig í vatninu Ljósmynd/Bogi Þór Arason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.