Morgunblaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020
Birkir Valur Jónsson hefur vænt-
anlega leikið sinn síðasta leik fyrir
HK í bili á Íslandsmótinu í knatt-
spyrnu því hann er farinn til Slóv-
akíu. Birkir verður lánaður til
Spartak Trnava sem leikur í efstu
deild í Slóvakíu. Fótbolti.net segir
lánssamninginn vera nánast frá-
genginn og segir hann vera sex
mánaða samning.
Spartak Trnava fái í framhaldinu
forkaupsrétt á leikmanninum sem
er 22 ára gamall og hefur leikið yfir
100 leiki fyrir HK og lék auk þess
með yngri landsliðum Íslands.
Birkir lánaður
til Slóvakíu
Morgunblaðið/Sigurður
Slóvakía Ný ævintýri bíða
Birkis Vals Jónssonar.
Tveir lykilleikmenn karlaliðs
Breiðabliks verða ekki með liðinu
gegn Stjörnunni næstkomandi
þriðjudag en aganefnd KSÍ kom
saman í gær. Sóknarmaðurinn
Thomas Mikkelsen og varnarmað-
urinn Damir Muminovic verða ekki
með gegn Stjörnunni vegna fjög-
urra áminninga. Daði Ólafsson úr
Fylki, Guðmundur Þór Júlíusson úr
HK og Valgeir Lunddal Friðriksson
úr Val fengu einnig bann vegna
fjögurra áminninga. Ingibergur
Kort Sigurðsson hjá Fjölni fékk
eins leiks bann vegna brottvísunar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vítaskytta Blikinn Thomas Mikk-
elsen er mjög marksækinn.
Lykilmenn Blika
í leikbanni
ÞÓR/KA – KR 2:1
0:1 Lára Kristín Pedersen 53.
1:1 Margrét Árnadóttir 56.
2:1 Arna Sif Ásgrímsdóttir 77.
M
Harpa Jóhannsdóttir (Þór/KA)
Lára Einarsdóttir (Þór/KA)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Ana Victoria Cate (KR)
Alma Mathiesen (KR)
Lára Kristín Pedersen (KR)
Thelma Lóa Hermannsdóttir (KR)
Dómari: Sveinn Arnarsson – 8.
Áhorfendur: 289.
ÍBV – SELFOSS 3:2
0:1 Tiffany McCarty 3.
0:2 Dagný Brynjarsdóttir 23.
1:2 Olga Sevcova 50.
2:2 Kristjana Sigurz. 85.
3:2 Miyah Watford 90.
MM
Olga Secova (ÍBV)
M
Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
Hanna Kallmaier (ÍBV)
Fatma Kara (ÍBV)
Kristjana R. Sigurz (ÍBV)
Miyah Watford (ÍBV)
Anna Björk Kristjánsdóttir (Selfossi)
Karítas Tómasdóttir (Selfossi)
Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi)
Dómari: Elías Ingi Árnason – 6.
Áhorfendur: 223.
STJARNAN – ÞRÓTTUR R. 5:5
0:1 Sóley María Steinarsdóttir 13.
0:2 Laura Hughes 16.
1:2 Jana Sól Valdimarsdóttir 28.
1:3 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 40.
2:3 Arna Dís Arnþórsdóttir 43.
2:4 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 45.
3:4 Jasmín Erla Ingadóttir 58.
3:5 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 75.
4:5 Gyða Kristín Gunnarsdóttir 83.
5:5 Gyða Kristín Gunnarsdóttir 88.
MM
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þrótti)
M
Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjörnunni)
María Sól Jakobsdóttir (Stjörnunni)
Jasmín Erla Ingadóttir (Stjörnunni)
Jana Sól Valdimarsdóttir (Stjörnunni)
Gyða Kristín Gunnarsd. (Stjörnunni)
Laura Hughes (Þrótti)
Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti)
Stephanie Ribeiro (Þrótti)
Sóley María Steinarsdóttir (Þrótti)
Dómari: Helgi Ólafsson – 7
Áhorfendur: 321.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ekki verður sagt að úrslitin hafi ver-
ið fyrirsjáanleg í Pepsí Max-deild
kvenna í knattspyrnu. Þrír leikir fóru
fram í gær þegar 8. umferð hófst en
umferðinni lýkur í kvöld. Í Vest-
mannaeyjum urðu óvænt úrslit þeg-
ar ÍBV skellti liði Selfoss 3:2. Í
Garðabænum sáust óvenjulegar töl-
ur þegar Stjarnan og Þróttur gerðu
5:5-jafntefli. KR náði ekki að fylgja
eftir góðum sigri á FH þegar liðið
heimsótti Þór/KA og vann Þór/KA
2:1.
Ekki dugði það Selfyssingum til
sigurs að ná 2:0-forskoti í Vest-
mannaeyjum í gær en sú staða var
komin upp eftir aðeins 23 mínútur. Í
síðari hálfleik skoraði ÍBV þrívegis
og tvö mörk komu á síðustu fimm
mínútunum.
Þessi þrjú óvæntu stig eru mikil-
væg fyrir ÍBV sem er 6. sæti með níu
stig en þrjú lið eru tveimur stigum á
eftir, Þróttur, Stjarnan og KR. Sel-
fyssingar fóru ekki leynt með þegar
mótið var að hefjast að bikar-
meistararnir höfðu augun á efstu
sætunum í deildinni í sumar eftir að
hafa fengið landsliðskonur til liðs við
sig. Liðið hefur hins vegar ekki náð
stöðugleika og er nú átta stigum á
eftir toppliði Breiðabliks og hefur
Selfoss leikið leik meira.
„Eyjakonur voru að vinna sinn
annan leik í röð og eru þessir tveir
sigrar gríðarlega mikilvægir í bar-
áttu þeirra í neðri hluta deildarinnar.
Það var hins vegar ekki sjón að sjá
leik Selfoss eftir að liðið komst í 2:0,
það virtist eins og leikmenn liðsins
hættu bara eftir 25 mínútna leik.
Náðu ekki að skapa sér neitt af viti
og var sóknarleikur liðsins ansi bit-
laus og var varnarlína ÍBV með
Hönnu fyrir framan sig ekki í neinum
vandræðum með að stöðva upphlaup
Selfoss í þau fáu skipti sem þær
komu í álitlegar stöður,“ skrifaði
Arnar Gauti Grettisson meðal annars
í umfjöllun um leikinn á mbl.is. Hann
hrósaði sérstaklega Olgu Secovu,
leikmanni ÍBV, sem hann gaf MM
fyrir frammistöðu sína. „Olga Secova
var hreint út sagt frábær í leiknum,
hún skoraði fyrsta markið og lagði
upp seinni tvö og stjórnaði sóknar-
leik liðsins með góðum árangri.“
Tíu marka jafntefli
Leikmenn Stjörnunnar og Þróttar
áttuðu sig á mikilvægi þeirra stiga
sem í boði voru í Garðabænum og
sóttu stíft. Úr varð kannski hálfgerð
martröð varnarmanna og markvarða
því leiknum lauk 5:5. Fyrir vikið eru
liðin bæði með sjö stig eins og áður
segir. Stjarnan og Þróttur höfðu
hvor um sig skorað níu mörk í fyrstu
sjö leikjunum en bættu hressilega úr
því í gær.
Vonbrigðin eru væntanlega nokk-
ur hjá Þrótturum eftir að hafa komist
í 3:1, 4:2 og 5:3. Gyða Kristín Gunn-
arsdóttir reyndist hins vegar
Garðbæingum frábærlega á loka-
kafla leiksins því hún skoraði síðustu
tvö mörk leiksins á 83. og 88. mínútu.
Hún var ekki sett inn á fyrr en á 77.
mínútu og nýtti því tímann afar vel.
Jóhann Ingi Hafþórsson segir í
umfjöllun sinni á mbl.is að lið Stjörn-
unnar hafi spilað betur í leiknum.
„Stjörnukonur voru hins vegar lík-
legar til að skora í hvert skipti sem
þær sóttu og pressuðu nýliðana stíft.
Heimakonur voru afar klaufskar að
landa ekki stigunum þremur og gera
sér erfitt fyrir með að fá á sig mörk
sem þær hefðu átt að geta komið í
veg fyrir.“
Nýliðar Þróttar hafa bitið hressi-
lega frá sér í sumar og fastar en
margir gerðu ráð fyrir. Liðið hefur
aðeins tapað þremur leikjum en hef-
ur gert fjögur jafntefli í fjórum af
átta leikjum. Tvívegis hefur liðið
fengið á sig jöfnunarmark seint í leik
og spurning hvort það eigi eftir að
koma sér illa þegar upp verður stað-
ið.
Fékk ekki að taka víti
„Já, það voru klaufaleg mistök hjá
mér. Dómarinn gaf mér gult spjald
og sendi mig af velli til að taka úr
mér eyrnalokkana. Ég var náttúr-
lega ekki ánægð með sjálfa mig að
hafa gleymt að taka þá úr mér. Þó vil
ég meina að þetta hafi verið skrifað í
skýin því ég ætlaði að skjóta í hornið
sem markmaðurinn fór í. Arna Sif
þurfti að taka vítið fyrir mig og skaut
í hitt hornið. Við getum alveg þakkað
dómaranum fyrir að hafa gripið í
taumana,“ sagði Margrét Árnadóttir
í samtali við mbl.is í gær en hún setti
mikinn svip á leik Þórs/KA og KR.
Hún kom inn á sem varamaður hjá
Þór/KA, skoraði jöfnunarmarkið og
fékk víti sem Arna Sif skoraði sig-
urmarkið úr.
Eins og hún nefndi við Einar Sig-
tryggsson, blaðamann mbl.is, þá
hefði hún tekið vítið. Þór/KA er í
ágætum málum í deildinni með 10
stig eins og Selfoss í 4.-5. sæti. Akur-
eyringar mega sjálfsagt vel við una
því miklar breytingar urðu á leik-
mannahópi liðsins.
Eyjakonur
sneru erfiðri
stöðu í sigur
Ljósmynd/Sigfús
Úthlaup Kaylan Marckese, markvörður Selfyssinga, lætur finna fyrir sér.
Óvæntur sigur ÍBV gegn Selfossi
Markaregn í Garðabænum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Barningur Berglind Baldursdóttir Þór/KA í návígi í gær.
Knattspyrnukonan Hólmfríður
Magnúsdóttir verður frá keppni
næstu vikurnar eftir að hún kinn-
beinsbrotnaði á æfingu með Selfossi
í vikunni. Staðfesti hún tíðindin í
samtali við Vísi í gærkvöldi.
Knattspyrnumaðurinn Viktor
Jónsson varð að fara meiddur af velli
um leið og hann hafði skorað þriðja
mark ÍA í 5:3-tapi gegn Breiðabliki á
Kópavogsvelli um helgina og er nú
ljóst að framherjinn mun missa af
næstu leikjum Skagamanna. Viktor
hefur skorað fimm deildarmörk í síð-
ustu sex leikjum. Hann fór í röntgen-
myndatöku og kom í ljós að ökklinn
er ekki brotinn en engu að síður
verður Viktor frá í einhvern tíma eftir
því sem Jóhannes Karl Guðjónsson,
þjálfari ÍA, tjáði Vísi.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur
samið við Litháann Antanas Udras
um að leika með liðinu næsta vetur
en Feykir greindi frá þessu. Udras er
reyndur leikmaður sem getur bæði
spilað sem miðherji og framherji.
Hann er 28 ára gamall og varð
meistari í heimalandinu með Suduva
árið 2017. Undanfarin tvö tímabil
hefur hann spilað í efstu deild.
Handknattleiksdeild ÍBV og mark-
vörðurinn Björn Viðar Björnsson
hafa komist að samkomulagi um nýj-
an samning sem gildir út komandi
leiktíð. Björn Viðar hefur leikið með
ÍBV síðustu tvö tímabil, en hann tók
fram skóna að nýju fyrir tímabilið
2018/19 þegar ÍBV var í miklum
markvarðarvandamálum. Varði hann
mark ÍBV á síðustu leiktíð ásamt
Bosníumanninum Petar Jokanovic,
en hann gerði sömuleiðis nýjan
samning við ÍBV á dögunum.
Körfuknattleiksdeild Þór á Ak-
ureyri hefur tilkynnt að framherjinn
Rowell Graham-Bell hafi samið við
félagið út komandi leiktíð. Graham-
Bell hefur leikið á Spáni síðustu ár.
Graham-Bell er Breti en lék með Val-
ladolid frá 2016 til 2018 og svo Al-
mansa síðustu tvö ár í B- og C-
deildum Spánar. Skoraði hann 10 stig
að meðaltali í leik á síðustu leiktíð í
B-deildinni.
Mariano, framherji Real Madrid á
Spáni, hefur greinst með kórónuveir-
una aðeins tíu dögum áður en liðið á
að mæta Manchester City í Meist-
aradeild Evrópu.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, var valinn þjálfari ársins af
samtökum þjálfara á Englandi fyrir
að hafa stýrt liðinu til sigurs í deild-
arkeppninni í fyrsta sinn í 30 ár.
Klopp og lærisveinar hans eru nú
Englandsmeistarar og enn Evr-
ópumeistarar síðan í fyrra. Fékk
Þjóðverjinn Sir Alex
Ferguson-bikarinn,
sem nefndur er í
höfuðuð á Skot-
anum sem vann
til fjölmargra af-
reka sem stjóri
Manchester
United, í verð-
laun. Var það
sir Alex sjálfur
sem kynnti sig-
urvegarann á
Sky Sports á
mánudags-
kvöldið.
Eitt
ogannað