Morgunblaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020 www.flugger.is Facade Beton er gæðamálning fyrir stein 50 ára Signý er Reyk- víkingur, ólst upp í Breiðholti en býr í Graf- arvogi. Hún er við- skiptafræðingur að mennt frá HÍ og er fjár- málastjóri Mennta- skólans við Hamrahlíð. Maki: Páll Gunnar Pálsson, f. 1967, for- stjóri Samkeppniseftirlitsins. Börn: Oliver, f. 1990, Arnór, f. 1997, Böðv- ar Bragi, f. 2003, og Helga Signý, f. 2006. Stjúpsonur er Sigurður Páll, f. 1992. Barnabarn er Mikael Freyr Oliversson, f. 2018. Foreldrar: Gerður Jensdóttir, f. 1948, fv. tækniteiknari hjá Landsvirkjun, bús. í Reykjavík, og Böðvar Baldursson, f. 1948, d. 2006, verslunarstjóri hjá Brimborg. Signý Marta Böðvarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú fer að rofa til og þú sérð árang- ur erfiðis þíns eins og þú átt skilið. Gefðu þér tíma til að rækta sjálfan þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Á næstu vikum muntu hafa mikla þörf fyrir að ferðast og víkka sjóndeildar- hring þinn. Vertu sjálfum þér samkvæmur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú leggur grunninn að vinskap núna og hann reynist traustur. Hafðu það í huga og gættu þess að halda einkalífinu og vinnunni aðskildum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Skemmtanaiðnaðurinn laðar og lokkar, en þar sem annars staðar er hóf best á hverjum hlut. Ef þú sleppir helm- ingnum næstu viku nærðu miklu betra jafnvægi, líkamlegu og andlegu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er ekki hægt að velta hlutunum endalaust fyrir sér. Hafðu það að leiðar- ljósi að sannleikurinn er alltaf sagna bestur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Notaðu orkuna til að ferðast. Alls kyns tengsl úr fortíðinni koma líklega upp á yfirborðið á næstu vikum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Reyndu að skipuleggja þig betur og þá ekki síður starfsumhverfi þitt. Að vita að maður getur gengið frá borðinu hve- nær sem er gefur manni rosalegt vogarafl. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ef þú hefur verið að bíða eftir tækifæri áttar þig þú kannski á því að þannig virkar það ekki. Góður undirbún- ingur tryggir farsæla framkvæmd. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert hamingjusamur og vilt láta gott af þér leiða. Treystu lærdómsferl- inu. Mundu að annað fólk er jafn metn- aðargjarnt og kappsfullt í starfi og þú. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert menningarlega sinnaður þessa dagana og skalt skoða hvað er í boði og njóta þess sem best þú getur. Sýndu þroska og leggðu þitt til lausnar málanna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur margt að sýsla í fé- lagslífinu sem blómstrar þessa dagana. Ekki setja markið of hátt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér er nauðsyn að finna tíma fyrir sjálfan þig. Ekki reyna að neyða ráða- gerðum þínum upp á aðra, leyfðu hlut- unum að ráðast. tóku björgunarsveitirnar við. „Skáta- hreyfingin hefur verið stór hluti af mínu lífi og hef ég verið svo lánsamur að fá að taka þátt í mörgum stórum verkefnum fyrir hreyfinguna. Þar má nefna tvö alþjóðleg skátamót RoverWay 2009 og World Scout Moot 2017, auk þess að hafa setið í landsmótsstjórn fyrir Bandalag ís- stofunni. Verkís hefur unnið að verk- efnum víða um heim og hef ég tekið þátt í mörgum slíkum verkefnum. Þetta hefur veitt mér innsýn inn í viðmið annarra þjóða og mismunandi nálganir á viðfangsefnum.“ Davíð er núna forstöðumaður brunamála hjá Húsnæðis- og mann- virkjastofnun (HMS) en stofnunin varð til við sameiningu Íbúðalána- sjóðs og Mannvirkjastofnunar (MVS) um síðustu áramót, en hann hóf störf þar í byrjun árs 2018. „Í dag stend ég á tímamótum þar sem ég mun láta af störfum hjá HMS og fara aftur í verkfræðigeirann sem ég þekki auðvitað afar vel. Eitt af því skemmtilegasta í starfinu hefur verið vinna með hinum Norðurlöndunum að samstarfsverkefnum auk sam- starfs við slökkviliðin í landinu og aðra hagsmunaaðila sem vinna að brunavörnum. En það erfiðasta er að horfa upp á skelfilegar afleiðingar eldsvoða, sem því miður er hluti af okkar veruleika. Ávallt skáti Áhugi Davíðs á félagsmálum kviknaði í skátahreyfingunni og svo D avíð Sigurður Snorrason er fæddur 29. júlí 1980 á Akureyri og ólst þar upp til fullorðinsára er hann flutti til Reykja- víkur og hóf háskólanám. „Akureyri er alltaf minn heimabær þó ég hafi búið nánast jafn lengi í Reykjavík og mér finnst ég alltaf þurfa að taka það fram að ég sé frá Akureyri þegar ég er spurður um búsetu. Æskuárin á Akureyri voru góð þar sem ég ólst upp í foreldrahúsum á brekkunni ásamt tveimur systrum. Ég byrjaði fljótlega í skátunum og er enn viðriðinn skátahreyfinguna tæp- um 30 árum síðar. Í skátunum kynnt- ist ég mörgum af mínum bestu vinum sem enn í dag halda góðu sambandi.“ Nám og starfsferill Davíð gekk í Barnaskóla Akureyr- ar og svo í Gagnfræðaskóla Akureyr- ar. Hann lærði húsasmíði og samhliða lauk hann stúdentsprófi af raun- greinadeild í Verkmenntaskólanum á Akureyri 2001. Hann lauk svo sveins- prófi í húsasmíði sumarið eftir fyrsta veturinn í verkfræðideildinni í Há- skóla Íslands eftir að tilsettri starfs- reynslu hjá Byggingafélaginu Hyrnu hafði verið náð. Hann lauk B.Sc. námi í byggingarverkfræði árið 2005 og meistaraprófi (MEng) í byggingar- og brunaverkfræði frá Edinborgar- háskóla vorið 2007. „Á þessum tíma var mikið um að vera í brunadeildinni í Edinborgarháskóla og margar áhugaverðar rannsóknir í gangi sem ég er þakklátur fyrir að hafa geta verið þátttakandi í. Að námi loknu stóð mér til boða áframhaldandi nám við skólann sem ég afþakkaði enda mikill þrýstingur að flytja aftur heim til Íslands og taka þátt í góðærinu sem þar ríkti.“ Eftir heimkomuna hóf Davíð störf á Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd- sen en hann hafði verið sumarstarfs- maður þar 2003 og síðan unnið þar í eitt ár áður en hann hélt í framhalds- nám. Verkfræðistofan varð síðan að Verkís verkfræðiskrifstofu 2008 en þar leiddi Davíð starf í brunahönnun á byggingarsviði. „Ég er afskaplega þakklátur því góða fólki sem ég vann með og lærði af öll árin sem ég vann á lenskra skáta. Ég sat í mótsstjórn og stýrði tæknimálum á fimmtánda World Scout Moot sem haldið var á Íslandi 2017, mótið er eitt af stærstu afrekum íslenskrar skátahreyfingar en um 5 þúsund þátttakendur voru á mótinu víðsvegar að úr heiminum og tókst mótið afar vel. Undirbúning- urinn tók rúmlega þrjú ár. En efa- semdir voru hjá alþjóða hreyfingunni (WOSM) um að Ísland gæti haldið slíkt mót sökum smæðar en allir voru dregnir á flot og með samstilltu átaki tókst verkefnið. Í dag styð ég son minn í skátunum og sit í stjórn Skátafélagsins Seguls í Seljahverfi.“ Davíð er núna formaður safnaðar- ráðs Fríkirkjusafnaðarins í Reykja- vík. „Fríkirkjan í Reykjavík stendur fyrir mikilvæg gildi og hefur alltaf gert, sem er m.a. frelsi, viðsýni og umburðarlyndi. Þessi gildi eru jafn mikilvæg nú og fyrir 120 árum þegar söfnuðurinn var stofnaður. En skemmst er að minnast afmælis- hátíðar sem haldin var í nóvember í fyrra. Ég var fyrst fenginn til starfa fyrir kirkjuna þegar vantaði þekk- ingu á byggingarmálum inn í stjórn- ina en að lokum var ég kosinn for- Davíð Sigurður Snorrason, byggingar- og brunaöryggisverkfræðingur – 40 ára Fjölskyldan Davíð, Eva og börn eru dugleg að ferðast um landið og fara í fjallgöngur og eru hér við Keili. Snýr aftur í verkfræðigeirann Afmælisbarnið Davíð. 40 ára Hjörtur er frá Þverá í Blönduhlíð í Skagafirði en býr í Þverholti í Landsveit í Rangárvallasýslu. Hann er tamninga- maður að mennt frá Háskólanum á Hólum og vinnur við tamningar og þjálfun og er með eigin ræktun. Maki: Elín Hrönn Sigurðardóttir, f. 1987, rekur ásamt manni sínum tamningastöð og ferðaþjónustu í Þverholti, Guesthouse Elín. Börn: Lisbeth Viðja, f. 2008, Sigrún Ýr, f. 2014, og Sæmundur Ingi, f. 2020. Foreldrar: Magnús Stefánsson, f. 1944, og Amalía Sigrún Guðmundsdóttir, f. 1951, fyrrverandi bændur á Þverá. Hjörtur Ingi Magnússon Til hamingju með daginn Þverholt í Landsveit Sæmundur Ingi Hjartarson fæddist 16. febrúar 2020. Hann vó 3.678 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Hjörtur Ingi Magnússon og Elín Hrönn Sigurðar- dóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.