Morgunblaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt að heim- ila fjármála- og áhættustýringar- sviði Reykjavíkurborgar að auglýsa fasteignina Bakkastaði 2, Keldu- skóla/Korpu, til leigu. Það er ekki á hverjum degi sem heill skóli, 2.816 fermetrar, er auglýstur til leigu. Meirihlutinn í skóla- og frístunda- ráði borgarinnar samþykkti í fyrra- haust að leggja niður skólahald í Kelduskóla/Korpu og færa bekkjar- deildir þar í aðra skóla hverfisins. Foreldrar barna í Staðahverfi mót- mæltu þessari ákvörðun harðlega. Skólinn er nýlegur, tók til starfa í ársbyrjun 2012. Fram kemur í greinargerð eignar- skrifstofu að skóla- og frístundasvið hafi sagt upp leigu húsnæðis að Bakkastöðum 2 frá og með 1. júlí sl. Húsnæðið, sem er á einni hæð, geti hentað undir ýmsa starfsemi en sé hannað sem skólahúsnæði. Nokkrir aðilar hafi sýnt áhuga á að fá hús- næðið á leigu eftir að skóla- og frí- stundaráð ákvað að sameina starf- semi grunnskóla í Grafarvogi og hætta notkun á húsnæðinu. Leigu- tími yrði ótímabundinn með 12 mán- aða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins, Marta Guðjónsdóttir, Hildur Björnsdóttir og Egill Þór Jónsson, bókuðu að þeir samþykktu að skólinn yrði leigður út með því skilyrði þar yrði skólahald til að mynda fyrir sjálfstætt rekna skóla sem hefðu áhuga á að leigja húsið fyrir starfsemi sína. Fari frítt í sjálfstæðan skóla Borgarráðsfulltrúarnir lögðu á sama fundi fram tillögu þess efnis að yrði það raunin að sjálfstætt rekinn grunnskóli yrði með starfsemi sína í húsnæðinu legðu þeir til að börn í Staðahverfi ættu þess kost að ganga í skólann sér að kostnaðarlausu. Það væri sanngirnismál að Reykjavíkur- borg greiddi kostnað vegna þessara nemenda kysu þeir að ganga í sjálf- stætt rekinn skóla í hverfinu. Búast mætti við að margir foreldrar hefðu áhuga á að börn þeirra gætu sótt skóla í nærumhverfi sínu, sem sé í anda eins meginstefja aðalskipulags- ins. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins, Kolbrún Baldursdóttir, bókaði að með þessari aðgerð væri endanlega verið að loka fyrir þann möguleika að snúa ákvörðun um skólamálin í norðanverðum Grafarvogi til baka, þ.e. að hafa starfsstöð Kelduskóla/ Korpu eins og var. „Sameining starf- semi grunnskóla í Grafarvogi þar sem hætt var notkun á húsnæðinu olli reiði og ólgu meðal margra for- eldra og íbúa í Grafarvogi. Ekki er komin reynsla á hvernig hið nýja fyr- irkomulag muni koma út ef horft er til hagsmuna barnanna. Enda þótt ekki sé góður kostur að hafa Bakka- staði 2 ónotað húsnæði er spurning hvort ekki ætti að hinkra ögn og sjá hvernig mál þróast í hinu nýja fyrir- komulagi,“ bókaði Kolbrún. Morgunblaðið/sisi Kelduskóli/Korpu Kennslu hefur verið hætt í skólanum og húsgögn fjarlægð. Húsnæðið verður auglýst til leigu. Hver vill leigja skóla?  Borgin auglýsir Kelduskóla til leigu  Húsnæðið er 2.816 fermetrar „og getur hentað undir ýmsa starfsemi“ Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur skipað nýtt átta manna kvikmynda- ráð. Sigurjón Sighvatsson kvik- myndaframleiðandi er formaður ráðsins. Samkvæmt kvikmyndalögum er kvikmyndaráð stjórnvöldum og Kvikmyndamiðstöð Íslands til ráð- gjafar um málefni kvikmynda og gerir tillögur til ráðherra um stefnu og markmið opinberra aðgerða á sviði kvikmyndalistar, segir í til- kynningu frá ráðuneytinu. Ráðherra skal skipa átta fulltrúa í kvikmyndaráð til þriggja ára í senn, formann án tilnefningar, en hina sjö samkvæmt tilnefningum. Auk Sigurjóns eru í ráðinu Mar- grét Örnólfsdóttir varaformaður, Anna Þóra Steinþórsdóttir, Lilja Ósk Snorradóttir, Ragnar Braga- son, Lilja Ósk Diðriksdóttir, Berg- steinn Björgúlfsson og Birna Haf- stein. Varamenn í kvikmyndaráði eru Auður Edda Jökulsdóttir, Elva Sara Ingvarsdóttir, Kristinn Þórð- arson, Ása Helga Hjörleifsdóttir, Þorvaldur Árnason, Sigríður Rósa Bjarnadóttir, Hjálmar Hjálmarsson og Huldar Breiðfjörð. Nýtt átta manna kvikmyndaráð  Sigurjón skipaður formaður ráðsins Morgunblaðið/Eggert Formaður Sigurjón Sighvatsson mun fara fyrir kvikmyndaráði. Pétur Már Ólafsson, útgefandi Bjarts & Veraldar, og Ragnar Jónas- son rithöfundur undirrituðu laug- ardaginn síðasta, 25. júlí, útgáfu- samning um nýja bók, sem væntanleg er á íslenskan markað í október. Bókin heitir Vetrarmein, sem er fengið úr einni bóka afa höfundar, Þ. Ragnars Jónassonar. Hún gerist á Siglufirði og Ari Þór Arason lög- reglumaður er lykilpersóna. Örlitlu fyrr mun bókin koma út í Frakk- landi undir heitinu Sigló og í desem- ber í Bretlandi og Bandaríkjunum en þar mun hún nefnast Winterkill. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Handsalað Pétur Már og Ragnar skrifuðu undir samninginn á Siglufirði. Skrifuðu undir útgáfusamning Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS HJÓLALÁSAR FRÁ TRELOCK Sjáðu úrvalið og veldu lásinn sem hentar þér á www.lykillausnir.is Í YFIRRÉTTI („HIGH COURT OF JUSTICE“) FYRIRTÆKJA- OG EIGNADÓMSTÓLAR (E. BUSINESS AND PROPERTY COURTS) ENGLANDS OGWALES) FYRIRTÆKJADÓMSTÓLL (E. COMPANIES COURT (ChD) VARÐANDI QBE UK LIMITED og VARÐANDI QBE EUROPE SA/NV og VARÐANDI BRESK LÖG FRÁ ÁRINU 2000 UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU OG -MARKAÐI (e. FINANCIAL SERVICES ANDMARKETS ACT 2000) Hérmeð tilkynnist að hinn 1. júlí 2020 lögðu QBE UK Limited (QBEUK) og QBE Europe SA/NV (QBE Europe) (saman nefnd„QBE“) fram beiðni skv. 107 gr. breskra laga umármálaþjónustu og -markaði frá árinu 2000 (e. Financial Services andMarkets Act 2000) („lögin“) hjá dómstólnum High Court of Justice, Business and Property Courts of England and Wales, Companies Court (ChD) í London, um úrskurð: (1) samkvæmt 111. gr. laganna sem heimilar áætlun („áætlunin“) um framsal til QBE Europe á almennum vátryggingum og endurtryggingum sem veittar hafa verið á grundvelli þjónustufrelsis á öllu Evrópska efnahagssvæðinu (EES) frá höfuðstöðvum QBE UK í Bretlandi á tímabilinu frá 1. janúar 1970 til 31. desember 2018 og: (a) varða eingöngu áhættu sem er staðsett í aðildarríki EES, (b) varða áhættu sem er staðsett í aðildarríki EES og Bretlandi, eða (c) varða áhættu sem er staðsett í aðildarríki EES og annarri lögsögu (annarri en Bretlandi), og (2) semmælir fyrir um viðbótarákvæði í tengslum við áætlunina skv. 112. gr. og 112. gr. A í lögunum. Eintak af skýrslu um skilmála áætlunarinnar, sem var samin í samræmi við 109. gr. laganna af óháðum sérfræðingi, („skýrslan um áætlunina“), yfirlit um skilmála áætlunarinnar, samantekt skýrslunnar um áætlunina og áætlunarskjalið eru fáanleg endurgjaldslaustmeð því að hafa samband við QBEUK eða QBE Europe gegnumneðangreind símanúmer, heimilisföng eða netföng. Þessi skjöl og önnur tengd skjöl, þ.á.m. sýnishorn af samskiptum við vátryggingartaka, eru einnig fáanleg á vefsvæði QBE (https://qbeeurope.com/). Þetta vefsvæði verður uppfært ef einhverjar mikilvægar breytingar verða á fyrirhuguðu framsali. Vakni spurningar í tengslum við fyrirhugaða áætlun skal hafa samband við QBE í síma +44 (0)20 3465 3330, með því að senda tölvupóst á brexit.queries@uk.qbe.com eða senda bréfpóst á heimilisfangið 30 Fenchurch Street, London EC3M 3BD, United Kingdom. Sért þú með vátryggingu hjá QBE UK, vinsamlegast tilgreindu þá númer vátryggingarskírteinisins í öllum samskiptum. Þetta númer er að finna í vátryggingarskjölunum og tengdum bréfaskiptum. Beiðnin verður tekin fyrir hjá dómstólnum High Court of Justice of England and Wales, 7 Rolls Buildings, Fetter Lane, London, EC4A 1NL, Bretlandi, hinn 21. október 2020. Hverjum þeim sem telur að framkvæmd áætlunarinnar myndi hafa neikvæð áhrif á sig eða hyggst hreyfa andmælumgegn henni er heimilt að vera viðstaddur dómþingið í eigin persónu eða gegnum fyrirsvarsmann. Þess er farið á leit að hver sá sem hyggst gera það tilkynni það til QBE gegnum ofangreint heimilisfang, skriflega og svo fljótt sem auðið er, helst fyrir 14. október 2020, og tilgreini eðli andmæla sinna. Þettamun gera QBE kleift að tilkynna hvers kyns breytingar í tengslum við dómþingið og, ef unnt er, ráða bót á vandamálum sem tilkynnt er um fyrir dómþingið. Hver sá sem andmælir áætluninni, eða telur að hann kunni að verða fyrir neikvæðum áhrifum af henni, en hyggst ekki mæta á dómþingið getur komið sjónarmiðum sínumumáætlunina á framfærimeð því að senda skriflega tilkynningu þar að lútandi til QBE á ofangreint heimilisfang eða hringja í ofangreind símanúmer, í hverju tilviki eins fljótt og auðið er og helst fyrir 14. október 2020. QBE mun gera bresku ármálaeftirlitsstofnunum Financial Conduct Authority og Prudential Regulation Authority viðvart um öll andmæli sem berast fyrir dómþingið, óháð því hvort aðilinn sem hreyfir andmælunum hyggst vera viðstaddur það. Norton Rose Fulbright LLP, 3 More London Riverside, London, SE1 2AQ, Bretlandi Lögmenn QBE UK og QBE Europe

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.