Morgunblaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
„ÉG FÉKK ÞESSA FYRIR AÐ GRJÓTHALDA
KJAFTI.”
„MÉR LÍKAR LITURINN EN MUN VATNIÐ
EKKI BARA LEKA ÚR ÞVÍ?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sýna umhyggju.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
RÉTTU MÉR EXINA ÞÍNA! ÉG ÆTLA AÐ
FARA MEÐ JÓLATRÉ HEIM!
ÉG FRÉTTI AÐ HERTOGINN ÆTTI
MJÖG FALLEGAN NORMANNSÞIN!
LÍSA ER SVO
FALLEG
OG ÞÚ ERT
ÞAÐ EKKI
ÞAÐ ER EKKI
DISS EF ÞAÐ
ER SATT,
VINUR
ÉG GERI RÁÐ
FYRIR AÐ ÞÚ SÉRT
AÐ DISSA MIG
maður.“ Davíð hefur alltaf haft
mikinn áhuga á útivist og ferðalögum
á fjöllum. „Fjallgöngur og skíða-
mennska er eitt af því skemmtileg-
asta sem ég geri og ekki síst með
fjölskyldunni. Við höfum verið dug-
leg að ferðast um landið og vorum
einmitt núna að ljúka einni hring-
ferðinni með viðkomu á norðanverðu
hálendinu þar sem við fórum í
Herðubreiðarlindir, Öskju og Kverk-
fjöll.“
Fjölskylda
Eiginkona Davíðs er Eva Rut Guð-
mundsdóttir, f. 12.10. 1980, ljósmóðir
á Landspítalanum. Foreldrar hennar
eru hjónin Guðmundur Rafn Guð-
mundsson, f. 13.3. 1960, sjómaður hjá
Frosta, og Hafdís Harðardóttir f.
26.4. 1961, starfsmaður hjá Darra.
Þau eru búsett á Grenivík
Synir Davíðs og Evu eru Guð-
mundur Kristinn, f. í Edinborg 12.2.
2006, og Ágúst Þór, f. í Reykjavík
23.8. 2011.
Systur Davíðs eru Sólveig Þór-
arinsdóttir, hálfsystir sammæðra, f.
3.6. 1974, leikskólakennari, búsett í
Reykjavík, og Magnea Kristín
Snorradóttir, f. 22.3. 1987, tóm-
stunda- og félagsmálafræðingur, bú-
sett í Reykjavík.
Foreldrar Davíðs eru hjónin
Snorri Sigurður Kristinsson, f. 28.1.
1954, málara- og húsasmíðameistari,
og Lísbet Davíðsdóttir; f. 4.8. 1956,
sjúkraliði, búsett á Akureyri.
Davíð Sigurður
Snorrason
Lisbet Tryggvadóttir
verkakona á Akureyri, f. á Melum í Fnjóskadal
Gestur Jóhannesson
verkamaður á Akureyri, f. í
Vestari-Krókum í Fnjóskadal
Ragna Gestsdóttir
húsmóðir á Akureyri
Davíð Sigurður Kristjánsson
bifreiðarstjóri og
verslunarmaður á Akureyri
Lísbet Davíðsdóttir
sjúkraliði á Akureyri
Friðrika Jakobína
Sveinbjörnsdóttir
húsfreyja á Gásum, f. í
Hillum á Árskógsströnd
Kristján Kristjánsson
bóndi á Gásum í Glæsibæjarhreppi, Eyj., f. í Bitru
Sverrir Kristinsson
fasteignasali
Sigríður Ingiríður Stefánsdóttir
húsfreyja á Akureyri, f. á Syðsta-Mói í Fljótum
Júlíus Sigurður Hafliðason
sjómaður og matsveinn, f. á
Akureyri
Magnea Júlíusdóttir
húsmóðir á Akureyri
Kristinn Pálsson
verslunarstjóri á Akureyri
Ólöf Grímea Þorláksdóttir
húsfreyja og listmálari, síðast
í Reykjavík, f. á Lambanes-
Reykjum í Fljótum
Páll Jónsson
bóndi og sundkennari á Illugastöðum í Fljótum, síðar
sundkennari í Ólafsfirði, f. á Knappsstöðum í Stíflu, Skag.
Úr frændgarði Davíðs Sigurðar Snorrasonar
Snorri Sigurður Kristinsson
málara- og húsasmíða-
meistari á Akureyri
Þórarinn Eldjárn skrifar á heima-síðu sína og kallar „Tívolíf“:
Í ólgandi hringiðu aggsins og kífsins
er innri mannsins strengur þaninn.
Nýjasta tækið í tívolí lífsins
er tilfinningarússíbaninn.
Hér kemur svo „Efnagreining“ úr
Vísnafýsn (2010) eftir Þórarin:
Skilgreini ég skáldastörf
skoða og spekúlera,
einhverskonar efnahvörf
ætla ég þau vera.
Krydda ég yrkisefni mín
og öllu saman hræri
í lesefni á leið til þín,
lesandi minn kæri.
Indriði á Skjaldfönn skrifaði á
Boðnarmjöð að sig vantaði seinni-
part:
Sumir fyrir skúffur skrifa,
skora því ei hátt.
Ég sýndi karlinum á Laugaveg-
inum þetta, hann skaut höfðinu aft-
ur á bak eilítið til vinstri og svaraði:
Yrkja vers sem ekki lifa
og alltaf fara lágt.
Pétur Stefánsson yrkir við ljós-
mynd af diski sem er hlaðin kræs-
ingum og skrifar: „Er ekki fjarri því
að maturinn bragðist betur af nýju
matardiskunum sem ég keypti í
IKEA á 495 kr. stk., nema mér sé að
fara svona fram í eldamennskunni“:
Með bros á vör ég borða flest;
belju, kjúkling, svín og hest
og salat, það er einnig mikils metið.
En alltaf finnst mér bragðast best
blessað lambaketið.
Helgi Ingólfsson yrkir að gefnu
tilefni:
Brátt hér myndast bófaflokkur.
Bara mun í Portland verra:
Bandaríkin bjóða okkur
byssuglaðan sendiherra.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir:
Svo gamlan með þvermóðsku glott
þeir gróf’ann með háð sitt og spott.
Þá við grafarans hæla
heyrðist hann mæla;
Ja, ekki er útsýnið gott.
Á Leirnum yrkir Sigmundur
Benediktsson og kallar „Óra“:
Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær,
fullyrti náungi, sem ég hitti í gær.
Glaðbeittur hugur kemur lífinu í lag,
lagði til annar, sem að ég mætti í dag.
Skilningslund mín er skrítin og stundum
svo treg.
Skyldu þeir vita allt, miklu betur en eg?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Blessað lambaketið
og tívolí lífsins