Morgunblaðið - 29.07.2020, Side 24

Morgunblaðið - 29.07.2020, Side 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020 VIÐTAL Magnús Guðmundsson magnusg@mbl.is „Þetta er í tuttugasta og annað sinn sem Berjadagar eru haldnir hátíð- legir á Ólafsfirði og auk þess er bær- inn 75 ára, þannig að það er ærið til- efni til að gleðjast fyrir alla aldurs- hópa,“ segir Ólöf Sigursveinsdóttir, framkvæmdastjóri og listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Frítt er á tónleika á hátíðinni fyrir 18 ára og yngri. Eftir að farið var að halda Berja- daga um verslunarmannahelgi hefur hátíðin fest sig rækilega í sessi sem frábær valkostur fyrir tónlistarunn- endur. „Það er frábært fyrir þá fjöl- mörgu sem eru á ferðinni þessa daga að eiga þess kost að staldra við á há- gæðatónleikum til þess að hlusta á svona frábæra listamenn.“ Hljómhúsin til fyrirmyndar Ólöf segir að það aðsókn á hátíðina hafi aukist á síðustu árum og að í fyrra hafi verið sett aðsóknarmet. „Þá vorum við með óperusýningu í menningarhúsinu Tjarnarborg og þar var margt um manninn og mikil gleði. Við höldum áfram uppi merkj- um óperu á þessari hátíð og munum leitast við að gera í framtíðinni. Að þessu sinni erum við í fyrsta sinn með hádegistónleika í Ólafs- fjarðarkirkju, þar sem þau Chrissie Telma Guðmundsdóttir fiðluleikari og Einar Bjartur Egilsson píanóleik- ari ætla að ferðast um ólík tímabil tónlistarsögunnar. Þetta er skemmtilegur valkostur, bæði fyrir gesti hátíðarinnar og alla sem eru á ferðinni um þessa helgi.“ Spurð hvort góð aðstaða sé á Ólafsfirði til flutnings á sígildri tón- list segir Ólöf að heimamenn geti verið stoltir af hljómhúsum sínum. „Ólafsfjörður er tónleikaperla því bæði Ólafsfjarðarkirkja og menning- arhúsið Tjarnarborg eru fyrsta flokks. Það bregst heldur ekki að eft- ir tónleika er fólk í viðjum tónlistar- innar vegna þess að hljómurinn – við þekkjum þetta frá Reykholti og víð- ar þar sem hefur verið lagt í hljóm- inn – er sannarlega til staðar. Þessi hljómur er mér alltaf mikill innblástur og ég leitast því við að byggja hljómleikana út frá honum.“ Alltaf veisla Ólöf hefur á orði að það sé gefandi fyrir starfandi listamenn að taka þátt í hátíð á borð við Berjadaga. „Að vera atvinnumaður í tónlist felur í sér svo margt fleira en að vera inni í herbergi að æfa sig. Það getur verið að borða saman, að skála eftir tón- leika og samveran á undan og eftir tónleikum gefur okkur færi á því að fá innblástur hvert frá öðru. Að taka þátt í svona hátíð er því listrænt átak og falleg reynsla í leiðinni. Það er mér því sérstök ánægja að safna saman hæfileikafólki á svona stað eins og Ólafsfjörð. Við eigum svo margt frábært tón- listarfólk sem er alveg á pari við það besta sem gerist og þarna gefst ein- stakt tækifæri til þess að koma og hlusta á þetta fólk spila. Listamennirnir koma og flytja það sem stendur hjarta þeirra næst í bland við það sem ég bið þá um að flytja og tónleikar á Berjadögum verða oft á tíðum veisla þar sem stemningin getur verið jafnvel magnþrungin.“ Frábær píanisti Ólöf segir að þetta valfrelsi í tón- list sem listamennirnir hafa sé lykill að fjölbreyttri og skemmtilegri dag- skrá. „Á hátíðinni er að finna íslensk söngljóð, kammertónlist, Jón Ás- geirsson verður þar með heiðna aríu úr Þrymskviðu í kirkjunni og það er smá óþekkt í því sem við höfum gam- an af. Það er yndislegt að hugsa til þess að Elja kammersveit kemur, stór í sniðum, undir stjórn Bjarna Frí- manns Bjarnasonar og það verður sögulegt því ég veit ekki til þess að sinfónían hafi komið nema einu sinni til Ólafsfjarðar og það var einhvern tímann í fornöld,“ bætir Ólöf við glettin. „Það er líka sérstaklega spennandi við þessa tónleika að með Elju verður Jónas Ásgeir Ásgeirs- son, einleikari á harmonikku, og það ætti enginn að missa af því.“ Upphafskvöld hátíðarinnar verður með óvenjulegu sniði sem markast af 250 ára afmæli Ludwigs van Beet- hovens. „Jón Thoroddsen heimspekingur ætlar að leggja leið sína norður og ræða við okkur af því tilefni og sjálf tek ég tónskáldið aðeins að mér með því að spila með okkar stórkostlega píanista Þorsteini Gauta Sigurðs- syni. Það er alveg sérstakt að spila með Þorsteini því hann er hreint út sagt frábær píanisti.“ Afmælisveisla Tónlistardagskráin á Berjadögum er fjölbreytt og ekki einvörðungu á klassískum nótum því á meðal þeirra sem ætla að skemmta fólkinu er hin valinkunna sveit Hundur í óskilum. Að auki verður margt um að vera í bænum, sem fagnar á sunnudaginn 75 ára kaupstaðarafmæli. „Það verður afmæliskaffi og grill á laugardeginum og opnun mynd- listarsýningar í Pálshúsi en það er verið að ljúka endurnýjun á því fal- lega húsi sem verður opnað með pompi og prakt á laugardeginum. Að auki verður söguganga um bæinn, sveppaskoðun, jurtaskoðun og fjöl- margt fleira spennandi enda eru heilir fjórtán dalir í Ólafsfirði. María Bjarney Leifsdóttir Ólafsfirðingur ætlar að vera með göngu inn í Árdal- inn á sunnudagsmorguninn og því verður af nógu að taka. Það er því ekki hægt að horfa framhjá því að yfirskrift Berjadaga, Listsköpun og náttúra, á sérstaklega vel við að þessu sinni.“ Ólöf leggur áherslu á að hátíðin myndi aldrei standa undir kostnaði nema með góðhug Ólafsfirðinga, sem veita hátíðinni húsnæði og mikla að- stoð ár eftir ár. Hún bendir einnig á að hægt er að kaupa hátíðarpassa á tix.is og þar er líka hægt að velja sér staka viðburði. Berjadagar henta því vel fyrir bæði þá sem hafa hug á að dvelja á Ólafsfirði yfir helgina sem og fólk sem er á ferðinni og kemur við á leið sinni um landið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Berjadagar „Ólafsfjörður er tónleikaperla því bæði Ólafsfjarðarkirkja og menningarhúsið Tjarnarborg eru fyrsta flokks,“ segir Ólöf Sigursveinsdóttir, fiðluleikari, listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri Berjadaga á Ólafsfirði. Ljósmynd/Guðný Ág. Óperutónlist Frá tónleikum í Ólafsfjarðarkirkju á Berjadögum í fyrra. Veisla og magnþrungin stemning  Ólöf Sigursveinsdóttir, listrænn stjórnandi Berjadaga á Ólafsfirði, segir hátíðina einstakt tækifæri fyrir ferðamenn til þess að njóta hágæðatónleika hjá fyrsta flokks listamönnum í einstöku umhverfi Réttarhöld standa nú yfir í hæsta- rétti í London í meiðyrðamáli bandaríska leikarans Johnny Depp gegn útgáfufélagi götublaðsins The Sun og hefur fjöldi frétta borist af þeim undanfarna daga. Depp fór í mál við félagið í kjölfar umfjöllunar The Sun þess efnis að hann hefði beitt eiginkonu sína fyrrverandi, leikkonuna Amber Heard, ofbeldi. Nýjustu fréttir af réttarhöld- unum eru þær að Depp viðurkennir að hafa hagað sér ósæmilega undir áhrifum áfengis og vímuefna og segist ekki hafa gert sér almenni- lega grein fyrir því hversu skelfileg og ofbeldisfull hegðun hans var. Áður hefur Depp lýst sér sem kurt- eisum Suðurríkjamanni sem beri virðingu fyrir konum. Smáskilaboð sem hann sendi úr síma sínum benda hins vegar til hins gagn- stæða, skv. frétt dagblaðsins Guardian. Í þeim lýsir Depp konum sem druslum og feitum hórum og í einum skilaboðanna segist hann ætla að berja „ljótu píkuna“ og á þar við Heard. Depp segist þó aldr- ei hafa beitt Heard líkamlegu of- beldi en Heard segir hann ítrekað hafa beitt hana slíku ofbeldi. Gengst við ofbeldisfullri hegðun AFP Leikarinn Johnny Depp mætti með grímu í hæstarétt í London í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.