Morgunblaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.07.2020, Blaðsíða 28
Í sumar býður fjöldi safna og sýningarstaða í miðbænum upp á lengdan afgreiðslutíma síð- asta fimmtudagskvöld hvers mánaðar, þ.e. í júní, júlí og ágúst, og auk þess er enginn að- gangseyrir að sýningum. Fólk getur þá kynnt sér listsýningar, kíkt inn á vinnustofur lista- manna og heimsótt listamanna- rekin rými, gallerí og söfn. Á morgun verður fjölbreytt dag- skrá í boði og opið til kl. 22 á 14 sýningarstöðum. Má nefna að í Kling & Bang í Marshallhúsinu verður opnað kl. 20.30 með gjörningi Arnars Alexanders Ámundasonar og á vinnustofu Hrafnhildar Arnardóttur „Shoplifter“, í Ingólfsstræti 6, verður hægt að upplifa verk hennar „Chromo Sapiens“ í sýndarveruleika. Núllið gallerý opn- ar sýningu eftir Sölku Rósinkranz og Tótu Kolbeinsdóttur og Listasafn Íslands býður upp á listgöngu um sunnan- vert Skólavörðuholt. Dagskrá má finna á facebook- viðburðasíðu fimmtudagsins langa. Opið til kl. 22 og aðgangur ókeypis förnu – í kjölfar veirutímans – hefur hann verið þétt bókaður og nóg að gera. Þar má nefna að síðastliðinn föstudag var hann að spila og syngja á Hvammstanga síðdegis og kom svo fram á tveimur stöðum í Reykjavík um kvöldið. Á laugardeginum voru fjögur gigg á Suðurlandi. Orka í útiveru „Núna er ég kominn á þann stað sem tónlistarmaður að mér finnst nauðsynlegt að stokka spilin og end- urskipuleggja ferilinn. Skemmtan- irnar þar sem ég hef spilað síðustu árin hafa stundum verið 25-30 í hverjum mánuði, sem er of mikið. Það má ekki gerast að maður þreyt- ist eða verði leiður; gleðin er mikil- væg í þessum bransa. Ég er líka með ýmislegt nýtt og spennandi á prjón- unum og er alls ekki að hætta í tón- listinni,“ segir Ingó, sem var í gær staddur í Vestmannaeyjum með föður sínum og ýmsum úr fjölskyld- unni að spila golf. „Völlurinn hér í Eyjum er frábær. Þetta er gaman og frábært líka að sækja sér orku í útiveru í stórbrotnu umhverfinu hér,“ segir söngvarinn góði, sem er með 16 í forgjöf í golf- inu, svo það sé fært til bókar. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Íslendingum finnst gaman að syngja,“ segir Ingólfur Þórarinsson söngvari, best þekktur sem Ingó veðurguð. „Texta að sumum vinsæl- um lögum kunna bókstaflega allir og geta tekið undir, að minnsta kosti í viðlaginu. Að vera andspænis fullum sal eða jafnvel brekku af fólki þegar þannig stendur á er skemmtilegt.“ Lauflétt og grípandi Þótt engin sé Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum þetta árið bregst ekki brekkusöngurinn sem Ingó hefur verið með nokkur undanfarin ár. Skemmtunin verður að þessu sinni í Sjónvarpi Símans næstkomandi sunnudagskvöld auk þess sem henni verður útvarpað á mbl.is og K100. Þar verður meðal annars flutt þjóðhátíðarlagið Takk fyrir mig, en það flytja Ingó og Guðmundur, bróð- ir hans, sem í föðurætt eru úr Vest- mannaeyjum og hafa dvalið þar mikið, en eru frá Selfossi. Lengi hefur staðið til hjá Síman- um að sjónvarpa tónleikum með Ingó, enda fellur tónlist hans vel að því sem vinsælt hefur verið að undanförnu. Þættirnir Heima með Helga slógu í gegn en þar voru ís- lensk lög, lauflétt og grípandi, í aðal- hlutverki. Bahama og Bíddu pabbi „Íslensk lög eins og við þekkjum úr partíum, afmælum og útilegum eru alltaf það vinsælasta þótt slík músík njóti ekki alltaf mikillar viður- kenningar eða sé mikið spiluð í út- varpi. En þetta er að breytast,“ segir Ingó sem hefur lifað og hrærst í tón- list í fjöldamörg ár. Mörg lög hans hafa flogið hátt svo sem til dæmis Sumargleðin, Í kvöld er gigg, Valli Reynis, Bahama og Gestalistinn. – Af lögum annarra sem Ingó spilar gjarnan má nefna Vegbúann sem KK, Kristján Kristjánsson, samdi og flutti og Bíddu pabbi, erlent lag við texta Iðunnar Steinsdóttur sem Vil- hjálmur Vilhjálmsson söng og gerði ódauðlegt fyrir tæplega hálfri öld. „Síðustu ár í tónlistinni hafa verið ótrúlega skemmtileg og aldrei dauð- ur punktur,“ segir Ingó. Að undan- Ingó á tímamótum  Brekkusöngur og ævintýri  Veðurguð í Vestmanna- eyjum  Þjóðhátíðarlagið  Breytingar eru fram undan Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Söngvarinn Ingólfur í Vestmannaeyjum í gær, þar sem hann naut lífsins og spilaði golf með fjölskyldunni. Hann ætlar nú að stokka spilin í eigin lífi. PURUSNAKK Lág kolvetna MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 211. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Þetta er orðið skárra hjá mér, ég er alveg sammála því, en ég get enn þá bætt mig og vil alltaf meira,“ seg- ir Valdimar Þór Ingimundarson, leikmaður Fylkis, meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag. Blaðið varpar kastljósinu á Valdimar í uppgjöri á 9. umferð Pepsí Max-deildarinnar í knattspyrnu en Valdimar skoraði fyrir Fylki og lagði upp tvö í 3:2-sigri á HK í Árbænum. Þrátt fyrir að vera einungis 21 árs er Valdimar orðinn lykilmaður hjá Fylki og er nú í liði umferðarinnar í þriðja sinn á keppnistímabilinu. »22 Fylkismaðurinn ungi gerir ekki mik- ið úr eigin frammistöðu í sumar ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.