Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Síða 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2020
Afleiðingar mótmælabylgj-
unnar sem fór um Bandaríkin í
júní mun ekki aðeins hafa áhrif
á nöfn íþróttaliða í Bandaríkj-
unum. Að standa er þjóð-
söngurinn er leikinn gæti verið
álitið yfirlýsing í sjálfu sér. Var
Rachel Hill gangrýnd harðlega
fyrir að krjúpa ekki á hné þegar
þjóðsöngurinn var leikinn fyrir
fyrsta leik úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu á dögunum.
Árið 2016 fór Colin Kaeper-
nick, leikstjórnandi San Franc-
isco 49ers, að krjúpa á hné er
þjóðsöngur Bandaríkj-
anna var fluttur fyrir
leiki í NFL-deildinni.
Hann vildi með því
mótmæla því misrétti
sem þeldökkir væru
beittir af lögreglu-
mönnum í landinu.
Margir voru ósáttir
við athæfið enda
standa Bandaríkja-
menn jafnan með hönd
sér á brjósti til stuðn-
ings Bandaríkjaher við
þjóðsönginn.
Einhverjir liðs-
félagar Kaepernick tóku þátt í
mótmælunum með honum en
þau náðu ekki útbreiðslu um
deildina. Ári seinna, 2017, hófu
þó fleiri leikmenn að krjúpa fyr-
ir leiki og varð það til þess að
NFL-deildin og eigendur liða
hennar settu bann við því. Leik-
menn áttu annaðhvort að
standa eins og menn eða bíða í
búningsklefum á meðan þjóð-
söngurinn væri leikinn.
Í dag er staðan allt önnur.
Friðsamleg mótmæli á borð við
þau sem Kaepernick hélt uppi
eru orðin móðins. Roger Goo-
dell, framkvæmdastjóri NFL,
sagðist á dögunum hafa
gert mistök þegar deildin
reyndi að sporna gegn
mótmælum leikmanna.
Þá hefur Knattspyrnu-
samband Bandaríkj-
anna dregið til baka
reglu sína um að
leikmenn verði að
standa
þegar
þjóðsöng-
urinn er
leikinn.
LÖGREGLUOFBELDI MÓTMÆLT
Banninu aflétt
Kaepernick
var á undan
sínum tíma.
Stytta af George Preston Mars-hall var fjarlægð fyrir utanR.F.K. Stadium, fyrrum leik-
vang ruðningsliðsins Washington
Redskins, í síðasta mánuði.
Skemmdarverk höfðu verið unnin á
henni eins og á svo mörgum öðrum
styttum sem taldar eru standa fyrir
misrétti minnihlutahópa í Banda-
ríkjunum, og raunar víðar um heim.
Marshall keypti ruðningsliðið
Boston Braves árið 1932 ásamt
tveimur öðrum. Ári seinna keypti
hann hlut hinna og breytti nafni liðs-
ins í Redskins, sem á íslensku út-
leggst sem rauðskinnar og er af
mörgum talið niðrandi orð yfir frum-
byggja Ameríku. 1937 flutti Marsh-
all liðið til höfuðborgar Bandaríkj-
anna, Washington D.C., og hefur það
síðan heitið Washington Redskins.
Í fyrstu lét Marshall leikmenn liðs
síns nota andlitsmálningu og þjálf-
arann bera fjaðrir á höfði sér. Þegar
svartir leikmenn fóru að leika fyrir
atvinnumannalið í ruðningi stóð
Marshall á móti straumnum. Red-
skins varð árið 1962 síðasta liðið til
semja við svartan leikmann en að-
eins eftir að stjórnvöld hótuðu að
rifta leigusamningi liðsins á leikvelli
þess. Marshall var eigandi liðsins
þar til hann dó árið 1969.
Fyrir rúmum tveimur vikum var
ákveðið að fjarlægja nafn Marshall
úr Frægðarhringnum á FedEx
Field, þar sem Redskins leikur í dag.
Þá var nafn hans fjarlægt af sögu-
vegg á æfingasvæði liðsins og má nú
hvergi finna á vefsíðu þess.
Mótmælt frá 7. áratugnum
Bandarísk og kanadísk íþróttalið
hafa löngum notað heiti yfir frum-
byggja Ameríku fyrir nöfn á liðum
sínum. Fyrst um sinn voru þetta ein-
ungis gælunöfn en með tíð og tíma
urðu nöfnin opinber heiti liðanna.
Nefna má hafnaboltaliðið Atlanta
Braves sem áður hét Boston Braves.
Nafnið var fyrirmynd ruðningsliðs-
ins sem nefnt var hér í upphafi og er
vísun í stríðsmenn frumbyggja.
Lukkudýr þessara liða, og þar
með merki þeirra, hafa haft sterka
skírskotun í menningu frumbyggja.
Í mörgum tilfellum setja merkin og
lukkudýrin fram staðalímynd sem
fer fyrir brjóstið á mörgum.
Í upphafi 7. áratugarins tók
réttindabaráttufólk að benda á þessa
lítillækkun hópsins og hafa mörg lið
um gervalla Norður-Ameríku skipt
út nöfnum sínum og lukkudýrum í
kjölfarið. Umræðan hefur stigmagn-
ast í gegnum árin og hefur Braves til
að mynda fallið frá lukkudýri sínu
sem var frumbyggi í fullum skrúða
og er það nú exi téðs minnihluta-
hóps.
Þá hefur hafnaboltaliðið Cleve-
land Indians látið af lukkudýri sínu,
að mestu að minnsta kosti.
Chief Wahoo, hálfgerð
teiknimyndafígúra,
var lengi vel að-
alsmerki liðsins.
Frá og með
árinu 2019
sást hann
ekki á bún-
ingi liðsins og
varningur með
fígúrunni er ekki til
sölu á heimasíðu liðs-
ins þótt hægt sé að nálgast hann í
verslunum á vellinum og í heimarík-
inu, Ohio.
Hlusta loks á mótmælendur
En nöfnin standa eftir hjá stærstu
liðunum. FedEx, aðalstyrkaraðili
Redskins, fór opinberlega fram á
það á dögunum að liðið skipti um
nafn. Í kjölfarið gaf Redskins og eig-
andi þess, Dan Snyder, út yfirlýs-
ingu þess efnis að nafnið yrði endur-
skoðað. Indians gaf út svip-
aða tilkynningu nokkrum
klukkutímum síðar.
Málefnið hefur fengið
aukna athygli í kjölfar mót-
mæla gegn kerfislægu kyn-
þáttamisrétti í Bandaríkjunum og
virðist umræðan um nöfn liðanna
hafa náð krítískum punkti. Í gegnum
tíðina hafa eigendur liða á borð við
Redskins og Indians staðfastlega
neitað að nöfn liðanna feli í sér kyn-
þáttahatur eða séu niðrandi í garð
frumbyggja. Liðin hafa fengið stuðn-
ing í hljóði frá forsvarsmönnum
íþróttadeildanna og risafyrirtækj-
unum sem styrkja þau.
Liðin hafa bent á rannsóknir sem
sýna að meirihluti afkomenda frum-
byggja líti ekki á orð eins og rauð-
skinni sem niðrandi. Þær rannsóknir
hafa þó hlotið talsverða gagnrýni af
hendi þeirra sem vilja sjá nöfnin
fara. Eins benda margir á að ekki
skipti öllu máli hve mörgum finnist
nöfn liðanna niðrandi heldur að það
sé til minnihlutahópur sem vilji ekki
vera gerður að lukkudýri.
Í viðtali árið 2013 sagði Snyder
staðfastlega að hann myndi aldrei
breyta nafni liðs síns. Nafnið heiðr-
aði menningu frumbyggja. En eftir
kröfu FedEx og að Nike fjarlægði
varning Redskins úr verslunum sín-
um er annað hljóð komið í strokkinn
enda fjárhagurinn þar með í húfi.
Líkleg ástæða þess hve langan
tíma hefur tekið að koma breyting-
unum á er að sama skapi fjárhags-
legs eðlis. Redskins-liðið er eitt það
verðmætasta í NFL-deildinni og
mun að öllum líkindum tapa háum
fjárhæðum sé nafni og merki þess
breytt umtalsvert. En nú eru fjár-
hagsöflin að skerast í leikinn og því
er það í þágu eigenda að hlusta á
mótmælendur.
Rauðskinnar
á útleið
NFL-liðið Washington Redskins ætlar að endur-
skoða nafn sitt sem talið er, auk lukkudýrs þess,
niðrandi í garð frumbyggja Ameríku. Mótmæli
sem eiga sér langa sögu bera nú loks árangur.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
AFP
Chief Wahoo var
löngum andlit
hafnaboltaliðsins
Cleveland Indians.
Ekki lengur.
Washington Redskins mun að öllum líkindum skipta um nafn á næstu misserum. Loksins, loksins, segja einhverjir.
HÁDEGISMATUR alla daga ársins
Bakkamatur
fyrir fyrirtæki og mötuneyti
Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum,
sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt,
einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum
fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum.
Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is
SKÚTAN
Matseðill og nánari upplýsingar á
veislulist.is