Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Qupperneq 13
12.7. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Högg svo hröð þau sjást ekki
Sugar Ray Robinson, heimsmeistari í millivigt,
var eitt af átrúunargoðum Cassius Clay. Clay
byggði hnefaleikastíl sinn á því að stór maður
gæti fengið að láni stílinn frá minni manni og
þannig sameinað styrk og hraða. Hann var því
ólíkur því sem fólk átti að venjast frá þunga-
vigtarkappa.
„Maðurinn bjó yfir líkamsburðum sem að-
eins tveir í sögunni hafa búið yfir. Það voru Ali
og Bruce Lee,“ segir Ómar Ragnarsson,
fréttamaður, við sunnudagsblaðið. Bruce Lee
var sagður svo fljótur það skapaði vandamál
fyrir kvikmyndatökumenn í myndum hans.
„Þegar högg þeirra eru stúderuð eru þau svo
hröð sum að þau nást ekki á mynd,“ segir
Ómar.
„Hreyfingarnar allar voru svo ofboðslega
fallegar hjá Ali,“ segir Ómar. „Þetta er svo
fagurskapaður skrokkur. Dansandi fótahreyf-
ingarnar voru lykillinn. Þær byrja í tám og
ökkla og fara eins og rafstraumur í gegnum
skrokkinn, í gegnum mjaðmirnar, axlirnar,
handleggina og yfir í hnefana á yfirnáttúru-
legum hraða.“
Clay gerðist atvinnumaður í október 1960 og
varð fljótt einn sá besti í þungavigtinni. Ferdie
Pacheo, læknir Clay, hafði eitt sinn á orði að á
fyrstu árum hans sem atvinnumaður hafi hann
verið fullkominn líkamlega. „Það var ekki hægt
að gera hann betri,“ sagði hann. „Fullkomin
samsvörun, fallegur, viðbrögð á ljóshraða og
frábær skilningur á íþróttum. Jafnvel þegar
hann fékk kvef fór það næsta dag.“
Sting eins og býfluga
Þegar Clay fékk loks tækifæri gegn heims-
meistaranum Sonny Liston árið 1964 voru fáir
sem höfðu trú á honum. Clay hafði litið illa út í
tveimur síðustu bardögum sínum, sem hann þó
vann, og Liston hafði nýlega gert lítið úr meist-
aranum fyrrverandi, Floyd Patterson, í tveim-
ur bardögum sem enduðu báðir með rothöggi í
fyrstu lotu.
Clay vissi hve góður hnefaleikakappi Liston
var. Hann hafði horft á bardaga eftir bardaga
með honum. En hann vissi hvernig hann gæti
haft áhrif á hann fyrir bardagann, látið honum
líða óþægilega en á sama tíma vanmetið Clay.
Clay hafði flutt til Miami þegar atvinnu-
mannaferillinn fór af stað og þar var bardaginn
haldinn 25 febrúar. Þegar Liston mætti á
lestarstöð í borginni var Clay mættur með
fylgdarliði og öskraði, „Aumingi! Stóri ljóti
björn! Ég ætla að lemja þig núna!“ Liston var
ekki skemmt; bað Clay að hætta þessum fífla-
látum. En Clay hætti ekki. Hann hélt áfram
þennan dag og mætti jafnvel fyrir utan húsið
sem Liston leigði á meðan undirbúningi fyrir
bardagann stóð.
Morguninn fyrir bardagann fór Clay alla
leið. Hann gekk bersersgang, reyndi að ráðast
að Liston og héldu margir að hann væri að
tapa sér af hræðslu fyrir bardagann. Einhverj-
ir héldu að Clay myndi ekki mæta í hringinn
seinna um kvöldið.
En allt var þetta leikur hjá Clay. „Flögra
eins og fiðrildi, sting eins og býfluga,“ sagði
Clay um sig sjálfan fyrir bardagann. Hann
fylgdi plani sínu fullkomlega í bardaganum.
Lét finna fyrir sér en reyndi að þreyta Liston
þar til í sjöttu lotu þegar hann lét til skarar
skríða. Liston vanmat Clay og var ekki í formi
til annars en að rota hann í fyrstu tveimur eða
þremur lotunum. Eftir þá sjöttu og þegar sjö-
unda lotan átti að hefjast sat Liston sem fast-
ast í sínu horni. Hann gafst upp.
Þrælanafn
Eftir bardagann staðfesti Clay loks að hann
aðhylltist kenningar Elijah Muhammad og
samtakanna „Nation of Islam“ (NOI). Með-
limir NOI, sem stundum voru kallaðir „svörtu
múslimarnir“, fylgu kenningum Múhameðs
spámanns og tilbáðu Allah.
Clay kynntist NOI fyrst árið 1959. Hann var
uppnuminn af boðskap þeirra um stolt og að-
skilnað. NOI var fylgjandi aðskilnaði svartra
og hvítra í Bandaríkjunum og töldu svarta
æðsta kynstofninn, aðrir, þar á meðal hvítir,
væru komnir af þeim. Þeir voru tortryggnir
gagnvart hvítum og töldu þeim ekki treyst-
andi.
Það sem greip helst athygli Clay var hins
vegar boðskapur múslima. Agi og fas þeirra,
auk áherslu á stigveldi, manndóm og sjálfsvirð-
ingu. Eftir að hafa kynnst lítillækkun vegna
kynþáttar síns allt sitt líf gat Clay fundið reisn
sína í þessum samtökum.
Clay tók hugmyndum um yfirburði svartra
og hatur á hvítum ekki eins alvarlega og t.d.
Elijah Muhammad, leiðtogi NOI. Hann sagði
sig úr samtökunum árið 1976, gerðist súnní-
múslimi og varð opinberlega á móti aðskilnaði.
Aðallega vildi Clay betri kjör fyrir svarta sem
illa var farið með í Bandaríkjunum. Hann vildi
láta gott af sér leiða. Og það gerði hann alla ævi.
Elijah Muhammad gaf Ali nýtt nafn þegar
hann gekk formlega í samtökin. Muhammad Ali
varð fyrir valinu en fyrst um sinn vildu frétta-
menn og aðrir ekki nota nafnið. „Cassius Clay
er þrælanafn. Ég valdi það ekki og ég vil það
ekki. Ég er Muhammad Ali, frjálst nafn. Það
þýðir elskaður af Guði og ég krefst þess að fólk
noti nafnið þegar það talar við mig.“
Ekkert „vofuhögg“
Ali barðist aftur við Liston 1965 og sigraði með
rothöggi í fyrstu lotu. Rothöggið var ólíkt þeim
bylmingshöggum sem menn voru vanir í þunga-
vigtinni. Var það kallað „vofuhögg“. „Ég skil
ekki deilurnar út af því, því vofuhögg þetta er
þó sjáanlegt á einum myndramma á kjálka
Listons,“ segir Ómar. „Höfuð hans hreyfist eld-
snöggt og það sést en ekki höggið sjálft því það
er í skjóli við höfuðið. Þegar Liston stekkur
áfram til þess að ná Ali og fær höggið á sig án
þess að sjá það er það því náttúrulega hreint
rothögg.“
Ali varði titilinn gegn Floyd Patterson og
tveimur öðrum áður en hann mætti Brian
London 1966. „Ali rotar hann með tólf höggum í
röð á 2,9 sekúndum,“ segir Ómar. „Af þessum
tólf höggum er bara eitt sem hittir beint í á
kjálkann. Öll hin höggin eru til þess að opna
vörnina. Þegar þú horfir á fótaburðinn þegar
hann gerir þetta er svo mikil fegurð í þessu að
þú steingleymir því hvað þetta er grimm íþrótt.
Ali innleiddi fegurð í íþrótt sem fáir höfðu áður
hugsað sér að nein fegurð væri til í.“
Ali varði titilinn fjórum sinnum til viðbótar
áður en hann neitaði að ganga í herinn 1967.
Stuttu seinna var hnefaleikaleyfi hans tekið úr
gildi og hann sviptur heimsmeistaratitlinum.
Hinn 20. júní var hann dæmdur í fimm ára fang-
elsi en áfrýjaði og þurfti því ekki að sitja inni
um sinn.
Afstaða Alis var innblástur fyrir marga þel-
dökka. Hann fórnaði sínum bestu árum sem
hnefaleikamaður fyrir gildi sín. William Rhoden
skrifaði í New York Times seinna, „Gjörðir Alis
breyttu ímynd minni á hvað það þýddi að vera
frábær íþróttamaður. Að hafa frábært stökk-
skot eða geta stoppað á punktinum var ekki
lengur nóg. Hvað ertu að gera fyrir frelsun
fólks þíns? Hvað ertu að gera til að hjálpa þjóð
þinni að standa við stofnunarsáttmála sinn?“
Árið 1971 var loks dæmt í máli Alis fyrir
hæstarétti Bandaríkjanna. Réttindabaráttan
hafði þá náð meira vægi auk þess sem stríðið í
Víetnam mætti sífellt meiri mótspyrnu og höfðu
margir færst á band Alis. Dómnum var því snú-
ið við en Ali hafði fengið keppnisleyfi sitt aftur
árið á undan.
Glímdi við krókódíl
Ómar segir Ali hafa misst tæp fjögur af sínum
bestu árum þegar hann var í banni frá hnefa-
leikum. „Það er margbúið að sanna það að ald-
urinn í kringum 25 ára er sá tími ævi manna þar
sem bæði líkamlegir og andlegir hæfileikar eru
að meðaltali í hámarki.“
Eftir fjarveruna þurfti Ali því að byggja upp
nýjan feril og breyta bardagaáætlun sinni. Eftir
að hafa barist við marga af þeim bestu, tapað í
tvígang, fyrst gegn Joe Frazier í bardaga aldar-
innar og seinna gegn Ken Norton, náði Ali loks
heimsmeistaratitlinum aftur. Hann sigraði þá
George Foreman 1974 í bardaga þar sem For-
eman var talinn mun líklegri til sigurs.
Ali fór á kostum í aðdraganda bardagans.
„Ég hef gert svolítið nýtt fyrir þennan bar-
daga,“ sagði Ali. „Ég hef glímt við krókódíl, ég
hef barist við hval; handjárnað eldingu, kastað
þrumu í fangelsi; bara í síðustu viku myrti ég
grjót, meiddi stein, setti múrstein á spítala. Ég
er svo vondur að ég geri lyf veik.“
En líkamlegir hæfileikar höfðu dvínað.
„Hraðinn var orðinn aðeins minni,“ segir Ómar.
„Þá þurfti hann að byggja á nýjum atriðum eins
og „Rope-a-dope“ þar sem hann lá aftur á bak í
köðlunum og svæfði andstæðinginn; lét hann
sóa kröftum sínum í högg sem hann varðist, en
laumaði inn einni og einni eitraðri stungu.
Þannig varð hann heimsmeistari aftur. Hann lá
í köðlunum lotu eftir lotu, og þegar hann rotaði
Foreman í lok áttundu lotunnar var það svo ná-
kvæmlega gert að það voru aðeins tvær sek-
úndur eftir af lotunni.“
Eftir bardagann sagði Ali við fréttamann,
„Ég sagði þér að ég væri bestur allra tíma.“
Ári seinna barðist Ali í þriðja sinn við Joe
Frazier sem þá var fyrrverandi heimsmeistari.
Frazier vann fyrstu rimmuna, Ali þá aðra. Sú
þriðja fór fram í Quezon-borg í Manila á
Filippseyjum og var kölluð „Tryllirinn í Manila“
(„Thrilla in Manila“). Bardaginn endaði ekki
fyrr en þjálfari Frazier kastaði inn hvíta hand-
klæðinu áður en 15. og síðasta lotan fór fram.
Ali hafði þá farið illa með kappann í þeirri 14. en
báðir voru þeir uppgefnir og Ali við það að
hætta.
Ali tapaði titlinum 1978, 36 ára gamall, til
Leon Spinks. Hann vann hann til baka frá
Spinks sama ár og varð þar með heimsmeistari
í þriðja sinn, oftar en nokkur annar á þeim tíma.
Hann tilkynnti að hann hefði lagt skóna á hill-
una stuttu síðar.
Áhrifamesti íþróttamaðurinn
Ali átti erfitt með að segja skilið við íþróttina.
Hann barðist gegn Larry Holmes um titilinn
1980 og ári seinna við Trevor Berbick. Ali tap-
aði báðum viðureignunum og ljóst var að hann
hafði mörgu gleymt frá fyrri árum.
Ferdie Pacheco hætti sem læknir Ali fyrir
bardagana, fannst Ali ætti ekki að berjast aftur.
Líklega voru taugaskemmdir Alis farnar að láta
kræla á sér á þessum tíma en hann greindist
með Parkinson’s-sjúkdóminn 1984. En launa-
seðillinn dró Ali og hans menn að.
Í upphafi ferilsins fékk Ali sjaldan á sig högg
enda eldsnöggur. Það breyttist við endurkom-
una 1970. Hann tók á sig miklar barsmíðar,
meira að segja í þeim bardögum sem hann
vann. Ómöglegt er að segja með vissu en líklega
átti þetta hlut í framgöngu sjúkdóms hans þó
Ali hafi þvertekið fyrir það.
Ali var gífurlega þekktur og vinsæll um allan
heim. Tveir milljarðar manna horfu á hann
berjast við Larry Holmes 1980 þegar mann-
fjöldi í heiminum var um 4,5 milljarðar. „Hann
var þekktasti maður í heimi árum saman,“ segir
Ómar.
Ali var eini íþróttamaðurinn á lista Time yfir
áhrifamesta fólk 20. aldarinnar sem kom út árið
1999. Hann sýndi öðru fólki gildi þess að vera
stoltur af uppruna sínum og gerði engar mála-
miðlanir á þeim gildum sem hann stóð fyrir.
Hann var alltaf hann sjálfur.
Ali er af mörgum talinn besti þungvigtar-
hnefaleikari sögunnar. Hann var uppi á tíma
þar sem hnefaleikar voru hvað vinsælastir og
ungt fólk leit upp til heimsmeistara í íþróttinni.
Hann hafði yfirburði líkamlega. „Ali lék sér
að því að sippa tvöfalt hraðar heldur en nokkur
annar. Það var ekki nokkur leið að sjá þetta,“
segir Ómar.
En það sem skar hann úr var hugurinn. Eins
og áður sagði varð hann aldrei hræðslunni að
bráð inni í hringnum og utan hans lék hann sér
að andstæðingunum. Pirraði þá og fékk þá til að
hugsa um annað en það sem var á dagskránni;
hnefaleikabardagann.
Ali var einstakur. „Það kemur einn svona á
öld,“ segir Ómar Ragnarsson um Muhammad
Ali sem lést fyrir fjórum árum, 74 ára að aldri.
Blaðamenn hópast að Ali eftir að hann neitaði að ganga í herinn og fara í stríð til Víetnam 1967.
Ali talar við blaðamenn í aðdraganda bardagans
við George Foreman um titilinn 1974.
Ali í París á leið sinni heim eftir að hafa sigrað
Foreman í Kinshasa í Zaire.