Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Blaðsíða 14
Eftir taugatrekkjandi flugferðþar sem blaðamaður varfenginn til að fljúga fisvél, bauð Jónas Sturla, formaður Fis- félags Reykjavíkur, upp á kók og prins í húsakynnum félagsins á Hólmsheiði. Jónas vinnur alla jafna við tölvu- og öryggismál, en er mik- ill áhugaflugmaður með fjórtán ára flugreynslu. Vélin sem hann flýgur flokkast sem fis og er afar lítil og létt og má aðeins vera 450 kíló með öllu; bensíni, farangri og tveimur, helst grannvöxnum, farþegum. Sextán mínútna stress Það var sól í heiði daginn sem Jón- as bauð blaðamanni í flugferð á fis- vélinni sinni. Eftir að hafa komið sér inn í afar lítinn flugstjórn- arklefa keyrði Jónas vélina út á grasbraut og örskotsstundu síðar svifum við yfir borgina í átt að firð- inum kenndan við hvali. Fjörðurinn var fallegur í sólinni og það glitraði á sjóinn. Flogið var að hvalstöðinni og þar lenti Jónas á veginum eins og ekkert væri og tók svo aftur á loft. Vélin er á stærð við lítinn bíl, þó að vænghafið sé nú mun breiðara en meðalbíll. Ein lítil skrúfa heldur vélinni á flugi. Mælaborðið er held- ur fábrotið og minnir lítið á mæla- borð þotna. Blaðamaður var þarna enn pollrólegur og myndaði út um gluggana það sem fyrir augu bar. Flogið var yfir sumarbústaða- byggðina við Meðalfellsvatn og svo haldið „heim“ á leið. „Við lendum vélinni og skiptum um sæti og þú flýgur henni svo,“ segir Jónas og blaðamaður þorði ekki annað en að kyngja, kinka kolli og samþykkja það, en innst inni hugsaði hann hvað í ósköpunum hann væri búinn að koma sér út í. Jónas gat sem betur fer gripið í taumanna ef illa færi í þessum fyrsta flugtíma blaðamanns sem hélt ofurfast í stýrið og beygði til vinstri þegar Jónas sagði hægri. Allt fór þó vel að lokum og í sameiningu var vélinni lent heilu og höldnu eftir sextán langar og stressandi mín- útur. Jónas var að sjálfsögðu sallarólegur enda var engin hætta á ferðum. Tíu tilraunir að lenda Á jörðu niðri gátum við svo spjallað og Jónas byrjar á að segja frá vél- inni. „Vélin mín er ítölsk og heitir Sav- annah S en hér á landi eru núna til sjö eða átta svona vélar. Við smíð- uðum hana sjálfir,“ segir Jónas, en hann á hana í félagi við tvo vini sína. „Hún kemur í flötum pakka, eins og IKEA-skápur. Svo fylgir með handbók og maður byrjar bara á blaðsíðu eitt,“ segir hann og brosir. „Þetta tók átta hundruð tíma en þar af vorum við tvö hundruð tíma að leita að verkfærunum af því mað- ur týnir þeim alltaf,“ segir hann og hlær. „Svo fara hundrað tímar í að fá heimsóknir vina sem vilja skoða og fá kaffi. Það var mjög gaman að smíða hana og það fylgir allt með í kassanum nema málningin og tal- stöðin. Það er búið að skera allt út og bora öll göt. Handbókin er á ein- hvers konar ensku en það er Ítali sem skrifar hana og ekki alltaf sem við skildum hvað hann var að meina. En þetta reddaðist allt saman,“ seg- ir hann kíminn. „Þetta eru mjög sterkar vélar, þótt menn segi þær búnar til úr ál- dósum. Álið er 0,4 millimetrar á þykkt, aðeins þykkara en kókdós. En þegar maður er búinn að festa þetta allt saman þola þær mjög mik- ið,“ segir hann. „Vélin er hönnuð fyrir sex hundr- uð kíló þótt reglugerðin segi 450 kíló. Við erum að vonast til að breyt- ing á lögum komist í gegnum þing því það þarf að breyta þessu hjá okkur. Menn gera sér grein fyrir því að í dag erum við ekki lengur 70 kíló og það er engin glóra að tveir geti verið í vélinni og haldið henni undir 450 kílóum,“ segir Jónas. Jónas hafði aldrei komið nálægt „Það er svo mikið frelsi sem fylgir þessu. Það verð- ur heldur aldrei þreytt að horfa yfir fallega landið okkar,“ segir Jónas Sturla Sverrisson sem stendur hér við fisvélina sína sem hann smíðaði sjálfur. „Þetta á að vera skemmtilegt“ Hjá Fisfélagi Reykjavíkur má finna fólk sem flýgur um loftin blá í fisvélum eða svifvængjum. Formaðurinn Jónas Sturla Sverrisson veit allt um fisflug og veit fátt skemmtilegra en að svífa yfir sveitir landsins á heimasmíðaðri vél sinni. Hann bauð blaðamanni með í flugferð og lét hann taka stjórnina um stund. Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Fisvélar þurfa bara vegarspotta eða grasbala til að lenda og takast á loft. 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2020 VIÐTAL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.