Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2020
LÍFSSTÍLL
Anna Fríða Gísladóttir hefursagt upp starfi sínu hjáDomino’s til að róa á önnur
mið. „Ég get því miður ekki greint
frá því hvert ég er að fara núna. En
er ótrúlega stolt af því að þetta
fyrirtæki hafi leitað til mín, þar sem
það var á lista hjá mér yfir fyrirtæki
sem mig langaði að starfa hjá í fram-
tíðinni.“
Það er fleira að gerast hjá Önnu
Fríðu. Hún er að flytja og síðan
eignaðist hún barn fyrir ellefu mán-
uðum með unnusta sínum, Sverri
Fal Björnssyni.
Spurð hvers vegna hún valdi þá
leið sem hún gerði tengda menntun
sinni segir hún tilviljun hafa ráðið
því.
„Eins og svo margt í þessu lífi var
það háð tilviljun, en vinkona mín
skráði sig í viðskiptafræði og ég var
búsett í Danmörku á þeim tíma og
ákvað að fara í námið með henni.
Áður en ég skráði mig í námið
ræddi ég við námsráðgjafa, sem
sagði mér að viðskiptafræðin yrði
mér erfið vegna bakgrunns míns.
Ég var á málabraut í Verzlunarskóla
Íslands og hafði því aðeins tekið
einn áfanga í stærðfræði þegar ég
fór í viðskiptafræði. En mig langaði í
nýja áskorun og þrátt fyrir að náms-
ráðgjafar og áhugasviðspróf hefðu
beint mér í félagsfræði hafði ég gert
upp hug minn og efasemdaraddir
voru á endanum aðeins meiri hvatn-
ing fyrir mig til að standa mig vel.
Í dag störfum ég og þessi vinkona
mín á mismunandi sviðum innan við-
skiptafræðinnar, hún í fjármálum og
ég í markaðsmálum.“
Trúir að alltaf sé hægt að
gera betur
Hvaðan færðu vinnueðli þitt?
„Ég hef alltaf verið vinnusöm og
verið tilbúin að leggja hart að mér,
ég byrjaði ung að vinna og nokkur
sumur vann ég í þremur störfum.
Það skiptir öllu máli að finna sér
starf sem maður hefur áhuga á og
hjá fyrirtæki sem maður hefur trú á.
Reynslan hefur kennt mér að það er
mikilvægt að vera tilbúin að skipta
um skoðun og sjá hlutina frá öðru
sjónarhorni. Það hefur reynst mér
vel að vera óhrædd við að heyra í
öðrum innan sama geira og fá hug-
myndir, ráðleggingar og leita sér
þekkingar á sviðum sem gagnast
geta starfinu. Ég er ekki sérlega
hrifin af setningunni „þetta hefur
alltaf verið gert svona“ þegar tæki-
færi til að gera betur eru til staðar.
Ég er alin upp af einstæðri móður
sem var alltaf mjög vinnusöm og
lagði áherslu á að okkur skorti
ekkert. Ég fæ dugnaðinn og þraut-
seigjuna frá henni. Frá því að ég var
unglingur hef ég verið vinnusöm og
verið tilbúin að leggja hart að mér.
Einnig er það hvetjandi að starfa við
það sem maður hefur áhuga á, innan
fyrirtækis sem maður hefur trú á og
að sú trú sé endurgoldin frá öðrum
stjórnendum. Þegar maður upplifir
þess konar ábyrgð snemma á starfs-
ævinni hefur það mótandi áhrif til
frambúðar. Innan markaðsmálanna
hef ég einnig verið svo heppin að
geta leitað til reyndari aðila sem ég
lít upp til og fengið frá þeim ráð-
leggingar og hugmyndir sem hafa
síðan eflt mig og hvatt mig áfram.“
Stökk í djúpu laugina
Hvað vakti áhuga þinn við starfið
hjá Domino’s?
„Ég vissi lítið um fyrirtækið á sín-
um tíma, annað en af reynslu minni
sem viðskiptavinur, en ég komst
fljótt að því að þetta væri spennandi
og framsækið fyrirtæki. Ég var enn
í námi við Háskóla Íslands og hafði
fundið áhugasvið mitt innan mark-
aðsfræðinnar og var spennt fyrir að
taka fyrstu skref mín á atvinnu-
markaðnum og verða mér úti um
starfsreynslu. Fyrst um sinn vann
ég hjá Domino’s samhliða því að
ljúka náminu auk þess að markaðs-
mál Domino’s og Joe and the Juice
voru á þeim tíma rekin samhliða og
fékk ég að starfa með báðum fyr-
irtækjum. Þetta var einstakt tæki-
færi því Domino’s var rótgróið fyrir-
tæki en ég kom að opnun Joe and
the Juice. Auk þess hafði Domino’s
nýverið tekið miklum breytingum í
markaðssetningu og vöruþróun og
hafði hlotið mikið lof fyrir. Snemma
eftir útskrift hjá mér voru skipu-
lagsbreytingar innan fyrirtækisins
og fékk ég þá ábyrgð að sjá ein um
markaðsmálin. Ég tók því við mjög
góðu búi en mín áskorun var að við-
halda og gera enn betur. Ég var
tilbúin í þá áskorun. Mér var kastað
út í djúpu laugina. Ég vildi og þurfti
að sanna mig.“
Hvað getur þú sagt mér um fjöl-
skylduna þína?
„Ég er lánsöm að eiga son minn
með kærasta mínum Sverri Fal. Ég
komst fljótlega að því að allar klisjur
um foreldrahlutverkið eru sannar.
Þetta er besta starf í heimi og það er
mikil kúnst að sinna því hlutverki
vel ásamt starfsframa. Því fylgir að
maður þarf að færa fórnir eða tvinna
þessi hlutverk saman. Þegar sonur
minn var þriggja mánaða var ég
beðin um að flytja fyrirlestur um
markaðsmál. Ég fann að ég var
tilbúin til þess, enda þekkti ég við-
fangsefnið mjög vel. Þar sem ég var
í fæðingarorlofi lá það í augum uppi
að taka soninn með, sem svaf í vagni
við hliðina á mér á meðan. Þegar 10
mínútur voru eftir vaknaði dreng-
urinn og ég kláraði fyrirlesturinn
haldandi á honum. Það má alveg
segja að salurinn hafi tekið vel við
sér.“
Ákveðin og kann að segja
nei
„Þegar kemur að starfsframa er
nauðsynlegt að vita hvað maður vill
og líka hvað maður vill ekki,
stundum þarf að afþakka góð boð
því þau eru ekki í takt við framtíð-
arstefnuna. Ég hef ófáum sinnum
upplifað blekkingarheilkennið (e.
imposter syndrome) þar sem ég hef
ekki talið mig geta staðið mig vel í
ákveðnum verkefnum vegna skorts
á þekkingu. En þegar ég upplifi
þessar tilfinningar tala ég við sjálfa
mig eins og ég myndi tala við bestu
vinkonu mína eða maka. „Ef þú
kannt ekki eitthvað – þá lærir þú
það! Af hverju ættir þú ekki að geta
lært og skilið eins og næsta mann-
eskja?“ Á síðustu árum hefur þessi
tilfinning komið sjaldnar, enda er
þetta hugsunarháttur sem þú til-
einkar þér og þróar með þér. Ég hef
alltaf staðið með sjálfri mér og fylgt
innsæinu. Einn af fyrstu fundum
mínum sem markaðsstjóri, þegar ég
var 25 ára, var með manni sem var
að reyna að selja okkur auglýsingar.
Þegar ég tjáði honum að ég ætlaði
að hugsa þetta aðeins sagði hann
orðrétt við mig: „Viltu ekki bara
biðja forstjórann um leyfi fyrir
þessu, vinan?“ Ég lauk fundinum
um leið og tjáði honum að við mynd-
um ekki stunda viðskipti við hann.“
Fólk segir að þú sért flink að
leysa flókin mál. Eru einhver mál í
samfélaginu þér hugleikin, sem þú
værir til í að leysa?
„Mér finnst liggja í augum uppi að
leysa þurfi mál er varða réttindabar-
áttu einstaklinga af erlendum upp-
runa. Ég mun aldrei geta sett mig í
stöðu þeirra heldur er það skylda
mín og allra sem eru ekki í þessari
stöðu að hlusta, læra og breyta.“
Besta ráðið sem hún hefur fengið
er að vera óhrædd við að taka
áhættu og gera mistök.
„Þetta ráð fékk ég 25 ára frá for-
stjóra Domino’s og hefur reynst mér
afar dýrmætt.“
En það versta?
„Þótt það sé ekki ráð sem ég hef
fengið finnst mér ekki góð sú óskrif-
aða regla að það sé ekki gott að
spyrja heldur frekar þykjast vita.
Ég veit ekki hvaðan þessi óskrifaða
regla kemur en hún virðist vera
vandamál í mörgum greinum.“
Anna Fríða segir að hún heillist af
einlægu, fyndnu og sjálfsöruggu
fólki. Í lokin langar hana að hvetja
fyrirtæki til að veðja á ungt fólk í
ábyrgðarstöður og hvetja um leið
ungt fólk til að sækjast eftir slíkum
stöðum og þá sér í lagi konur.
Ráði ungt fólk í ábyrgðarstöður
Anna Fríða Gísladóttir
hefur vakið mikla
athygli á síðustu miss-
erum fyrir vinnu sína
sem markaðsstjóri
Domino’s á Íslandi.
Hún er ákveðin og
skoðanaföst en alltaf
til í að gera betur. Hún
er líka skemmtileg og
klár í samskiptum.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Anna Fríða Gísladóttir er vinnusöm og hefur alltaf verið tilbúin að leggja hart að sér.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon