Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2020 LÍFSSTÍLL Jadnía Kasada nefnist hindúa-hátíð þjóðflokks tenggera áeynni Jövu í Indónesíu. Siður- inn nefnist einnig kesodo og snýst um að færa guðunum þakkir. Ár hvert klífa þúsundir heimamanna hlíðar fjallsins Bromo og varpa fórnum í rjúkandi gíg hins virka eldfjalls. Venjulega fylgir þeim fjöldi ferðamanna, en minna var um þá þetta árið vegna kórónu- veirufaraldursins. Fólk úr tengger-þjóðflokknum safnar ávöxtum, grænmeti og blómum til að henda í gíginn og jafnvel geitum og kjúklingum. Aðrir, sem ekki tilheyra tengger- um, reyna að grípa fórnirnar með netum og sarongum áður en þær hverfa ofan í reykjarbólstrana. Þær aðfarir eru reyndar ekki hluti af helgisiðnum en þó er hvatt til þess að láta fórnirnar ekki fara til spill- is. Jadnía Kasada stendur yfir í mánuð og að þessu sinni var gengið með fórnirnar á Bromo-fjall 7. júlí. Hátíðina má rekja aftur til sagna af Majapahit-konungdæminu frá fimmtándu öld um Roro Anteng prinsessu og Joko Seger, mann hennar. Þeim hafði ekki orðið barna auðið eftir margra ára hjóna- band og ákölluðu guðina um hjálp. Þau voru bænheyrð og heitið 25 börnum með því skilyrði að yngsta barninu yrði fórnað og varpað í eldfjallið Bromo. Samkvæmt þjóðsögunni stökk yngsti sonurinn af fúsum og frjáls- um vilja ofan í eldgíginn til þess að tryggja velsæld tenggera. Enn er siðnum viðhaldið þótt ekki séu færðar mannfórnir. Í seinni tíð hafa stjórnvöld vakið athygli á há- tíðinni til að laða að ferðamenn og auka atvinnu á svæðinu í kringum Bromo-fjall. Hinn 7. júlí hélt fjöldi manns upp hlíðar eldfjallsins Bromo til að færa fórnir á hinni árlegu Jadnía kasada-hátíð. AFP Grímuklæddur maður varpar fórn ofan í rjúkandi gíginn. Fórnarhátíð á barmi eldgígs Tenggeri heldur á fjallið Bromo með geit til fórnar á herðum sér. Á hverju ári heldur fjöldi manns úr þjóðflokki tenggera á eynni Jövu upp á fjallið Bromo til að færa fórnir. Siðurinn mun teygja sig aftur á fimmtándu öld. Eldgígurinn blasir við þátttakendum úr röðum tenggera í fórnarathöfninni fyrir neðan barm eldfjallsins Bromo á eynni Java á Indónesíu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.