Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Qupperneq 29
ars Arnar voru misjafnlega vel
heppnaðir. Þeir gengust upp í hall-
æri og fimmaurabröndurum og tóku
sig greinilega mátulega alvarlega.
Sumt af þessu spaugi er raunar svo
vont að það verður gott. Þið skiljið
hvað ég er að fara! Annað er betra
og á köflum prýðilega heppnað. Eins
og ítrekaðar tilraunir þeirra félaga
til að rista brauð í ám og vötnum
þessa lands, þrátt fyrir skýr skila-
boð, á þar til gerðum skiltum, um að
það væri stranglega bannað.
Ég var unglingur á þessum tíma
og man vel eftir Poppkorni með
þeim Gísla Snæ og Ævari Erni en
hef haft miklu meira yndi af þátt-
unum nú en nokkurn tíma fyrir 34
árum. Á þeim tíma hefur maður ugg-
laust verið að pæla meira í tónlist-
inni en þessum undarlegu uppá-
tækjum stjórnendanna. Eigi að síður
mundi ég eftir sumum kynningunum
og sketsunum; eins og þegar örvar
hæfðu þá félaga í hjartastað strax í
upphafi fyrsta þáttarins. Ætli þeir
hafi þá verið framliðnir allar götur
eftir það? Ég mundi líka eftir því að
Bjarni Felixson íþróttafréttamaður
var fenginn til að kynna næsta lag
yfir líflausum skrokkum umsjónar-
mannanna, grafalvarlegur. Bjarni
alltaf til í gott grín.
Ég mundi eftir einni og einni
kynningu eftir það en mest var þetta
þó nýtt fyrir mér. Maður hefur
áreiðanlega misst af einhverjum
þáttum enda lítið um endursýningar
á þessum árum og Sarpurinn hug-
mynd úr fjarlægri framtíð. Sæi mað-
ur ekki þátt var hann manni bara
glataður – nema þá að hent væri í
endursýningu 34 árum síðar. Við því
var raunar alltaf að búast enda hefur
þjónusta núverandi dagskrárstjóra
RÚV við okkur tónlistaráhugamenn
verið stórkostleg á umliðnum árum.
Nægir þar að nefna vandað heim-
ildarefni sem gjarnan ratar inn á
dagskrána á mánudagskvöldum.
Gísli Snær og Ævar Örn brugðu
sér í allra kvikinda líki í Poppkorni
og bjuggu til ýmsa eftirminnilega
karaktera. Eðli málsins samkvæmt
held ég mest upp á málmhausinn
Rilla tilla, sem Ævar Örn lék af
ísmeygilegri kímni.
Það kom þannig til að félagarnir
fengu skömm í hattinn snemma í
seríunni fyrir þær sakir að þeir
sýndu aldrei þungarokk í þættinum.
Hafa þær skammir ugglaust borist
með sniglapósti, nema þá að loð-
höfðar þessa lands hafi hringt froðu-
fellandi niður á RÚV. Báru stjórn-
endurnir því við að þeim þætti
þungarokk alveg drepleiðinlegt. En í
anda ungmennafélaganna og meist-
ara Ozzys Osbournes ákváðu þeir að
brjóta odd af oflæti sínu og henda í
eina og eina málmsmíð; harðkjarna
graðahestarokk á borð við Saxon og
Blue Oyster Cult! Það var iðulega
téður Rilli tilli sem kynnti þau lög
með sínu nefi. Illvígur með hár niður
á rass og leðraður frá hvirfli til ilja.
Rilli hefur líklega verið eini þunga-
rokkarinn með slétt hár árið 1986.
Hann og Cliff Burton. Þvílík gósen-
tíð fyrir hárgreiðslufólk; hver einasti
tónlistarmaður krullaður í drasl og
blásinn fyrir allan peninginn. Meira
að segja Phil Collins var með huggu-
lega liði í möllettinu.
34 árum of seint
Þegar Poppkorn var orðið að helgi-
stund á sveitasetri mínu í sumar
skunduðu Gísli Snær og Ævar Örn
óvænt inn á skrifstofu hjá Hrafni
Gunnlaugssyni, þáverandi dagskrár-
stjóra RÚV, og tilkynntu að þeir
vildu hætta með þáttinn. Tók Hrafn
því að vonum illa en féllst með sem-
ingi á uppsögnina. Heima í stofu
voru fyrstu viðbrögð mín að hringja
beint á RÚV og lýsa óánægju minni.
Þá áttaði ég mig á því að ég væri 34
árum of seinn ...
Þorsteinn Bachmann, sem við
þekkjum best sem leikara í seinni
tíð, tók við keflinu. Hann var hóf-
stilltari og hefðbundnari til orðs og
æðis en átti þó góða spretti inni á
milli, eins og þegar hann „málaði“
mynd af skallapopparanum Howard
Jones og þegar hann fann Kool &
the Gang í ísskápnum hjá sér. Svalt
grín þar á ferð.
Bæði Gísli Snær og Ævar Örn
hafa spjarað sig prýðilega eftir
Poppkorn. Sá fyrrnefndi er kvik-
myndaleikstjóri og skólastjóri Lond-
on Film School og Ævar Örn hefur
unnið við dagskrárgerð og sem
fréttamaður í útvarpi, auk þess að
skrifa útvarpsleikrit, glæpasögur og
fleiri bækur. Engum sögum fer hins
vegar af Rilla tilla.
12.7. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Reykjavíkurborg efnir til opinnar hönnunar- og framkvæmdasamkeppni um nýjan miðborgarleikskóla
og fjölskyldumiðstöð á suðvesturhluta reits sem afmarkast af Grettisgötu, Njálsgötu, Rauðarárstíg og
Snorrabraut, þar sem Njálsgöturóló hefur verið um árabil. Væntingar eru til þess að hönnun skólans og
fjölskyldumiðstöðvarinnar marki nýja sýn og hugsun í hönnun byggingarinnar hvað varðar vellíðan, virkni
og heilbrigði þeirra sem þar eru við leik og störf.
Keppendur þurfa að skrá sig inn á útboðsvef Reykjavíkurborgar til þátttöku.
Upplýsingar um skráningu, keppnislýsingu og önnur samkeppnisgögn er að finna á
reykjavik.is/honnunarsamkeppni-um-nyjan-midborgarleikskola-og-fjolskyldumidstod.
Þá er opin hugmyndagátt fyrir sjónarmið bæði almennings og fagfólks
og verða þau höfð til hliðsjónar í ferli samkeppninnar.
Tillögum skal skilað fyrir kl. 24, 7. október 2020.
Reykjavíkurborg og Arkitektafélag Íslands
Mynd: Sigurður Ólafur Sigurðsson
MÁLMUR Fjörutíu árum eftir að
honum var vikið úr Iron Maiden er
gamla gítarbrýnið Dennis Stratton
enn í fullu fjöri og í lok þessa mán-
aðar sendir hljómsveit hans,
Lionheart, frá sér nýja breiðskífu,
The Reality Of Miracles. Þetta er
aðeins þriðja breiðskífa Lionheart
sem stofnuð var árið 1980. Þess ber
þó að geta að sveitin fór í hýði milli
1986 og 2016. Í millitíðinni starfaði
Stratton, sem orðinn er 67 ára,
meðal annars með öðrum gömlum
maideníta, Paul Di’Anno söngvara.
Enn slær Ljónshjartað
Dennis Stratton hress að vanda.
Wikipedia.org
BÓKSALA 1.-7. JÚLÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Vegahandbókin 2020 Steindór Steindórsson o.fl.
2 Mitt ófullkomna líf Sophie Kinsella
3 Þerapistinn Helene Flood
4 Pabbastrákur Emelie Schepp
5 Tíbrá Ármann Jakobsson
6 Þögli sjúklingurinn Alex Michaelides
7 Risasyrpa – frægð og frami Walt Disney
8
Handbók fyrir ofurhetjur 5
– horfin
Elias/Agnes Vahlund
9 Ættarfylgjan Nina Waha
10 X leiðir til að deyja Stefan Ahnhem
1 Urðarköttur Ármann Jakobsson
2 Útlagamorðin Ármann Jakobsson
3 Samhengi hlutanna Eygló Jónsdóttir
4 Delluferðin Sigrún Pálsdóttir
5 Þögn Yrsa Sigurðardóttir
6 HKL ástarsaga Pétur Gunnarsson
7 Hrauney Karólína Pétursdóttir
8
Úr landsuðri og fleiri
kvæði
Jón Helgason
9 Barn náttúrunnar Halldór Laxness
10 Sæluhrollur 1 Vittorio Giardino
Allar bækur
Innbundin skáldverk
Þetta dásamlega sumar hefur nýst
mér vel í lestur. Einmitt núna er
ég djúpt sokkinn í snilldarlega þýð-
ingu Kristjáns Árnasonar á meist-
araverki Óvíds,
Ummyndunum.
Óvíd er dýrðleg-
ur. Kallinn skrifar
þetta í Róm
kringum Krists-
burð. Grísk-
rómversk goða-
fræði og hættu-
lega athyglisverðar sögur af
uppruna heimsins og þess háttar.
Veisla fyrir mann eins og mig sem
liggur stundum andvaka og bölvar
þeim örlögum að hafa ekki fengið
að fæðast sem forngrikki. Þessi
lestur er lógískt framhald af öðr-
um dásamlegum doðranti, Rann-
sóknum eftir Heródótus, föður
sagnfræðinnar. Ég las hana meira
og minna í baði á kvöldin núna í
vor. Kveikti á kertum. Borðaði vín-
ber (súkkulaðirúsínur frá Góu
reyndar). Ímyndaði mér mig með
mosaþykkt skegg í sandölum á
götuhorni í Aþenu. Kosturinn við
að lesa í baði er að það er voða lít-
ið sem truflar mann (nema sím-
inn). En Heródótus var reyndar
talsverð áskorun í baðkarinu því
hann er 700 síður í harðspjaldi.
Þetta var eins og að halda á sterk-
byggðu barni yfir vatnsyfirborð-
inu.
Í sóttkví í vor las ég verðlauna-
bókina Seltu eftir Sölva Björn Sig-
urðsson. Brilljant verk. Sölvi hlýt-
ur að vera einn af okkar allra
bestu stílistum. Snemma í júní
fann ég í Kolaportinu Bræðurna
Karamazov eftir Fjodor Dostoj-
evskí í margfrægri þýðingu Ingi-
bjargar Haraldsdóttur. Þetta eru
fágæt eintök. Fjodor var svakaleg-
ur höfundur sem ég dáist mikið
að. Hugrekkið! Siðferðilega alvar-
an! Upphrópunarmerkin! …
Óstöðvandi babblari samt. Blaðr-
ið hreinlega fossar úr penna
Fjodors.
Ég er búinn að vera að endur-
lesa, eða endurblaða öllu heldur, í
Bluets eftir Mag-
gie Nelson. Það
stígur dimmblátt
mistur upp af síð-
unum. Með eftir-
minnilegri bókum
sem ég hef lesið
síðustu ár.
Bókakaffið var
nýlega opnað í Ár-
múla. Ekki á hverjum degi sem ný
bókabúð er opnuð. Ég þangað.
Átti líka erindi á pósthúsið í Síðu-
múla. Þar beið mín pakki með
Shakespeare-þýðingum Helga
Hálfa sem ég keypti af höfðingja í
Skagafirði gegnum Facebook.
Hann hafði pakkað þeim svo ræki-
lega inn í Extratyggjóumbúðir að
ég var hálftíma að opna þær. Bæk-
urnar hefðu þolað ferðalag út fyrir
sólkerfið án þess að bíða tjón.
Allavega. Síðumúli skot & mark.
Þaðan í Ármúlann. Geng út með
Pétur Gunnars, Oddnýju Eiri, Hall-
grím Helga og Gretti sterka. Lít
mikið upp til Péturs. Myndmálið í
Punktinum svo eftirminnilegt og
skáldlegt. Örugglega í þriðja skipti
sem ég kaupi Jarðnæði Oddnýjar.
Lána svo vini eða vinkonu og sé
bókina ekki aftur. Konan við 1000
gráður er „tour de force“. Hall-
grímur getur gert lygilega hluti
við íslenskuna. Og Grettir …
Hann er eins og hann er.
HALLDÓR ARMAND ER AÐ LESA
Áskorun í baðkarinu
Halldór
Armand
Ásgeirsson er
rithöfundur.