Morgunblaðið - 12.08.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.08.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ístak hf. í Mosfellsbæ bauð lægst í breikkun hringvegar á Kjalarnesi, frá Varmhólum að Vallá, en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Ístak bauðst til að vinna verkið fyrir rúma 2,3 milljarða króna. Eitt annað tilboð barst í verkið, sameig- inlegt boð Suðurverks hf. og Loft- orku ehf. Það var tæpir 2,6 milljarð- ar. Áætlaður verktakakostnaður var rúmir 2,2 milljarðar. Seinni áfangi boðinn út í haust Um er að ræða breikkun á 4,13 km löngum kafla hringvegar. Breikka á núverandi tveggja akreina veg í 2+1-veg með aðskildum akbrautum. Í verkinu eru hringtorg, tvenn und- irgöng úr stálplötum, áningarstaður, hliðarvegir og stígar. Fergja á veg- stæði og framtíðarstæði stíga með- fram hliðarvegum. Verkinu tilheyra ræsi, regnvatnslagnir, veglýsing, lagnir fyrir upplýsingakerfi Vega- gerðarinnar og breytingar á lögnum veitufyrirtækja. Verkinu skal að fullu lokið fyrir júní 2023. Verkið í heild felur í sér breikkun vegarins á um níu kílómetra kafla milli Varmhóla í Kollafirði og vega- móta Hvalfjarðarvegar. Seinni áfanginn, Vallá-Hvalfjörður, verður boðinn út í haust en verklok eru einnig áætluð 2023. sisi@mbl.is Ístak bauð lægst í Vesturlandsveg  Vilja vinna verkið fyrir 2,3 milljarða 25 gráðu hiti mældist á Egilsstaðaflugvelli síðdegis í gær en um er að ræða mesta hita sem mælst hefur á landinu í allt sumar. Af því tilefni stukku Héraðsbúar að sjálfsögðu í Ey- vindará eins og vinsælt er. Næstmesti hiti sem mælst hefur í sumar var einnig á Egilsstöðum, 12. júlí, en þá mældist hitinn 24,8 stig. Hlýtt var á öllu austanverðu landinu í gær, til að mynda á Vopnafirði þar sem þær Linda og Aldís kældu sig niður með ís . Áfram er útlit fyrir bjartviðri á Austurlandi en hiti gæti farið aftur yfir 20 stig þar á fimmtudag. Hitamet slegið á Egilsstöðum Ljósmynd/Benedikt Warén Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Þór Steinarsson thor@mbl.is Allt var gert til að útvega Landspít- alanum nauðsynleg tæki til sýna- töku sem fyrst. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Í grein sem birtist í fyrradag seg- ir Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, að strax í mars hafi verið ljóst að heilbrigðis- kerfið hafi verið vanbúið til þess að skima fyrir kórónuveirunni. Ekkert hafi hins vegar verið gert til að efla getu á því sviði. „Það [heilbrigðis- kerfið] pantaði til dæmis ekki þau tæki sem voru fáanleg þá og hefðu getað gert því kleift að höndla verk- efnið miklu betur og svo sannarlega að taka við skimun á landamærum þann 15. júní.“ Þórólfur telur aftur á móti að sýkla- og veirufræðideild Landspít- alans hafi gert ýmislegt til að auka afkastagetu sýnatökunnar og segist ekki vita til þess að hægt hefði verið að panta tækin fyrr en gert var. „Ég held að veirufræðideildin hafi verið að gera ýmislegt til að auka sína getu en það var þeim annmörk- um háð að þau fengu þessi tæki ekki nógu hratt. En hvort þau hefðu get- að farið hraðar í þetta á öðrum svið- um, það skal ég ekki segja til um,“ segir Þórólfur. „Þau voru að gera allt sem þau gátu til að fá þessi tæki eins fljótt og hægt var.“ Kári tók til varna Tilefni greinar Kára eru skrif Ólafs Haukssonar almannatengils þar sem ýjað er að því að skap- sveiflur Kára hafi valdið því að Ís- lensk erfðagreining hætti að skima á landamærunum með viku fyrir- vara og það hafi orðið til þess að Danmörku, Noregi, Finnlandi og Þýskalandi var bætt á lista yfir örugg lönd, hvaðan farþegar sleppa við skimun. Afleiðingarnar hafi ver- ið þær að fleiri smitaðir ferðamenn hafi sloppið inn í landið og smitað út frá sér. Íslensk erfðagreining sá um skimun á landamærunum fyrir ís- lensk stjórnvöld þar til um miðjan júlí, en þá hafði Kári viku áður boð- að að fyrirtækið myndi draga sig úr verkefninu, sem unnið var í sjálf- boðavinnu, til að einblína á önnur verkefni. Eftir að önnur bylgja far- aldursins hófst á Íslandi tók Íslensk erfðagreining að skima á ný. Smitið ekki frá „öruggu“ landi Í greininni segir Kári að fyrir- tækið hafi haft frumkvæði að því að skima fyrir veirunni, einmitt þar sem heilbrigðiskerfið væri vanbúið til þess. Þrátt fyrir að Íslensk erfða- greining hafi vanrækt dagvinnu sína í meira en þrjá mánuði hafi fyrir- tækið engu að síður tekið að sér landamæraskimun um tíma, hjálpað Landspítalanum að taka við henni og gefið „heimasmíðaðan hugbún- að“ auk þess að þjálfa átján starfs- menn. Fyrirtækið hefur einnig raðgreint veiruna hjá öllum sem greinst hafa með hana, en Kári segir að slík greining sé nauðsynleg til þess að rekja smit og nefnir að þannig sé til dæmis vitað að sá sem olli hópsmiti á dögunum hafi ekki komið frá „öruggu“ landi. Allt gert til að auka afköst  Sóttvarnalæknir segir að veirufræðideild hafi gert ýmislegt til að auka afkastagetu sýnatöku  Kári Stefánsson segir heilbrigðiskerfið hafa verið vanbúið í mars og að ekkert hafi verið gert til að bæta úr því Morgunblaðið/Íris Landamæraskimun Íslensk erfðagreining sá um skimun á landamærum frá 15. júní og fram í miðjan júlí þegar sýkla- og veirufræðideild tók við. Kári Stefánsson Þórólfur Guðnason Tveir karlmenn á fimmtugs- og sex- tugsaldri hafa verið ákærðir af embætti héraðssaksóknara fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og fyrir peningaþvætti í rekstri einkahlutafélags sem nú er gjald- þrota. Mönnunum er gefið að sök að hafa ekki staðið skil á virðis- aukaskattsskýrslum einkahluta- félagsins á árunum 2016 og 2017, samtals að fjárhæð 9,2 milljónir króna. Þeim er einnig gefið að sök að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda. Morgunblaðið/Golli Peningar Mönnunum er gefið að sök að hafa ekki staðið skil á opinberum gjöldum. Tveir ákærðir fyrir peningaþvætti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.