Morgunblaðið - 12.08.2020, Blaðsíða 28
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Líkneski Bertels Thorvaldsen af
gríska guðinum Ganýmedes, þeim
sem hélt eilífri æsku og bjó hjá guð-
unum í Ólympsfjalli, er kjörgripur úr
eigu Listasafns Íslands sem nú er til
sýnis í Safnahúsinu við Hverfisgötu í
Reykjavík. Í húsinu er sýningin Sjón-
arhorn þar sem sjá má yfir 130 verk
úr safneign Listasafns Íslands auk
fjölmargra annarra listaverka og
áhugaverðra muna úr sex öðrum
söfnum.
„Fjölbreytileiki og ólík sjónarhorn
ráða ríkjum á sýningunni,“ segir
Dagný Heiðdal, listfræðingur og
varðveislu- og skráningarstjóri Lista-
safns Íslands. Hún verður kl. 14 í dag,
miðvikudag, með leiðsögn um sýn-
inguna sem var opnuð árið 2015.
Elstu verkin þar úr eigu Listsafnsins
eru frá fyrri hluta 19. aldar og þau
nýjustu innan við tíu ára. Afstæður
tíminn skiptir þó minnstu máli, því á
fjölbreyttri sýningu sér fólk alltaf
eitthvað nýtt, færi það sig af einum
kögunarhólnum yfir á annan.
Djúpar rætur í menningu
Höfuðsöfnin þrjú, það er Þjóð-
minjasafn Íslands, Listasafn Íslands
og Náttúruminjasafn Íslands, standa
að Sjónarhorni auk Þjóðskjalasafns
Íslands, Landsbókasafns – Háskóla-
bókasafns og Stofnunar Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum. Allar
þessar stofnanir hafa hver á sínum
tíma verið með aðsetur í Safnahúsinu,
sem var opnað árið 1909. Sjö álmur
eru í byggingunni og í hverri þeirra
eru listaverk og munir sem þvert á
tímann mynda ákveðna heild út frá
ólíkum sjónarhornum.
„Á þessari sýningu er athyglinni
beint að hinum sjónræna arfi sem á
sér djúpar rætur í menningu Íslend-
inga en hefur löngum fallið í skugg-
ann af bókmenntaarfi. Víða leynist
myndlist í bóka- og skjalasöfnum eins
og dæmin á þessari sýningu sanna.
Því gefst hér mikilvægt tækifæri til
að skoða í samhengi muni og myndir
úr ýmsum söfnum,“ segir Dagný.
Eitt dæmi um sjónarhorn er sá
hluta sýningarinnar sem er kallaður
Upp og er á fyrstu hæð hússins. Þar
er sjónum beint að valdi af trúar-
legum eða veraldlegum toga. Kirkju-
list frá ýmsum tíma er á langvegg sal-
arins og í sýningarskáp er fræg
klippimynd frá 1920 eftir Guðmund
Thorsteinsson, Mugg, sem heitir Sjö-
undi dagur í Paradís. Til marks um
fjölbreytileikann má í sama sal sjá
uppstoppaðan fálka sem hefur veitt
sér rjúpu til matar. Í því verki endur-
speglast eðlilegt ferli í náttúrunni en
einnig að fuglar þessir hafa jafnan
skipað stóran sess í íslenskri menn-
ingu og koma gjarnan fyrir í þjóðtrú
Íslendinga.
Öll svið daglegs lífs
„Viðfangsefni íslenskra myndlist-
armanna er sífellt að breytast og end-
urspeglar samtíma þeirra. Fyrr á
tímum var trúarleg list áberandi en á
fyrri hluta 20. aldar varð íslensk nátt-
úra vinsælt viðfangsefni og síðar varð
listin óhlutbundin. Hinn sjónræni
menningararfur tengist öllum sviðum
daglegs lífs og birtist víða, til dæmis
má nefna íslensk fornrit, sem eru full
af áhugaverðu myndmáli, kort og
uppdrætti, handverk og hannyrðir
auk myndlistarinnar,“ segir Dagný
um sýninguna Sjónarhorn og leið-
sögn sína í Safnahúsinu í dag.
Morgunblaðið/Eggert
Leiðsögn „Viðfangsefni íslenskra myndlistarmanna er sífellt að breytast og
endurspeglar samtíma þeirra,“ segir Dagný Heiðdal um sýninguna góðu.
Sjónarhornin eru ólík
Leiðsögn um listir aldanna Fjölbreytnin ræður Sjón-
ræni arfurinn Trú, íslenskt landslag Kögunarhólar
Ganýmedes Kjörgripur Thorvald-
sen sem má skoða í Safnahúsinu.
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 225. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING
Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir er tilnefnd til virtra
verðlauna stofnunar Pierre prins af Mónakó, Fonda-
tion Prince Pierre de Monaco Music Composition
Prize, fyrir sinfóníuverkið AIÔN. Önnur tilnefnd tón-
skáld eru m.a. Thomas Adès, Steve Reich, Chaya
Czernowin, Outi Tarkiainen og Pascal Dusapin. Verð-
launin hafa verið veitt allt frá árinu 1960 og af fyrri
verðlaunahöfum má nefna György Ligeti, Sofiu Gu-
baidulina, Elliot Carter, Unsuk Chin,
György Kurtág og Pierre Boulez.
AIÔN er samstarfsverkefni Ís-
lenska dansflokksins, Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands og Sin-
fóníuhljómsveitar
Gautaborgar og var verkið
frumflutt af Sinfóníu-
hljómsveit Gautaborgar og
Íslenska dansflokknum 24.
maí í fyrra í Tónlist-
arhúsinu í Gauta-
borg.
Anna tilnefnd til virtra verðlauna
„Eins og við skiljum reglugerðina þá er ábyrgðin hjá
Norðmönnum, ef þeir geta ekki tekið á móti okkur þá
þurfa þeir að finna leiknum stað á hlutlausum velli,“
segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri
Breiðabliks, meðal annars við Morgunblaðið. Í blaðinu
er að finna fréttaskýringu um stöðu mála varðandi ís-
lensku karlaliðin í knattspyrnu sem fram undan eiga
leiki í Evrópukeppnum. KR er á leið til Skotlands,
Breiðablik til Noregs og Víkingur til Slóveníu en FH fær
heimaleik ef allt gengur eftir. »22
Færa þarf Evrópuleiki ef lið mega
ekki taka á móti gestaliðinu