Morgunblaðið - 12.08.2020, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020
FRÉTTASKÝRING
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Íslensku knattspyrnuliðin þurfa að
búa við einhverja óvissu vegna kór-
ónuveirufaraldursins sem ýmist er á
undanhaldi eða í stórsókn, eftir því
hvaða dagur vikunnar er. Það á svo
enn betur við þau lið sem taka þátt í
Evrópukeppnum á næstu vikum.
Félögin þurfa auðvitað sjálf að fylgja
ströngum og ítarlegum reglum varð-
andi keppnishald og sóttvarnir og
samhliða því bundin ákvörðunum yf-
irvalda hvers lands fyrir sig, sem
stöðugt eru á reiki vegna ófyrir-
sjáanleika veirunnar.
Ísland á rauðu svæði?
Breiðablik á að mæta norska lið-
inu Rosenborg á Lerkendal-
leikvanginum í Þrándheimi 27. ágúst
í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar.
Aðeins er um einn leik að ræða í
hverri umferð en ekki er leikið bæði
heima og að heiman eins og tíðkast
hefur. Nú gætu leikmenn Kópa-
vogsliðsins hins vegar þurft á und-
anþágu að halda frá sóttvarna-
reglum í Noregi, ella verður þeim
úrskurðaður sigur.
Lýðheilsustofnun Noregs hefur
lagt til að Ísland verði sett á svokall-
að rautt svæði varðandi hvaðan fólk
má fljúga til landsins. Íbúar ríkja á
rauða svæðinu þurfa að fara í tíu
daga sóttkví við komuna til Noregs
og því ljóst að slíkt yrði ekki fram-
kvæmanlegt fyrir Blika.
Í viðhengi við reglugerð UEFA
um Evrópudeildina, sem tekur sér-
staklega á fyrirkomulagi mótsins
varðandi kórónuveiruna, segir að
heimaliðið beri ábyrgð á fram-
kvæmd leiksins. Þ.e. ef yfirvöld í
Noregi setja á ferðatakmarkanir
sem geri það að verkum að Íslend-
ingar geti ekki ferðast til landsins,
beri forráðamönnum Rosenborg að
finna leiknum nýjan stað á hlut-
lausum velli, væntanlega í öðru
landi. Geti félagið ekki útnefnt slík-
an völl, mun UEFA úrskurða gesta-
liðinu 3:0-sigur. Þá segir einnig að
séu takmarkanirnar á þá vegu að
þær hafi áhrif á getu gestaliðsins til
að ferðast í leikinn geti UEFA sjálft
útnefnt nýjan leikstað á hlutlausum
velli. Þá þurfa félögin að bera kostn-
aðinn til jafns og neiti annað liðið að
mæta til leiks, verður það fellt úr
keppni með 3:0-tapi.
„Eins og við erum að skilja reglu-
gerðina þá er ábyrgðin hjá Norð-
mönnum, ef þeir geta ekki tekið á
móti okkur þá þurfa þeir að finna
leiknum stað á hlutlausum velli. Ef
þeir geta það ekki, þá væntanlega
tapa þeir leiknum en ég held að það
gerist aldrei,“ sagði Eysteinn Pétur
Lárusson, framkvæmdastjóri
Breiðabliks, við Morgunblaðið í gær.
Hann segir það auðvitað ógerlegt að
Blikar dvelji marga daga í sóttkví í
Noregi fyrir leikinn og sömuleiðis
þarf að huga að því hvort íslensku
liðin þurfi að sæta sóttkví við heim-
komuna. Þetta þurfi auðvitað allt að
liggja fyrir áður en lagt er af stað.
„Íslensku félögin eru að ræða
þetta, við KSÍ og yfirvöld. Við þurf-
um að vita hvernig fyrirkomulagið
verður, varðandi heimkomusóttkví
og slíkt þegar við komum svo til
baka. Það er alveg klárt að það
verða mjög stífar kröfur varðandi
þetta ferðalag en þetta verður auð-
vitað allt að vera á hreinu.“
Ráðherrann reiður Celtic
KR-ingar standa hugsanlega
frammi fyrir erfiðri stöðu einnig en
þeir eiga að heimsækja Skotlands-
meistara Celtic á þriðjudaginn í
næstu viku í fyrstu umferð Meist-
aradeildarinnar. Búið er að fresta
næstu tveimur leikjum Skotanna í
deildarkeppninni og hafa þeir fengið
skammir í hattinn frá yfirvöldum
eftir að leikmaður þeirra, að nafni
Boli Bolingoli, gerðist sekur um
ótrúleg heimskupör á dögunum.
Belginn skellti sér í reisu til Spánar í
síðustu viku, virti allar sóttvarna-
reglur að vettugi, sneri svo aftur til
Skotlands og spilaði með Celtic í
efstu deild nokkrum dögum síðar, án
þess að fara í skimun eða hreinlega
láta nokkurn mann vita. Upp komst
um ferðalagið eftir á og hefur leik-
maðurinn fengið fyrir ferðina síðan.
Forsætisráðherra Skotlands, Nicola
Sturgeon, hefur nú í hótunum um að
slaufa fótboltanum þar í landi og er
búið að fresta næstu tveimur leikj-
um Celtic í deildarkeppninni. Skoski
fótboltinn er nú allur kominn í upp-
nám, tæpri viku fyrir fyrirhugaðan
leik Celtic gegn KR.
Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, sagði við Morgunblaðið
að sennilega væri um innanlandsmál
að ræða í Skotlandi sem þyrfti ekki
að hafa áhrif á leikinn gegn KR.
Engu að síður hefur sambandið sent
fyrirspurn um mál beggja íslensku
félaganna. „Við höfum sent fyr-
irspurnir á UEFA í báðum tilfellum
og óskað eftir upplýsingum. Miðað
við þær upplýsingar sem við fáum
frá Skotlandi er um tveggja leikja
bann innanlands að ræða sem hefur
ekki endilega áhrif á Evrópuleiki
liðsins,“ sagði Klara en bætti við að
yfirleitt er vonlaust að spá í spilin í
núverandi ástandi. „Ef við höfum
lært eitthvað af þessum kór-
ónumálum, þá er það að bíta á jaxl-
inn og vera þolinmóð.“
Víkingar úr Reykjavík virðast
ekki þurfa að fara neinar krókaleiðir
að viðureign sinni gegn Olimpija
Ljubljana í Slóveníu í Evrópudeild-
inni. Ísland er á grænum lista slóv-
enskra yfirvalda sem síðast var upp-
færður sjöunda ágúst. Haldist það
ástand óbreytt þurfa Víkingar ekki
að fara í sóttkví við komuna til Slóv-
eníu eða hafa einhverjar sérstakar
ráðstafanir í huga varðandi ferðalag-
ið. Þeir þurfa þó auðvitað að fylgja
ferðareglum UEFA, sem kveða m.a.
á um að lið ferðist á eigin vegum og
fljúgi til dæmis ekki á almennum
farrýmum milli landa.
Ætlum að fara varlega
FH-ingar eru svo einir íslenskra
liða sem fengu heimaleik, eiga að
taka á móti slóvakíska liðinu Du-
najská Streda í Kaplakrika á sama
tíma og Blikar og Víkingar spila sína
leiki, 27. ágúst. Hafnfirðingar eru
bjartsýnir á að leikurinn fari fram,
sér í lagi eftir að Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir lagði til að íþróttir
með snertingu verði leyfðar á ný í
minnisblaði sem hann afhenti heil-
brigðisráðherra í gær og verður til
umræðu á fundi ríkisstjórnar.
„Við stefnum á að spila á heima-
velli en auðvitað er það háð ákvörð-
unum heilbrigðisráðherra. Ef þessi
áform sem sóttvarnalæknir kynnti í
gær ganga eftir, þá ætti þetta að
vera í góðu lagi,“ sagði Valdimar
Svavarsson, formaður knatt-
spyrnudeildar FH, við Morg-
unblaðið.
„Við viljum samt fara varlega og
vera ekki með of miklar yfirlýsingar.
Við viljum leyfa yfirvöldum að klára
sín mál á réttan og góðan hátt, hafa
aðgát í nærveru sálar.“
FH-ingar tilkynntu UEFA að þeir
stefni á að spila leikinn í Kaplakrika
eins og þeir þurftu að gera fyrir há-
degi á mánudaginn. Það verður þó
eitthvað svigrúm til að breyta um
leikstað, ef þess þurfi. „Það eru að
koma upp alls konar mál hér og þar í
Evrópu og markmið UEFA er að
þvælast ekki fyrir eða reyna að-
hnekkja á liðum. Sambandið vill
frekar leysa þessi erfiðu mál og sýna
skilning, en auðvitað er það innan
einhverra marka,“ sagði Valdimar
og bætti við að FH-ingar hafi fengið
vilyrði frá félagi í Danmörku um að
nota heimavöll þess með stuttum
fyrirvara, þurfi þess.
Að öllu óbreyttu má því búast við
að leikurinn fari fram í Kaplakrika
en þó auðvitað fyrir luktum dyrum
eins og allir leikir keppninnar. Ljóst
er að kórónuveiran heldur eitthvað
áfram að flækjast fyrir fótboltanum,
eins og öðru.
Morgunblaðið/Eggert
2014 Guðmundur Reynir Gunnarsson í Evrópuleik KR og Celtic í Frostaskjólinu árið 2014.
Markmiðið að leysa málin
Breiðablik gæti átt í vandræðum með að ferðast til Noregs Andstæðingar
KR eru í klandri í Skotlandi Bjartsýni hjá FH um að geta spilað í Kaplakrika
Spænska liðið Sevilla og Shakhtar
Donetsk frá Úkraínu tryggðu sér í
gær sæti í undanúrslitum Evrópu-
deildarinnar í fótbolta. Lucas
Ocampos skoraði sigurmark Sevilla
á 88. mínútu gegn enska liðinu
Wolves. Wolves fékk kjörið tæki-
færi til að komast yfir á 13. mínútu
en Bono í marki Sevilla varði víti
frá mexíkóska framherjanum Raúl
Jímenez. Þar fyrir utan var Sevilla
töluvert sterkari aðilinn og sig-
urinn verðskuldaður. Sevilla mætir
Manchester United í undanúrslitum
16. ágúst. Sevilla líður vel í keppn-
inni því spænska liðið hefur unnið
hana fimm sinnum og þar af þrjú ár
í röð frá 2014 til 2016. Manchester
United vann árið 2017 eftir sigur á
Ajax í Stokkhólmi.
Shakhtar Donetsk frá Úkraínu er
einnig komið í undanúrslit eftir
sannfærandi 4:1-sigur á Basel.
Junior Moraes, Taison, Alan Patric
og Dodo skoruðu mörk Shakhtar,
en þeir eiga það sameiginlegt að
vera fæddir í Brasilíu þótt Moraes
sé kominn með úkraínskt ríkisfang.
Shakhtar og Inter Mílanó eigast við
í undanúrslitum 17. ágúst. Shakh-
tar varð meistari í eina skiptið 2009
og Inter síðast 1998.
Sevilla og Shakhtar áfram
AFP
Fagn Lucas Ocampos hjá Sevilla fagnar sigurmarkinu gegn Wolves í gær.
Evrópudeild UEFA
8-liða úrslit:
Wolves – Sevilla........................................ 0:1
Sevilla í undanúrslit og mætir Manchest-
er United.
Shakhtar Donetsk – Basel....................... 4:1
Shakhtar í undanúrslit og mætir Inter
Mílanó.
Ítalía
B-deild, umspil:
Spezia – Chievo........................................ 3:1
Sveinn Aron Guðjohnsen var allan tím-
ann á bekknum hjá Spezia.
Spezia áfram eftir 3:3-jafntefli samanlagt
og leikur um sæti í efstu deild við annað-
hvort Pordenone eða Frosinone.
Slóvakía
Spartak Trnava – Ruzomberok............. 3:1
Birkir Valur Jónsson var allan tímann á
bekknum hjá Spartak Trnava.
Noregur
B-deild:
KFUM Ósló – Lilleström......................... 1:2
Arnór Smárason lék ekki með Lille-
ström vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
NBA-deildin
Milwaukee – Toronto .......................106:114
Miami Heat – Indiana Pacers ...........114:92
LA Lakers – Denver ........................124:121
Orlando – Brooklyn............................ 96:108
San Antonio – Houston .....................123:105
KÖRFUBOLTI
Slóvenska úrvalsdeildin í knatt-
spyrnu átti að hefja göngu sína í vik-
unni en henni hefur verið frestað til
22. ágúst eftir að þrjú kórónu-
veirusmit greindust hjá sama liðinu.
Liðið sem um ræðir er Olimpija
Ljubljana, en það átti einmitt að
mæta Víkingi Reykjavík í Evr-
ópudeildinni hinn 27. ágúst næst-
komandi ytra. Óvíst er hvort smitin
muni hafa áhrif á Evrópuleik lið-
anna, en allir leikmenn og þjálf-
arateymi liðsins munu fara í sóttkví.
Til þessa hafa 2.272 staðfest smit
greinst í Slóveníu og 129 látið lífið af
völdum kórónuveirunnar.
Smit hjá and-
stæðingum
Víkinga
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur
hefur náð samkomulagi við þau Guð-
mund Bragason og Stefaníu Jóns-
dóttur sem munu taka sameiginlega
að sér stöðu yfirþjálfara hjá körfu-
knattleiksdeild Grindavíkur í vetur.
Guðmundur og Stefanía eru hjón
og þrír synir þeirra hafa allir spilað
fyrir meistaraflokk Grindavíkur;
Jón Axel Guðmundsson, Ingvi Þór
Guðmundsson og Bragi Guðmunds-
son.
„Ekki þarf að kynna körfubolta-
áhugafólk í Grindavík fyrir Guð-
mundi og Stefaníu sem hafa um ára-
bil verið hluti af körfuboltafjölskyld-
unni í Grindavík, bæði sem leik-
menn, þjálfarar og stuðningsfólk.
Þau hafa gríðarlega þekkingu á
körfuknattleik sem mun án nokkurs
vafa nýtast deildinni við að efla sitt
starf og gera gott starf enn betra,“
segir í tilkynningu sem Grindavík
sendi frá sér.
Grindavík var í 8. sæti Dominos-
deildarinnar á síðustu leiktíð þegar
keppni var hætt vegna kórónuveir-
unnar.
Hjón verða
yfirþjálfarar
í Grindavík
Guðmundur
Bragason
Stefanía
Jónsdóttir