Morgunblaðið - 12.08.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.08.2020, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020 Úrval mælitækja frá 50 ára Haraldur er Keflvíkingur, ólst upp í Keflavík frá þriggja ára aldri og býr þar. Hann er rafvirki, er undir- verktaki hjá Isavia og sér um viðhald í flug- stöðinni. Haraldur syngur í Kór Keflavíkurkirkju og Karlakór Keflavíkur. Maki: Þóra Brynjarsdóttir, f. 1977, hús- móðir. Börn: Gunnhildur Stella, f. 1999, Arn- björn Óskar, f. 2002, og Sóldís Eva, f. 2005. Foreldrar: Arnbjörn Óskarsson, f. 1950, rafvirki og eigandi A. Óskarsson, og Sól- veig Hafdís Haraldsdóttir, f. 1949, hús- móðir. Þau eru búsett í Keflavík. Haraldur Líndal Arnbjörnsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nýir vinir sem þú kynnist eru af því tagi að hægt er að umgangast þá við hvaða aðstæður sem er. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að fá svolitla upplyftingu og ættir því að fara út á lífið og skemmta þér. Finnist þér eitthvað ekki þess virði að líta við því, þá kemur það þér í koll, þótt síðar verði. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ekki er allt sem sýnist, leiðin að hamingjusömu lífi er oft þyrnum stráð. Gerðu þeim grein fyrir tilfinningum þínum og láttu þá segja þér hvað þeim finnst. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú nennir ekki lengur að þræða hina venjulegu lífsleið. Láttu það því eftir þér að byggja þig upp með þessum já- kvæða hætti. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er engin ástæða að missa móð- inn þótt eitthvað blási á móti. Snúðu þér að þeim sem þú getur treyst hafirðu þörf fyrir það. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er ómanneskjulegt að gera stöðugt þær kröfur til sjálfs sín að allt sé fullkomið því enginn er fullkominn, ekki einu sinni þú. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þetta er góður dagur til að semja um fasteignir. Notaðu daginn til þess að sýna þínum nánustu hversu vænt þér þykir um þá. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sumum finnst þú hinn besti ráðgjafi. Reyndu að minna þig á að það finna allir til minnimáttarkenndar svona af og til. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er svo sem allt í lagi að taka áhættu þegar líkurnar eru góðar og lítið liggur undir. Með minni háttar breyt- ingum skapar þú þar fullkominn samhljóm. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það hefur verið erfitt að ná sambandi við aðra upp á síðkastið, en nú verður breyting þar á. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Um leið og þú hættir að vera sjálfum þér verstur ferðu að sjá hlutina í öðru ljósi. Reyndu að sýna þolinmæði og hafa hægt um þig. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vinnan reynist margslungin. Ef þér finnast aðstæður erfiðar reyndu að þrauka þar til það versta er gengið yfir. Fjölskylda Eiginkona Símonar er Sigrún Brynja Ingimundardóttir, f. 14.2, 1951, bókari hjá Vinnuvélum Símonar og hefur unnið hjá fyrirtækinu frá fyrstu tíð. Þau eru búsett á Sauðárkróki. For- eldrar Brynju voru hjónin Ingimundur Árnason, f. 9.8. 1923, d. 27.1. 2017, Ég er alæta á tónlist, fyrst var það Rolling Stones en þetta er orðið fjöl- breyttara núna. Ég hef gaman af því að fara á tónleika og óperur, fór t.d. á óperu í Vín fyrir nokkrum árum sem var mjög gaman.“ Símon ætlaði að blása til veglegrar veislu út af afmæl- inu en hún var blásin af vegna kór- ónufaraldursins. S ímon Baldur Skarphéð- insson er fæddur 12. ágúst 1950 á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki en ólst upp á Gili í Skagafirði. Símon gekk í Barnaskólann í Varmahlíð og fór í vélvirkjun í Iðnskól- anum á Sauðárkróki og hefur síðan tekið ýmiskonar námskeið. „Ég klár- aði ekki námið í Iðnskólanum en fór í gröfubisnessinn. Við byrjum mjög ung öll að vinna á Gili, ég var 12 ára farinn að veiða sjálfur í Miklavatni, þar var alltaf mjög góður silungur. Svo þegar var komið að fermingunni þá var ég sendur á tætara að vinna tún hjá bændum og mokaði í hrærivél og þeg- ar ég varð 15 ára þá fékk ég fyrstu gröfuna en varð að bíða með að vinna á henni þar til ég fékk dráttarvélapróf. Það var nú aðallega sumarvinna og ég prófaði að fara á sjó einn vetur og var á trillu á grásleppu.“ Símon eignaðist síðan sína fyrstu vél árið 1974. „Ég hafði verið að vinna hjá RARIK en ákvað á þessum tíma að fara út í þennan slag. Þá var ekki aftur snúið og starfsemin vatt upp á sig. Yngri sonur minn kom inn í þetta með mér 1990 og þá stækkaði fyrirtækið enn meira. Núna er þetta orðið með- alstórt fyrirtæki og við eigum 40 bíla og vélar.“ 17 manns starfa núna hjá fyrirtækinu sem ber heitið Vinnuvélar Símonar ehf. Það sinnir aðallega lagnavinnu, leggur hitaveitu, rafmag- skapla og ljósleiðara en er einnig að taka húsgrunna. Símon sest ennþá undir stýrið á vinnuvélunum. „Ég er búinn að prófa öll þessi tæki, en starfs- hlutfallið hefur minnkað hjá mér.“ Símon hefur verið í Lions- klúbbnum á Króknum frá 1983 og Frímúrarahreyfingunni síðan 2001. „En ég hef aldrei komið nálægt póli- tík og ætla mér ekki að gera það.“ Áhugamál Símonar eru m.a. vélar, bílar, flugvélar og tónlist. „Ég hef átt breytta bíla og og fór á fjöll á þeim en er hættur því núna. Ég átti líka trillu og átti hlut í flugvél og tók próf á hana. Ég á mótorhjól og hef gaman af því að setjast á það og taka rúntinn. Ég fylgist með fótbolta og er mikill aðdáandi Liverpool. Ég spila brids og hef verið í spilaklúbbi í 32 ár við spil- um alltaf á veturna einu sinni í viku. bóndi í Ketu í Hegranesi og síðar vöru- bílstjóri á Sauðárkróki, og Baldvina Ásgrímsdóttir, f. 29.4. 1931, d. 16.5. 1960, bóndi í Ketu. Börn Símonar og Brynju eru 1) Baldvin Ingi, f. 20.7. 1971, rafmagns- tæknifræðingur, býr í Mosfellsbæ. Maki: Úlfhildur Úlfarsdóttir viðskipta- fræðingur. Þeirra börn eru Brynja Sóley, f. 8.8. 2003 og Hjördís Ylfa, f. 12.6. 2010; 2) Rúnar Skarphéðinn, f. 30.8. 1973, framkvæmdastjóri, býr á Sauðárkróki. Maki: Sólveig Bergland Fjólmundsdóttir, starfsmaður Vinnu- eftirlits ríkisins á Sauðárkróki. Þeirra börn eru Kolbrún Sonja, f. 17.8. 2000, læknanemi, og Hákon Snorri. f. 9.2. Símon Skarphéðinsson, stjórnarformaður Vinnuvéla Símonar ehf. – 70 ára Fjölskyldan Símon og Brynja ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum en á myndina vantar yngsta barnabarnið. Starfsemin vatt upp á sig Í vinnunni Símon ásamt tveimur vinnufélögum fyrir framan fyrstu gröfuna sem hann eignaðist, Ford Country árgerð 1974. Myndin er tekin 1982. Hjónin Símon og Brynja. 40 ára Bryndís er Skagamaður, fædd og uppalin á Akra- nesi og býr þar. Hún er uppeldis- og menntunarfræðingur að mennt og er deildarstjóri dag- starfs í frístundamiðstöðinni Þorpinu á Akranesi. Maki: Ingvar Svavarsson, f. 1983, vél- iðnfræðingur og verkstjóri hjá Meitli á Grundartanga. Dætur: Íris Arna, f. 2007, Svava Guð- finna, f. 2009, og Rúna Björk, f. 2014. Foreldrar: Guðfinna Magnúsdóttir, f. 1949, sjúkraliði, og Gylfi Karlsson, f. 1946, rafvirki. Þau eru búsett á Akra- nesi. Bryndís Gylfadóttir Til hamingju með daginn Selfoss Gunnar Ragnar Friðbjarnarson fæddist 12. ágúst 2019 kl. 22.24. Hann vó 4.566 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Friðbjörn Gunnarsson og Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.