Morgunblaðið - 12.08.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 12.08.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020 TISSOTWATCHES .COM TISSOT, INNOVATORS BY TRADITION #ThisIsYourTime SKARTGRIPIR&ÚR SÍÐAN 1923 TISSOT seastar 1000 chronograph. WATER RESISTANCE UP TO 30 BAR (300 M / 1000 FT). Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Forráðamenn „RÚV“ hafa ekkisvarað með trúverðugum hætti ásökunum um að þar hafi ver- ið haft rangt við í stóra Namibíu- málinu. Gunnar Rögnvaldsson skrifar:    Eftir næstum fullan áratug afaðdróttunum og Bad-Cop mafíulegum aðförum að starfsfólki og eigendum Samherja H/F, ásamt daglegri neikvæðni í garð íslensks sjávarútvegs almennt, er loksins komið að því að við fáum að sjá sýn- ishorn af sannleikanum um DDRÚV-samsteypuna og að því er virðist tengdra aðila á ríkisjötunni.    Loksins fáum við að sjá brota-brot af sannleikanum um DDRÚV-ríkisbubbabáknið sem gúffar í sig skattfé almennings og fyrirtækja í landinu, virðir fjár- hagslegan aga að vettugi og er með heilt net af hugmyndafræðilega tengdum aðilum og að því er virðist ættarveldum innan- sem utanborðs sísoltinnar vinstrivambar þess, sem aldrei fær nóg.    Í þrjá áratugi hefur þetta skrímslivinstrimanna hampað fyrst banka-, stofu- og útrásargeira Sam- fylkingarsamsteypunnar í 10 ár, síðan Evrópusambandsbilun sömu pólitísku samsteypu næstu 10 árin þar á eftir, og nú hin síðustu 10 árin ráðist gegn öllu því sem gerir það að verkum að Ísland geti áfram verið fullvalda og sjálfstætt þjóð- ríki okkar Íslendinga.“    Svör útvarpsstjóra um mál, semkokkuð voru löngu fyrir hans tíð í stofnuninni, voru fjarri því að vera fullnægjandi. Hann verður að gera betur. Ófullnægjandi svör STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Spænska lögreglan, Guardia Civil, í samvinnu við Landhelgisgæslu Ís- lands handtók á dögunum fjóra menn og gerði 936 kíló af hassi upp- tæk á Gíbraltarsundi. Fram kemur á vef Landhelgis- gæslunnar að áhöfnin á TF-SIF, eft- irlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, var við landamæraeftirlit á vestan- verðu Miðjarðarhafi þegar hún kom auga á hraðbát með torkennilegan varning um borð. Höfuðstöðvum spænsku lögregl- unnar var gert viðvart og fylgdi TF- SIF bátnum eftir inn á Gíbraltar- sund í rúmlega tvo tíma þar til spænska lögreglan mætti á hraðbáti, handtók fjóra smyglara og gerði efn- in upptæk. Landhelgisgæslan birtir mynd- skeið á vef sínum af hraðbátnum og handtöku smyglaranna, sem voru frá Marokkó, Belgíu og Frakklandi. Áhöfnin á TF-SIF hefur frá júní- mánuði haft aðsetur á Malaga á Spáni og sinnt landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi á Frontex. Ferðin hef- ur verið var árangursrík. Áhöfnin hefur tekið þátt í 41 verkefni og stuðlað að björgun 78 flóttamanna og komið upp um fjölmarga smygl- ara sem reynt hafa að flytja fíkniefni til Spánar. TF-SIF lagði af stað til Íslands frá Spáni í gær. Þyrlumenn komu auga á smyglara  Teknir með tæpt tonn af hassi um borð í hraðbáti á Gíbraltarsundi Ljósmynd/Landhelgisgæslan Smygl Skjáskot af smyglbátnum úr myndskeiði sem Gæslan birti. „Skilaboðin út í starf kirkjunnar með þessari mynd eru alveg skýr. Í samneyti við annað fólk eigum við að nota grímur og vera á varðbergi. Raunar hafa smitvarnir verið teknar mjög alvarlega í starfi kirkjunnar al- veg frá því veiran fór fyrst að láta á sér kræla. COVID-19 hefur haft mjög mikil áhrif í kirkjustarfi eins og raunar öllu samfélaginu,“ segir Pétur G. Markan, upplýsingafulltrúi þjóðkirkjunnar, í samtali við Morg- unblaðið. Í gær birtist á vef þjóðkirkjunnar mynd af Agnesi M. Sigurðardóttur biskupi Íslands með sóttvarnagrímu sem er merkt Lútherska heims- sambandinu. Sambandið starfrækir víðtæka hjálparstarfsemi meðal fólks í fátækum heimshlutum, flótta- mannabúðum og stríðshrjáðum löndum. Þar getur reynst erfitt að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar – en notkun á sóttvarnagrímum er meðal ráða sem gefist hafa vel í starfinu. Ákveðið hefur verið á vettvangi þjóðkirkjunnar að fermingar- athafnir sem vera áttu sl. vor og var frestað þá vegna kórónaveirunnar verði á þeim dögum í haust sem áður höfðu verið ákveðnir. Í kirkjunum mun 100 manna reglan gilda og sprengi fjöldi nánustu ættingja fermingarbarnsins, það er fólksins sem viðstatt má vera, þá tölu verður athöfnum á deginum einfaldlega fjölgað. Altarisgöngur og handsal í fermingarathöfnum sem og almenn- um messum falla niður. Jarðarförum streymt Um útfarir gildir líkt og við ferm- ingar að fleiri en 100 mega ekki vera viðstaddir, skv. skilaboðum biskups. Því hefur mörgum jarðarförum ver- ið sjónvarpað og streymt á netinu, til dæmis á samfélagsmiðlum, og er vefslóð á þær gjarnan birt með dán- artilkynningum hér í Morgun- blaðinu. Agnes með grímu  Skilaboð frá bisk- upi Íslands  Ferm- ingar á réttum tíma Ljósmynd/Magnea Sverrisdóttir Öryggi Agnes biskup með grímu Lúherska heimssambandsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.