Morgunblaðið - 12.08.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 12.08.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður - Við erum hér til að aðstoða þig! - • Sérsmíðaðir skór • Skóbreytingar • Göngugreiningar • Innleggjasmíði • Skóviðgerðir Erum með samning við sjúkratryggingar Íslands Tímapantanir í síma 533 1314 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Alls sóttu 25 fjölmiðlaveitur um sér- stakan rekstrarstuðning til fjölmiða- nefndar, en umsóknarfrestur rann út sl. föstudag. Fjölmiðlarnir eru þó talsvert fleiri, segir Elfa Ýr Gylfa- dóttir, framkvæmdastjóri nefndar- innar. Til úthlutunar verða 400 millj- ónir króna. Markmið hins sérstaka rekstrar- stuðnings er að mæta efnahagsleg- um áhrifum heimsfaraldurs kórón- uveiru, segir í reglugerð um úthlutunina. Heimilt er að veita einkareknum fjölmiðlum sérstakan rekstrarstuðning á árinu 2020 í ljósi þess víðtæka rekstrarvanda sem að þeim steðjar vegna tekjufalls í kjöl- far heimsfaraldurs kórónuveiru. Taka afstöðu til umsókna Ekki er hægt á þessu stigi að gefa upplýsingar um þær upphæðir sem sótt er um, samkvæmt upplýsingum Elfu. Ástæðan er sú að nefndin á eft- ir að taka afstöðu til þess hvort allir miðlarnir uppfylli þau skilyrði sem fjallað er um 5. gr. reglugerðarinnar um rekstrarstuðning, m.a. um fjöl- breytt efni sem er ætlað fyrir al- menning á Íslandi og að einungis sé um að ræða stuðningshæfan rekstr- arkostnað, en þar er um er að ræða tæmandi upptalningu kostnaðarliða sbr. 6. gr. reglugerðarinnar. Hinn sérstaki rekstrarstuðningur skal að hámarki vera 25% af stuðn- ingshæfum rekstrarkostnaði um- sækjanda og getur hæstur orðið 100 milljónir króna. „Fjölmiðlanefnd er nú að fara yfir umsóknir og fylgigögn til að kanna hvort skilyrðin séu uppfyllt. Jafn- framt þarf að meta hvort kalla þurfi eftir frekari upplýsingum eða sund- urliðun kostnaðarliða áður útreikn- ingur hins sérstaka rekstrarstuðn- ings getur farið fram,“ segir Elfa. Í 9. gr. laga nr. 37/2020 er mennta- málaráðherra veitt heimild til að veita sérstakan rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla. Í greininni eru tilgreind nokkur skilyrði fyrir rekstrarstuðningi og einnig getið sérstakra atriða sem þurfa að koma fram í umsókn. Þá segir í 2. mgr.: „Við ákvörðun um fjárhæð sérstaks rekstrarstuðnings skal m.a. litið til launa, fjölda starfsmanna og verk- takagreiðslna vegna miðlunar á fréttum og fréttatengdu efni á rit- stjórnum árið 2019, útgáfutíðni og fjölbreytileika fjölmiðla. Endanlegt hlutfall ræðst af fjölda umsókna og skal setja hámark á stuðning til ein- stakra fjölmiðla. Úthlutun sérstaks rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla skal fara fram eigi síðar en 1. september 2020.“ Umsóknir um stuðning frá 25 fjölmiðlaveitum Morgunblaðið/Eggert Blaðamenn að störfum Halldór Benjamín Þorbergsson ræðir við fjölmiðla.  Fjölmiðlanefndin er að fara yfir umsóknir og fylgigögn Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta er langbesta sumarið fram til þessa. Við erum búin að vera með þetta í þrjú ár en aldrei hefur eins mikið verið að gera,“ segir Halldór Guðmundsson, framkvæmdastjóri afþreyingarfyrirtækisins Fairytale At Sea (FAS). Fyrirtækið er stað- sett á Ólafsfirði og býður upp á út- sýnisferðir á sæþotum um fjörðinn. Gefst gestum þar tækifæri til að berja náttúruperlur undir Ólafs- fjarðarmúla augum. Þá er sömuleið- is siglt að hæsta strandbergi lands- ins, Hvannadalabjargi. Halldór hefur rekið fyrirtækið ásamt eiginkonu sinni, en alls eru þau með fjórar sæþotur á sínum snærum. Mest komast sjö í einn túr, en að meðaltali er farið í um tvær ferðir á dag. „Við erum með þrjár þotur þar sem tveir eru hámarkið og einstaka sinnum er einn með mér á þotu. Ég vil hins vegar helst hafa hana lausa,“ segir Halldór sem tekur fram að sjaldnast sé alveg fullt í ferðirnar. Að sögn Halldórs eru flestir gesta FAS Íslendingar. Þannig hafi aflétt- ing takmarkana á landamærunum litlu breytt fyrir rekstur fyrir- tækisins. „Frá því í vor hafa þetta eiginlega bara verið innlendir gestir. Landamæraopnunin breytti því engu fyrir okkur, þó að það hafi eitt- hvað örlítið af útlendingum komið núna. Af sumrinu í heild eru þeir kannski 5% gesta,“ segir Halldór og bætir við að rekja megi það til tak- markaðs sýnileika hjá ferðaskrif- stofum. „Ég hef ekki verið að fara í gegnum ferðaskrifstofur, sem taka auðvitað hluta af greiðslunni. Þess í stað hef ég aðeins auglýst á Trip- Advisor,“ segir Halldór. Sæþotuferðirnar vara í um tvær klukkustundir en farið er eins víða og tími gefst til. „Ég sigli yfirleitt inn fyrir Ólafsfjarðarmúla og svo næst stundum að fara að Hvanna- dalabjargi. Á leiðinni höfum við reynt að finna hvali og höfrunga,“ segir Halldór sem horfir fram á þétta dagskrá næstu vikur. „Við er- um í raun bara að reyna að anna eft- irspurn. Ég hélt að þetta yrði búið eftir verslunarmannahelgi en við er- um að fá bókanir.“ Ljósmynd/Halldór Sæþotur Í túrunum eru náttúruperlur skoðaðar auk þess sem reynt er að rekast á hvali eða höfrunga. Hafa vart náð að anna eftirspurn í sumar Von er á fleiri hundruð farandverka- mönnum til landsins í vinnu við haust- slátrun. Mikilvægt er að tíðin gangi vel fyrir sig þar sem slátrun verður ekki frestað svo glatt. Sláturhús hafa í nógu að snúast við að koma fólkinu til landsins, tryggja sóttvarnir og uppfæra áætlanir. Sláturtíð hefst í lok mánaðarins og stendur að jafnaði í tvo mánuði. Ógerningur hefur verið undanfarin ár að manna störfin með Íslendingum og því hafa flest sláturhús þurft að reiða sig á erlent vinnuafl. Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjöt- afurðastöðva KS, segir að búið sé að ráða í flestar stöður og að enginn skortur sé á vinnuafli. KS á von á um 240 manns til starfa í sláturhúsunum á Sauðarkróki og Hvammstanga, en flestir koma frá Póllandi. Einnig hafa vanið komur sínar sérfræðingar frá Nýja-Sjálandi, en af því verður ekki í ár vegna lokunar landamæra í þeirri álfu, því verður að þjálfa nýtt fólk í þær lykilstöður. Ágúst segir áskorun dagsins vera að koma fólkinu til landsins og tryggja sóttvarnir til að koma í veg fyrir smit kórónuveirunar meðal starfsmanna. Slíkt gæti haft verulega röskun í för með sér og frestað slát- urtíð um 2-3 vikur. Hann segir að bú- ið sé að bóka flug til landsins fyrir flesta og ráðstafanir gerðar til að hýsa mannskapinn m.a. með tilliti til þeirra varna sem krafist er við kom- una til landsins. Slátrun ekki frestað Ágúst leggur áherslu á að sláturtíð verði ekki frestað og afar brýnt sé að allt gangi vel fyrir sig. Vegna veður- fars sé ætíð stefnt að því að ljúka tíð- inni fyrir lok október, því stax í nóv- ember sé allra veðra von og því ekki raunhæft að draga ferlið að nokkru marki. Það sé ekki síst vegna dýra- verndunarsjónarmiða sem nauðsyn- legt er að allt gangi upp. Að sögn Ágústs eru viðbragðsáætlanir upp- færðar nær daglega og vel fylgst með öllum breytingum. Hann er þó bjart- sýnn á að geta hafið vinnslu 24. þessa mánaðar. Sláturtíð mjög háð erlendu vinnuafli  Mikið í húfi að smit trufli ekki ferlið Morgunblaðið/Skapti Störf Erlent vinnuafl er undirstaða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.