Morgunblaðið - 12.08.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020
Við Fellsmúla | Sími: 585 2888
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Ten Points
28.990 kr.
Nýjar
vörur
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Rússar segjast hafa fullþróað fyrsta
bóluefnið gegn kórónuveirunni og
halda því fram að það veiti „viðvar-
andi ónæmi“ gegn henni. Í gær fyllti
fjöldi smitaðra á heimsvísu 20 millj-
ónir manns. Vladímír Pútín forseti
Rússlands sagði að ein af dætrum
hans hefði tekið þátt í prófunum á
bóluefninu, sem Rússar kalla „spút-
ník V“ í höfuðið á fyrsta gervitungl-
inu sem skotið var á loft á sjötta ára-
tug síðustu aldar.
Vestrænir vísindamenn höfðu lýst
áhyggjum sínum af hraðskreiðri
rússneskri lyfjaþróun. Þótti það
benda til að þeir teldu Rússa stytta
sér leiðir í þróunarferlinu.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) varaði við viðurkenningu á
lyfinu og sagði það þurfa að undir-
gangast strangnákvæma skoðun á
gögnum er leiða yrðu í ljós öryggi
þess og skilvirkni. Og viðbrögðin
létu ekki á sér standa. Þýsk yfirvöld
lýstu efasemdum um gæði og öryggi
hins hraðfengna bóluefnis Rússa.
„Öryggi sjúklinga er algjört for-
gangsatriði,“ sagði talsmaður heil-
brigðisráðuneytisins. „Það liggja
engin gögn fyrir um gæði, skilvirkni
og öryggi rússneska bóluefnisins,“
bætti hann við.
„Ég veit að það er tiltölulega skil-
virkt, að það veitir viðvarandi
ónæmi,“ sagði Pútín er hann kynnti
bóluefnið til sögunnar. Það var þróað
í Gamaleja-rannsóknarstofnuninni í
Moskvu í samstarfi við rússneska
varnarmálaráðuneytið.
Vonast er til að hefja megi fjölda-
framleiðslu á bóluefninu spútník í
næsta mánuði og um leið verður haf-
in kerfisbundin bólusetning starfs-
manna rússneska heilbrigðiskerfis-
ins.
Samkvæmt upplýsingum sérstaks
þjóðarauðlegðarsjóðs, sem hjálpaði
til við þróun bóluefnisins, hafa um 20
erlend ríki forpantað á annan millj-
arð skammta af því.
Aukin harka er hlaupin í keppnina
um að verða fyrstir á markað með
bóluefni gegn kórónuveirunni. Á
sama tíma búa þjóðir um allan heim
sig undir að veiran blossi upp aftur.
Reynt er að bregðast við því til að
efnahagslífið þurfi ekki að loka eins
og í fyrstu holskeflu veirusmitsins.
Að sögn rússneska heilbrigðisráð-
herrans Míkhaíl Múrashko sagði að
áfram yrði haldið klínískum tilraun-
um með bóluefnið með þúsundum
þátttakenda.
Fleiri þróa
Annars staðar í veröldinni berast
fregnir af prófunum og sögðust yf-
irvöld í Indónesíu í gær senn hefja
„þriðja fasa“ tilrauna á mönnum með
bóluefni kínverska lyfjafyrirtækisins
Sinovac Biotech. Í því felast prófanir
á miklum fjölda fólks og eru þær
lokahnykkurinn í þróuninni og að-
eins eftir að fá heimild til notkunar
þess í læknismeðferð. Bóluefni Sino-
vac heitir CaronaVac og er þegar í
prófanaferli í Brasilíu sem 9.000
brasilískir heilbrigðisstarfsmenn
taka þátt í.
Samkvæmt upplýsingum frá
WHO eru 165 mismunandi bóluefni
gegn kórónuveirunni til þróunar um
veröld víða. Hafa sex þeirra komist í
fegnum fasa þrjú. Yfirmaður neyð-
arþjónustu WHO, Michael Ryan,
varar við of miklum væntingum og
segir að bóluefni sé aðeins hluti af
svarinu gegn kórónuveirunni. Bend-
ir hann á mænusótt og mislinga sem
sóttir sem ekki hefur tekist að upp-
ræta með öllu með bóluefni. „Það
verður að vera hægt að koma bólu-
efninu til mannfjölda sem vill fá það
og krefst bóluefnis,“ sagði Ryan.
Útgöngubann
Samkvæmt samantekt frönsku
fréttaveitunnar AFP á opinberum
gögnum höfðu 20,1 milljón manna
um heim allan smitast klukkan 11 að
íslenskum tíma í gær. Höfðu 737.000
einstaklingar látið lífið af völdum
smits frá því veirunnar varð fyrst
vart í desember sl. í Kína.
Forstjóri WHO, Tedros Adhanom
Ghebreyesus, bendir á Rúanda og
Nýja-Sjáland sem lönd sem tekist
hefði að kveða kórónuveiruna í kút-
inn. Þeir síðarnefndu áforma að opna
vírusfríar samgöngur við Cook-eyj-
ar. Sagði Tedros þetta ljós í myrkr-
inu en í gær var komið bakslag; yf-
irvöld á Nýja-Sjálandi tilkynntu í
gær um fyrsta sýkingartilfellið í
rúma hundrað daga.
Grikkir hafa ákveðið að loka öllum
veitingahúsum og börum á helstu
gistibæjum og -borgum túrista.
Bregðast þeir við aukningu veiru-
smits með útgöngubanni á næturn-
ar. Verða veitingahúsin lokuð frá
miðnætti til sjö að morgni, m.a. á
Mykonos, Santorini, Korfú, Krít,
Rhodes, Zakynthos og Kos.
AFP
Bóluefni Sérfræðingur í Gamaleja-rannsóknarstofnuninni í faraldursfræði og örverufræði í Moskvu með bóluefnið.
Efins um ágæti bóluefnis
165 mismunandi bóluefni gegn kórónuveirunni eru til þróunar víða um heim
20 milljónir manna hafa smitast Útgöngubann á grískum sólarströndum
Evrópusambandið (ESB) lýsti því
yfir í gærkvöldi að forsetakjörið í
Hvíta-Rússlandi, sem lauk með
sigri Alexanders Lúkasjenkó, hefði
hvorki verið „frjálst né sann-
gjarnt“. Í yfirlýsingu Joseps Bor-
rell, sem fer með utanríkismál í
framkvæmdastjórn ESB, eru boð-
aðar refsiaðgerðir gegn þeim sem
stóðu fyrir ofbeldi er andstæðingar
Lúkasjenkó hugðust mótmæla kjör-
inu, handtökum af handahófi og
fölsun kosningaúrslita. Helsti and-
stæðingur Lúkasjenkó, Svetlana
Tíkhanovskaja, flýði í fyrrinótt til
Litháens.
Hvítrússneskar kosningar ekki frjálsar
EVRÓPUSAMBANDIÐ:
Tónlistarmaður í héraðinu Kano í
Nígeríu hefur verið dæmdur til
dauða með hengingu fyrir guðlast.
Dómstóll í héraðinu Hausawa Fil-
in Hockey, sem kenndur er við
strangtrúnað, dæmdi Yahaya Sha-
rif-Aminu fyrir að hafa dreift lagi
með guðlasti á samfélagsmiðlinum
WhatsApp í mars sl. Hann hefur
ekki neitað sakargiftum en getur
áfrýjað til æðra dómstigs.
Múslimar eru í meirihluta í norð-
urríkjum Nígeríu og þar eru starf-
andi bæði dómstólar sem dæma að
ströngustu lögum múhameðstrúar,
sjaría, og veraldlegir dómstólar.
Aðeins einum dauðadómi hefur
verið fullnægt frá því sjaríalög öðl-
uðust aftur gildi í Nígeríu 1999.
Sharif-Aminu er sem stendur í
varðhaldi. Áður en dómur gekk
kveiktu andstæðingar hans í húsi
fjölskyldunnar fyrir sönginn.
NÍGERÍA
Dæmdur til dauða
fyrir guðlast
Joe Biden, forsetaframbjóðandi
Demókrata í Bandaríkjunum, hefur
valið öldungadeildarþingmanninn
Kamölu Harris frá Kaliforníu sem
varaforsetaefni sitt í forsetakosn-
ingunum sem fram fara í nóv-
ember.
Harris var meðal þeirra sem
börðust við Biden um útnefningu
sem forsetaefni Demókrataflokks-
ins, en hún dró framboð sitt til baka
í desember. Hún er 56 ára lögfræð-
ingur að mennt og gegndi embætti
saksóknara í Kaliforníu frá árinu
2010 og þar til hún bauð sig fram til
öldungadeildarinnar árið 2016.
BANDARÍKIN
AFP
Fyrsta svarta konan Kamala Harris er
fyrsta svarta konan í framboði til vara-
forseta meðal stóru flokkanna tveggja.
Kamala Harris vara-
forsetaefni Bidens