Morgunblaðið - 12.08.2020, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.08.2020, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020 leg, hún var mjög greind og góð- ur námsmaður, fróð, vel lesin og orðheppin. Við áttum sameigin- leg eftirlætisfög og eftirlætis- kennara, þá Ólaf Hansson, Gunnar Norland og Jón Guð- mundsson. Íslenskan stóð þó hjarta hennar næst enda skrifaði hún fallegan stíl og las einstaklega skýrt og vel, eins og alþjóð fékk síðar að kynnast. Ég hvatti hana oft til að gerast rithöfundur, en hún hafði allt eins hug á því að verða dýralæknir, enda mikill dýravinur. En örlögin tóku í taumana og stýrðu vinkonu okkar í aðra átt. Vorið 1960 eignaðist Lilla eldri son sinn, Pétur, og Eyþór kom svo í heiminn haustið 1961. Stuttu seinna hóf hún starf sem útvarpsþulur. Lilla var ætíð mik- il jafnréttiskona enda bættust tvær dætur, þær Birna og Sól- veig Anna, í hópinn síðar. Hópur vinstúlkna stofnaði klúbb sem enn lifir góðu lífi eftir um það bil 60 ár. Löngum er sagt að íslenskar konur haldi uppi menningarlífi í landinu, skoði flestar sýningar, kaupi flestar bækur, sæki best leik- húsin. Þessi vinkvennahópur tilheyr- ir þeim flokki auk þess að ferðast saman og standa saman í blíðu og stríðu. Mannsævin er sérkennilegt fyrirbæri. Þú lítur til baka og þér finnst ekki nema örfá ár lið- in síðan skellihlæjandi skóla- stelpur þustu niður brekkuna í frímínútunum. En tíminn líður óstöðvandi með allri sinni gleði og sorgum. Svala Thorlacius. Þegar Ríkisútvarpið skartaði rödd Ragnheiðar Ástu Péturs- dóttur gat maður trúað því að útvarp hefði bæði sál og per- sónuleika. Hún var lifandi sönn- un þess að þulur í útvarpsstöð gegnir lykilhlutverki; hvernig röddinni er beitt, hver blæbrigð- in eru hverju sinni og hvernig þau eru löguð að aðstæðum, hvort kímni er til staðar, gleði eða sorg, hvernig er þagað, þetta gerir út um það hver rís undir því hlutverki. Góður þulur þarf líka að búa yfir skilningi á bæði líðandi stund og sögulegri arfleifð, menningunni, og að sjálfsögðu óbrigðulli máltilfinn- ingu. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir hafði allt þetta til að bera. Manni leið vel þegar hún talaði í útvarp og hinir heyrnardaufu töpuðu aldrei þræði þegar hún las, svo skýrmælt var hún. Hún var sannkallaður listamaður við hljóðnema Ríkisútvarpsins um áratugaskeið. Ætli það hafi verið listamað- urinn eða verkalýðssinninn Ragnheiður Ásta sem við feng- um til að stýra afmælishátíð BSRB í Borgarleikhúsinu á fimmtíu ára afmæli samtakanna árið 1992? Sennilega hvort tveggja. Við vissum að hún yrði með okkur af hjarta og sannfær- ingu og við vissum að enginn myndi gera þetta betur en hún. Þegar við hugsum til þessarar menningarhátíðar okkar félag- anna í BSRB í febrúar árið 1992 kemur fyrst upp í hugann Ragn- heiður Ásta í miðju blómahafi á gljáandi rauðum skóm í tilefni dagsins. Hún er það eftirminni- legasta úr hátíðardagskrá sem margir sýta nú að skuli ekki vera til á upptökubandi, svo frá- bær þótti efnisskráin. Og það var hún. Þó muna fæstir upp á hvað var boðið nema náttúrlega kynninn sem var heil dagskrá í sjálfri sér. Sú minning hverfur ekki. Í þakklætisskyni sendum við henni þrjátíu rauðar rósir. Við vissum að henni þótti rauður lit- ur róttækni vera við hæfi og í orðsendingu sem fylgdi blómun- um þökkuðum við henni fyrir að fá að vera í samtökunum hennar. Ragnheiður Ásta Pétursdótt- ur er okkur öllum eftirminnileg sem ein helsta og besta rödd Ríkisútvarpsins. Sjálfur minnist ég hennar sem samstarfskonu á Ríkisútvarpinu og ég minnist þess hve góður og traustur félagi í verkalýðsbaráttunni hún ætíð var. Um skeið var hún formaður starfsmannafélags útvarpsins og í starfi innan BSRB var alltaf á hana að treysta enda var hún verkalýðssinni af lífi og sál. Í hennar huga hygg ég að farið hafi saman barátta fyrir hag launafólks og sósíalisma; að þessi barátta ætti að vera sam- tvinnuð. Ragnheiðar Ástu minnist ég fyrir allt þetta en ekki síst mun ég minnast hennar sem góðs vin- ar. Við kveðjum Ragnheiði Ástu Pétursdóttur með eftirsjá. Ég færi fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Ögmundur Jónasson. Hún var samferðamaður í hálfa öld, fyrst sem skólafélagi í menntaskóla, síðan sem rödd í útvarpi allra landsmanna. Alla tíð var hún dugmikil baráttukona sem lét sér fátt mannlegt óvið- komandi. Ekki sízt var henni hugleikin réttindabarátta þeirra sem minna mega sín. Eftir því sem árin liðu fórum við skólasystk- inin að hittast oftar og þar var ljóst að hún hélt áfram tryggð við þau gildi sem hún hafði áður tileinkað sér. Þegar ég kynntist föður Ragnheiðar Ástu varð mér ljóst hvers konar veganesti hún fékk með sér að heiman. Pétur var vel kunnugur sögu Reykjavíkur á tímum þar sem lífsbaráttan var hörð og óvægin, fátækt og aðstaða þeirra sem minna höfðu nægði vart til að draga fram lífið og barátta stétt- anna var á tímum mjög hörð og óvægin. Pétur hafði starfa sinna vegna sem fréttamaður og þulur við einu útvarpsstöð landsmanna góðan aðgang að fólkinu í land- inu og var mér ótæmandi upp- spretta og fræðsla um lífið í landinu milli heimsstyrjalda og hvernig átökin í Evrópu höfðu áhrif á skoðanamyndun ung- menna á Íslandi og afstöðu til hinna hrikalegu átaka innan og milli stórþjóðanna. Greinilegt var að dóttir hans hafði myndað sér ákveðnar skoðanir á þjóð- félagsmálum en hún var ekki mikið að reyna að hafa áhrif á skoðanir okkar skólasystkin- anna. Hún stóð sig vel í námi enda skarpgreind og hún var valin til forystu af félögunum auk þess sem hún var hrókur alls fagnaðar þegar skólafélag- arnir komu saman, ekki sízt í Selsferðum. Hún varð skotin í strák í skól- anum, þau eignuðust dreng sem seinna varð einn fremsti tónlist- armaður og fyrirmynd á sviði vandaðrar, léttrar tónlistar á Ís- landi og síðan komu fleiri börn sem einnig báru foreldrunum fagurt vitni. Þau Gunnar fóru síðar hvort sína leið og Ragnheiður Ásta fann annan lífsförunaut sem féll vel bakgrunni hennar en Jón Múli var einn þekktasti og vin- sælasti útvarpsmaður á áður- nefndri útvarpsstöð en þar fyrir utan listrænn og töfrandi ein- staklingur, tónlistarmaður, tón- skáld og lífskúnstner. Ég hygg að hjónaband þeirra hafi verið báðum gjöfult og ekki er ósenni- legt að þar hafi þjóðfélagsmál og baráttu stéttanna borið á góma og finnst sumum að dóttir þeirra beri þeirri tilgátu vitni. En umfram allt var Ragnheið- ur Ásta góður skólafélagi og vin- ur í hálfa öld og hennar söknum við samstúdentar hennar úr MR vorið 61 og þökkum henni allar góðu stundirnar og einlæga vin- áttu. Börnum hennar votta ég sam- úð og fjölskyldum þeirra. Megi minningin um merka konu og umhyggjusama móður verða þeim huggun. Sigurður Björnsson. Kær skólasystir er látin. Í huga okkar geymist mynd af heimskonu sem hóf daginn með því að líta í spegil og lita varir sínar eldrauðar. Margs er að minnast þegar við bekkjarsystkinin kveðjum Ragnheiði Ástu. Saman áttum við árin 1957-1961 í MR og er- um enn samrýndur hópur sem hefur ómælda ánægju af því að hittast og gleðjast. Hún Lilla, en undir því nafni gekk hún alltaf í skóla, lét ekki sitt eftir liggja og var hrókur alls fagnaðar. Hún var af- bragðsnemandi, metnaðarfull og framúrskarandi skemmtileg og klár og gat fundið upp á furðu- legustu uppátækjum og brell- um. Lilla hafði sterkar skoðanir og lá ekki á þeim, henni þótti m.a. upplagt að afnema pen- inga. Hún átti létt með að setja saman vísur og kvæði undir ýmsum bragarháttum. Því mið- ur hafa flestar háð- og kerskni- vísur hennar glatast en öll þekkjum við skemmtilegu text- ana sem m.a. Borgardætur hafa gert ódauðlega. Að sögn skólasystur sem henni var samferða frá upphafi skólagöngu skar hún sig strax úr í 7 ára bekk. Ekki aðeins með því að vera höfðinu hærri en aðrir í bekknum með dökkar krullur sem römmuðu inn and- litið með þessum stóru brúnu augum, heldur var hún líka óhrædd að spyrja og fljót til svars. Ekki að undra að hún nyti hylli kennara. Hún var stálminnug á skemmtilegar vísur og sögur og engan annan vissum við sem gat viðstöðulaust þulið þýskar end- ursagnir úr skóla til æviloka. Lilla var gæfumanneskja í lífi og starfi. Íslenska og íslenskar bókmenntir voru ávallt hennar uppáhaldsnámsgreinar og er óhætt að segja að landsmenn allir hafi notið þess, fáir fóru betur með íslenskt mál. Hún lét engar ambögur frá sér fara. Á 25 ára stúdentsafmæli okkar var Lilla ræðumaður við út- skrift stúdenta í Háskólabíói. Þótt nýstúdentar tækju líklega ekkert eftir nafni hennar í kynningu á ræðumanni heyrðist lágvær kliður þegar hún hóf mál sitt; þessa rödd þekktu all- ir! Skólasystir sem dvaldist langdvölum erlendis kom heim og allt var breytt. Einn fastur punktur var þó í tilverunni, Ragnheiður Ásta að lesa til- kynningar í útvarpi allra lands- manna. Að hlýða á hana var hrein unun. Þegar Lilla eignaðist Pétur, son sinn, í fimmta bekk áttum við mörg hlut í honum og ávallt síðan. Við minnumst þess þegar Fríða leikfimikennari hvíslaði að Lillu í stúdentsprófum að hún væri heppin að vera búin að eignast hann Pétur, væri ekki að standa í slíku núna, alls óvit- andi um Eyþór sem von var á innan skamms. Svo kom Birna og að síðustu Sólveig Anna sem hún átti með seinni eiginmanni sínum, Jóni Múla, þjóðkunnum útvarps- og listamanni. Börnin ásamt mikl- um fjölda afkomenda voru alltaf hennar gleði og stolt. Hennar mesta hamingja í líf- inu var Jón Múli. Þar fóru sam- an hugmyndaríkar og skemmti- legar manneskjur og saknaði hún hans mikið þegar hann lést. Á kveðjustund þökkum við skólasystkinin skemmtileg gef- andi kynni og samvistir og vott- um fólkinu hennar dýpstu sam- úð. Fyrir hönd samstúdenta úr MR 1961, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, Solveig Guðmundsdóttir. ✝ Rósa Árnadóttirfæddist 11. des- ember 1929 í Æsu- staðagerði í Saur- bæjarhreppi, Eyja- firði. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 31. júlí 2020. Foreldrar hennar voru Árni Friðriks- son frá Brekku og Elín Kristjánsdóttir frá Jódísarstöðum. Alsystkini Rósu eru tvíburarnir Svanhildur Ólöf og Kristján (lát- inn). Hálfsystkini hennar sam- feðra eru Kolbrún, tvíburarnir Friðrik og Ólöf (látin), Kári og Einar. Foreldrar Rósu slitu sam- vistir og frá 5 ára aldri ólst hún upp með móður sinni og móð- ursystkinum á Jódísarstöðum. Eftir barnaskóla í sveitinni gekk Rósa í gagnfræðaskóla á Akureyri og þaðan í Húsmæðra- skólann á Laugalandi. Að því loknu tók hún íþróttakennara- próf frá Íþróttakennaraskólan- um á Laugarvatni 1950 og seinna lauk hún kennaraprófi frá handavinnudeild Kennaraskól- ans 1953. Rósa stundaði seinna nám við Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík, þegar hún var í kennsluorlofi. Strax eftir kennarapróf eða frá árinu 1951 fór Rósa að sinna sundkennslu á Norðausturlandi. eru Sigríður Elísabet, Ingi Þór og Atli Ágúst. d) Árni, f. 1959. Maki hans er Hrefna Laufey Ing- ólfsdóttir. Þeirra börn eru Axel Ingi og Rósa. e) Ingólfur, f. 1965. Maki hans er Bryndís Lúðvíks- dóttir. f) Elín Kristbjörg, f. 1967. Maki hennar er Hafþór Hreið- arsson. Dætur þeirra eru Halla Marín, Heiðdís og Lea Hrund. g) Margrét, f. 1968. Maki hennar er Helgi Þór Ingason. Börn hennar eru Helga, Aron og Eiríkur Ant- on. Sonur Helga Þórs er Andri Snær. h) Pálína Stefanía, f. 1973. Maki hennar er Freyr Aðalgeirs- son. Þeirra börn eru Sara, Óðinn Arnar og Kamilla. Sigurður og Rósa hófu búskap á Grund í Eyjafirði hjá for- eldrum Sigurðar. Bústofn þeirra voru 12 kýr og 25 gimbrar sem voru brúðargjöf frá Snæbirni og Pálínu, tengdaforeldrum Rósu. Vorið 1956 fluttu þau að Jódís- arstöðum í Öngulstaðahreppi og fengu til ábúðar fjórðungshlut jarðarinnar – hlut Elínar móður Rósu. Þar byggðu þau nýbýlið Höskuldsstaði og fluttu þangað búferlum í júlí 1957. Útför Rósu fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 12. ágúst 2020, kl. 13.30. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis nán- ustu aðstandendur viðstaddir út- förina, en athöfninni verður streymt á Facebook-síðunni „Jarðarfarir í Akureyrarkirkju“. Boðið verður til erfidrykkju síðar, þegar aðstæður leyfa. Rósa verður jarðsett á Munka- þverá. Kennslan fór fram á vorin og allan sinn starfsaldur eða til ársins 1999 ferðað- ist hún á Raufar- höfn, Þórshöfn, Grímsey og Vopna- fjörð til að kenna sund. Að auki sinnti hún sundkennslu á Laugalandi. Fyrstu starfsár- in, eða á tímabilinu 1950-1960, kenndi Rósa leikfimi á Akureyri og í Hrafnagils- og Öngulstaðahreppi. Svo tók við handavinnukennsla við Hús- mæðraskólann á Laugalandi frá árinu 1960 til ársins 1972, með hléum. Árið 1972 hóf hún kenn- arastörf við yngri bekki Barna- skólans á Laugalandi en síðar kenndi hún við Hrafnagilsskóla, eftir sameiningu hreppanna í Eyjafjarðarsveit. Hún kenndi einnig við Barnaskólann á Bakkafirði í þrjá vetur. Eiginmaður Rósu var Sig- urður Snæbjörnsson, f. 23. apríl 1934. Þau giftust 1955 en Sig- urður lést árið 2006. Börn þeirra eru: a) Snjólaug, f. 1956. Maki hennar er Benedikt Smári Ólafs- son. Börn hennar eru Rósa og Sigurður Stein. b) Rósa Sigríður, f. 1957, d. 1957. c) Snæbjörn, f. 1958. Maki hans er Elva Sigurð- ardóttir. Hans börn eru Kolbrún, Steinunn og Sigurður. Börn Elvu Nú hefur Rósa tengdamóðir mín verið kölluð yfir í aðra veröld. Að kynnast Rósu og hennar fjöl- skyldu var mér mikil lukka. Fyrir henni voru allir jafnir, allir vel- komnir og hlýja hennar fór ekki fram hjá neinum. Nærvera Rósu gerði það að verkum að öllum leið vel í kringum hana og sést það best á hversu vina- og kunningja- mörg hún var. Það var sama hvaða tíma sólahrings gesti bar að garði, allir fengu veitingar líkt og um væri að ræða fimm stjörnu stað og efast ég ekki um að margir minnist Rósu á Höskuldsstöðum þannig. Þegar við Snæbjörn og börnin mín bjuggum í sumarbú- staðnum á meðan við vorum að byggja enduðu flest kvöld í kvöld- kaffi með þeim eðalhjónum Sigga og Rósu. Það var líka hefð hjá Rósu að baka bollur á laugardags- morgnum og vera með grjóna- graut í hádeginu og komu þá þeir sem vildu í graut. Rósu þótti af- skaplega gaman að ferðast og keyrði hún með öldungana eins og hún kallaði þau skólasystkin, sem saman voru í Íþróttaskólanum, um land allt. Hún skipulagði ferð- irnar og fór vel nestuð af stað því ekki vildi hún borða á veitinga- stöðum. Árið 2007 fórum við Snæbjörn ásamt Snjóku og Atla með Rósu til Parísar og þar voru skoðuð söfn og kirkjur. Þá eyddum við góðum stundum í Normandi hjá Erik sem var með okkur í skoðunar- ferðum sem hún naut sín vel í. Rósa var líka snillingur að baka flatbrauð og bakaði hún það á plötu, í seinni tíð var reykurinn farinn að fara illa í augun á henni en hún dó ekki ráðalaus heldur setti upp sundgleraugu, já hún tengdamóðir mín lét ekkert stoppa sig. Eftir að Rósa flutti á Hlíð og maður spurði hvernig hún hefði það var svarið oftar en ekki: „Þetta er svo sem ágætt, ekkert um að vera en það vasar ekkert um mann. Er ekki alltaf nóg að gera í sjoppunni hjá þér?“ Nú þegar komið er að leiðarlok- um minnist ég tengdamóður minnar af mikilli virðingu og er ég viss um að Siggi taki vel á móti henni í draumalandinu á hvítum hesti. Þú gengin ert hugglöð á frelsarans fund og fagnar með útvaldra skara, þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver und. Hve gott og sælt við hinn hinsta blund í útbreiddan faðm Guðs að fara. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún) Þín tengdadóttir Elva. Haustið 2012 var ég svo lán- samur að verða hluti af stórri og samhentri fjölskyldu sem kennd er við Höskuldsstaði í Eyjafjarð- arsveit. Höfuð ættarinnar var Rósa Árnadóttir sem nú er fallin frá á 91. aldursári. Í örfáum orð- um vil ég þakka kynnin við þessa ljúfu og brosmildu tengdamóður mína. Margar stundir átti ég með henni við eldhúsborðið á Hösk- uldsstöðum, einkum að morgni dags því Rósa var árrisul og gekk snemma til ótal morgunverka. Ég gleymi víst aldrei þegar ég mætti henni með sundgleraugu í reykj- arkófi niðri í gangi á Höskulds- stöðum. Í ljós kom að hún var að baka flatbrauð á hellu frammi í holi og við settumst niður við eld- húsborðið því hún var auðvitað með hafragrautinn kláran og ég þurfti líka að smakka nýbakað flatbrauðið. Þetta var tiltölulega stuttu eftir að ég kynntist Rósu og mér datt í hug að slá svolítið um mig og ég spurði hvort ég ætti að fara með vísu um flatbrauð. Um leið og hún jánkaði sá ég auðvitað eftir þessu útspili, þegar ég mundi að vísan er hin mesta níðvísa um flatbrauð. En ég gat ekki vikist undan og Rósu fannst vísan stór- skemmtileg og spurði mig hver hefði samið hana. Þessu gat ég ekki svarað, en næst þegar ég kom norður var Rósa reyndar bú- in að fletta því upp. Ég hef áttað mig á því að þessi fyrstu kynni mín af Rósu voru á margan hátt lýsandi fyrir hana. Viljinn til að fræðast og kynnast fólki, jafnaðargeðið og þessi ró- lega, trausta og góða nærvera, já- kvæð afstaða hennar til lífsins og tilverunnar. Engum hef ég kynnst sem var jafn-vel búinn undir dauð- ann og hún var. Rósa talaði mjög hversdagslega um þau tímamót, eins og ekkert væri sjálfsagðara, og ég lærði af henni að þetta er rétta leiðin. Áfram gæti ég haldið að telja upp hvers ég mun minnast þegar ég hugsa um þessa einstöku tengdamóður mína; ég er ekki einu sinni byrjaður að nefna alla handavinnuna, prjónasokkana, hekluðu teppin og tátiljurnar, og svo auðvitað flatbrauðið, grautinn á laugardögum og nýbökuðu ger- bollurnar og heita kakóið á sunnu- dagsmorgnum. Þótt Rósa hefði gaman af vís- unni um flatbrauðið forðum, þá skammaðist ég mín alltaf fyrir að hafa farið með svo óviðeigandi kveðskap þegar ég gæddi mér á nýbökuðu flatbrauðinu. Ég fékk tækifæri til að gera iðrun og yf- irbót þegar ég ávarpaði Rósu í ní- ræðisafmælinu hennar í desember 2019. Ég votta fjölmennum hópi afkomenda hennar samúð mína og er af öllu hjarta þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Rósu Árnadóttur. Við nægtaborðið nýt ég mín á Höskuldsstöðum að nærast þar ég fregnað hef menn biðu í röðum. Í framtíð munu flytja margir lof og prósa um flatbrauðið þitt dásamlega, elsku Rósa. Helgi Þór Ingason. Rósa Árnadóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minn- ingargrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.