Morgunblaðið - 12.08.2020, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 12.08.2020, Qupperneq 23
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Formaðurinn Guðni Bergsson er for- maður Knattspyrnusambandsins. Mótanefnd KSÍ fundaði á mánudag varðandi þann möguleika að leyfi fáist til að hefja keppni í mótum sumarsins aftur föstudaginn 14. ágúst. Nefndin ákvað, ef leyfi fæst, að hefja keppni aftur samkvæmt fyrirliggjandi dagskrá föstudaginn 14. ágúst í meistaraflokki, 2. flokki og 3. flokki. Leikjum sem þegar hefur verið frestað verður fundinn nýr leiktími og það tilkynnt sér- staklega. Var síðast leikinn keppn- isfótbolti í meistaraflokki hér á landi fimmtudaginn 30. júlí. Ekki er hægt að útiloka að öðrum leikjum í hlutaðeigandi mótum verði breytt ef þess gerist þörf til að koma fyrir frestuðum leikjum. Verði leikið um helgina fara sam- tals ellefu leikir fram í efstu deild- um karla og kvenna. Tveir leikir fara fram í Pepsi Max-deild karla á föstudag, tveir á laugardag og tveir á sunnudag. Þá er heil umferð á dagskrá í Pepsi Max-deild kvenna á laugardag. Verða strangar sóttvarnarreglur í gildi meðan á leik stendur. Liðin þurfa til að mynda að ganga út á völlinn sitt í hvoru lagi, halda skal tveggja metra regluna á varamannabekk og annars staðar. Þá er óheimilt að fagna mörkum með snertingu. Bannað er að hrækja á völlinn og markmönnum bannað að hrækja í markmanns- hanskana. Þá ber öllum nema leik- mönnum, þjálfurum og dómurum skylda til að vera með andlits- grímur í hálfleik. Boltar skulu sótt- hreinsaðir í hvert skipti sem þeir fara úr leik. Stefnt að því að byrja á föstudag ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020 Los Angeles Lakers náði að rétta aðeins úr kútnum þegar liðið vann Denver Nuggets 124:121 í NBA- deildinni í körfuknattleik. Lakers hefur fyrir löngu tryggt sér topp- sæti vesturdeildarinnar og sæti í úr- slitakeppninni. Margir spá liðinu meistaratitlinum en liðið hafði þó tapað þremur leikjum í röð fyrir við- ureignina gegn Denver. LeBron James skoraði 29 stig og gaf tólf stoðsendingar og liðsfélagi hans Anthony Davis skoraði 27 stig en frammistaða þessara leikmanna síðasta vetur gefur stuðnings- mönnum Lakers von um sigur í ár. Loks sigur hjá Lakers AFP Troðsla Anthony Davis er drjúgur í stigaskorun fyrir LA Lakers. HLAUP Kristján Jónsson kris@mbl.is Arnar Pétursson, úr Breiðabliki, segist hafa verið í formi til að gera atlögu að besta tíma Íslendings í maraþoni í átta mánuði. Hann glímir hins vegar við það vandamál að erfitt er að finna maraþonhlaup til að keppa í á tímum kórónuveirunnar. Síðast í gær varð Arnar fyrir von- brigðum þegar ákveðið var að aflýsa maraþonhlaupi í Frankfurt sem hann var með í sigtinu. „Frankfurt-maraþoninu sem ég ætlaði að taka þátt í var frestað í dag. Enn ein tíðindin sem eru á annan veg en maður óskaði sér. Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara er á dag- skrá í Reykjavík 25. október. Mögu- lega gæti það bara verið eina mara- þonið sem er á dagskrá í heiminum. Þá verður hlaupið frá Elliðaárdaln- um, út eftir Ægisíðunni og snúið við þar. Tvær slíkar ferðir,“ sagði Arnar þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Svo gæti farið að hann taki þátt í því hlaupi en ætlar að vega og meta aðstæður í ljósi þess að langt verður liðið á haustið. „Ég stefni að því að vera með en ef það verður frost yfir öllu eða leið- indaveður þá ætla ég ekki að hlaupa maraþon bara til þess að hlaupa maraþon. Ekki er útlit fyrir aðra möguleika á næstunni. London- maraþonið mun fara fram fyrir nokkra elítuhlaupara en ég setti ekki stefnuna á það.“ Í hörkuformi á þessu ári Arnar var vongóður um góðan ár- angur á árinu eftir að hafa staðið sig vel á síðasta ári. „Í apríl þegar ég ætlaði að hlaupa maraþon þá hafði ég hlaupið hálft maraþon á klukkutíma og sex mín- útum sem er næstbesti tími Íslend- ings í greininni frá upphafi. Ég gerði það í tíu metrum á sekúndum og því ekki við skemmtilegar aðstæður. Gaf það til kynna að maður myndi hlaupa á bilinu 2:15 til 2:17 klukkustundum í maraþoni. En svo fékk ég ekki að gera það í apríl þar sem allt féll nið- ur. Ég myndi segja að ég hafi verið í Íslandsmetsformi í maraþoni í ein- hverja átta til níu mánuði. En maður fær ekki að taka það út. Eitt er að vita að maður geti slegið Íslands- metið sem er 2:17,12 klukkustundir, en maður þarf að fá tækifæri til að gera það. Þegar kemur að maraþoni þá er það meira en að segja það. Maður þarf að vera í réttum gír og fá heppilegt veður og góða braut til að ná góðum tíma.“ Ólympíulágmarkið í greininni er orðið afar erfitt viðureignar. Íslend- ingar hafa átt tvo fulltrúa í þessari rótgrónu grein í gegnum tíðina, Mörthu Ernstsdóttur í Sydney og Kára Stein Karlsson í London. „Fólk hefur tíma þar til í júní til að ná lág- marki í maraþoni fyrir leikana í Jap- an á næsta ári. Fyrir síðustu leika var lágmarkið 2:19 klukkustundir en nú er lágmarkið 2:11,30 sem er rosa- lega mikil breyting. Miðað við minn árangur í Reykjavíkurmaraþoni þá var ég nokkuð nálægt lágmarkinu fyrir leikana 2016.“ Æfði í Kenía Eins og hjá svo mörgum öðrum eru allar áætlanir í uppnámi hjá Arnari. Hann hafði ætlað sér að æfa erlendis um tíma næsta vetur eins og hann hefur gert áður. „Ég vildi fara alla leið sem hlaup- ari og gera það sem mér finnst skemmtilegast að gera. Fyrir vikið hef ég síðustu tvö ár verið í tvo til þrjá mánuði í 2.500 metra hæð í Mammoth Lakes í Bandaríkjunum. Þar hef ég æft með sumum af bestu hlaupurunum í Bandaríkjunum. Þar hef ég dvalið fyrir jól en farið til Kenía eftir áramót og dvalið þar í sex til átta vikur. Í Kenía var ég í Iten sem er frekar lítill bær en þaðan hafa komið margir heims- og ólymp- íumeistarar. Fyrir vikið er skilti við bæjarmörkin þar sem stendur: Home of Champions. Það er lygilegt að æfa með Keníubúunum. Stundum voru 200-300 manns á æfingum og allir með betri hlaupurum í heim- inum. Það er mikil upplifun. Nánast allir alvöru hlauparar í Kenía eru betri en allir hlauparar í Evrópu.“ Sprenging síðasta vetur Arnar þjálfar einnig samhliða því að æfa sjálfur og keppa. Hann segir að í vetur þegar glíman við kórónu- veiruna stóð sem hæst hérlendis hafi geysilega mikil aukning verið í hlaupum hérlendis. Fólk hafi leitað að hreyfingu sem hægt væri að stunda auk þess sem margir höfðu einfaldlega þörf fyrir að vera utan- dyra eftir að eyða vinnudeginum á heimilinu. „Já, það var magnað að fá að vera í hringiðunni á þeim tíma. Fólk leitaði mikið til mín og ég fann mjög fyrir ásókninni. Fólk óskaði eftir því að fá áætlun eða greiningu svo eitthvað sé nefnt. Ef fólk ætlar sér að byrja að hlaupa þá er gott að búa til einhverja áætlun. Eitthvað sem við getum kall- að kort af leiðinni. Þetta er einfald- asta íþrótt í heiminum og hún lifir góðu lífi þegar fólk hefur ekki úr mörgu að velja. Fólk þurfti að gera eitthvað í stað þess að hanga bara heima. Þá eru hlaup frábær kostur,“ sagði Arnar og hann hvetur þá hlaupara sem ætluðu að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu til að ljúka hlaupinu þótt ekki verði það gert með formlegum hætti. Þegar fólk hafi undirbúið sig og æft fyrir keppni þá sé mikilvægt að fá að setja punkt fyrir aftan ferlið. Fólk ætti því að hlaupa sína vegalengd um svipað leyti og Reykjavíkurmaraþonið átti að fara fram.  Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með Arnari á Instagram undir heitinu arnarpetur. Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson Bliki Arnar Pétursson á fleygiferð en hann keppir fyrir Breiðablik.  Maraþonhlaupi í Frankfurt aflýst í gær  Keppni sem Arnar Pétursson var með í sigtinu  Telur sig geta bætt besta tíma Íslendings fái hann tækifæri Fátt í boði fyrir Arnar  Danski knattspyrnumaðurinn Pierre-Emile Højbjerg er orðinn leik- maður enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham. Tottenham greiðir South- ampton 15 milljónir punda fyrir leik- manninn. Kyle Walker-Peters mun fara í hina áttina en hann var að láni hjá Southampton frá Tottenham síðari hluta síðasta tímabils. Southampton greiðir Tottenham 12 milljónir punda fyrir enska varnarmanninn. Højbjerg hefur verið fyrirliði Southampton, undanfarin tvö tímabil, en hann gekk til liðs við félagið frá Bayern München árið 2016.  Brasilíski knattspyrnumaðurinn Fred er eftirsóttur af liðum í efstu deild en hann er á þriðja tímabili með Fram í 1. deildinni. Fylkir, FH, ÍA og Val- ur hafa öll sýnt Fred áhuga samkvæmt Fótbolta.net. Fred er 23 ára og hefur skorað 8 mörk í 11 leikjum í sumar.  Knattspyrnumarkvörðurinn Clau- dio Bravo verður seldur frá Manchest- er City á Englandi til Real Betis á Spáni á næstu dögum. Goal.com greinir frá. Bravo hefur verið hjá City í fjögur ár, en hann hefur lítið fengið að spila síð- ustu ár vegna góðrar frammistöðu Brasilíumannsins Ederson. Mun Bravo lækka töluvert í launum við félags- skiptin. Manuel Pellegrini tók við Bet- is á dögunum, en hann gerði einmitt City að enskum meistara árið 2014. Bravo var hins vegar keyptur til Man- chester City af Pep Guardiola.  Körfuknattleiksdeild Þórs í Þorláks- höfn hefur gert tveggja ára samning við Litháann Adomas Drungilas. Hann er 203 sentimetrar og leikur sem framherji. Hann hefur leikið víða í Evr- ópu, síðast í Eistlandi með Tartu Ul- likool. „Þórsarar binda vonir við að Adomas muni þétta raðirnar í kringum körfuna og vera leiðtogi innan liðsins þar sem hann býr yfir töluverðri reynslu úr atvinnumennsku,“ segir í Hafnarfréttum.  Markvörðurinn ungi Elías Rafn Ólafsson hefur gengið til liðs við FC Fredericia að láni frá Midtjylland í Danmörku. Hann mun því spila í dönsku B-deildinni á næsta tímabili. Elías var lánsmaður hjá Aarhus Fre- mad í C-deildinni á síðustu leiktíð og var meðal annars valinn besti mark- vörður fyrri hluta tímabilsins af dag- blaðinu Århus Stiftstidende sem er gefið út í Árósum. Elías er tvítugur og hefur hann spilað alls sjö landsleiki fyrir yngri landslið Íslands en hann var keyptur til Midtjylland frá Breiðabliki fyrir tveimur árum.  Belgíski knattspyrnumaðurinn Romelu Lukaku setti markamet á má- nudager hann skoraði seinna mark Inter í 2:1-sigri á Bayer Leverkusen í 8- liða úrslitum Evrópudeildarinnar í Þýskalandi, þar sem mótið fer fram. Lukaku varð svo fyrsti leikmaðurinn í sögu keppninnar til að skora í níu leikjum í röð. Enginn hefur áður gert það, hvorki í UEFA- bikarnum né Evr- ópudeild- inni eins og keppn- in er í dag kölluð. Að vísu hefur aðdrag- andi að þessu meti verið langur, því fyrstu fimm leikirnir voru með Everton tímabilið 2014-15. Eitt ogannað Breiðablik hefur keypt miðjumann- inn Atla Hrafn Andrason af Víkingi úr Reykjavík en félagið greindi frá þessu á heimasíðu sinni í gær. Hann hefur skrifað undir langtímasamn- ing við Kópavogsliðið. Atli Hrafn er uppalinn KR-ingur en gekk til liðs við Fulham á Eng- landi árið 2017. Hafði hann þá spilað sjö leiki fyrir KR-inga í deild og bik- ar. Hann gekk svo til liðs við Víkinga fyrir sumarið 2018 og hefur spilað þar síðan, spilað alls 36 leiki í efstu deild. Víkingur hefur á hinn bóginn fengið hinn 22 ára gamla Adam Ægi Pálsson frá Keflavík. Atli Hrafn til Breiðabliks Ljósmynd/Þórir Tryggvason Félagaskipti Atli Hrafn Andrason færði sig í Smárann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.