Morgunblaðið - 12.08.2020, Síða 24
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Heimir Björgúlfsson myndlistar-
maður, sem býr og starfar í Los Ang-
eles, er einn þeirra sem nú sýna í
Listasafninu á Akureyri og lýkur
sýningu hans 16. ágúst. Sýningin ber
titilinn Zzyzx og er í sölum 3 og 4.
Heimir komst ekki til Íslands vegna
kórónuveirunnar og því verður lista-
mannaspjall með honum á lokadegi
sýningarinnar, 16.
ágúst kl. 15, í
gegnum netið.
Titilverk sýn-
ingarinnar er
ljósmynda-klippi-
myndasería sem
Heimir vann út
frá myndum sem
hann tók í Zzyzx í
Mojave-eyði-
mörkinni í Kali-
forníu. Hann seg-
ir þennan stað í eyðimörkinni hafa
verið endurnefndan og gefið þetta
furðulega nafn af Curtis Howe Sprin-
ger nokkrum árið 1944 sem vildi að
staðurinn væri síðastur í stafrófsröð.
Heimir segir Springer hafa fengið
leyfi fyrir námugreftri á staðnum en
hann kom þar á laggirnar heilsulind
og hóteli með fríu vinnuafli útigangs-
manna. Gekk allt að óskum hjá Sprin-
ger þar til hann var dæmdur í fang-
elsi árið 1974 fyrir margs konar
svindl tengt landareigninni. Heimir
segir staðnum síðar hafa verið breytt
í háskólamiðstöð í jarðfræði og var
nafninu haldið, hinu stórfurðulega
Zzyzx.
Ómögulegar aðstæður
Blaðamaður hafði samband við
Heimi og bað hann fyrst að segja að-
eins frá sér, námi og störfum og
hvers vegna hann hafi endað í Los
Angeles. „Ég er fæddur og uppalinn í
Reykjavík en fór og lærði í Hollandi
við Gerrit Rietveld-listaháskólann og
Sandberg-stofnunina í Amsterdam
þar sem ég bjó í sjö ár áður en ég
flutti fyrir hálfgerða tilviljun til Los
Angeles. Mér var upprunalega boðið
til Los Angeles í dvöl á listamanna-
vinnustofu, „artist in residence“, í
þrjá mánuði og mér líkaði svo vel hér
að ég flutti alfarið. Ég varð að fara
aftur til Amsterdam út af dvalarleyfi
og slíku en fyrsta morguninn sem ég
vaknaði aftur heima hjá mér voru
mér fullkomlega ljós þessi kaflaskipti
og að ég ætlaði að flytja til Kaliforn-
íu,“ svarar Heimir.
–Þú sýnir í safninu ljósmynda-
klippimyndaseríu unna úr ljósmynd-
um sem eru teknar í Zzyzx í Mojave-
eyðimörkinni í Kaliforníu. Hvers
vegna varð sá staður, þ.e. eyðimörk-
in, fyrir valinu og hvers vegna not-
arðu þessa aðferð, klippimyndina?
„Öll myndlist sem ég geri er
meira eða minna byggð á klippi-
myndaaðferðinni, að setja saman
ólíka hluti og búa til ómögulegar að-
stæður, hvort sem það verða ljós-
myndaklippimyndir, málverk eða
skúlptúrar. Ég fer oft til Mojave-
eyðimerkurinnar til að ljósmynda
enda er þetta stór og margbreytileg
eyðimörk sem er á köflum ekki svo
ólík íslenskri auðn en samt akkúrat
andstæðan við hana hvað varðar liti,
lykt, flóru og auðvitað hitastig,“
svarar Heimir.
„Á þjóðvegi 15 sem liggur til Las
Vegas er skilti sem á stendur „Zzyzx
Road“. Ég hafði alltaf verið forvitinn
um þetta nafn og einn daginn beygði
ég þar út af. Það var samt ekki fyrr
en ég kynnti mér sögu staðarins sem
hugmyndin af verkunum kom til mín
og ég fór að fara aftur og aftur til
Zzyzx til að ljósmynda staðinn og
nágrennið.“
–Curtis Howe Springer nefndi
staðinn þessu nafni árið 1944. Teng-
ist Springer sýningunni, kemur
hann við sögu í verkunum með ein-
hverjum hætti?
„Curtis Howe Springer er ástæðan
fyrir verkunum á sýningunni. Þetta
var maður sem - ef svo mætti að orði
komast - var ekta gamaldags brask-
ari og svindlari. Hann þóttist vera
með hinar og þessar gráður frá há-
skólum sem voru ekki einu sinni til og
var veitt leyfi fyrir námugreftri á stað
í Mojave-eyðimörkinni sem hét Soda
Springs árið 1944. Hann fór strax að
gera allt annað en að stunda námu-
gröft. Hann endurnefndi staðinn
Zzyzx svo það yrði síðasta orðið í staf-
rófinu og dreif sig að byggja upp
heilsulind og hótel með vinnuafli sam-
ansmalaðra útigangsmanna frá Los
Angeles sem fengu ekki greidd laun
fyrir verkamannavinnu heldur fæði
og húsnæði. Hann auglýsti til sölu
ýmiss konar heilsuvörur, holl-
ustufæði og náttúrulækningar á
fölskum forsendum, vörur unnar úr
steinefnum sem væru aðeins til í
Zzyzx en hann var ekki með neina
námu og notaði engin steinefni. Hann
breytti landslaginu með uppbyggðum
tjörnum og óviljandi bjargaði hann
þannig fiskitegundinni Mojave Tui
Chub frá útrýmingu vegna loftslags-
breytinga. Hann lét leggja vegi og
götur á milli bygginganna með nöfn-
um eins og „Boulevard of Dreams“.
Gestir gátu baðað sig í heilsuböðum
og voru með stórfenglegt útsýni yfir
eyðimörkina á milli þess sem þeir
fengu svokallaðar heilsumáltíðir og
-drykki sem voru, oftar en ekki, kan-
ínukjöt og einfaldur gulrótasafi.
Þessu hélt hann áfram í 30 ár þangað
til yfirvöld stöðvuðu hann. Árið 1974
er hann borinn af landareigninni af
alríkislögreglumönnum eftir að hafa
neitað brottfararskipun,“ segir
Heimir.
„Í dag er Zzyzx samansafn af
byggingum sem eru nýttar fyrir jarð-
fræðirannsóknir af sameiginlegu
verkefni háskóla í Kaliforníu og þar
standa líka tómar upprunalegu bygg-
ingarnar sem Curtis byggði. Þótt inn-
blásturinn að verkunum sé byggður á
atburðum sem gerðust frá 1944 til
1974 í afskekktri eyðimörk í Kali-
forníu á þetta mjög við í dag í al-
þjóðlegu samhengi. Í verkunum mín-
um á sýningunni vil ég varpa fram
spurningum um hvernig við göngum
að umhverfinu sem vísu og notfærum
okkur það án tillits til þess. Hvernig
skammtímagróðasjónarmið gera
okkur blind og hvernig við sann-
færum okkur um að slík hegðun sé
ekki svo slæm. Ég sé í þessari sögu
hliðstæður við mannlega hegðun og
spyr hvaða gildismat náttúran og um-
hverfið hefur.“
Sérkennilegt ástand
–Hvernig er ástandið hjá þér í Co-
vid-kófinu, hvernig er lífið í Los Angel-
es þessa dagana?
„Ástandið er sérkennilegt, vægast
sagt, en þó er lífið ekki svo slæmt fyrir
mig persónulega meðan á þessu stend-
ur. Sem betur fer er vinnustofan mín
fyrir aftan húsið okkar þannig að ég
var með aðgang að henni þegar öllu
var lokað og enginn mátti fara eitt né
neitt. Það var að vísu mjög erfitt að ná
einbeitingu fyrstu tvær vikurnar eftir
lokunina, enginn vissi hvað var að ger-
ast en svo er mannskepnan svo aðlög-
unarhæf að það var eins og maður
vendist aðstæðum og ég gat unnið án
of mikilla erfiðleika aftur,“ svarar
Heimir.
„Þetta er engu að síður langþreytt
ástand núna, allir hér eru orðnir
þreyttir á þessu og þetta hefur orðið
mikil áhrif á andann í þjóðfélaginu
enda er enginn við stjórn hérna í
Bandaríkjunum við að uppræta farald-
urinn, hvert ríki á að sjá um sig sjálft
sem er engan veginn hægt. Hvernig á
eitt ríki að sporna við þegar allt er opið
í næsta ríki? Og svo framvegis. Þessu
má líkja við sundlaug sem á að vera
hrein en samt er eitt horn sem fólk
mígur í og heldur svo að það mengi
ekki alla laugina. En maður fer bara í
gegnum þetta eins og aðrir, ekkert
annað í stöðunni hvort eð er. Sem bet-
ur fer eru kosningar hér í haust.“
Nýtir tímann í tilraunir
– Hvað er fram undan hjá þér,
sýningar eða annað?
„Ég hef notað einangrunina til ým-
issa tilrauna á vinnustofunni enda er
ekki alltaf tími sem maður getur gefið
sér til þess, öll plön eru upp í loft
þangað til þessum vírus verður komið
undir einhvers konar stjórn. Ég er að
vísu að fara að gera stóra utan-
dyraveggmynd fyrir einn safnara
hér. Og vonandi næ ég svo sem fyrst
að skreppa aðeins upp í sveit í smáfrí
með fjölskylduna,“ segir Heimir að
lokum og ítrekar að hann muni
spjalla af netinu við sýningargesti
fyrir norðan, sunnudaginn 16. ágúst
klukkan 15.
Saga sem á erindi við samtímann
Sýningin Yfirlitsmynd af hluta sýningarinnar í Listasafninu á Akureyri. Sýningunni lýkur 16. ágúst.
Zzyzx VI Eitt af verkum Heimis á sýningunni, klippimynd unnin í fyrra.
Heimir
Björgúlfsson
Heimir Björgúlfsson sýnir í Listasafninu á Akureyri klippimyndir úr ljósmyndum sem hann tók í
Zzyzx í Mojave-eyðimörkinni í Kaliforníu Staður sem á sér merkilega sögu af svindli og braski
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
TAKE AWAY
25% afsláttur
af sérstökum Take Away matseðli
Pantaðu á
www.matarkjallarinn.is