Morgunblaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Eggert Sokkinn Jökull í Hafnarfjarðarhöfn í gær. Maður var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús eftir slys í Reykjavík- urhöfn á tíunda tímanum í gærkvöld þar sem bátur og sjóþota rákust saman. Báturinn kom manninum í land þar sem slökkvilið tók við og flutti hann á slysadeild. Meiðsl hans eru ekki talin lífshættuleg. Þá sökk línubáturinn Jökull í Hafnarfjarðarhöfn síðdegis í gær. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu gerði vegfarandi við- vart um að báturinn hallaði mikið og var hann nánast kominn á kaf þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Bátur og sjóþota rákust saman í gær 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Framkvæmdir standa nú yfir við tvöföldun Suðurlandsvegar. Um er að ræða 1.000 metra vegarkafla frá núverandi vegi rétt sunnan Vestur- landsvegar og suður yfir Bæjarháls. Verkið hófst í vor og er það verktakafyrirtækið Óskatak sem annast verkið. Það felur m.a. í sér að fullgera akbrautir og uppsetningu á nýjum veglýsingum og vegriðum til að aðskilja akstursstefnur. Undirgöng eru lengd og breikkuð og stóðu starfsmenn í ströngu við steypuvinnu í blíðviðr- inu í gær. Vegaframkvæmdir eru í fullum gangi á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Unnið að steypuvinnu við undirgöng á Suðurlandsbraut Tilkynningar um heimilisofbeldis- mál voru 17,6% fleiri í lok júlí í ár miðað við sama tímabil í fyrra. Hlutfallið var enn hærra í lok júní, eða 20,5%. Samanburður við árið 2018 sýnir 9,7% fjölgun. Þetta kom fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra í gær en þar kom jafnframt fram að frá árinu 2015 hafi aldrei verið tilkynnt um fleiri heimilisofbeldismál á lands- vísu á einum mánuði en í maí 2020. Fleiri brot hafa átt sér stað í fimm af níu embættum á sama tímabili ársins 2020 heldur en á sama tíma í fyrra, en sú er raunin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð- inu, lögreglunni á Suðurnesjum, lögreglunni á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Vesturlandi. Í tilkynningunni segir að þeg- ar um sé að ræða brot sem byggi á að fólk tilkynni þau til lögreglu, eins og heimilisof- beldi, sé ekki hægt að vita ein- göngu út frá lögreglugögnum hvort brotum sé í raun að fjölga eða hvort tilkynningum sé að fjölga. Mjög mikilvægt sé að fylgjast með þessari þróun. Þegar meta eigi hvort um raunbreytingar á fjölda hafi verið að ræða eða ekki þurfi að skoða reynslu al- mennings af brotum samhliða. Slíkt sé t.d. gert með þolenda- könnunum sem lögregla geri ár- lega í upphafi árs þar sem spurt sé um reynslu frá fyrra ári. thorgerdur@mbl.is Mun fleiri tilkynningar um heimilisofbeldismál  Yfir 20% fleiri heimilisofbeldismál í júní og met slegið í maí Morgunblaðið/Eggert Lögregla Fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi í ár en í fyrra. Sóttvarnayfirvöld vinna nú að áætl- un um málefni þess knattspyrnu- fólks sem fer utan til að keppa í Evrópukeppni. Ekki liggur fyrir hvort gerð verði undantekning á sóttvörnum þess og fyrir vikið ríkir óvissa um hvað verður um Íslands- meistara KR í knattspyrnu en liðið hélt í gær til Skotlands til að mæta Celtic. „Við erum að skoða það hvernig hátta megi sóttvarnaráðstöfunum vegna leikmanna KR en það liggur ekki fyrir lausn enn sem komið er. KR-ingar eru því að fara í ákveðna óvissuferð,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna- deildar ríkislögreglustjóra, við mbl.is í gær. Unnið var út frá þeirri áætlun að ef KR-ingar koma heim fyrir miðnætti í kvöld þá þurfa þeir að fara í heimkomusmitgát en ef þeir koma eftir miðnætti þá verða þeir að fara í sóttkví. Almannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra hefur ráðið Gunnar Gylfason, sérfræðing í framkvæmd knatt- spyrnuleikja, til að aðstoða við sótt- varnir. Er þá aðallega horft til keppnisferða íslenskra liða í und- ankeppnum Meistaradeildar Evr- ópu og Evrópudeildarinnar. Víðir segir varðandi knattspyrnu- fólk í verkefnum erlendis, að um allt aðra komufarþega sé að ræða en venjulega ferðamenn í Leifsstöð. „Umgjörðin um þessa knattspyrnu- menn er allt önnur heldur en um aðra ferðamenn. Þeir eru búnir að fara í skimun, fara í einkaflugi út og beint inn á lokað hótel þar sem sér- stakar sóttvarnarkröfur knatt- spyrnusambands Evrópu UEFA eru viðhafðar.“ Meistararnir í „óvissuferð“  Unnið að áætlun um sóttvarnir knattspyrnufólks Morgunblaðið/Arnþór Birkisson KR Óljóst er hvað gerist þegar liðið snýr aftur frá Skotlandi í kvöld. Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Stigá síðastlið- inn laugardag hét Stefán Hafstein Gunnarsson, til heimilis í Hamra- borg 32 í Kópavogi. Hann var fæddur 9. mars 1973. Stefán lætur eftir sig eiginkonu og tvo uppkomna syni. Lést í umferðarslysi Veiðigjöld í Namibíu eru lægra hlut- fall af verðmæti afla en veiðigjöld sem Samherji greiðir á Íslandi. Frá árunum 2012 til ársins 2017 voru veiðigjöld í Namibíu um 1% af afla- verðmæti, en hlutfallið var síðan fest með lögum í 10% árið 2018. Þetta kemur fram í skýrslu at- vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt- isins um samanburð á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi er birt var á vef Alþingis í gær. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, þingmaður Viðreisnar, og fleiri þingmenn óskuðu þess að sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra flytji Alþingi skýrslu um sam- anburð á greiðslum Samherja fyrir veiðirétt í Namibíu og á Íslandi á grundvelli upplýsinga frá Fiskistofu og þeim skjölum sem RÚV fjallaði um í fréttaskýringaþættinum Kveik. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann skýrsluna, en í inngangi henn- ar kemur fram að þær ásakanir sem fram komu í umfjöllun Kveiks um greiðslur til þeirra sem úthlutuðu veiðirétti í Namibíu eru til rann- sóknar hjá yfirvöldum á Íslandi og í Namibíu. Meðan beðið er eftir nið- urstöðu rannsókna er vart við hæfi að taka afstöðu til kæruefnanna og er því ekki fjallað um þau í skýrsl- unni eftir því sem fram kemur í inn- gangi hennar. Af þeim ástæðum var ekki hægt að svara skýrslubeiðninni eins og hún var sett fram og er því í skýrslunni eingöngu stuðst við op- inberar upplýsingar. Nánar er fjallað um skýrsluna á mbl.is. Veiðigjöldin lægri í Namibíu  Samanburður á greiðslum Samherja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.