Morgunblaðið - 18.08.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2020
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
Kæli- & frystibúnaður
í allar gerðir sendi- og flutningabíla
Meirihluti farþega Icelandair hefur
óskað eftir breytingum á flugáætlun
eða inneign hjá félaginu við niður-
fellingu flugs. Félagið hefur í heild-
ina endurgreitt rúmlega 104.000
bókanir frá öllum markaðssvæðum
frá því að heimsfaraldur kórónu-
veiru skall á. Á þessari stundu eru
um 31.000 beiðnir útistandandi að
sögn Ásdísar Ýrar Pétursdóttur,
upplýsingafulltrúa Icelandair. Ásdís
segir að til að setja þetta í samhengi
hafi millilandaflug verið í lágmarki í
alllangan tíma vegna faraldursins og
niðurfellingar á flugi hafi haft áhrif á
hundruð þúsunda farþega Icelanda-
ir. Eðli málsins samkvæmt sé því um
gríðarlegan fjölda mála að ræða sem
þurfi að vinna úr fyrir viðskiptavini,
auk þess sem meirihluti starfsmanna
Icelandair var í hlutastarfi um tíma.
Þess vegna hafi endurgreiðslur tekið
mun lengri tíma en undir venjuleg-
um kringumstæðum. „Það er mark-
mið okkar að leysa úr þessum málum
gagnvart viðskiptavinum okkar eins
fljótt og auðið er og við höfum til að
mynda innleitt tæknilausn til að ein-
falda endurgreiðsluferlið og auka af-
kastagetu,“ segir Ásdís. Morgun-
blaðið greindi frá því 11. júlí
síðastliðinn að um 71.000 bókanir
Icelandair hefðu verið endurgreidd-
ar frá því um miðjan mars. Þá voru
um 41.500 útistandandi endur-
greiðslubeiðnir. Þá kom fram í árs-
hlutauppgjöri Icelandair sem birt
var í lok júlí að félagið hefði gefið út
inneignarnótur fyrir 9,1 milljarð
króna á fyrri hluta þessa árs.
31 þúsund útistandandi
endurgreiðslubeiðnir
Icelandair hefur endurgreitt rúmlega 104 þúsund bókanir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Icelandair hefur endurgreitt
um 104 þúsund bókanir frá því að
kórónuveirufaraldurinn skall á.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Jóhann Ólafsson
Tvö kórónuveirusmit greindust hjá
sýkla- og veirufræðideild Landspít-
alans á sunnudag og eru 166 með
virk smit. Níu sýni sem tekin voru
við landamærin reyndust jákvæð
fyrir kórónuveirunni, en niðurstöðu
mótefnamælingar vegna þeirra er
enn beðið, auk niðurstöðu úr tveimur
jákvæðum sýnum sem greindust við
landamærin á laugardag, alls ellefu
talsins. Heildarfjöldi sýna við landa-
mærin er orðinn 101.129 frá því
landamæraskimun hófst 15. júní og
hafa virk smit verið 57, en óvirk 106.
Viðbúið er að álag vegna
landamæraskimunar muni aukast
talsvert á morgun, en nýjar reglur
um tvöfalda sýnatöku og sóttkví fyr-
ir alla þá sem koma til landsins taka
gildi á miðnætti. Álag hefur farið
vaxandi undanfarna daga og hefur
fjöldi sýna farið yfir 3.000 á sólar-
hring og má búast við að þeim fjölgi
enn frekar þegar farþegum frá lönd-
um sem áður höfðu verið tekin af
lista yfir áhættusvæði verður einnig
gert að undirgangast sýnatöku, auk
þess sem allir farþegar þurfa nú að
fara tvisvar í sýnatöku. Páll Þór-
hallsson, verkefnastjóri forsætis-
ráðuneytisins, er þó bjartsýnn á að
verkefnið gangi upp með samstarfi
sýkla- og veirufræðideildar og Ís-
lenskrar erfðagreiningar.
Vanti fleiri stór hótel
Um hundrað gististaðir um land
allt hafa skráð sig reiðubúna að taka
við ferðafólki í sóttkví. Elías Bj.
Gíslason, forstöðumaður Ferðamála-
stofu, sem heldur utan um skrán-
inguna, segir hana hafa tekið við sér,
en á vef Ferðamálastofu má finna
leiðbeiningar fyrir gististaði sem
þjónustað geti gesti í sóttkví. Þar er
m.a. kveðið á um að herbergi sem
séu ætluð gestum í sóttkví þurfi að
vera í sér álmu, á hæðum þar sem
aðrir gestir dvelja ekki eða stakstæð
gestahús. „Reyndar hefur það komið
okkur á óvart, að enn sem komið er
er minna af þessum stóru hótelum
[sem hafa skráð sig] og það mætti
hvetja þau til að taka við sér. Það
myndi hjálpa,“ segir Elías í samtali
við Morgunblaðið.
Gististaðirnir sem hafa skráð sig
eru vítt og breitt um landið, en Elías
segir að horfið hafi verið frá því að
einskorða skráninguna við
suðvesturhornið og Austurland.
„Það er alveg tilgreint í tilmælunum
frá landlækni að fólki er frjálst að
keyra frá flugvellinum eða Seyðis-
firði og að gististaðnum, þó svo farið
sé milli sveitarfélaga. Síðan er ætlast
til þess að fólk sé ekki að þvælast,
þótt það geti farið út að ganga og í
bíltúr, að það sé þá ekki að fara
lengri leiðir.“
Ferðamálastofa hefur sent á alla
gististaði og raunar alla ferðaþjón-
ustuaðila um land allt og beint því til
þeirra að senda viðskiptavinum sín-
um tilmælin frá landlækni. Það sé
áhrifaríkasta aðferðin til þess að ná
til allra sem hingað koma, svo þeir
hafi öll tilmæli á hreinu við komuna
hingað til lands.
Tryggi 5 daga birgðir og að-
gengi að upplýsingum
Það sem gestir mega gera í
sóttkví, samkvæmt leiðbeiningum
frá Ferðamálastofu, er að fara út í
göngutúr, þó með því skilyrði að
halda tveggja metra reglu og mega
þeir ekki staldra við á sameiginleg-
um svæðum gististaðarins. Hafi
gestir bíl til umráða mega þeir fara í
ökuferð, en ekki fara í skoðunarferð-
ir á fjölmennum ferðamannastöðum
eða nota almenningssalerni, en með-
al þeirra skilyrða, sem gististöðum
sem þjónustað geta fólk í sóttkví eru
sett, er að gestir hafi sér baðher-
bergi og salerni. Þá þarf að tryggja
að nægar birgðir séu af handklæð-
um, salernispappír og sápu til fimm
daga, enda má starfsfólk ekki fara
inn á herbergin meðan á sóttkví
stendur. Öll þjónusta fer fram við
herbergisdyr og þurfa upplýsingar
um sóttkví og COVID-19, sem og
upplýsingar um þjónustu, að vera
aðgengilegar gestum inni á her-
bergjum þeirra. Þá skulu gististaðir
vera reiðubúnir að liðsinna gestum
sínum við að panta tíma í síðari
skimun á næstu heilsugæslustöð, og
leiðbeina þeim varðandi staðsetn-
ingu og hvernig best sé að komast
þangað.
Þá er ítrekað að gestir séu ábyrgir
fyrir allri þjónustu sem veitt er og
eru gististaðir ekki ábyrgir fyrir
hegðun gesta. Leiki grunur á að
gestur sé að brjóta sóttvarnareglur
skuli hafa samband við lögreglu.
Ljósmynd/Lögreglan
Íhugul Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Páll Þórhallsson frá forsætisráðuneytinu og Ólöf Snæhólm Baldursdóttir frá Veitum.
Nýr veruleiki ferðalanga
Tvöföld sýnataka og sóttkví fyrir alla frá miðnætti Hundrað gististaðir vilja
taka við gestum í sóttkví Mega aka á gististað hvar á landinu sem er
Innanlands
Landamæraskimun:
Virk smit Með mótefni
Beðið eftir
mótefnamælingu
Kórónuveirusmit á Íslandi
Fjöldi jákvæðra sýna
frá 15. júní til 16. ágúst
528 einstaklingar eru í sóttkví
2.014 staðfest smit
116 er með virkt smit
Heimild: covid.is
Nýgengi smita innanlands:
18,0 ný smit sl. 14 daga
á 100.000 íbúa
1 einstaklingur er á sjúkrahúsi, enginn á gjörgæslu
júní júlí ágúst
183.283 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
101.129 sýni
20
15
10
5
0
„Við höldum í
raun bara áfram í
sama gír og við
höfum verið.
Maður verður
bara að sjá
hvernig þetta
þróast,“ segir
Guðni Sigurðs-
son, talsmaður
Isavia.
Vísar hann í
máli sínu til hertra aðgerða á landa-
mærunum. Frá og með morgundeg-
inum, 19. ágúst, verður farþegum
sem hingað koma til lands gert að
undirgangast tvær sýnatökur. Á
milli sýnataka þurfa umræddir far-
þegar að sæta fjögurra til sex daga
sóttkví.
Að sögn Guðna hefur fram-
angreind reglubreyting ekki haft
áhrif enn sem komið er. Ekki sé þó
hægt að útiloka að hægja taki á
straumi ferðafólks þegar fyrir-
komulagið tekur gildi. „Þetta er
væntanlega eitthvað sem kemur
fram þegar líður á. Þetta er ekki
eitthvað sem við finnum daginn eftir
að það er tilkynnt,“ segir Guðni og
bætir við að Isavia haldi áfram að
sinna sínu hlutverki. „Flugstöðin er
náttúrlega bara aðstaða sem Isavia
skaffar til skimunar. Við munum sjá
hvernig málin þróast á næstu dög-
um.“
Alls er gert ráð fyrir því að 20
flugvélar lendi á Keflavíkurflugvelli í
dag. Einungis einni ferð hefur verið
aflýst.
Þá eru 19 flugferðir á áætlun á
morgun, en nú þegar hefur þremur
verið aflýst.
aronthordur@mbl.is
19 ferðir
á áætlun
á morgun
Guðni
Sigurðsson
Nýtt fyrirkomulag
enn ekki haft áhrif
Íbúar í Hafnarfirði, Garðabæ,
Kópavogi og í Norðlingaholti í
Reykjavík þurfa ekki að örvænta
þótt heitavatnslaust verði hjá þeim
í um 30 klukkustundir fram á mið-
vikudagsmorgun, sagði Ólöf Snæ-
hólm Baldursdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Veitna á upplýsingafundi
almannavarna í gær, því kór-
ónuveiran deyr með sápunni hvort
sem notast er við kalt eða heitt
vatn við handþvott.
Sápan virki
jafn vel með
kalda vatninu