Morgunblaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
NÁTT/HEIMAFÖT FRÁ
Stærðir S-XXL
CLARA náttsett
9.990,-
SABRINA kjóll
7.990,-
BONA sloppur
8.650,-
BONA kjóll
7.990,-
Marta María
mm@mbl.is
Heimili Hildar og Hreiðars Levís
Guðmundssonar er afar smekklega
innréttað. Þegar inn í húsið er komið
tekur heillandi eldhús á móti fólki en
innréttingin er úr IKEA og er steinn
á borðplötunni. Í eldhúsinu mætast
gráir og grænir tónar sem spila vel á
móti svörum. Spurð um litinn í eld-
húsinu kemur í ljós að hann er frá
Sérefni.
„Ég hef lengi verið hrifin af
grágrænum og grábláum tón-
um. Ég varð því strax hrifin af
græna litnum á eldhús-
innréttingunni en liturinn
gefur svolítið tóninn inn á
heimilið. Húsgögn vil ég gjarna
hafa fremur litlaus og klassísk, svört,
hvít, grá eða úr viði en mér finnst
græni tóninn binda það allt vel sam-
an. Plönturnar verða þá líka hluti af
litapallettu heimilisins,“ segir Hildur.
Eldhúsið samanstendur af skápa-
vegg sem hefur að geyma ísskáp,
bakarofn, vask, helluborð, viftu og
blöndunartæki. Fyrir framan skápa-
vegginn er stór eyja sem setur svip
sinn á rýmið. Í eldhúskróknum er lít-
ið barnaeldhús sem er í stíl við eld-
húsinnréttinguna.
„Við keyptum þetta eldhús á
bland.is fyrir 3.000, ég pússaði það
upp og málaði í sama lit og eldhúsið
okkar. Ég lét litagreina bút úr inn-
réttingunni okkar svo liturinn yrði al-
veg örugglega eins. Mér fannst eitt-
hvað svo krúttlegt að sú tveggja ára
fengi mini-útgáfu af eldhúsinu okkar.
Ég sprautulakkaði síðan gamla stöng
fyrir eldhúsáhöld sem fannst inni í
geymslu og festi yfir eldhúsið,“ segir
Hildur.
Við eldhúsið er stórt borðstofu-
borð sem þau létu búa til en fyrir of-
an borðið eru ljós frá dönsku fyrir-
tæki.
„Ljósin yfir borðstofuna eru frá
dönsku fyrirtæki sem heitir Muubs
og heita Fishtrap og eru búnir til úr
indónesískum fiskigildrum. Lapp-
irnar á borðstofuborðinu eru frá
Ferm Living en borðplatan er úr Fe-
nix-efni sem við pöntuðum sér-
staklega. Borðið getur með ágætu
móti tekið 12 manns ef við bætum
stólum við sem er frábært fyrir
stærri boð,“ segir Hildur og segir að
það sé náttúrlega enginn að halda
boð akkúrat núna en þetta borð muni
koma að góðum notum þegar kór-
ónuveiran verður yfirstaðin.
Á hæðinni þar sem eldhús og stofa
mætast er mjög fallegt parketlagt
gólf með fiskibeinamynstri.
„Gólfið er niðurlímt fiskibeina-
eikarparket frá Agli Árnasyni sem er
lakkað með lakki sem kemur í veg
fyrir að gólfið gulni of mikið með tím-
anum.“
Getur þú lýst þínum stíl?
„Stíllinn minn er fremur einfaldur.
Ég hef gaman af fallegum vönduðum
húsgögnum sem vonandi standast
tímans tönn. Húsgögn og munir með
sögu eru mér sérstaklega kær. Mér
þykir afar vænt um húsgögn sem ég
hef erft frá ömmu og afa og húsgögn
sem mamma hefur gefið mér síðustu
20 árin en hún hefur alið upp í okkur
systur minni áhuga á húsgagnahönn-
un. Ég nýt þess síðan að finna notuð
húsgögn sem ég get gert upp og látið
passa inn í heimilið. Við vöndum valið
á nýjum húsgögnum, fylgihlutum og
list sem kemur inn á heimilið þannig
að það hefur oftast einhvern aðdrag-
anda. Ég vil miklu frekar bíða og
kaupa eitthvað sem ég veit að ég vil
eiga næstu áratugina en að hlaupa af
stað og fylla allt af munum sem
gliðna í sundur eða eru of háðir tísku-
straumum.
Ég leyfi litagleðinni að njóta sín
inni hjá börnunum og reyni að búa til
umgjörð sem hentar þeirra áhuga-
málum og persónuleika.
Ég er svo lánsöm að við maðurinn
minn erum samstíga en þegar við
byrjuðum að búa þá bað hann mig
um tvennt, í fyrsta lagi að vera ekki
með textaplatta eða plaköt á veggj-
um og að vera ekki með svo mikið af
skrautmunum að hann finni ekki
vatnsglasið sitt. Ég ætlaði mér hvor-
ugt þannig að það hefur verið mjög
farsælt samstarf að koma upp sam-
eiginlegu heimili. En framar öllu vil
ég eiga heimili sem heldur vel utan
um fjölskylduna, með rólegu og af-
slöppuðu yfirbragði.“
Hægt er að horfa á þáttinn á
www.smartland.is.
Gerði samning
um að vera ekki
með plaköt á
veggjunum
Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt er gestur Heim-
ilislífs að þessu sinni en þættirnir eru sýndir á
Smartlandi á mbl.is. Þetta er reyndar í annað sinn
sem hún kemur í þáttinn en stuttu síðar seldu hún
og eiginmaður hennar fyrri íbúðina og festu kaup á
raðhúsi í Hvassaleiti. Þegar hún byrjaði að búa með
manninum sínum gerðu þau samning um að það
væru engin ódýr plaköt á veggjunum.
Umhverfisvæn Ljósin fyrir ofan
borðstofuborðið eru ekki bara um-
hverfisvæn heldur líka falleg. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Nýtin Hildur er mjög hagsýn og
handlagin. Þetta eldhús keypti hún
á bland.is og gerði upp í stíl við eld-
hús heimilisins.
Falleg litapalletta Hildur keypti innréttinguna í IKEA.
Falleg heildarmynd Stofan er með léttum
og látlausum húsgögnum sem fara vel við gólfið.
Hlýlegt Borðstofan tengir
saman stofu og eldhús.
Hildur Gunnlaugsdóttir.