Morgunblaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 ✝ Guðrún Ingv-eldur fæddist í Reykjavík 13. júní 1930. Hún lést 20. ágúst 2020 á Hrafn- istu í Hafnarfirði, þar hafði hún búið sl. hálft ár. Foreldrar Guð- rúnar voru Jónína Sigríður Bjarna- dóttir, f. 20. apríl 1898, d. 3. nóv. 1990, og Guðjón Bárðarson, f. 3. nóv. 1883, d. 19. feb. 1963. Alsystkin Guðrúnar eru Mar- grét, fædd 9. apríl 1932, dáin 6. júni 2017, og bróðir hennar Leif- ur, fæddur 26. desember 1936. Hálfsystkin Guðrúnar sam- Margrét og Bryndís Inga. 2) Jónas, f. 12. ág. 1960, maki El- ísabet M. Jóhannesdóttir. Börn þeirra eru Anton Rafn, Ágúst Freyr og Rakel Ýr. 3) Guðjón, f. 24. júní 1962, d. 14. nóvember 1965. 4) Skúli Rúnar, f. 23. ág. 1963, maki Sigríður Bergsdótt- ir. Börn þeirra eru Hjördís, Unndís og Guðjón Fannar. 5) Auður, f. 31. maí 1971, maki Magnús V. Magnússon. Barn þeirra er Magnús Skúli og fyrir átti Magnús Rakel Sif og Þór- höllu Mjöll. Barnabarnabörn Guðrúnar og Skúla eru 12. Guðrún lauk barnaskólaprófi og starfaði alla sína ævi sem tal- símakona hjá Landsímanum í Reykjavík auk þess sem hún starfaði í kvennasveit Flug- björgunarsveitar. Útför Guðrúnar fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 27. ágúst 2020, kl. 13. Í ljósi aðstæðna er útförin aðeins fyrir nánustu fjöl- skyldu. feðra: Sigurður Páll, f. 21. jan. 1907, d. 3. janúar 1908, Páll Breið- fjörð, f. 20. maí 1910, d. 31. des. 1953, Guðborg Svava, f. 15. apríl 1913, d. 12. sept. 2008 og Hulda, f. 12. ágúst 1916, d. 19. apríl 1939. Guðrún giftist eftirlifandi eiginmanni sínum 1. ágúst 1959, Skúla Rúnari Guð- jónssyni, f. 6. nóv. 1932. Þau eignuðust fimm börn. 1) Páll, f. 31. jan. 1959, maki Agnes Kragh Hansdóttir. Börn þeirra eru Guðrún Íris, Hans Kragh, Anna Elsku mamma, nú er komið að kveðjustund. Elskuleg móðir okkar kvaddi okkur 20. ágúst eftir stutt veik- indi. Þegar við setjumst niður og skrifum minningarorð um hana er fyrst og fremst þakk- læti sem kemur upp í huga okk- ar. Mamma var alltaf boðin og búin að hjálpa til, elda, passa börnin, baka fyrir afmæli eða koma til hjálpar. Mamma hafði gaman af að vera með fjölskyld- unni og hún stækkaði hratt síð- ustu árin. Ávallt þegar gesti bar að garði var til eitthvað heima- bakað eða fólki boðið í mat. Börn, barnabörn og barna- barnabörn nutu góðs af gest- risni þeirra hjóna og hafa haft hana sem fyrirmynd í eldhús- inu. Mamma var mjög dugleg að sinna hannyrðum og lá vel fyrir henni að prjóna og sauma og fylla upp í stólana sem hann pabbi saumaði út í. Mamma og pabbi ferðuðust mikið um landið og á eldri árum ferðuðust þau til útlanda með ferðaklúbbnum, Garðabakka um öll heimsins höf. Sumarbústaður þeirra hjóna var líf þeirra og yndi síð- ustu árin og nutu þau þess að vera þar með fjölskyldunni. Mamma glímdi við heilsubrest síðastliðin ár en þrautseigjan kom henni í gegnum erfið og sí- endurtekin lærleggsbrot og á fætur aftur síðustu tvö árin sem hún lifði. Þrátt fyrir veikindi síðustu ára fylgdist hún vel með hvað fjölskyldumeðlimir tóku sér fyrir hendur og vissi upp á hár hvað allir hefðu fyrir stafni. Þótt heilsuna þryti fór hún í hárgreiðslu einu sinni í viku, naglalakkaði sig, klæddi sig upp á hvern dag og setti á sig vara- litinn. Takk fyrir allt, elsku mamma, og við hugsum vel um pabba. Páll, Jónas, Skúli Rún- ar og Auður. Fallin er frá hún Inga tengdamamma mín. Henni kynntist ég er við Skúli byrj- uðum saman fyrir tæpum 36 ár- um. Hún Inga var yndisleg tengdamamma og frábær amma barnanna okkar. Á þessum tíma vann hún vaktavinnu hjá Sím- anum ásamt því að reka stórt heimili af fádæma myndarskap. Aldrei féll henni verk úr hendi. Á milli þess sem hún eldaði og bakaði af tærri snilld þá prjón- aði hún af eldmóð. Á hvert barnabarnið á fætur öðru komu peysur, vettlingar, sokkar og húfur að ógleymdum heimfara- settum handa öllum nýfæddum börnum sem fjölskyldunni tengdust. Ekki munaði hana um að prjóna á allar 4 stelpurnar sem synir hennar eignuðust á fjórum árum, samskonar peys- ur, hver annarri fallegri. Að auki voru hún og Skúli ávallt tilbúin að rétta hjálparhönd. Minnist ég þess þegar þau voru komin á eftirlaun og við fluttum í Garðabæinn, að dæturnar voru áfram í leikskóla í Grafarvog- inum og þeim þótti ekki tiltöku- mál að sækja þær í leikskólann þegar við vorum bundin í vinnu. Síðan þetta var eru liðin 20 ár af yndislegri samveru og góðum stundum. Með eindæm- um fróðlegt og skemmtilegt var að ræða gamla tíma við hana Ingu og hún hafði stálminni fram á síðustu stund. Hún mundi í smáatriðum hluti og atvik er hana höfðu hent sem og mundi hún eftir reiðarinnar ósköpum af fólki, tengslum þess og hvaðan það átti ættir sínar að rekja. Ekki er ég frá því að minnið góða tengdist áralangri vinnu hennar hjá talsímanum en fram á síð- asta dag mundi hún ógrynni af símanúmerum hjá fólki og fyr- irtækjum. Nú er komið að kveðjustund og eftir standa yndislegar minningar sem munu lifa um aldur og ævi. Hvíl í friði. Sigríður (Sigga). Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Þann 20. ágúst kvaddi ég yndislegu tengdamóður mína, hana Guðrúnu Ingveldi eða Ingu eins og flestir þekktu hana. Ingu er sárt saknað og mun ég virða yndislegu minn- ingarnar sem við höfum skapað saman undanfarin 37 ár. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið þig í líf mitt. Guð geymi þig. Þín tengdadóttir, Elísabet. Elsku amma. Takk fyrir öll árin sem við áttum saman. Við gerðum margt skemmtilegt eins og t.d. réttarferðirnar, baka saman, sumarbústaðaferðirnar og takk fyrir umhyggjuna. Við spiluðum mikið saman og keppnisskapið var ekki langt undan hjá okkur báðum. Ég mun sakna þess að geta ekki heimsótt þig á Hrafnistu en nú ertu komin á betri stað og engir verkir lengur að angra þig. Ég sakna þín. Þinn Magnús Skúli. Takk fyrir ástina. Takk fyrir hlýjuna. Takk fyrir stuðninginn. Takk fyrir hvatninguna. Takk fyrir væntumþykjuna. Takk fyr- ir faðmlögin. Takk fyrir hreinskilnina. Takk fyrir húmorinn. Takk fyr- ir sögurnar. Takk fyrir að hafa dyrnar alltaf opnar. Takk fyrir besta heimalagaða brauðið með heimalöguðu kæfunni. Takk fyrir besta grjóna- grautinn og slátrið. Takk fyrir besta kjöt í karrí í heimi. Takk fyrir bestu jólakökuna, púður- sykurstertuna og pönnukökurn- ar. Takk fyrir allt, elsku besta amma mín. Þín Unndís. Elsku amma okkar. Nýorðin 90 ára glöddumst við öll fjölskyldan saman. Við hugs- uðum að þú ættir mörg ár eftir og höfum við sagt það undan- farin ár. Þú varst með stál- hjarta og gafst ekki upp enda mjög þrjósk kona en það er eitt af því sem einkenndi þig og elskuðum við það. Þú kenndir okkur margt í gegnum árin, hvort sem það var í gegnum bakstur, eldamennsku, þraut- seigju eða ákveðni. Það var best að heimsækja þig um kaffitíma því það var alltaf til eitthvað heimabakað með kaffinu. Það var unun að sjá þig í eldhúsinu, notaðir eng- in mælitæki, þú bara vissir hversu mikið ætti að fara í skál- ina. Þú varst alltaf svo góð við okkur barnabörnin, varst dug- leg að gefa okkur knús og dekr- aðir við okkur með fótanuddi. Þú lést okkur líka heyra það ef þú varst ekki alveg nógu sátt við okkur og þá sérstaklega ef við komum í heimsókn í rifnum gallabuxum, því hver myndi kaupa buxur sem væru nú þeg- ar göt á. Þó svo við fengjum yndisleg- an tíma með þér og öll þessi ár þá er ekkert sem undirbýr það að missa þig. Á svona stundum verður maður svolítið sjálfselskur og hugsar af hverju við fengum ekki meiri tíma með þér. Við er- um samt mjög þakklát fyrir tímann okkar saman, að börnin okkar hafi fengið að kynnast þér og upplifað „ömmu dekur“. Minning þín lifir í hjörtum okkar, púðursykurstertunum, fiskibollunum og öllu því sem þú kenndir okkur. Þangað til næst. Við elskum þig. Guðrún Íris Pálsdóttir, Anna Margrét Pálsdóttir og Bryndís Inga Pálsdóttir. Ég sit hérna og hugsa til þín, gott er þín að minnast. Þakklátur ég guði er þér að fá að kynnast. Brosað eða hlegið margar góðir stundir. Hvort sem það var á Strikinu eða í Hörgslundi. Sóttvarnareglur hertar, heimsóknartíma skerta. Fyrsta sem ég hugsa um heimsins besta púðursykursterta Stutt var ávallt í grín og glens, oftast samt hjá mér, ekki Jens. Yfirleitt fremur en ekki, tókst mér að skemmta þér. (Stundum ekki séns.) Manneskjur fara en minningar lifa. Tárin gera vart við sig þegar um þig ég skrifa. Nú kveð ég þig, elsku amma mín, minningarnar eru bjartar. Þangað til við hittumst næst, amma, ég elska þig af öllu hjarta. Hans Kragh Pálsson. Guðrún Ingveldur Guðjónsdóttir Elsku mamma, 25. ágúst var af- mælisdagurinn þinn, þú hefðir orð- ið 90 ára ef þú værir á lífi. Fyrir mér varst þú hraust og dugnaðarforkur hinn mesti. Þuríður Hulda Sveinsdóttir ✝ Þuríður HuldaSveinsdóttir fæddist 25. ágúst 1930. Hún lést 5. febrúar 2020. Útför Þuríðar Huldu fór fram 17. febrúar 2020. Þú varst hvunn- dagshetja sem vannst heima með börn og bú, við að- stæður alls konar eins og gengur og ekki alltaf úr miklu að moða en þú kunnir að fara vel með. Okkur kom vel saman en við vorum samt ekki þessar óaðskiljanlegu mæðgur sem kemur vafalaust til af því að ég fór snemma að heiman í bú- skaparstúss og þið pabbi svo miklir félagar. Við áttum þó sameiginleg áhugamál svo sem hannyrðir af ýmsu tagi, matarstúss, upplifun á íslenskri náttúru og öllu sem fallegt er. Árið 2010 fór að halla undan fæti, þú vildir ekkert fara í heilsufarsrannsóknir að óþörfu svo við vissum svo sem ekki hvað var að valda hverju. Var það rétt ákvörðun? Því get ég ekki svarað en þetta var þín leið. Undir lokin voru það börn, barnabörn og barnabarnabörn sem glöddu þig mest, þú hafðir tapað svo miklu, heyrnin mjög slæm, sjónin orðin döpur og verkstol mikið. Þegar kom að því að sleppa takinu 5. febrúar þá reyndist mér það ekki svo erfitt, þetta var líkn, tárabrunnurinn minn var tómur. Þú varst búin að eiga mjög erfiðan tíma mánuðina fyrir and- látið. Þú varst mjög ósátt við heilsuleysið, líkaminn var að gefa sig, vanmátturinn alger, ég held þú hafir skilið og skynjað að endalokin nálguðust enda varstu búin að vinna á hjúkrunarheim- ilinu Eir í 6 ár og þú vissir svo vel – varst búin að sjá þetta allt. Elsku mamma, 25. ágúst var dagurinn þinn. Í stað þess að halda upp á það, þá jarðsettum við systkinin og pabbi duftker með öskunni þinni. Þú ert góð minning sem lifir í hjörtum okkar, takk fyrir allt. Við sjáumst í sumarlandinu elsku mamma, þú verður í berja- brekkunni er það ekki? Þuríður Helgadóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, SVEINN STEFÁNSSON húsasmiður, Brekkuhvammi 8, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans 17. ágúst. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 1. september klukkan 13. Hugheilar þakkir viljum við færa starfsfólki HERU og líknardeildar LSH fyrir hlýju og ómetanlegan stuðning. Hulda Kristinsdóttir Bylgja Sveinsdóttir Birkir Sveinsson Bjartey Sveinsdóttir Kristján Andrésson og barnabörn Okkar elsku besti eiginmaður, pabbi, sonur, bróðir og mágur, FRANK MAGNÚS MICHELSEN, Freyjubrunni 24, lést fimmtudaginn 20. ágúst. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 31. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Í ljósi aðstæðna munu aðeins nánustu aðstandendur vera viðstaddir útförina, en athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/ospthorleifs. Kristín Ösp Þorleifsdóttir Frank Gabríel Michelsen Almar Freyr Michelsen Frank Úlfar Michelsen Inga S. Magnúsdóttir Róbert F. Michelsen Anna Jónsdóttir Magnús D. Michelsen Sigrún Benediktsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SKAFTI HANNESSON MCCLURE, Hraunholti 4, Akureyri, lést á heimili sínu mánudaginn 24. ágúst. Útförin mun fara fram í kyrrþey. Elín Antonsdóttir Hanna María Skaftadóttir McClure, Baldvin Birgisson Sigurlaug Skaftadóttir Mclure, Ármann Þór Sigurvinsson Hannes Jarl Skaftason McClure, Aldís Einarsdóttir Lovisa Björk Skaftadóttir McClure, Sigþór Samúelsson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN HAFLIÐADÓTTIR frá Dísukoti, Þykkvabæ, Búðargerði 4, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 17. ágúst. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu föstudaginn 28. ágúst klukkan 15. Vegna samkomutakmarkana verður athöfnin einungis fyrir nánustu fjölskyldu. Athöfninni verður streymt á filadelfia.is og á Facebook-síðu Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu. Ásmundur Kristinsson Birna Kjartansdóttir Hafliði Kristinsson Steinunn Þorvaldsdóttir Katrín Kristinsdóttir Ólafur Kristinsson Regína Heincke Hrönn Kristinsdóttir Rúdólf Jóhannsson Óskar Kristinsson Sigrún Leifsdóttir Líney Kristinsdóttir Guðjón Hafliðason Árni Kristinsson Vaka Steindórsdóttir Magnús Kristinsson Ásta Hjálmarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, fóstursonur og félagi, STEFÁN HAFSTEIN GUNNARSSON, lést 15. ágúst. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 28. ágúst klukkan 15. Vegna fjöldatakmarkana er einungis fjölskyldu og nánum vinum boðið. Mary Nakayiza Heiðar Smári Stefánsson Ísak Geir Stefánsson Bjarnheiður Ragnarsdóttir Ólafur Hermannsson Gunnar Egilsson Sigrún Halldórsdóttir S.R.F.F.S.R.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.