Morgunblaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 TORMEK Brýnsluvélar s Tormek T-4 Verð 57.900 s DF-250 Demantshjól fyrir T-8 Verð 39.980 s Tormek T-2 Atvinnu eldhúsbrýnni Verð 108.730 s HTK 806 Aukahlutasett fyrir hnífa skæri o.fl. Verð 34.120 s Tormek T-8 Verð 96.700 Allar stýringar fyrirliggjandi Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 SVX-150: Skærastýring Verð 8.930 TNT-808: Aukahlutasett fyrir rennismiðinn Verð 49.980 SVD-186: Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn Verð 14.890 SVM-140: Hnífastýring Verð 9.230 SVA-170: Axarstýring Verð 2.750 SVM-00: Stýring fyrir tálguhnífa Verð 5.770 SE-77: Stýring fyrir hefiltennur og sporjárn Verð 9.530 Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Tveir létust og að minnsta kosti einn særðist í fyrrinótt þegar átök brutust út á þriðju nótt mótmæla í borginni Kenosha í Wisconsin-ríki. Ekki var ljóst hverjir voru að verki, en lögregl- an í Kenosha greindi frá því að hún hefði verið kölluð út eftir að skothríð hófst stuttu fyrir miðnætti að staðar- tíma. Myndbönd birtust á samfélags- miðlum af fólki að flýja undan skot- hríðinni og mátti greina nokkra særða, sem lágu í blóði sínu á götunni. Lögreglan sagði að málið væri til rannsóknar. Mótmælin brutust út eftir að lög- regluþjónar í Kenosha skutu blökku- manninn Jacob Blake sjö sinnum í bakið, en hann var á leiðinni í bifreið sína, þar sem þrír barnungir synir hans sátu. Atvikið náðist á myndband og vakti þegar í stað mikla reiði meðal minnihlutahópa í Bandaríkjunum, en það þótti minna á önnur áþekk atvik, sem meðal annars leiddu til mót- mælaöldu vítt og breitt um Bandarík- in fyrr í sumar. Árásinni á Blake var mótmælt víð- ar en í Kenosha, og héldu mótmæl- endur út á götur New York-borgar sem og í Minneapolis, þar sem George Floyd var myrtur af lögreglumanni í vor. Mótmælaganga um helgina Mótmælin hafa að mestu leyti farið friðsamlega fram, en þó bar á því að óeirðaseggir kveiktu í bifreiðum og byggingum í mótmælum sunnudags og mánudags, og biðlaði Julia Jack- son, móðir Blakes, til fólks í fyrradag að halda ró sinni og forðast eigna- spjöll, en syni sínum og fjölskyldu væri enginn greiði gerður með slíku. Hvatti Jackson fólk til þess að sýna stillingu, en stefnt er að mótmæla- göngu í nafni Blakes í höfuðborginni Washington um helgina. Sagðist hún jafnframt biðja til Guðs fyrir hönd lögreglunnar. Faðir Blakes, Jacob eldri, sakaði hins vegar lögreglumennina um að hafa reynt að myrða son sinn. „Þeir skutu son minn sjö sinnum, líkt og hann skipti engu máli. En hann skipt- ir máli, hann er manneskja,“ sagði faðir Blakes. Góðar líkur eru á því að Blake muni lifa skotárásina af, en flest bendir til þess að hann verði lamaður fyrir neð- an mitti fyrir lífstíð. Benjamin Crump, lögmaður Blakes og fjöl- skyldu George Floyd, hefur krafist þess að lögreglumennirnir verði sóttir til saka, en engar skýringar hafa feng- ist á því hvers vegna þeir töldu rétt að beina skammbyssum sínum að óvopn- uðum manni. Tveir skotnir til bana  Lögregluofbeldi enn mótmælt í nokkrum borgum Bandaríkjanna, þar á meðal New York og Minneapolis  Krefjast þess að lögreglumennirnir verði sóttir til saka AFP Mótmæli Lögreglumenn í Kenosha stóðu vörð um ráðhús borgarinnar í mótmælunum í fyrrinótt. Evrópsk lyfja- fyrirtæki hafa þrýst á um það að Evrópusam- bandið veiti þeim und- anþágur, sem muni verja þau gegn lög- sóknum, ef vandamál koma upp tengd bóluefn- unum sem þau eru að þróa gegn kór- ónuveirunni. Financial Times greindi frá þessu í gærmorgun. Ástæðan er sú, að faraldurinn hef- ur orðið til þess að stytta rann- sóknar- og þróunartíma bóluefnis niður í örfáa mánuði, en venjulega getur slíkt ferli tekið nokkur ár. Sum bóluefnin eru komin á lokastig próf- anna sem standast verður áður en þau fá leyfi. Í minnisblaði frá sam- tökum evrópskra lyfjaframleiðenda sem FT hafði undir höndum sagði að þessi hraði þýddi að ómögulegt væri að fá sömu vissu um virkni og getu bóluefnanna, sem aftur skapaði vissa áhættu við notkun þeirra. Því væri brýnt að fyrirtækin væru varin fyrir skaðabótamálum sem gætu komið til vegna notkunar bólu- efnisins. Yannis Natsis, fulltrúi sjúk- linga við EMA, lyfjastofnun Evrópu- sambandsins, sagði við FT að slíkt leyfi gæti skapað hættulegt fordæmi og um leið grafið undan trausti fólks á bóluefnum. Lyfjarisar vilja laga- lega vernd  Þróun bóluefnis óvenjulega hröð Lyf Byrjað er að prófa bóluefni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.