Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.09.1988, Síða 8

Bæjarins besta - 14.09.1988, Síða 8
8 BÆJARINS BESTA Litli leikklúbburinn á ísafirði: Maraþonleiksýning í lok septemher - safnað fyrir nýju ljósaborði Litli leikklúbburinn, og reynd- ar flest félög og klúbbar sem byggjast upp á sjálfboðavinnu og áhugamennsku, á í stöðugu basli með að ná endum saman. Hing- að til hefur verið reynt að fjár- magna starfsemina eingöngu með innkomu á leiksýningar og þeim styrkjum sem klúbburinn fær. Þaö hefur gengið til þess að fjármagna hverja sýningu, en ekki til neins meira. Öll leikhús þurfa að eiga góð- an ljósabúnað. Litli leikklúbbur- inn státar af því að eiga nokkuð góða kastara, og reyndar þá einu sem virðast nothæfir í bænum. Einatt er leitað á náðir leikklúbbsins þegar lýsa þarf upp svið eða svæði á hvers kyns sam- komum eða fundum. Klúbburinn hefur ævinlega brugðist vel við þegar beðið hef- ur verið um kastara, og ætlar sér að gera það áfram. SKALAVIK LAUGARDAGSKVÖLD HÚSIÐ OPNAÐ KL 20 FYRIR MATARGESTI DansleikuLr frá kl. 23.00 til kl. 03.00. SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR VERIÐ VELKOMIN (T Forréttir: Sherrybœtt sveppasúpa eða Rækjukokteill m/ristuðu brauði ★ ★ ★ Aðalréttur: Heilsteikt lambalœri m/bökuðum kartöflum og madeirasósu ★ ★ ★ Eftirréttur: Skálavíkurís =\ Nú standa meðlimir LL hins vegar frammi fyrir því, að ljósa- borðið sjálft er að verða úr sér gengið, og þörf er á nýrri og vandaðri grip. Því hefur verið ráðist í það að panta að utan nýtt og fullkomið ljósaborð, sem kemur til með að bæta ljósabún- aðinn til mikilla muna. Ljósa- borðið kostar á milli 450 til 500 þúsund, og því er Ijóst að treysta verður á stuðning bæjarbúa og sérstaklega fyrirtækja og félaga sem fengið hafa að láni ljósabún- að, og koma til með að þurfa þess í framtíðinni. f fjáröflunarskyni ætlar leikklúbburinn að standa fyrir maraþonleiksýningu í sal Grunnskólans á lsafirði, í lok þessa mánaðar. Nánar til tekið helgina 24.-25. september. Þá verður sama leikritið sýnt aftur og aftur í rúman sólarhring. Leikritið sem valið hefur verið í það, er fyrsta fullorðins leikritið sem leikklúbburinn setti upp; farsinn „Skyggna vinnukonan” Gengið verður í hús vikuna fyrir sýningu, og seldir aðgöngu- miðar. Bæjarbúar eru hvattir til þess að leggja málefninu lið, og fá um leið notið skemmtilegrar og „öðruvísi” leiksýningar. Það má geta þess að miðarnir koma aðeins til með að kosta tvö hundruð krónur, og þeir sem verða ekki heima þegar gengið verður í hús, þurfa ekki að ör- vænta. Miðar verða líka seldir við innganginn. Jón Sigurpálsson vinnur að uppsetningu verksins. ísafjörður: Ragnari H. Ragnar reistur minnisvarði Minnisvarði um Ragnar H. Ragnar, heiðursborgara ísa- fjarðarkaupstaðar, hefur verið í deiglunni í nokkurn tíma. Hann hefur verið teiknaður, honum ákveðinn staður og nú nýlega, hófst uppsetning hans. Frumkvöðlar að því að reist- ur verði minnisvarði um Ragn- ar H. Ragnar, eru m.a. Jón Páll Halldórsson, Kristján Haralds- son og Pétur Kr. Hafstein. Það er Jón Sigurpálsson, myndlistarmaður, sem á hug- myndina að verkinu. Því hefur verið valinn staður á vestan- verðu sjúkrahústúninu. Þegar blaðamaður fór á stað- inn til að mynda framkvæmd- irnar, hitti hann fyrir lista- manninn sjálfan, þar sem hann var ásamt öðrum að vinna að því að slá upp fyrir sökkli verksins.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.