Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1989, Page 1

Bæjarins besta - 21.12.1989, Page 1
Skálavík um helgina Pöbbinn opinn föstudags- kvöldkl. 2 1 00 - 2 330. Laugardagskvöld kl. 2100-2330. Aldurstakmark 18 ár. SKÁLAVIKI Bolungarvík S 7130 Patreksfjörður: íbúum hefur fækkað verulega á árinu vegna atvinnuleysis. Patreksfjörður: Hátt í hundrað manns hafa flutt af staðnum HÁTT á hundíað manns hafa flutt frá Patreks- firði á þessu ári í kjölfar slæms atvinnuástands eftir að togari staðarins var seldur burt og frystihúsinu lokað. „1. desember 1988 voru 984 á íbúaskrá Patreksfjarðar. Við erum ekki búin að sjá endanlegar tölur þessa árs en það eru hátt á hundrað manns sem eru farnir burt, bæði til Reykjavíkur og til NorðurIanda“ sagði Ulfar Thoroddsen sveitarstjóri í samtali við BB. , ,f>að er slæmt .að missa burt um hundrað manns á einu ári og hefur sín áhrif á verri veginn. En nú er at-" vinnuástand að breytast aft- ur til batnaðar þannig að ég ímynda mér og vona að ein- hverjir komi ef til vill til baka.“ Patreksfirðingar tendruðu ljós á sínu bæjarjólatré á laugardag og fengu jóla- sveina í heimsókn. Jóla- sveinafélagið „Jólasveinar einn og átta“, þ.e. samtök foreldra sem sjá um barna- ball þann 30. desember, sfóð fyrir veitingasölu. í ár eru einmitt liðin 100 ár síðan fyrsta jólaballið var haldið fyrir börn á Patreksfirði. Þess má geta að jólaíréð í miðbænum er heimatilbúið úr stálgrindum sem á er fest greni og að sögn kemur það ekki síður út en raunveruleg tré. Utlit er fyrir rauð jól á Patreksfirði í ar því þar er lítill sem enginn snjór, fjalls- hlíðar gráar fremur en hvít- ar. J>að er þó aldrei að vifa nema jólamjöllin eigi effir áð koma. Lögregla og slökkvilið: Klipptu I sundur bíl - með nýju klippunum. Fjársöfnun komin á skrið Lögreglu- og slökkviliðsmenn sýna hér almenningi hvernig hægt er að saga í sundur bíl með nýjum tækjabúnaði sem liðin hafa nýlega eignast. LÖGREGLA og slökkvi- lið á ísafirði sýndu al- menningi á laugardag notk- un á nýjum bílaklippum sem verið er að festa kaup á. Klippur þessar eru notaðar til að saga í sundur og opna bílflök sem klemmst hafa saman við slys. Að sögn Jónasar Eyjólfs- sonar yfirlögregluþjóns reyndust klippurnar vel. ,,Við vorum búnir að æfa notkun þessarra tækja áður á námskeiði í skyndihjálp og björgun sem haldið var fyrir lögreglumenn fyrir stuttu“ sagði harni, ,,Á þetta nám- skeið mættu allir lögreglu- menn og fóru yfir notkun á öllum þeim búnaði til björg- unar sem lögreglan hefur yfir að ráða.“l Jónas sagðist ánægður með þau viðbrögð sem borist hafa frá þeim sem leitað hef- ur verið til um fé til tækja- kaupanna. Þegar hafa safn- ast um 360.000 krónur og loforð liggja fýrir um frekari framlög. Tækin kosta um 800.000 krónur og þess má geta að vilji fólk styrkja kaupin þá er hægt að leggja inn fé á Ábótarreikning nr. 50 20 74 í Útvegsbankanum. Helgin: Oká lögreglubílinn ÞRIR voru settir í fanga- ölvunar og óspekta. Þá var hús um helgina vegna einn ökumaður stöðvaður á Hnífsdalsvegi á föstudag vegna hraðaksturs. Hraðinn mældist 113 km. á klst. og var ökumaðurinn sviptur ökuleyfi á staðnum til bráða- birgða. Aðfaranótt laugardagsins var tilkynnt um ökumann sem grunaður var um ölvun við akstur á Óshlíð. Lög- reglubíll gaf honum merki um að stöðva en í stað þess að sinna því ók maðurinn á lögreglubílinn. Engin slys urðu á mönnum og lítið sá á lögreglubílnum, sem var kyrrstæður utan vegar þegar áreksturinn varð, en Fordbíll þessa ósvífna ökumanns varð fyrir nokkru tjóni. Maðurinn, sem var án öku- réttinda, var færður á log- reglustöð. Lögreglubíllinn er sá nýjasti í bílaflota lögregl- unnar.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.