Bæjarins besta - 21.12.1989, Page 6
6
BÆJARINS BESTA
Jólin:
Guðsþj ónustur
hátíðarnar
NYJAR
MYNDIR
VIKULEGA
WHO FRAMED ROGER RABBIT
Mynd eftir hina hæfileika-J
ríku Steven Spielberg og
Robert Zemeckis sem hafa
tekið hér höndum saman
með Touchstone Pictures.
Vinningshafi fjögurra
Óskarsverðlauna og rómuð
af gagnrýnendum.
Umsögn í Mbl.: „Myndin er
hreinasta perla'".
ERNEST SAVES CHRISTMAS
Jólasveinninn er kominn til
Florida til að tala við
manninn sem hann hefur
ákveðið að taki við af
honum sem jólasveinn.
Ernest er leigubílstjóri og
kynnist Sveinka þegar hann
ekur honum frá flugvellinum
Sveinki lendir í ýmsu
klandri því enginn trúir því
að hann sé jólasveinninn.
Han er tekinn fastur af
lögreglunni en Ernest tekst
að ná honum út með
klækjum. Þeir fara síðan að
finna Joe, arftaka Sveinka.
Opið um hátíðimar:
Þorláksmessu kl. 16-19 & 20-23.
Aðfangadag kl. 10-12 & 13-15.
Lokað Jóladag.
Annan jóladag kl. 19-23.
Gamlársdag kl. 10-12&14-16.
Lokað Nýársdag.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Þakka viðskiptin á liðnum árum.
Jóhannes Ragnarsson
JR-VIDEO
VIÐ NORÐURVEG
S 4299
vfír
ísafjarðar-
prestakall
Sr. Karl V. Matthíasson
messar víða yfir hátíðarnar.
Miðnæturmessa verður á að-
fangadag í ísfjarðarkapellu
kl. 23.30 og á jóladag flytur
hann guðsþjónustu kl. 14. Á
gamlársdag verður aftan-
söngur í ísafjarðarkapellu
kl. 18. Organisti á fsafírði er
Beáta Joó.
Á aðfangadag verður aft-
ansöngur í Hnífsdalskapellu
kl. 18 og á nýársdag verður
messað kl. 16.
í Súðavík verður aftan-
söngur á aðfangadag kl. 22.
Suðureyrar-
prestakall
í Suðureyrarkirkju messar
sr’ Karl V. Matthíasson á
jóladag kl. 17.
Vatnsfjarðar-
prestakall
Sr. Baldur Vilhelmsson
prófastur messar í Vatnsfirði
á jóladag kl. 14. og á
Melgraseyri annan dag jóla•
kl. 14.
Bíldudals-
prestakall
Prestur Bílddælinga og
prófastur Barðastranda-
sýslu, sr. Flosi Magnússon,
messar þrisvar yfir hátíðarn-
ar og syngur kirkjukórinn að
venju við allar guðsþjónust-
urnar. Organisti er Ragnar
Jónsson.
Á aðfangadag er aftan-
söngur kl. 18 og þá syngur
Jón Kr. Ólafsson stólvers. Á
jóladag verður flutt hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14 og þá
syngur Barnakór grunnskól-
ans stólvers. Á gamlársdag
verður aftansöngur kl. 18.
Þingeyrar-
prestakall
Á Þingeyri messar sr. Gunn-
ar Eiríkur Hauksson á að-
fangadagskvöld kl. 18 og á
jóladag kl. 14. Á jóladag
verður flutt guðsþjónusta kl.
17 í Hrafnseyrarkapellu. Á
annan í jólum verður flutt
guðsþjónusta kl. 14 í Núps-
kirkju í Mýrahreppi og kl. 16
í Sæbólskirkju á Ingjalds-
sandi. Á gamlárskvöld verð-
ur aftansöngur í Þingeyrar-
kirkju kl. 18.
Kirkjukór Þingeyrar syng-
ur og organisti er Guðbjörg
Leifsdóttir.
Holtsprestakall
í Önundarfirði
Sr. Gunnar Björnsson,
prestur Önfirðinga, flytur
fimm guðsþjónustur yfir há-
tíðarnar á Flateyri og í Holti
og syngur kirkjukór undir
stjórn Brynjólfs Árnasonar
söngstjóra og organista við
þær allar nema við barna-
guðsþjónustuna en þá syngja
börnin sjálf.
Á aðfangadagskvöld verð-
ur aftansöngur í Flateyrar-
kirkju kl. 18. Organisti þá
verður skólastjóri Tónlistar-
skóla Flateyrar, Einar
Melax, en Brynjólfur Árna-
son er organisti við aðrar
guðsþjónustur yfir hátíðarn-
ar. Á jóladag er hátíðaguðs-
þjónusta í Holti kl 14. Á
annan í jólum verður flutt
barnaguðsþjónusta í Flateyr-
arkirkju kl. 11. Á gamlárs-
kvöld verður aftansöngur í
Flateyrarkirkju kl. 18. Á ný-
ársdag verður síðan flutt há-
tíðaguðsþjónusta í Holti kl.
14.
Hólsprestakall
Nýkjörinn prestur Bolvík-
inga, sr. Sigurður Ægisson,
Hólskirkja í Bolungarvík.
messar fjórum sinnum yfir
hátíðirnar og syngur kirkju-
kór Hólskirkju við þær. Org-
anisti er Michael Árthur Jo-
nes tónlistarkennari. Á að-
fangadag verður fluttur
aftansöngur kl. 18. Á jóla-
dag verður flutt hátíðamessa
kl. 14 og á annan í jólum
verður barnamessa kl. 11. Á
gamlársdag verður flutt
guðsþjónusta kl. 18.
Patreksfjarðar-
prestakall
Sr. Sigurður Jónsson
messar víða yfir hátíðarnar
eins og sjá má af eftirfar-
andi:
Á Patreksfirði verða tvær
guðsþjónustur. Organisti er
Brian R. Bacon tónlistar-
kennari á Tálknafirði. Á að-
fangadagskvöld er aftan-
söngur kl. 18 í Patreks-
fjarðarkirkju. Vegna anna í
Sauðlauksdalsprestakalli
falla guðsþjónustur niður í
Patreksfjarðarprestakalli á
jóladag og á annan í jólum.
Á gamlársdag vcrður síðan
aftansöngur í Patreksfjarðar-
kirkju kl. 18.
Stóra - Laugar-
dalsprestakall
í Tálknafirði
Á Tálknafirði messar sr.
Sigurður Jónsson tvisvar yfir
hátíðarnar. Organisti er Bri-
an R. Bacon. Á aðfanga-
dagskvöld er aftansöngur kl.
22 og á gamlársdag er messa
kl. 18.
Sauðlauksdals-
prestakall
Þar messar sr. Sigurður
einnig: Á jóladag er guðs-
þjónusta kl. 13.30 á Brjáns-
læk og kl. 15.30 í Haga-
kirkju. Á annan í jólum er
guðsþjónusta í Saurbæ á
Rauðasandi kl. 11.
Á annan í jólum flytur
hann einnig guðsþjónustu kl.
13.30 í Sauðlauksdal og kl.
16 í Breiðuvík.
BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vestfjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga 2, 400 ísafjörður, S 4560.
Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Vilborg Davíðsdóttir.
Útgáfudagur: Miðvikudagur. Upplag: 3600 eintök. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Suðurtanga 2, S 4570.
Telefax, S 4564. Setning, umbrot og prentun: H-PRENT sf, Suðurtanga 2,400 Isafjörður. BÆJARINS BESTA er aðili að
Samtökum Bæjar- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráðs. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda
og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið.