Bæjarins besta - 21.12.1989, Blaðsíða 13
'sem það er í dag hefur ekki gengið andskotalaust fyrir sig“
fyrir Samvimmhreyfinguna
eða Framsóknarflokkinn?
,,Nei, sennilega ekki því
þeir vildu ekki hleypa mér í
skólann. Þá var líka talað um
að það væri ekki verra að
hafa einhvern grænan í ætt-
inni til að komast inn í skól-
ann en hann fannst nú ekki í
minni ætt.“
Blái liturinn
heillar
Þá ertu líklega ekkiFram-
sóknarmaður í dag?
„Ætli það. Blái liturinn
hefur nú löngum verið heill-
andi. Ég skammast mín ekk-
ert fyrir að viðurkenna það.“
Gunnar fór ungur frá ísa-
firði. En hvers vegna hleypti
hann heimdraganum?
„Ja, ég lenti í vetrarhjálp-
inni eins og svo margir góðir
menn á ísafirði. f>ú kannast
við hana er það ekki?“ spyr
hann og lítur á mig og augun
tindra af stríðni. „Konan
mín er frá Akureyri og hún
var í Húsmæðraskólanum
veturinn 1967-68. Við bjugg-
um fyrst á ísafirði í þrjú ár.
Það er kannski engin sérstök
ástæða fyrir því að við fór-
um, önnur en sú að okkur
langaði til að breyta til -
prófa eitthvað nýtt og ég
fékk mig fluttan til Akureyr-
ar. Ég kunni ágætlega við
mig þar. Margir höfðu sagt
mér að það væri svo erfitt að
kynnast Akureyringum og
það væri ómögulegt að búa
þar en ég varð aldrei var við
þetta. Við keyptum okkur
hús á Akureyri og líkaði vel
að búa þar. En þegar við
höfðum búið þarna þá var
farið að vera dálítið ein-
kennilegt ástand í bankan-
um. Það var hreinlega ekk-
ert að gera. Mér var farið að
leiðast vegna þess að ég
hafði ekkert að gera í vinn-
unni og var búinn að kvarta
yfir þessu við útibússtjórann.
Síðan kom Elvar bróðir
minn norður og sagði mér að
vera ekkert að þessu þarna,
ég ætti bara að koma suður.
Þar væri nóg að gera. Það fór
að róta í mér og við ákváð-
um síðan að prófa að flytja.
Við höfum ekkert séð eftir
því. Reyndar var konan ekk-
ert hrifin til að byrja með en
hún vill ekki flytja aftur
norður núna. Þegar ég hugsa
um þetta svona eftir á þá
fannst mér voðalega skrítið
að koma til Akureyrar frá
ísafirði. Það var svo mikill
hraði á öllu á Akureyri - um-
ferðin og stressið var miklu
meira. Svo þegar maður
kom hingað suður þá versn-
aði þetta ennþá meira. Það
er heilmikill stigsmunur á