Bæjarins besta - 21.12.1989, Síða 24
JÓLAGJÖFINA í ÁR
FÆRÐU HJÁ OKKUR.
OPIÐ TIL KL. 23
Á ÞORLÁKSMESSU.
mn
straumur hf
Silfurgötu 5 S 3321
Sparisjóður Bolungarvíkur:
Færðil9ungnm
Bolvíkingum
skírnargjafir
ÖII börn sem skírð voru á árinu
fengu 4.800 kr. í sparisjóðsbókum
SPARISJÓÐURINN í
Rolungarvík færði 19
ungum Bolvíkingum spari-
sjóðsbækur að gjöf á föstu-
dag og sparibauk að auki.
4.800 krónur eru verðtryggð-
ar í hverri bók og eru þær
bundnar þar til eigendurnir
hafa náð 16 ára aldri.
Petta er fimmta árið í röð
sem sparisjóðurinn afhendii
slíka gjöf öllum börnum Bol-
víkinga sem skírð hafa verið
á árinu. Við afhendinguna
var foreldrum og börnum
boðið upp á súkkulaði og
konfekt. Fyrir fimm árum
var upphæðin í hverri bók
2.500 krónur og hefur sú
upphæð verið hækkuð sam-
kvæmt vísitölu árlega. Bæk-
urnar bera 6% vexti og ætti
þetta fyrsta innlegg að tvö-
faldast á um 10 árum.
Bolungarvík:
Kveikt á Ijósunum
á jólatrénu
BOLVÍKINGAR tendruðu Ijós á sínu jólatré á laugar-
dag við athöfn á túni Félagsheimilisins. Tréð leggur
bæjarfélagið til og forseti bæjarstjórnar, Einar Jónatans-
son, flutti ávarp. Jólasveinar komu í heimsókn og heilsuðu
upp á ungviðið og blönduð lúðrasveit Isfirðinga og Bolvík-
inga flutti jólalög undir stjórn Michael Arthur Jones.
Súðavík: Eina sveitarfélagið sem hækkar útsvarið í 7% en ekki 7,5%.
Vestfirðir:
Útsvarsprósentan
hækkar alls staðar
SVEITARFÉLÖG á
Vestfjörðum hafa öll
tekið þá ákvörðun að hækka
útsvarsprósentuna á næsta
ári í 7,5% nema Súðavík, þar
hækkar útsvarið í 7%. A
allflestum stöðum var
útsvarið 6,7% á þessu ári.
„Þetta er svipuð hækkun
og um allt land“ sagði Ólafur
Kristjánsson bæjarstjóri í
Bolungarvík í samtali við
blaðið. „Ástæðurnar eru
yfirleitt þær, að ég held, að
menn eru búnir að setja af
stað framkvæmdir og vilja
standa við þær. Ég hef trú á
því að á móti þessu munum
við hér í Bolungarvík lækka
fasteignaskattana. Mér
finnst það ekki ganga að
skattleggja fasteignir
umfram markaðsverð og
þess vegna er það mjög
ósanngjarnt að gera
samanburð við stofninn í
Reykjavík."