Morgunblaðið - 01.09.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.09.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020 Það kemur ekki á óvart að deildarmeiningar séu um aðkomu rík- isvaldsins að stuðningi við Ice- landair. Slíkur stuðningur er ekki sjálfsagður.    Augljóst er að ríkisvaldið hefurnálgast ákvörðun um aðkomu sína með það í huga og ígrundað rækilega rökin með og á móti.    Ein af forsendum fyrir atbeinaríkisins er sú að fjárfestar telji verjanlegt að ráðstafa verulegum fjármunum í endurreisn fyrir- tækisins. Sú trú ýtir undir að ríkis- ábyrgð verði aldrei virkjuð.    Starfsmenn félagsins hafa sam-þykkt að skapa fyrir sitt leyti hagstæðari umgjörð og skilyrði svo félagið megi lifa af. Einstaka laun- þegaforingjar eru ekki jafn raunsæ- ir og skilja ekki að ella væru þessi starfsmannafélög varla mikið leng- ur til. Þessu hótar enginn. Það er ekki bara skrifað í skýin. Það hrópar svo allir sem vilja mega heyra.    Þá kemur atriði sem hlýtur aðvega þungt í nálgun ríkisvalds- ins:    Hvarvetna í heiminum, þar semaðstæður eru svipaðar og hér, hefur ríkisvald þegar ákveðið að grípa til sambærilegra aðgerða gagnvart burðarfyrirtækjum í flugi.    Samkeppnisstaða hins íslenska fé-lags yrði minni en engin ef sömu lögmál yrðu ekki talin gilda í „force majeure“-aðstöðu hér. Rök mæla með STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Látin er í Reykjavík Guðrún Margot Ólafs- dóttir, fyrrverandi dósent í landafræði, níræð að aldri. Guðrún fæddist í Dengzhou í Henan- sýslu í Kína hinn 12. febrúar 1930, dóttir Ólafs Ólafssonar og Herborgar Eldevik Ólafsson sem þar störfuðu við kristni- boð. Guðrún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og stundaði nám í landafræði, sögu og ensku við Háskólann í Ósló. Guðrún var kennari við Kenn- araskóla Íslands þar til hún hóf störf við Háskóla Íslands árið 1974. Hún átti þar mikinn þátt í að byggja upp nám í landafræði, fyrst sem lektor og síðar sem dósent. Eftir Guðrúnu liggja ýmis rit og greinar. Hún var gríðarlega víðförul, ferðaðist um allar álf- ur og stundaði rann- sóknir við erlenda há- skóla. Hún tók þátt í starfi Kvenna- framboðsins í Reykjavík og bar kvenfrelsisbaráttu mjög fyrir brjósti. Börn Guðrúnar eru Egill Helgason sjón- varpsmaður og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Guðrún dvaldi síðustu árin á hjúkrunarheimilinu Grund og fékk hægt andlát sunnudaginn 30. ágúst. Andlát Guðrún Margot Ólafsdóttir dósent Könnun leiddi í ljós að til sölu voru 652 ólöglegar vörur á heimasíðum rafrettusala. Þórunn Anna Árna- dóttir, forstjóri Neytendastofu, seg- ir að krafa sé gerð um að efnin séu tekin úr umferð og þeim eytt. Átta heimasíður voru kannaðar með þessum niðurstöðum, en einnig komu aðrar brotalamir í ljós, s.s. ófullnægjandi eða röng upplýs- ingagjöf um rétt neytenda sem versla í gegnum netið. Brotin sem um ræðir varða bæði innihald varanna, t.d. þeirra sem innhéldu vítamín eða koffín en einn- ig umbúðir, sem lögum samkvæmt mega ekki höfða sérstaklega til barna og verða að vera barnheldar. Sala á rafrettum er tilkynningar- skyld til Neytendastofu og sölu- mönnum ber að leggja fram gögn sem sýna fram á öryggi vörunnar, innihaldslýsingar og útblásturs- skýrslur. Spurð um hvort umfang brota komi á óvart, segir Þórunn að sala á rafrettum sé tiltölulega nýr mála- flokkur og nýlega hafi verið sett sér- lög um sölu þeirra. Því komi síður á óvart að svo margir gerist brotlegir en söluaðilar þurfi greinilega að kynna sér betur hvaða reglur gilda. Hún segir ákvörðun Neytenda- stofu bindandi og málinu verði fylgt eftir með frekari könnun á komandi misseri. Fjölmörg ólögleg efni til sölu á netinu  Rafrettusalar uppvísir að brotum á lögum um innihald og umbúðir varanna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Rafrettur Víða brotalöm í sölu. Allt um sjávarútveg HVER restaurant á Hótel Örk er fyrsta flokks veitingastaður, fullkominn fyrir notalegar gæðastundir með vinum, fjölskyldu eða vinnufélögum. GIRNILEGUR OG SPENNANDI MATSEÐILL Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.