Morgunblaðið - 01.09.2020, Qupperneq 9
Verið er þessa dagana að leggja
lokahönd á endurbætur á veginum
yfir Fróðárheiði á Snæfellsnesi.
Framkvæmdir hófust fyrir um hálfu
öðru ári, það er endurbygging á 4,8
kílómetra löngum kafla á heiðinni
norðanverðri – það er frá Valavatni
að vegamótunum við Útnesveg
skammt innan við Ólafsvík. Að verki
loknu verður komið bundið slitlag á
veginn yfir heiðina, rúmlega 70 ár-
um eftir að vegagerð þar hófst.
Vegurinn um Fróðárheiði liggur
hæst í 361 metra hæð og liggur um
snjóþungt skarð þar sem oft er ill-
viðrasamt. Alls er leiðin yfir heiðina
um 13 kílómetrar og er tenging milli
Staðarsveitar og byggðarinnar á
norðanverðu Nesinu. Þessir staðir
voru sameinaðir í eitt sveitarfélag,
Snæfellsbæ, árið 1994 og þá var
áherslumál að flýta endurbótum á
veginum, sem tengir byggðirnar
saman. Framkvæmdir hafa dregist
og það er fyrst nú, 26 árum seinna,
sem verklok eru í augsýn.
„Þetta er afar þýðingarmikið
verkefni fyrir þetta svæði. Góður
vegur sameinar sveitarfélagið í
raun,“ segir Kristinn Jónasson, bæj-
arstjóri í Snæfellsbæ.
Borgarverk ehf. hefur sinnt fram-
kvæmdum á Fróðárheiði. Unnið var
um helgina við að leggja út slitlag á
veginum nýja og verklok eru á
næstu dögum. sbs@mbl.is
Nýi vegurinn sameinar
Framkvæmdum á Fróðárheiði að ljúka Slitlag alla leið
Ljósmynd/Aðsend
Fróðárheiði Vinnuvélar og verkamenn voru á fullu alla síðastliðna helgi.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
Dekton er mjög slitsterkt og rispuþolið borðplötuefni.
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Séra Kristján Björnsson, vígslu-
biskup í Skálholti, vígði nýjan kross
í Biskupsbrekku á sunnudag, um
leið og listaverk Páls Guðmunds-
sonar á Húsafelli við krossinn var
afhjúpað, er sýnir ásjónu Jóns Ví-
dalín Skálholtsbiskups.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær stóð Skálholtsfélagið
fyrir því, með góðum stuðningi
Vinnslustöðvarinnar í Vestmanna-
eyjum, að setja nýjan kross upp á
þessum stað, ásamt minnisvarða
um Jón Vídalín. Tilefnið er 300 ára
ártíð Jóns en hann lést á ferðalagi í
Biskupsbrekku 30. ágúst árið 1720.
Jón Vídalín var á nokkrum vetrar-
vertíðum í Eyjum á sínum tíma og
lengi átti Vinnslustöðin togara sem
bar nafn hans.
Ljósmynd/Atli Rúnar
Kross vígður og
listaverk afhjúpað
Borgarráð hefur samþykkt að
hleypa af stokkunum þriggja ára
tilraunaverkefni með það að mark-
miði að auka þátttöku barna í
íþrótta- og frístundastarfi í Breið-
holti til jafns við önnur hverfi í
Reykjavík.
Tilraunaverkefnið felur m.a. í sér
að auka þátttökuhlutfall barna til
jafns við meðaltal í öðrum hverfum
í Reykjavík, auka nýtingu frí-
stundakortsins í Breiðholti til jafns
við meðaltal í Reykjavík og auð-
velda samfélagslega þátttöku, ís-
lenskunám og félagslega aðlögun
barna með mismunandi bakgrunn
að íslensku samfélagi.
Þjónustumiðstöð Breiðholts mun
hafa yfirumsjón með verkefninu í
samráði við ÍTR og fleiri, að því er
fram kemur í tilkynningu frá
Reykjavíkurborg.
Tilraunaverkefni til að auka þátttöku barna
í íþrótta- og frístundastarfi í Breiðholti
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Breiðholt Frá hæfileikakeppni frí-
stundamiðstöðvarinnar.