Morgunblaðið - 01.09.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 01.09.2020, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020 Höfðabakka 9, 110 Rvk | Sími 561 9200 run@run.is | www.run.is Gísli, sölu- og markaðsstjóri vinnufatnaðar | Sími 766 5555 | gisli@run.is VANDAÐUR VINNUFATNAÐUR ÖRYGGISSKÓR Sjáum um allar merkingar Þann 25. ágúst voru liðin 50 ár frá Mið- kvíslarsprengingunni sem olli straum- hvörfum í Laxárdeil- unni illræmdu. Und- irrituð tók þátt í ævintýrinu og minnt- ist þess með félögum sínum og fleiri náttúruverndar- sinnum, m.a. umhverf- isráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, við Miðkvísl þann dag í blíðuveðri og rifjaði þá upp atburðinn. Það voru ungri tvítugri stúlku spennandi skref að stíga fram á ár- bakkann ágústkvöldið fræga 1970 til að taka þátt í að fjarlægja ólög- legt mannvirki. Fljótlega allt á fullu, konur og karlar að moka mold og bera grjót og dráttarvélar að erfiða ofan í vatninu undir ein- beittri stjórn vaskra manna. Farið að skyggja þegar leið á kvöldið og óljóst hverjir fóru fremstir þegar dínamít var allt í einu tiltækt og því komið fyrir, en fór ekki fram hjá neinum þegar sprengingin gall og mold og grjót þeyttist yfir svæðið. Allir þá að sjálfsögðu komnir í skjól. Takmarkinu náð, Miðkvísl streymdi óhindrað um sinn eðlilega farveg og einhver heyrðist hrópa: Hún er frjáls, hún er frjáls. Miðkvíslarsprenging var tíma- mótaviðburður sem vakti athygli alþjóðar og út fyrir landsteinana þó fjölmiðlun væri ekki með sama sniði þá og nú. Verk sem unnið var af samhentum hópi sem barist hafði hart og lengi gegn brölti virkjunaraðila við Laxá og Mývatn. Ýmsum aðferðum hafði verið beitt til að ná eyrum ráðamanna og Lax- árvirkjunarstjórnar sem fór sínu fram með offorsi á svæðinu þrátt fyrir einarðar mótbárur heima- manna og samningaumleitanir. Þegar fréttir bárust af ógnvæn- legum virkjunaráformum í Laxá var líkt og sprengju hefði verið varpað inn í hið friðsæla samfélag á Laxár- og Mývatnsbökkum. Árið 1963 ályktar Veiðfélag Laxár fyrst um málið og eftir að Gljúfur- versáætlun birtist á prenti í janúar 1968 hófst andspyrna fyrir alvöru. Þingeyingar voru því miður ekki einhuga í mótspyrn- unni en innan Land- eigendafélags Laxár og Mývatns sem stofnað var vorið 1970 ríkti fullkominn ein- hugur og baráttuandi. Ósjaldan lögðu þeir stjórnarmenn Eysteinn á Arn- arvatni, Starri í Garði, Jón á Þverá, Vigfús á Laxamýri og for- maðurinn Hermóður faðir minn á ráðin við eldhúsborðið í Árnesi, að ógleymdum lögmanni þeirra Sig- urði Gizurarsyni og móður minni Jóhönnu Álfheiði sem átti drjúgan þátt með að hvetja og skipuleggja. Engin kona var í stjórninni en ekki er að efa að þær hvöttu allar sína menn til dáða. Bakvarðarsveit stjórnarinnar var sterk eins og kom í ljós kvöldið afdrifaríka við Miðkvísl. Oft varð ég vitni að líflegum og djörfum ráðagerðum, man ótal ferðir föður míns á fund ráða- manna í Reykjavík að leita lausna, endalaus greinaskrif og heimsóknir stuðningsaðila, fundi með framá- mönnum utan og innan héraðs, Jó- hanni Skaptasyni sýslumanni, Þór- ólfi Jónssyni frá Auðnum, Pétri M. Jónassyni vatnalíffræðingi, Matt- híasi Johannessen ritstjóra en á síðum Morgunblaðsins barst stuðn- ingur úr óvæntri átt, hér eru að- eins fáir nefndir. Man mótmæla- akstur langrar bílalestar til Akureyrar með áberandi kröfu- spjöldum. Eysteinn á Arnarvatni fremstur í flokki með áletrunina „Með lögum skal land byggja og ólögum eyða“ á vörubílnum sínum. Lestina leiddu lögreglubílar og sýslumaður Þingeyinga. Við eldhúsborðið í Árnesi voru einmitt lögð á ráðin um að fjar- lægja stífluna, sem reist hafði verið í óþökk Mývetninga og olli þar skaða á lífríkinu. Skipulagningin tók langan tíma en fór hljótt, ótrú- legt að skyldi takast að smala sam- an hátt í 100 manna samhentum hópi án þess að kvisaðist út til mótherjanna. Formaðurinn fékk ekki að taka þátt í aðgerðinni svo Landeigendafélagið yrði ekki dreg- ið til ábyrgðar, það var hugsað fyr- ir öllu. Athafnamanninum Hermóði Guðmundssyni þótti ekki gott að sitja heima. Þegar til kastanna kom dugði ekki handaflið eitt ásamt drátt- arvél til að ryðja burt stíflunni, en svo heppilega vildi til að Lax- árvirkjunarmenn lögðu til dína- mítið sem vantaði, það geymdu þeir í hellisskútum í sveitinni (til nota við að sprengja klakastíflur úr kvíslinni) og ráðsnjallir Mývetn- ingar kunnu til verka. Hvellurinn við Miðkvísl olli straumhvörfum í hinni hörðu deilu. Hér var talað mál sem Laxárvirkj- unarstjórn skildi. Loksins tókst að draga hana að samningaborðinu. Loksins hlustaði öll þjóðin á þing- eysku náttúruverndarsinnana sem svo lengi höfðu beðið um réttlæti. Þeir brutu blað í íslenskri náttúru- vernd. Langa og stranga samningalotu átti stjórnin fyrir höndum en loks var gengið til samningaviðræðna sem lauk með sáttagerð. Hefði Gljúfurversáætlun verið fylgt hefði orðið óbætanlegt tjón og gríðarstórt svæði eftir það ein- kennst af stórum virkjanalónum með illbyggilegu sandorpnu landi á milli og Laxárdalur horfið undir vatn. Munum að það er þessu hug- rakka fólki að þakka að við eigum gersemarnar Laxá og Mývatn að miklu leyti óraskaðar. Straumhvörf í náttúruvernd Eftir Hildi Hermóðsdóttur »Miðkvíslarsprenging var verk sem unnið var af samhentum hópi sem barist hafði hart og lengi gegn brölti virkj- unaraðila við Laxá og Mývatn. Hildur Hermóðsdóttir Höfundur er fyrrverandi útgefandi. hildur@textasmidjan.is Laugardalslaug er frekar sóðaleg. Það er ekki starfsmönnum að kenna, miklu frekar borgaryfirvöldum sem virðist vera nákvæm- lega sama um laugina, veita ekki nægt fé til viðhalds og þrifa. Vegna heimsfarald- ursins voru sundlaugar landsins lokaðar frá 23. mars til 18. maí. Í Laugardalslaug var tíminn notaður til viðhalds. Sundlaugargestir komu í vel þrifna búningsklefa með nýlökk- uðu tréverki og allt ilmaði af hrein- læti og gleði. Sumir stungu sér í laugina en aðrir renndu sér fótskriðu í pottana. Lífið var gott. Svo tóku ýmsir góðborgarar eftir smáatriðunum sem höfðu gleymst. Rennurnar í lauginni voru óþrifnar, þær eru grænar, þó ekki fagur- grænar. Tröppur upp úr lauginni voru jafn skítugar og fyrr. Við pott- ana voru tvær efstu tröppurnar svo skítugar að þar áttu smágerð skor- kvikindi lífvænlegt landnám. Skít- urinn hefur síðan haldið áfram að safnast þar saman og jafnvel á milli potta. Blátt plast sem einhvern tím- ann var sett á bakka laugarinnar og víðar er sums staðar orðið grænleitt af óþrifum. Þegar rignir lekur vatn ofan úr stúkunni og ofan í saltpottinn og lek- andinn heldur áfram um tíma þó stytt hafi upp. Má vera að handriðin við pottana hafi verið lökkuð meðan á lok- uninni stóð. Það breytir því ekki að þau voru og eru enn kolryðguð. Ryðbrunnið gat er á handriði á austasta heita pottinum og hugsanlega fleirum. Í svokölluðum nudd- potti eru gráar ólar sem pottagestir geta stungið höndum sínum í. Þær hafa varla nokkru sinni verið þrifnar og eru orðnar dökkar af skít eftir núning þúsunda handa. Eflaust má í þeim greina ótal lífsýni. Skyld’ann Kári vita af’essu? Fyrir nokkrum dögum var einn góður sundlaugargestur orðinn svo þreyttur á sóðaskapnum að hann greip í sundlaugarvörð og benti hon- um á nokkur atriði sem hér hefur verið minnst á. Sá kom af fjöllum. „Næturvaktin sér um þrifin,“ sagði vörðurinn, en lofaði að koma athugasemdum á framfæri. Daginn eftir var búið að þrífa, að minnsta kosti að nafninu til. Hér hefur ekki verið fjallað um búningsklefana og gesti af báðum kynjum sem fara ekki í sturtu og menga því laugarvatnið fyrir öðrum. Um það má skrifa langan pistil. Myndirnar sem fylgja voru teknar eftir „þrifin“. Af þeim má ráða að enn er mikið verk óunnið. Sumir myndu orða það þannig að komin sé tími á Hnignun Laugardalslaugar Eftir Sigurð Sigurðarson » Tvær plöntur hafa skotið rótum í tröppu í heita pottinum. Hugsanlega er þetta smári. Já, það er líf í laugunum, jafnvel eftir lokun. Sigurður Sigurðarson Höfundur er ráðgjafi og buslari. sigurdursig@me.com Óþrifin í tröppum heita pottsins. Litlar plöntur vaxa í tröppum heita pottsins. Rennan í austurenda laugarinnar, illa þrifin. er það rétt, lagnir og stýritæki eru örugglega jafngömul lauginni sem opnuð var árið 1968. Hversu lengi á að bjóða gestum upp á svona sundlaug? Hvernig stendur á því að Laugardalslaug er ekki lengur besta sundlaugin í Reykjavík? En ágæti lesandi, ekki spyrja mig hvers vegna ég fer nær daglega í þessa laug. gagngera endurnýjun á lauginni. Myndirnar skýra sig sjálfar. Þó má vekja athygli á einni. Greina má að tvær plöntur hafa skotið rótum í tröppum ofan í heitan pott. Hugs- anlega er þetta smári. Já, það er líf í laugunum, jafnvel eftir lokun. Svo eru það tæknimálin. Fyrir kemur að sturturnar verða sjóðheit- ar og stundum ískaldar. Sjaldnast eru pottarnir með sama hitastigi frá einum degi til annars. „Þetta er ónýtt drasl,“ sagði sundlaugarvörður þegar kvartað var við hann. Líklega

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.