Morgunblaðið - 01.09.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.09.2020, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020 ✝ AðalheiðurSigurjónsdóttir fæddist 16. maí 1926 á Þingeyri í Vestmannaeyjum. Hún lést á Land- spítalanum Hring- braut 19. ágúst 2020. Foreldrar henn- ar voru Kristín Óladóttir, f. 17. mars 1889, d. 1. sept. 1975, og Sigurjón Sig- urðsson, f. 6. mars 1890, d. 8. júní 1959. Systkini hennar voru: Sig- urbjörg (Stella), f. 27. des. 1910, d. 24. júni 1971, Sigurður Óli, f. 24. jan. 1912, d. 16. júní 1981, Aðalheiður, f. 7. apríl 1914, d. 14. febrúar 1917, Jó- hanna, f. 21. ágúst 1915, d. 28. mars 1989, Ragnhildur, f. 16. júlí 1918, d. 4. júlí 2009, dreng- ur, f. 16. júlí 1918, d. 16. júlí 1918, og Margrét (Maggý), f. 20. des. 1923, d. 21. nóv. 2016. Hálfsystkini : Sigurjón Sigur- jónsson, f. 12. maí 1932, d. 31. júlí 1951, og Marta Sigurjóns- dóttir, f. 5. febrúar 1936. Fyrri maður Aðalheiðar var Anton Jónsson skipasmiður, f. 4. febr. 1924, d. 18. jan. 2009. Þau skildu. Dóttir þeirra er Sigríði Magnúsdóttur hús- móður, f. 25. sept. 1958. Þeirra börn: a) Halldóra G. Sigurð- ardóttir, f. 19. sept. 1975, sam- býlismaður Sigmar Hafsteinn Lárusson, f. 6. mars 1972, börn Halldóru eru Sandra Sif Ing- ólfsdóttir, f. 17. mars 1995, Guðlaug Birta Sigmarsdóttir, f. 15. apríl 2002, og Aron Ernir Sigmarsson, f. 10. júlí 2007. b) Davíð, f. 23. ágúst 1980, hans dóttir er Sóley Dögg, f. 22. okt. 1999. c) Elma, f. 30. ágúst 1984, sambýlismaður Anton Eyþór Rúnarsson, f. 30. apríl 1984, börn Elmu eru Heiða Ósk Bjarnadóttir, f. 21. sept. 2009, Trausti Freyr Antonsson, f. 12. sept. 2016, og Freyja Sif Antonsdóttir, f. 14. apríl 2018. Fóstursonur Elmu: Óskar Dýri Antonsson, f. 26. mars 2010. Aðalheiður lauk fullnaðar- prófi frá Barnaskóla Vestmannaeyja. Vann í Eyjum ýmis störf, m.a. í fiski og í verslun. Hún flutti til Reykja- víkur 1946 og bjó þar til ævi- loka. Hún starfaði við ræst- ingar, lengst af í Vogaskóla, seinna Menntaskólanum við Sund. Aðalheiður verður jarð- sungin frá Árbæjarkirkju í dag, 1. september 2020, klukk- an 15. Vegna aðstæðna í sam- félaginu verða aðeins nánustu ættingjar viðstaddir, en streymt verður á youtube/ q46Y2cM0ej8/. Hægt er að nálgast virkan hlekk á streym- ið á https://www.mbl.is/andlat. Guðrún Kristín, f. 27. okt. 1945, kennari. Hennar börn: a) Freyr Þórðarson, 27. maí 1973, giftur Veru Víðisdóttur, f. 4. sept. 1979. Dætur þeirra: Helena, f. 1. jan. 2003, Júlía, f. 1. okt. 2006, og Eva, f. 21. okt. 2009. b) Aðalheið- ur Stella Stefánsdóttir, f. 6. des.1987, sambýlismaður Jón Garðar Jensson, f. 24. ágúst 1983, þeirra sonur er Jökull Máni, f. 4. júní 2016. Seinni maður Aðalheiðar var Gísli Ólafsson bifreiðastjóri, f. 21. júní 1926, d. 20. okt. 2002. Þeirra börn eru: 1) Margrét lyfjafræðingur, f. 15. des. 1953, gift Hauki Halldórssyni húsa- smíðameistara, f. 22. jan. 1949. Þeirra synir: a) Gísli, f. 12. júlí 1976. b) Arnar, f. 4. des. 1979, hans börn: Arndís Indíana, f. 17. apríl 2005, Haukur Alexander, f. 13. jan. 2018. c) Daði, f. 2. febrúar 1990, sambýliskona Hafrún Ósk Agnarsdóttir, f. 28. okt. 1992, þeirra dóttir er Erla Margrét, f. 17. des. 2015. 2) Grettir, framkvæmda- stjóri, f. 8. júní 1957, giftur Elsku Lalla systir. Já ég kallaði hana þetta alltaf þó svo að hún væri systir mömmu minnar. Lalla systir var einstök kona, skemmtileg, ræðin, úr- ræðagóð og mikil fyrirmynd okkar allra. Mín uppvaxtarár fékk ég að fara með ömmu Kristínu til Löllu í Gnoðarvog- inn og í sumarbústaðinn hennar sem var ská á móti húsi Hall- dórs Kiljan Laxness í Mosfells- sveit. Þar var veröld sem seint gleymist, leikið úti alla daga með Margréti, Gretti o.fl. Við fengum að fara í sundlaugina að Gljúfasteini. Tíndum ber og nutum þess að vera í fallegri náttúru. Ógleymanlegt fyrir stelpu úr Eyjum. Í Gnoðarvog- inum var líka gaman. Horfa út um gluggana og sjá strætó bruna framhjá og fullt af bílum, þarna iðaði allt af lífi. Við fór- um í gömlu sundlaugarnar dag- lega. Þarna upplifði ég að sjá sjónvarp í fyrsta skipti, Lucy Ball o.fl. ævintýri, þetta var þvílík skemmtun. Mér fannst ég komin í paradís. Við áttum alltaf athvarf hjá Löllu og Gísla, ýmist með mömmu og pabba eða ömmu, alltaf var rúm og pláss fyrir okkur fjöl- skylduna úr Eyjum. Þau voru einstök þó plássið væri lítið, en þarna sannaðist það ef hjartað er stórt skiptir fermetramagnið ekki máli. Alltaf var fjör og gaman þegar Lalla og fjöl- skylda komu til Eyja. Mikið hlegið og allir dagar einstakir. Mamma og Lalla voru nánar systur sem voru hörkuduglegar og komu sér og sínum til manna. Lalla var með allt á hreinu fram á síðasta dag og við spjölluðum oft saman og ég fór oft til hennar í Glæsibæinn. Heimili hennar og Gísla var einstakt og var alltaf eins þar til hún flutti fyrir ári síðan, það var ekki neitt verið að rusla út og laga, „óþarfi“. Við gátum talað eins og vinkonur þó ald- ursmunurinn væri mikill en það segir svo margt um það hvern- ig karakter þessi perla var. Ég mun ætið sakna þín, elsku Lalla systir, en þakka þér hvað þú varst mér og mínum alla tíð. Fjölskyldunni sendi ég innileg- ar samúðarkveðjur og kveiki á kerti henni til heiðurs í dag og flagga fána á stöng. Lalla syst- ir, takk fyrir að vera alltaf þú. Björk Elíasdóttir, Vestmannaeyjum. Elsku hjartans amma mín og nafna. Það var alltaf gott að koma til ömmu og afa í Glæsibæinn. Þar spiluðum við rommí, sung- um við undirleik ömmu á gít- arinn eða hún sagði okkur sögu af Fóu feykirófu. Hún las Benna og Báru eða Híavata indíánastrák á milli þess sem hún stóð inni í eldhúsi og bak- aði eða klippti út uppskriftir úr tímaritum og fréttablöðum. Ferðalög eða sumarbústaða- ferðir voru tíð. Eitt það eft- irminnilegasta var þegar amma kenndi okkur nöfnin á hinum ýmsu fellum, hólum og fjöllum. Kögunarhóll eða kökuhóll eins og við kölluðum hann oft og Ingólfsfjall eru hvað eftirminni- legust, og er ég farin að kenna mínum dreng þetta á okkar ferðalögum. Það skemmtileg- asta var þegar við keyrðum framhjá Kerinu í Grímsnesi og giskuðum á fjölda bíla á bíla- stæðinu, sem afi náði næstum alltaf réttu! Amma hafði unun af því að elda, baka og bjóða fólki í mat. Á meðan við sátum að mat og drykk sat hún og horfði á okk- ur og borðaði yfirleitt aldrei fyrr en allir voru búnir. Hún vildi passa að allir fengju nóg og að hún mætti afgangi. Ég man varla þau matarboð þar sem gítarinn var ekki tek- inn upp og hún spilaði og söng af hjartans lyst. Gítarinn sem hún lærði á í gegnum gítar- kennslu Eyþórs Þorlákssonar hjá Ríkissjónvarpinu. Eftir að ég fullorðnaðist átt- um við ekki síst yndislegar stundir saman. Ef mig langaði í gott kaffi skrapp ég til ömmu og fékk jafnvel sneið af fursta- köku með. Við gátum setið og drukkið kaffi, spjallað um heima og geima og skoðað gamlar myndir. Oft mættum við til hennar að horfa á og hvetja íslenska landsliðið í hand- eða fótbolta. Amma öskraði að sjálfsögðu manna hæst enda trúði hún því örugg- lega að það hefði góð áhrif. Litli drengurinn minn og amma áttu einnig einstakt sam- band. Það sem hann sótti í hana og elskaði að koma í heimsókn til hennar. Hún var einstaklega natin og þolinmóð við hann milli þess sem hún gaf honum kex eða vínber, litla hjartakónginum sínum eins og hún kallaði hann. Hér sitja eftir brotin hjörtu bæði stór og smá. En ekki má gleyma á þessum erfiðu og sáru tímum að vera þakklátur. Að vera þakklátur fyrir þann tíma og þær ómetanlegu stundir sem við áttum saman. Þakklæti fyr- ir allt það sem þú kenndir mér sem aðrir gátu ekki. Takk fyrir allt amma, þú munt alltaf eiga stað í hjarta mér. P.s. bið að heilsa afa. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlétst okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Aðalheiður Stella Stefánsdóttir. Aðalheiður Sigurjónsdóttir Ástkær systir mín, mágkona og frænka, HRAFNHILDUR MAGNÚSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 19. ágúst. Jarðarför hennar fer fram frá Lindakirkju föstudaginn 4. september klukkan 15. Fyrir hönd aðstandenda, Ingimundur Magnússon Ástkær eiginkona mín, ÞÓRA HALLGRÍMSSON, sem lést á fimmtudaginn 27. ágúst, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. september klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verður einungis nánustu aðstandendum og vinum boðið að vera viðstaddir útförina. Minningarathöfn um Þóru verður haldin síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Björgólfur Guðmundsson Okkar ástkæri SIGFÚS FANNAR STEFÁNSSON, Kaplaskjólsvegi 91, Selási 23, Egilsstöðum, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 5. september klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana langar okkur að biðja þá vini og ættingja sem hafa hug á að fylgja honum að hafa samband, en jafnframt verður streymt frá egilsstadakirkja.is. Anna Sigfúsdóttir Stefán Pétur Jónsson Árdís Sigurðardóttir Guðmundur Sigfússon Sveinbjörg Ólafsdóttir fjölskyldur og vinir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN BIRGIR JÓNSSON, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 3. september klukkan 15. Vegna fjöldatakmarkana er athöfnin einungis fyrir nánustu fjölskyldu og vini. Einlægar þakkir fyrir sýnda samúð, hlýhug og vináttu. Hægt er að fylgjast með á netinu á utforjbj.is og þar má einnig finna upplýsingar um erfidrykkju. Steinunn Norberg Aðalsteinn Jónsson Jón Birgir Jónsson Ásta S. Einarsdóttir Kristinn Karl Jónsson Íris Halldórsdóttir Með þessu ljóði sem ort var í tilefni sjötugsafmælis Ólínu, kveðjum við systkinin og þökk- um æsku- og unglingsárin. Ættarslóð í öld hér stóð arð í sjóði gjörðu. Sjávargróði sífellt hlóð sæld á óðals jörðu. Á óðali ættmenna sinna uppvöxtur húsfreyju stóð. Ólína Kristín Jónsdóttir ✝ Ólína KristínJónsdóttir fæddist 15. júlí 1931. Hún lést 9. ágúst 2020. Útförin fór fram í kyrrþey. Landgæðin ljúft er að kynna löngum þar hlunnindi góð. Búsýslu frækin var frúin hún fann hvar hagsæld var mest. Það hentar við hlunn- indabúin að hlynna að öllu sem best. Við flutning á ljóði og lagi var leikandi athafnasvið. Í kór var hún farsæl í fagi með fögnuði veitti þar lið. (Hj.Þ.) Blessuð sé minning hennar. Hjörtur og Kristín Ingibjörg. ✝ Ingibjörg Þor-kelsdóttir fæddist á Stað- arfelli í Dölum 24. júní 1937. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 6. ágúst 2020. Foreldrar henn- ar voru Kristín Guð- ríður Kristjáns- dóttir, f. 11. október 1908, d. 5. desember 1993, og Þorkell Jóhann Sigurðs- son, f. 18. september 1908, d. 8. febrúar 2005. Systkini Ingibjarg- ar eru Sigurður Eggerz, f. 20. nóvember 1940, d. 11. nóvember 2005, Guðríður Jósefína, f. 13. september 1946, Þórkatla, f. 21 .október 1949, Gísli, f. 24. mars 1951, d. 25. maí 2005. Börn Ingibjargar eru: 1) Krist- ín Guðríður Jóhannsdóttir, f. 19. október 1957, maki Sumarliði Kristmundsson, f. 9. desember 1954, d. 10. júní 2016. Börn: Kristmundur, Ingibjörg og Þor- katla Kristín. 2) Bjarni Jóhann Jóhannsson, f. 27. júní 1960, sam- býliskona Carina Broman. Son- ur: Jóhann Karl. 3) Þorbjörg Hjálm- arsdóttir, f. 18. apríl 1964. Börn: Anton og Viktor. 4) Dreng- ur Hjálmarsson, f. 18. júlí 1965, d. 19. júlí 1965. 5) Stúlka Hjálmarsdóttir, f. 13. mars 1967, d. 14. mars 1967. 6) Drengur Hjálm- arsson, f. 1 .desem- ber 1968, d. 3. desember 1968. 7) Sigríður Ósk Benediktsdóttir, f. 7. apríl 1982, maki Haraldur Orri Björnsson. Börn: Steinþór Örn, Björn Steindór og Benedikt Arn- ar. Langömmubörnin eru níu. Ingibjörg lauk gagnfræða- prófi frá Kópavogsskóla, síðar stundaði hún nám við Hús- mæðraskólann á Varmalandi. Um ævina starfaði Ingibjörg mest við verslunar- og skrif- stofustörf. Ingibjörg hóf sambúð með Alberti Ágústssyni árið 1995, f. 10. maí 1935, d. 19. sept- ember 2013. Útför Ingibjargar hefur farið fram í kyrrþey. Þá er komið að kveðjustund elsku vinkona mín. Við kynntumst fyrir 50 árum og þá báðar komnar með börn og bundumst strax sterkum böndum. Höfum haldið sambandi í gegnum árin, áttum mörg skemmtileg ár saman og vorum alveg óaðskiljan- legar á tímabili. Við studdum hvor aðra í blíðu og stríðu í gegnum ár- in. Seinni árin þegar heilsa mín bilaði töluðum við mikið saman í síma um alla heima og geima, lífið og tilveruna og rifjuðum oft upp gamlar og skemmtilegar minning- ar og hlógum mikið. Eftir Co- vid-19-veiruna töluðum við saman svo til á hverjum degi og þú náðir því að koma einu sinni í heimsókn til mín en það var 24. maí og er ég guði þakklát fyrir það. Takk fyrir allt og allt kæra vinkona. Megi al- góður guð taka hana í sinn kær- leiksríka faðm. Ég sendi börnum hennar og fjölskyldunni allri mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Ég bið góðan guð að styrkja þau og leiða um ókomin ár. Þú ljós sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn. Í gegnum bárur brim og voðasker, nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr, og engla þá sem barn ég þekkti fyr. (Þýð. M. Joch.) Þín vinkona Ellý. Ingibjörg Þorkelsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.