Morgunblaðið - 01.09.2020, Page 25

Morgunblaðið - 01.09.2020, Page 25
Ása Ólafsdóttir Guðfinna Ísleifsdóttir ljósmóðir í Drangshlíð Gissur Jónsson búfræðingur og hreppstjóri í Drangshlíð undir Eyjafjöllum Ása Gissurardóttir húsmóðir í Kópavogi Guðmundur Guðjónsson rekstrarstjóri í Kópavogi Hrafnhildur Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg Bergþóra Jónsdóttir húsmóðir í Vestmannaeyjum Guðjón Jónsson skipstjóri í Vestmannaeyjum Gizur Bergsteinsson hæstaréttardómari Guðni Jónsson vélstjóri í Keflavík Jón Ásvaldur Gissurarson skólastjóri í Reykjavík LáraV.Júlíusdóttir lögfræðingur Haukur Filippusson tannlæknir í Rvík Karl Steinar Guðnason fv. forstj. Tryggingast. og alþm. Sigurbjörn Knudsen Lárusson iðnverkamaður í Reykjavík Þórunn Ísleifsdóttir húsfreyja á Árgilsstöðum í Hvolhr., Rang. SigríðurGissurardóttir húsmóðir í Reykjavík Kristín Símonardóttir verkakona í Reykjavík Bergsteinn Gizurarson brunamálastjóri Hörður FIlippusson prófessor emeritus í HÍ Gizur Bergsteinsson lögfræðingur Símon Símonarson bifreiðarstjóri í Rvík Orri Hauksson, forstjóri og fv. aðstoðarmaður ráðherra Gylfi Knudsen lögfræðingur Ólöf Sigurðardóttir húsmóðir í Reykjavík Nieljohníus Ólafsson verslunarmaður í Kol og Salt í Reykjavík Jónína Nieljohníusdóttir læknaritari í Reykjavík Lárus M.K. Guðmundsson bifvélavirkjameistari í Rvík G. Elías Símonarson sjómaður í Reykjavík Lára M. Lárusdóttir Knudsen húsmóðir í Reykjavík Úr frændgarði Ásu Ólafsdóttur Ólafur Lárusson íþróttakennari í Reykjavík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 2020 Nú eru tæp 30 ár síðan Leirinnvarð til og hefur hann verið vistaður hjá Advania síðustu árin, en svo bar við í sumar, að fyrir- tækið tilkynnti Þóri Jónssyni um- sjónarmanni Leirsins að Leirlist- anum yrði lokað 1. sept. Þetta voru mikið tíðindi og nú hefur sá dagur runnið upp. „Síðustu forvöð“ skrifaði Sigrún Ásta Haraldsdóttir á Leirinn á laugardag: Á mínum dögum margt við bar og mælisteinar fleiri en tveir en þar mín æðsta vegsemd var að vera kölluð skáld á Leir. Ólafur Stefánsson svaraði: „Það var sagt um Sigrúnu frá upphafi, að hún laðaði fram vísur hjá öðrum, þegar hún lét í sér heyra á Leir. Þannig örvaði hún vísnagerðina“: Alúð er henni eðlislæg, – svo ekki segi ég meir – og víst hún þykir vísnadræg í vinahópi’ á Leir. Björn Ingólfsson skrifar: „Leir var ótrúlegt tækniundur þegar hann hóf göngu sína í lok janúar 1992. Þetta var í árdaga þeirra tíma þegar menn gátu farið að hafa símasamband í rituðu máli, ekki bara töluðu. Tæknin hefur aldeilis ekki setið um kjurt síðan og Leirinn er orðinn gamaldags þótt samskiptin fari ekki lengur fram gegnum þrönga koparþræði símans. Allt tekur enda og nú er sögu Leirs lokið. Hann var örugglega mörgum góður skóli, öðrum íþróttavöllur til að takast á eða til að sýna leikni sína. Þar var á tímum mikið fjör og mikið ort og mikið gaman. Síðustu ár hefur dofnað mjög yfir honum því aðrir miðlar bjóða upp á enn opnari og auðveld- ari samskipti. Og nú er þessu lokið. Ég þakka leirlimum öllum góðar stundir gegnum árin. Auðvitað ætti ég að yrkja erfiljóð en dettur ekk- ert í hug nema þetta: Aldrei kveð ég aftur meir, einkanlega vegna þess að á morgun leggur Leir laupana upp og segir bless. Því miður get ég ekki lofað að standa við þetta.“ Páll Imsland þakkar allt sem fram hefur farið á Leir og mun sakna hans, en reyna að bíta á jaxl- inn: Brátt verður lokað á Leir, svo ljóðmælin heyrast ei meir. Raddirnar þagna, sem réð ég oft fagna, því brátt verður lokað á leir. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Leirlistanum er lokað í dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.