Morgunblaðið - 01.09.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.09.2020, Blaðsíða 32
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Guðrún Valdís Arnardóttir og fjöl- skylda í Hafnarfirði svífa um sem ský á himni eftir að dóttirin Sara Björk Gunnarsdóttur, landsliðsfyr- irliði í fótbolta, varð Evrópumeistari með franska liðinu Lyon í fyrrakvöld. „Ég táraðist í leikslok og samgladd- ist henni, því hún hafði svo sannar- lega unnið fyrir þessu, þráð þessa stund í mörg ár og lengi stefnt að titl- inum,“ segir Guðrún. „Þetta var æðislegt og við erum í sigurvímu.“ Foreldrar Söru og nánasta fjöl- skylda horfðu saman á leikinn í beinni útsendingu sjónvarps í Hafn- arfirði. „Við vorum bara heima í stofu enda var áhorfendabann á leiknum,“ segir Guðrún. Sara byrjaði á sjötta ári að æfa fót- bolta hjá Haukum. „Hún var um leið komin með mikið keppnisskap, vildi alltaf fá boltann og var mjög stjórn- söm,“ rifjar Guðrún upp. Hún bætir við að Sara hafi ætíð látið vel finna fyrir sér. Þrjár vinkonur hafi strax þótt efnilegar, þær hafi fylgst að upp flokkana, en þegar hinar hafi hætt hafi hún engu að síður haldið ótrauð áfram. „Hún ætlaði sér alltaf stóra hluti.“ Ákveðið fyrir nær áratug Fyrir tímabilið 2011 gekk Sara til liðs við Malmö, sem varð svo Rosen- gård. Guðrún segir að eftir að liðið varð Svíþjóðarmeistari sama ár og tryggði sér þar með þátttökurétt í meistaradeild Evrópu hafi Sara sett stefnuna á Evrópumeistaratitilinn. „Þá var það ákveðið,“ segir Guðrún. Foreldrarnir, Guðrún og Gunnar Svavarsson, hafa stutt Söru vel frá byrjun og reglulega farið út til þess að sjá leiki með henni. Meðal annars farið á alla bikarúrslitaleiki Wolfs- burg, sem Sara hefur leikið síðan hún gekk til liðs við þýska liðið 2016. Vegna kórónuveirufaraldursins hafa þau ekki mætt á leik á þessu ári og eru það mikil viðbrigði. „Árið hefur verið undarlegt,“ segir Guðrún, sem ætlaði með Gunnari á fyrsta leik Söru í frönsku deildinni, sem hefst á ný á laugardag, en þau verða að bíða um stund. „Sara varð Þýskalands- og bikarmeistari með Wolfsburg, en vegna veirunnar gátum við ekki fagnað með henni ytra. Á fyrri hluta ársins vorum við sannfærð um að hún yrði Evrópumeistari með Wolfs- burg og ætluðum að styðja hana og liðið í úrslitaleiknum, sem var settur á í maí, en svo héldum við auðvitað með Lyon, þegar úrslitaleikurinn fór loksins fram. Hvað annað!“ Lyon hafði orðið Evrópumeistari fjögur ár í röð áður en kom að úr- slitaleiknum á móti Wolfsburg í San Sebastian á Spáni í fyrrakvöld. Guð- rún bendir á að sú staðreynd hafi ekki slegið á spennuna og neglurnar hafi verið komnar upp í kviku áður en yfir lauk. „Stelpurnar í Wolfsburg komu sterkar inn eftir markið frá Popp og við þekkjum það frá fyrri reynslu að með svona auknum krafti getur allt gerst. Leikurinn hefði get- að farið í framlengingu og þar hefði allt getað gerst. Ekkert er öruggt í fótbolta og þótt Lyon sé með betra lið gerast oft óvæntir hlutir. Barce- lona var miklu betra en Wolfsburg í viðureign liðanna, meira með bolt- ann, en tapaði. Betra liðið vinnur ekki alltaf en það gerðist þó í úrslita- leiknum.“ Þar sem Sara innsiglaði 3:1-sigur undir lokin. Fjölskyldan sat heima Við Brúarárfoss Í jólafríi 2018. Benedikta Björnsdóttir, maður hennar Örn Ingi Gunnarsson, dóttir hennar og stjúpdóttir hans Benedikta Björns- dóttir, Guðrún Valdís Arnardóttir, Gunnar Svavarsson og Sara Björk.  Ættingjar Söru Bjarkar urðu að horfa á úrslitaleikinn í Meistaradeildinni í sjónvarpi vegna samkomubannsins AFP Einbeitt Sara Björk Gunnarsdóttir með augun á boltanum í úrslitaleiknum gegn Wolfsburg í San Sebastian á Spáni á sunnudagskvöldið. w w w.i tr.is L augarnar í Reykjaví k 2m Höldum bilinu ogsýnumhvert öðru tillitssemi ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 245. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Lágmarkið fyrir leikana er 77,50 metrar en er sett þannig upp að um það bil sextán komast inn út á lág- markið og aðrir sextán komast inn út á stöðu á heims- lista. En ég þarf að ná svipuðu kasti aftur á næsta ári þegar tímabilið til að ná lágmarki er í gangi. Ég þarf að að eiga sterkt ár á næsta ári og þarf að ná þessu fram fyrr á árinu en gerðist núna. Mín tilfinning er sú að ég eigi hálfan metra eða metra inni í ár en maður veit ekki hvað gerist á næsta ári,“ segir sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson m.a. við Morgunblaðið í dag. »26 Hilmar Örn líklegur til að vinna sig inn á Ólympíuleikana í Tókýó ÍÞRÓTTIR MENNING Skáldsaga Jóns Kal- mans Stefánssonar, Saga Ástu, hlýtur frönsku Folio des li- braires-bóksalaverð- launin í ár. Sagan kom út á íslensku ár- ið 2017, hjá frönsku útgáfunni Grasset ár- ið 2018 og í Folio- seríu útgefandans Gallimard í haust sem leið. Saga Ástu hefur hlotið framúrskarandi dóma franskra gagnrýnenda og þá hef- ur þýðing Erics Boury hlotið mikið lof. Bóksalaverð- launin frönsku eru veitt í samstarfi við menningar- tímaritið vinsæla Télérama og er þetta í þriðja skipti sem verðlaunin eru veitt. Tæplega þrjú hundruð bók- salar í Frakklandi, Belgíu og Sviss tóku þátt í að velja þá bók sem þeim þótti bera af í kiljuútgáfu á frönsku á liðnu ári og var Saga Ástu hlutskörpust. Saga Ástu eftir Jón Kalman hreppti verðlaun franskra bóksala

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.