Morgunblaðið - 07.09.2020, Side 1

Morgunblaðið - 07.09.2020, Side 1
M Á N U D A G U R 7. S E P T E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  210. tölublað  108. árgangur  MARGVERÐ- LAUNAÐUR RITHÖFUNDUR GRÁTLEGT TAP GEGN ENGLENDINGUM Á MÖRKUM VERULEIKA OG ÍMYNDUNAR ÍÞRÓTTIR 26 ÁTTUNDA BÓKIN 28GUÐRÚN 85 ÁRA 24-25 Ákall um meðalhóf » Aukinnar ólgu gætir víða gagnvart sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. » Bent á Ísland sem fyrir- mynd. » Aðgerðir íslenskra stjórn- valda hófstilltar á alþjóðavísu. Mótmæli gegn sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda hafa víða breiðst út að undanförnu, einkum í Evrópu, en þau þykja sums staðar hafa við- haldið of víðtækum og of ströngum ráðstöfunum nú þegar veiran virð- ist á undanhaldi. Óþreyjan hefur víða aukist eftir því sem efnahagsafleiðingar að- gerðanna hafa bitið harðar, mörg- um þykir þrengt að frelsi sínu, en eins hefur langvinn einangrun frá mannlegu samneyti vafalaust haft sitt að segja. Í alþjóðlegum samanburði hafa sóttvarnaaðgerðir íslenskra stjórn- valda verið í hófsamara lagi, þótt gagnrýnisraddir megi einnig finna hér á landi. Í grein í Morgun- blaðinu í dag er rakinn munur á stjórnvaldsaðgerðum ríkja heims í baráttu við kórónuveiruna, en þar blasir við að íslensk stjórnvöld hafa alls ekki gengið jafnharka- lega fram og víða annars staðar er gert. Það á einnig við um hömlur á millilandaferðum og ljóst að ferða- þjónustan stendur víða verr. Það ætti því ekki að koma mjög á óvart að í sumum löndum, til dæmis í Bretlandi, er farið að benda á Ísland sem fyrirmynd í því hvernig beita megi meðalhófi í sóttvörnum. Óþreyja gagnvart sóttvörnum  Harðar sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda sæta gagnrýni víða á Vesturlöndum  Ísland með hófstilltar og árangursríkar aðgerðir í alþjóðlegum samanburði MSóttvarnaaðgerðir … »10 AFP Kórónuveiran Grímulaus mótmæli gegn sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda hafa víða brotist út að undanförnu, þar á meðal í Rómaborg um helgina.  Snjóskaflinn í Gunnlaugsskarði í Esjunni mun væntanlega lifa af líð- andi ár – og hvíta skellan í vestur- hlíðum Kistufells fer senn undir snjó. Þetta er mat Halldórs Björns- sonar veðurfræðings sem fylgist vel með framvindu mála. Hann bendir á að síðastliðinn vetur hafi verið snjóþungur og mikill snjór sest í fjöll. Þá hafi hitastig í sumar verið -0,4 gráðum undir meðaltali síðustu tíu ára. Allt hafi þetta áhrif svo skaflinn haldi velli, en stærð hans þykir almennt góður mælikvarði á hitastig og veðráttu á landinu. »6 Esjuskaflinn hverfur ekki þetta sumarið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skafl Hvítur blettur vestanvert í Kistufelli.  Framkvæmdastjóri Basko segir að þegar litið er í baksýnisspegilinn sé ekki alltaf hægt að fullyrða að afskipti Samkeppnisyfirlitsins á matvörumarkaði hafi verið neyt- endum til gagns. Basko, sem rekur 10-11-, Extra- og Kvikk-búðirnar, hyggst auka markaðshlutdeild sína á komandi misserum. Áhugaverð þróun er að eiga sér stað í framboði á alls kyns vörum og þjónustu á bensínstöðvum þar sem fara saman starfsemi móður- félagsins Skeljungs, verslanir Kvikk, póstþjónusta, lyfjasala og sá möguleiki að sækja matar- innkaupin fyrir heimilið eftir að hafa gert pöntun á netinu. »12 Morgunblaðið/Árni Sæberg Þróun Sigurður við nýja verslun Extra. Afskiptin ekki alltaf neytendum til gagns Í Hveragerði er nú unnið að bygg- ingu alls 180 nýrra íbúða. Mest er þó byggt í svonefndu Kambalandi vest- ast í bænum. Þar er verið að smíða alls 100 eignir, sem verða í einbýli, raðhúsum og blokkum. Einnig er talsvert byggt á svæðum í miðju bæjarins, þar sem gróðrarstöðvar voru áður svo sem blómaskálinn Eden, sem brann fyrir um áratug. „Íbúum fjölgar, bærinn stækkar og samfélagið breytist,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri um þró- un mála. Hvergerðingar eru sam- kvæmt allra nýjustu tölum 2.743 en voru 2.310 fyrir áratug. Þróunin er hin sama sé lengri tími hafður sem viðmið. Lægra fasteignaverð en á höfuð- borgarsvæðinu er nefnt meðal skýr- inga á fjölgun og framkvæmdum í Hveragerði. Margir kjósi síðan að sækja vinnu til dæmis í Reykjavík, sem sé hægur vandi, til viðbótar því að fjarvinnsla færist í vöxt. Bæjar- félagið hefur þurft að bregðast við vexti þessum með margvíslegri upp- byggingu. Margt er undir, m.a. um- fangsmikil endurgerð á sundlaug- inni í Laugaskarði. »11 Mikið er byggt og íbúunum fjölgar  Verið að reisa um 180 nýjar íbúðir í Hveragerði  Samfélagið er að breytast Morgunblaðið/Eggert Hveragerði Framkvæmdagleði er mikil í sveitarfélaginu þessa dagana.  Með nýjum samkomureglum stjórnvalda gefst aukið svigrúm fyr- ir leiksýningar, tónleika og aðra við- burði. Skrefið dugir þó ekki til að Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið dragi tjöldin frá stóru sviðunum. Svanhildur Konráðsdóttir, for- stjóri Hörpu, segir nýja nándar- reglu skipta miklu máli en er von- svikin yfir að rýmkun fjöldatak- marka gangi ekki lengra og hafði vonast eftir stærra skrefi, í átt að 3-400 manns. »4 Hefði viljað taka stærri skref

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.