Morgunblaðið - 07.09.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020
Nemandi við Verzlunarskólann
greindist með kórónuveiruna um
helgina. Fjórtán nemendur og tveir
kennarar eru í kjölfarið komnir í
sóttkví. Að sögn Inga Ólafssonar
skólastjóra fór nemandinn í einu og
öllu eftir sóttvarnareglum skólans,
sem er hólfaður niður, því standi
vonir til þess að fleiri hafi ekki smit-
ast.
Sama dag greindust þrjú ný inn-
anlandssmit á sameiginlegri deild
sýkla- og veirufræðideildar Land-
spítalans og Íslenskrar erfðagrein-
ingar, en allir þrír voru í sóttkví við
greiningu. Þá greindust þrjú smit
við landamæraskimun.
Margir sjúkraflutingar eru í
tengslum við kórónuveiruna, þar
sem fólk í sóttkví er flutt til og frá
sýnatöku. Samkvæmt upplýsingum
frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
eru slíkir flutingar á bilinu 3-6 á dag.
Á heimasíðunni covid.is segir að
nú sé 81 einstaklingur í einangrun
og 375 í sóttkví. Alls voru 1.149 sýni
tekin á landamærunum á laugardag
og 343 hjá ofangreindri deild Land-
spítala/Íslenskrar erfðagreiningar.
Nemandi smitaður
af kórónuveirunni
Ljósmynd/SHS
Covid-19 Sjúkraflutningamenn
flytja fólk til og frá sýnatöku.
Sjúkrabílar not-
aðir til flutnings
Sighvatur Bjarnason
sighvaturb@mbl.is
Samkomuhaldarar anda eilítið léttar
í dag vegna tilslökunar á reglum
stjórnvalda en segja nokkuð í land
með að starfsemi komist í hefð-
bundið horf. Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra hefur birt nýja
reglugerð sem tekur gildi í dag, þar
sem nálægðarreglum er breytt úr
tveimur metrum í einn og hámarks-
fjöldi þeirra sem mega koma saman
fer úr 100 í 200 manns.
Draga tjöldin frá
„Þetta er mikilvægt skref í því að
koma menningarlífinu í gang á ný,“
segir Magnús Geir Þórðarson þjóð-
leikhússtjóri. Leikhúsin hafa verið í
samtali við sóttvarnayfirvöld um þau
skref sem taka megi í átt að aflétt-
ingu takmarkana og með nýjum
reglum segir Magnús að hægt verði
að sýna í smærri sölum Þjóðleik-
hússins. Sýningar á stóra sviðinu
verði þó að bíða næsta skrefs, en
hann segist vongóður um að þá verði
nándartakmörk gerð valkvæð og há-
marksfjöldi færður upp í 500 manns.
Þá megi blása lífi í alla starfsemi
leikhússins á ný.
Hjálpar til við skipulagningu
Starfsemi hefur verið í Hörpu frá
því í byrjun maí og segir Svanhildur
Konráðsdóttir forstjóri að nýjar
reglur muni liðka frekar til við starf-
semina og auðvelda viðburðahöld-
urum að skipuleggja haustið. Hún
segir að eins metra reglan skipti
„heilmiklu máli“ en fjöldatakmörkun
muni þó gera stóra viðburði í Eld-
borgarsal „mjög erfiða“. Hún segist
vonsvikin með að ekki var lengra
gengið í þessu skrefi, en tekur þó
fram að í Hörpu sé hægt að vinna
með ólík rými og laga að sóttvarna-
reglum hverju sinni. Þannig hafi því
verði háttað og svo verði áfram.
Aukið svigrúm í kirkjusókn
Samkomutakmarkanir hafa haft
áhrif á starfsemi kirkjunnar og segir
Pétur G. Markan, samskiptastjóri
Biskupsstofu, að skipulagið verði
endurskoðað í takt við nýjar reglur.
Hefðbundin verkefni, s.s. jarðar-
farir, messur og fermingar, hafi orð-
ið fyrir barðinu á samkomutakmörk-
unum en nýjar reglur liðki fyrir því
að ástandið komist í venjulegt horf.
Pétur segir að áhersla verði áfram
lögð á að fólk gæti sín í samskiptum
og sóttvarnareglur njóti alls vafa líkt
og biskup hefur lagt áherslu á.
Aðrar breytingar á samkomu-
takmörkunum eru þær að hámarks-
fjöldi í sundlaugum og líkamsrækt-
arstöðvum fer úr 50% í 75% af
leyfilegum hámarksfjölda sam-
kvæmt starfsleyfi, en afgreiðslutími
vínveitingastaða verður áfram tak-
markaður til klukkan 23.
Mikilvægt að
koma menning-
arlífinu í gang
Samkomur og sviðslistir njóta góðs
af nýjum sóttvarnareglum ráðherra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samkomur Búast má við fjölgun
leikhúsgesta með nýjum reglum.
Nýjar samkomureglur
» Nálægðarregla úr tveimur
metrum í einn.
» Hámarksfjöldi á samkomu
úr 100 í 200 manns.
» Liðkar til við opnun leik-
húsa, tónleika og annarra við-
burða.
» Eldborgarsalur og stóra svið
Þjóðleikhúsins ónýtt um sinn.
» Enn nokkuð í land með að
viðburðahald verði með eðli-
legum hætti.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Við gátum ekki verið heppnari með
veður í göngunum. Sól og blíða og
hitastigið kannski í það hæsta fyrir
fé í ullargærum,“ segir Jónas Er-
lendsson, bóndi í Fagradal í Mýrdal
og fréttaritari Morgunblaðsins.
Bændur þar í sveit smöluðu afrétt-
arlönd sín um helgina, það er Dals-
og Heiðarheiðar sem ná yfir svæðið
frá suðursporði Mýrdalsjökuls og
fram í byggð. Um tuttugu manns
tóku þátt í verkefninu, sem tók all-
an daginn. Féð var rekið inn á
heimalönd bænda og einnig í rétt
við Skagnes og dregið þar í dilka
Sultarfit á reginfjöllun
Flóa- og Skeiðamenn fara á afrétt
sinn í dag, mánudag. Ágúst Ingi
Ketilsson, fjallkóngur í vesturleit,
fer með sínu fólki, 20 manna hópi,
að Sultarfit, sem er inni á reginfjöll-
um. Þaðan er féð rekið fram til
byggða. Í austurleit, sem Skeiða-
menn sjá um, eru 24 fjallmenn. Á
fjalli eru nú um 5.000 fjár og safnið
verður rekið niður í byggð á föstu-
dag. Reykjaréttir á Skeiðum eru
svo á laugardag og verða nú með
talsvert breyttum brag og ekki það
mannamót sem verið hefur vegna
sóttvarnareglna.
Á laugardag komu smalamenn í
Víðidal í Húnaþingi vestra niður til
byggða, en smalamennska á heiðum
þar tafðist um tvo daga vegna þoku.
Göngurnar tóku því sjö daga í stað
fimm og smalarnir komu fyrst til
byggða á laugardag. Féð var svo
dregið í dilka í Valsárrétt í Fitjarár-
dal í gær, sunnudag, en ekki síðast-
liðinn föstudag eins og hefðin býð-
ur. Alls voru um 3.000 fjár í réttinni
en um 5.000 í Víðidalsrétt, hinum
réttunum í dalnum.
„Við fengum ágætt veður í
morgun og réttarstörfin
gengu greiðlega fyrir sig,
sem var eins gott eftir þær
tafir og hrakninga
sem fólk lenti í. Eft-
ir hádegi var svo
komin rigning og
kuldi,“ sagði
Sigríður Ólafs-
dóttir, réttar-
stjóri og bóndi
í Víðidals-
tungu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fé Kindur dregnar upp úr Heiðargilsá af ungum bóndasonum úr Mýrdal sem kunna að bjarga málunum.
Smalar á ferðinni og
féð rennur til byggða
Göngur voru víða um helgina Flóamenn ætla á fjall í dag
Vel gekk að smala af fjalli,
segir Atli Már Traustason,
bóndi á Syðri-Hofdölum í
Skagafirði. Þar á bæ gengu
menn til smölunar um helgina
við góð skilyrði en áhrif haust-
lægðarinnar höfðu þar lítil
áhrif. Að sögn Atla er snjór í
fjallstoppum en það hafi ekki
komið að sök.
Spurður um áhrif fjöldatak-
markana segir hann þau vera
lítil enda sé ekki slíkur
fjöldi sem sækir fjárréttir
í dreifðari byggðum.
Meira sé um gesti og
gangandi í stærri rétt-
um og við stóðréttir,
sem líklega þurfi að að-
gangsstýra að einhverju
leyti.
Allir komast
að sem vilja
GÓÐAR GÖNGUR
Atli Már Traustason