Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.09.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 2020 HVER restaurant á Hótel Örk er fyrsta flokks veitingastaður, fullkominn fyrir notalegar gæðastundir með vinum, fjölskyldu eða vinnufélögum. GIRNILEGUR OG SPENNANDI MATSEÐILL Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is Viðskiptablaðið fjallar í einniaf ritstjórnargreinum sínum, Tý, um málefni Samherja og Rík- isútvarpsins. Þar segir meðal annars: „Kom- ið hefur í ljós að vart stóð steinn yfir steini um meinta und- irverðlagn- ingu Samherja sem fjallað var um í Kastljósi í mars árið 2012.    Samherji hefur nú kært hlutastarfsmanna RÚV til siða- nefndar stofnunarinnar fyrir þátttöku þeirra í umræðum um málefni Samherja á samfélags- miðlum. Siðareglurnar eru skýr- ar: „Starfsfólk, sem sinnir um- fjöllun um fréttir, fréttatengt efni og dagskrárgerð, tekur ekki opinberlega afstöðu í umræðu um pólitísk málefni eða umdeild mál í þjóðfélagsumræðunni, þ.á m. á samfélagsmiðlum.“    Nú er það svo að engin siða-nefnd hefur verið skipuð í rúmt ár enda eru siðareglurnar, að sögn útvarpsstjóra, til endur- skoðunar. Týr veit ekki hversu mikils virði siðareglurnar eru í huga starfsmanna RÚV en hann efast þó ekki um að nokkrir vel valdir einstaklingar verði skip- aðir með hraði og vísi kvörtun Samherja frá.    Þorsteinn Már Baldvinsson,forstjóri Samherja, hefur sagt að Samherji eigi engan möguleika á því að fá hlutlausa umfjöllun hjá Ríkisútvarpinu. Áhyggjur hans eru að mörgu leyti skiljanlegar þar sem hópur starfsmanna RÚV hefur lýst yfir vanþóknun sinni og fyrirlitningu á honum og fyrirtækinu á sam- félagsmiðlum.“ Lögboðið hlutleysi í framkvæmd STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bústnar birkiemblur voru gróð- ursettar í Skálholti um helgina, fyrstu trén í skírnarskógi þjóðkirkj- unnar. Hugmyndin er að planta einu tré fyrir hvert nýskírt barn í land- inu. Kirkjan á jarðir víða og verða reitir úr þeim valdir til að gróður- setja í. Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sig- urðardóttir, flutti ávarp við gróð- ursetninguna og sagði þetta skv. umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar þar sem væri hvatt til lífsstíls sem drægi úr losun gróðurhúsalofttegunda og sóun orku og matar. Umhverfis- málin eru í brennidepli í kirkjustarfi kirkjunnar sem og skírnarfræðslan. Að flétta saman skírn og umhverfis- mál þykir snjöll flétta. Hildur Björk Hörpudóttir á fræðslusviði Bisk- upsstofu átti hugmyndina. sbs@mbl.is Skírnarskógur verður í Skálholti Ljósmynd/Pétur Markan Skógrækt Agnes M. Sigurðardóttir flutti ávarp við gróðursetninguna. Hallfríður Ólafsdóttir, tónlistarmaður og höf- undur bókanna um Maxímús Músíkús, lést 4. september á líknar- deild Landspítalans, 56 ára að aldri, eftir glímu við krabbamein. Hallfríður fæddist 12. júlí 1964 í Kópavogi og ólst þar upp. Foreldrar hennar eru Ólafur Tóm- asson og Stefanía María Pétursdóttir. Hallfríður nam tónlist á Íslandi, í London og París. Hún lauk bæði ein- leikaraprófi og blásarakennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og bætti við sig framhaldsprófum frá Royal Northern College of Music og Royal Academy of Music, auk einka- tíma í París. Hallfríður var leiðandi flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands í rúma tvo áratugi og hefur leikið einleiks- konserta reglulega með hljómsveit- inni. Hallfríður er stofnandi kammer- hópsins Camerarctica og hefur einnig sinnt uppfræðslu ungs tónlistarfólks af ákafa, bæði í flautuleik og með þjálfun tréblásaradeilda ýmissa sin- fóníuhljómsveita ungliða. Síðustu ár- in sinnti hún í auknum mæli hljóm- sveitarstjórn og hefur stjórnað tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands og margra fleiri hljómsveita. Hallfríður var höfundur og list- rænn stjórnandi fræðsluverkefnisins um Maxímús Músíkús sem hún skrifaði og vann í samvinnu við teikn- arann og víóluleikarann Þórarin Má Baldurs- son, Sinfóníuna, RÚV og Forlagið. Hallfríður og Þórarinn hlutu bæði Fjöruverðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkur ársins 2008 fyrir fyrstu bók- ina, „Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina“. Hefur verkefnið einnig hlotið fjölda tilnefn- inga til verðlauna hérlendis sem er- lendis, og bækurnar þýddar á fjölda tungumála. Árið 2002 var Hallfríði veitt heiðursnafnbót hjá The Royal Academy of Music í London og vorið 2003 hlaut hún titilinn Bæjar- listamaður Garðabæjar. Fyrir frum- kvöðulsstarf sitt í þágu tónlistar- fræðslu hlaut Hallfríður fálkaorðuna árið 2014 og titilinn Eldhugi ársins frá Rótaryklúbbi Kópavogs vorið 2017. Í apríl 2019 fékk hún heiðurs- viðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands og í júní sl. var henni veitt heiðursviðurkenning frá Garða- bæ fyrir mikilvægt framlag til menn- ingar og lista. Eiginmaður Hallfríðar er Ármann Helgason tónlistarmaður og börn þeirra eru Gunnhildur Halla og Tryggvi Pétur. Andlát Hallfríður Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.